Morgunblaðið - 09.12.1998, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 35
Með frægu
ÆVISAGA
HESTS
BÆKUR
Itlandað efni
A LÍFSINS LEIÐ
BÆKUR
Itarnabók
FAGRI BLAKKUR
eftir Ann Sewell. Þýðandi:
Jóhanna G. Erlingsson. Myndskreyt-
ing: Dinah Dryhurst. Skjaldborg,
1998 - 168 síður.
FAGRI Blakkur er sígild bresk
saga sem upphaflega kom út árið
1877. Höfundurinn, Ann Sewell,
var kvekari og er þetta eina bók
hennar sem orðið hefur fræg. Sag-
an ber þess öll merki að höfundur
hefur næma tilfinningu fyrir órétt-
læti og syndum heimsins og það
samspil dýra og manna sem hún
sýnir í sögunni hefur gert hana sí-
gilda. Oftast er bókin þó stytt og í
kvikmyndum sem gerðar hafa ver-
ið um þennan fagra hest, er lítið
orðið eftir af sögunni sjálfri.
Sagan segir frá hesti og er hún
sögð af honum sjálfum og með
hans eigin vangaveltum um það
sem fyrir hann ber á langri
hestsævi. Sagan hefst þegar hann
er ungt folald og er síðan rakin frá
einu lífsskeiði hans til annars. Um
leið er þetta bresk þjóðfélagslýs-
ing með ýmiss konar siðfræðilegu
ívafi. Hesturinn trúir t.d. á guð og
er bindindissinnaður, en viður-
kennir samt vanþekkingu sína á
ýmsum sviðum mannheima. Hann
kann vel að meta þegar vel er farið
að honum og lýsir líka sorg sinni
þegar hann sér dýrum og mönnum
misboðið eða misþyrmt á einhvern
hátt. Oft eru það ungar fallegar
konur eða saklaus börn sem benda
mönnum á að fara vel með dýrin
eða sýna þeim vinarhót. Sagan
hefur komið í nokkrum útgáfum á
íslensku og er þá stuðst við mis-
munandi texta. Þessi útgáfa er
mjög falleg, myndskreytt af ungri
• ÍSLENDINGAR dagsins er af-
mælisdagabók sem Jónas Ragnars-
son hefur tekið saman.
Við hvern dag eru birt nöfn
kunnra Islendinga sem fæddir eru
þann dag og orð í lausu eða bundnu
máli eftir eitthvert afmælisbarna
dagsins. Einnig eru birt rithandar-
sýnishorn á annað hundrað Islend-
inga.
I kynningu segir: „Eins og við er
að búast má sjá einkennilegar tilvilj-
anir í bókinni. Sem dæmi má nefna
að leikararnir Tinna Gunnlaugsdótt-
h- og Viðar Eggertsson eru bæði
fædd 18. júní 1954 og að feðgamir,
nafnarnir og rithöfundarnir Ólafur
Jóhann Sigurðsson og Ólafur Jó-
hann Ólafsson eru báðir fæddir 26.
september. Einnig má teljast sér-
kennilegt að tveir af forsetum
Iþróttasambands Islands fæddust
10. október."
Jónas Ragnarsson hefur áður sent
frá sér hliðstæða bók sem nefnist
Dagar íslands, en þar er atburðum
Islandssögunnar skipað niður eftir
dögum ársins.
Útgefandi er Vaka-Helgafell.
Bókin er240 bls. Oddi hf. prentaði.
Verð: 2.880 kr.
ástralskri stúlku sem sagt er að
hafi myndskreytt fleiri sígildar
sögur. Hestamyndir hennar eru
mjög listrænar og fíngerðar.
Þýðingin á þessari löngu sögu er
stirð á stundum og óíslenskuleg.
Of langt finnst mér farið út á þá
braut að fylgja breska frumtextan-
um og mér er til efs að sum orða-
notkunin verði skilin almennilega
af ungum Islendingum. Hversu
margir skilja t.d. skammaryrðið
„töti-ughypja“? (s. 141). Þetta er að
sönnu gott og gilt íslenskt orð, en
varla kæmi það úr munni ómennt-
aðs götustráks. Sama gildir um tit-
ilinn „essreki“ (s. 161) um þann
sem rekur hesta- eða vagnaleigu.
Ég er hrædd um að margir ungir
Islendingar viti ekki hvað þetta
orð merkir.
Aftan á kápu segir að myndlist-
annaðurinn hafi einnig mynd-
skreytt bækur á borð við „Litlar
konur“. Eflaust er hér átt við bók
Louisa May AJcott, Little women.
Þessi saga er vel þekkt á íslensku
og hefur einnig komið út í nokkr-
um þýðingum og þá undir heitinu
„Yngismeyjar". Svona ónákvæmni
er óþarfi þar sem upplýsingar um
barnabækur sem komið hafa út á
íslensku eru mjög vel aðgengileg-
ar.
Bókin er prentuð með örsmáu
letri og þétt á síðunum. Þótt það sé
oft skemmd á sígildum verkum að
stytta þau þá hefði þessi útgáfa
haft gott af styttingu, svo fjarri er
þjóðfélagsmynd sögunnar nútím-
anum. Textinn er ekki nógu
áhugaverður til að sagan höfði al-
mennt til unglinga nútímans. Það
þarf því mikinn áhuga á hestum og
tilveru þeirra og öllu varðandi
beisli og búnað til að hafa sig í
gegnum söguna.
Sigrún Klara Hannesdóttir
BROS
BÆKUR
G a m a n in á 1
BESTU BARNA-
BRANDARARNIR
- brjálað fjör. Káputeikning: Halla
Kristín Einarsdóttir. Prentrvinnsla:
Ásprent/POB ehf. Útgefandi: Bóka-
útgáfan Hóiar. 1998. - 88 síður.
VISSULEGA er erfitt að höndla
fyndni. Einum vekur hlátur er ann-
an snertir ekki. Uppeldi; þjóðemi;
kyn; aldur; allt skiptir þetta máli.
Það læðist að mér líka, að fyndið
orð á tungu liggi stundum andvana
á bókfelli, og af því dreg eg þá
ályktun, að látbragð og hljómfall
kitli kannske meir en orðið sjálft.
Því skal heldur ekki gleymt, að inni-
hald maga, ekki sízt vökvar, geri
furðulegustu orð sprenghlægileg.
Þessi bók, þrátt fyrir nafn, er
safn frásagna, sem glatt hafa menn
og konur, og því greipzt í minni.
Menn og konur skráði eg, verð þó
að viðurkenna, að mér virðist þetta
meiri karla fyndni en kvenna, það
er helzt að þær fái að reiða til
höggs á síðu 83. Þar eru þær þung-
hentar eftir allt ljóskuhnjóðið, og
lýsingar karla af því óláni, sem ást-
in hefii- fært þeim.
Hverjir völdu, veit eg ekki, en
þeir forðast þann íslenzka ósið að
halda aðeins klúrt fyndið, og ber
179 bls. Stoð og styrkur. Prentun:
Oddi hf. Reykjavík, 1998.
BÓK ÞESSI er gefin út til
styrktar Bamaspítala Hringsins og
forvamastarfi meðal barna. Eins og
gerist og gengur um víða veröld er
leitað til fræga fólksins þegar safna
skal fé til góðra málefna. í þessu
dæminu gerir