Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 6

Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ h FRÉTTIR Endurbygging Reykjavíkurflugvallar hefst næsta sumar Framkvæmdum skipt í þrjá áfanga ENDURBYGGINGU Reykjavík- urflugvallar verður skipt upp í þrjá áfanga. Stefnt er að því að framkvæmdir við fyrsta áfangann, endurbætur á austur-vesturbraut, hefjist næsta sumar. Framkvæmd- ir við lokaáfangann, endurbygg- ingu norður-suðurbrautar og flug- hlaða, eiga að hefjast árið 2002 og vera lokið sama ár. Kostar 1,5-1,6 milljarða króna Varið verður um 200 milljónum króna til verksins á næsta ári en heildarframkvæmdakostnaður er á bilinu 1,5-1,6 milljarður króna. Ekki er gert ráð fyrir að flugvell- inum verði lokað á fram- kvæmdatímanum en afkastagetan skerðist tímabundið. Gert er ráð fyrir því að útboð á fyrsta áfanga verði í lok mars á næsta ári og fer það fram á evr- F ramkvæmdum við lokaáfanga lokið árið 2002 ópska efnahagssvæðinu. Ekki er frágengið hvemig staðið verður að útboðum á öðram áfóngum verks- ins. Ráðgert er að framkvæmdir geti hafist í byrjun júlí. Meðan á þeim stendur verður norður-suð- urbraut notuð fyrir flug en einnig er hugsanlegt að hluti austur-vest- urbrautar verði opinn. Mikil timamót Þorgeir Pálsson flugmálastjóri, sem hefur unnið að undirbúningi framkvæmdarinnar, segir að hér sé um mikil tímamót að ræða. Menn hafi gert sér grein fyrir að löngu væri tímabært að gera við flugvöllinn sem væri aðalmiðstöð innanlandsflugsins en rúmlega 90% af öllum farþegum í innan- landsflugi fara um þennan flugvöll. Hann segir að þar sem verkið hefjist vart fyrr en um mitt næsta ár verði helmingur fyrsta áfang- ans, vestur-austurbrautarinnar, unninn á fyrsta árinu. Stefnt er að því að endurbyggingu seinni helm- ings brautarinnar verði lokið áríð 2000 ásamt brautarmótunum. Arið 2001 er ráðgert að endurbyggja suðurhluta norður-suðurbrautar og akstursbraut meðfram henni. Arið 2002 er síðan ráðgert að end- urbyggja norðurhluta norður-suð- urbrautar, akstursbraut og flug- hlöð. Samkvæmt deiliskipulagi sem nú er verið að leggja síðustu hönd á er gert ráð fyrir nýrri flugstöð sem þó er ekki hluti af fyrirliggj- andi framkvæmdaáætlun. t T-Á.i'V-vj Framkvœmdir 1999 Framkvœmdir 2000 Framkvœmdir 2001 Framkvœmdir 2002 100 200 300 400 500 m s Reykjovíkurflugvöllur Orög oö Öfongaskiptlngu framkvemda {asftt ÆB&íSfiSisrjz. j HM> |T«Mk tlMNB ■>*»* r=: | »nua l»l 964 1 J 1 89 1. Morgunblaðið/Jón Svavarsson VÖRUBÍLSPALLURINN, sem sést lengst til vinstri, skildi eftir stórt skarð í hesthúsinu sem hann féll á í hesthúsahverfinu í Mosfellsbæ. Vörubílspallur hafnaði inni í hesthúsi PALLUR af malarflutningabíl hafnaði inni í hesthúsi við Drífu- bakka í hesthúsahverfinu í Mos- fellsbæ síðdegis í gær eftir að pallfestingarnar á bílnum brotn- uðu þegar verið var að dreifa úr honum hlassi. Að sögn Guðfinns Vilhjálms- sonar, sem var í hesthúsinu þeg- ar óhappið varð, mátti engu muna að pallurinn lenti á honum sjálfum og hestum sem voru í húsinu. „Pallurinn valt bara ofan á húsið og inn í hlöðuna. Það slasaðist sem betur fer enginn en ég stóð þarna mjög nálægt og var því heppinn. Mér dauðbrá hins vegar þar sem þetta gerist ekki á hveijum degi,“ sagði Guð- finnur. Hann sagði að fimm hestar hefðu verið í húsinu þegar pall- urinn féll á það en engum þeirra hefði orðið meint af. HOLTAGARÐAR OPIÐ í DAO TIL KU I8UO Félagsmenn í Dagsbrún/Framsókn Samþykktu að rifta kj arasamningunum FÉLAGSMENN í Dagsbrún/ Framsókn, sem starfa hjá Reykja- víkurborg, hafa samþykkt með mikl- um meirihluta greiddra atkvæða að heimila riftun kjarasamninga við borgina. Á kjörskrá voru 928 en 240 greiddu atkvæði, eða 26%. Samþykk- ir riftun voru 88% þeirra sem þátt tóku en 9,5% voru á móti. Tilefni riftunarinnar er deila félagsins við borgina vegna þess að samfara nýráðningu fólks sem sér um ræstinga í skóla undir nýju starfsheiti skólaliða og breytingu á starfssviði þess hefur það verið að færast inn í Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar. Forystumenn Dagsbrúnar/Fram- sóknar töldu að þetta væri óheimilt vegna þess að í gildi væri kjarasamn- ingur sem byndi báða aðila til ársins 2000, en félagsdómur dæmdi borg- inni í vil. Halldór Björasson, formað- ur Dagsbrúnar/Framsóknar, segir að borgin hafí eftir það gefíð loforð um að taka ekki upp skólaliðafyrirkomu- lagið í fleiri skólum án samráðs við félagið, en það hafi verið svikið. A Obreytt líðan FARÞEGI bifreiðai-innar, sem fór út af veginum við Hrútafjarðarháls á sunnu- dagskvöld, liggur enn á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur með alvarlega mænu- og hálsáverka. Að sögn aðstoðarlæknis á heila- og taugaskurðdeild era vonir bundnar við að sjúklingurinn verði fluttur af gjörgæslu- deild yfir á heila- og tauga- skurðdeild í lok vikunnar. Líðan hans er eftir atvikum góð og er hann ekki í lífs- hættu. Ibúðareigendur torveldi innbrotsþjófum aðgengi TVEIR menn vora handteknir á mánudag og aðfaranótt þriðjudags fyrir þrjú innbrot inn á heimili í miðbænum og í vesturbænum. I fyrradag var brotist inn á heimili við Miklubraut og stolið þaðan verðmætum fyrir um eitt hundrað þúsund krónur. Hafði þjófurinn brotist inn um aðaldyr íbúðarinnar að degi til þegar húsráðendur vora að heiman og látið greipar sópa. Hann hefur ekki náðst enn. Þjófur- inn braut gler í útidyrahurð íbúðar- innar með steini, sem lá á gólfínu og blasti við húsráðanda er hann kom heim til sín að loknum vinnu- degi. Þjófurinn hafði farið inn í stofu og tekið helming af geisladiskasafni heimilisins, hljómflutningstæki og þráðlausan síma og farið þaðan inn í svefnherbergi hjónanna. „Þar hafði verið rótað í skápum og hvolft úr skartgripaskríni konu minnar,“ sagði húsráðandi í samtali við Morgunblaðið. „Tæmt hafði verið úr skjalatösku minni og henni stolið, líklega til að bera þýfið í og einnig fór þjófurinn inn í eldhús og tæmdí úr söfnunarbauk Hjálpar- stofnunar kirkjunnar, sem í vora nokkur hundruð krónur. Fjölskyld- unni varð ekki svefnsamt um kvöld- ið vegna tilhugsunarinnar um að ókunnugir hefðu raðst inn á heimil- ið og að þeir gætu hugsanlega kom- ið aftur.“ Skáka í skjóli nætur Innbrotsþjófar skáka í skjóli nætur, að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar aðstoðaryfirlögreglu- þjóns. I dimmasta mánuði ársins, sem nú fer í hönd, gefst þeim enn betra svigrúm til að brjótast inn að degi til. Þótt nýleg dæmi sýni að innbrotsþjófar svífast einskis í leit sinni að verðmætum, segir Ómar Smári að samkvæmt bókum lög- reglunnar séu ekki merki þess að þjófar séu óvenju bíræfnir nú frem- ur en venjulega. Tíðni innbrota í heimahús er ekki hærri í desem- bennánuði miðað við aðra mánuði ársins þótt auðgunarbrotum fjölgi verulega í desember, einkum hnupli úr verslunum. Ástæða er þó fyrir borgara að gera allar þær ráðstafanir, sem mögulegar eru, til að minnka lík- urnar á að verða fyrir tjóni af völd- um innbrotsþjófa. Góð lýsing í kringum heimili er mikilvæg og einnig hefur samkomulag milli nágranna um að þeir gæti hver ann- ars heimilis dugað vel. Nágrannar geta fylgst með mannaferðum og skráð hjá sér númer grunsamlegra bifreiða og haft auga með gransam- legum mannaferðum. Þá géta hús- ráðendur gert innbrotsþjófum erfíð- ara fyrir en ella með því að ganga vel frá öllum opnanlegum fögum og sé ætlunin að skilja heimilið eftir autt í tiltekinn tíma má ekki gefa það óþarflega til kynna með skila- boðum þess efnis á símsvara. Gott er að tryggja reglulegan umgang ættingja eða vina meðan dvalið er íjarri og hafa það jafn- framt hugfast að innbrotsþjófar velja sér heimili fólks með fyrirvara og hafa fyrir því að rannsaka hvenær þeim sé óhætt að brjótast inn. Þeir hringja jafnvel í símanú- mer heimila til að finna út á hvaða tímum fólk er helst heima og að heiman að sögn lögreglu. Það sem innbrotsþjófar sækjast helst eftir era ýmis heimilis- og raf- magnstæki, sem era meðfærileg og koma má í verð með skjótum hætti svo sem hljómflutningstæki, sjón- vörp, myndbandstæki og því um líkt. Afsláttur á tryggingum vegna þjófavama Mismunandi er hvemig brotaþol- ar eru tryggðir gagnvart innbrotum, en ti-yggingar, sem bæta skaða vegna innbrota eru frjálsar og því er það á hendi íbúðareigenda hversu mikla áhættu þeir taka á því sviði. Hins vegar stendur mönnum til boða afsláttur á tryggingum setji þeir upp þjófavai’narkerfí á heimilum sínum og ennfremur er starfrækt endur- greiðslukerfi hjá Sjóvá-Almennum, sem virkar í stórum dráttum líkt og bónuskerfi bifreiðatrygginga. t. I Hnnw------------------........................................ W'"'"'"'3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.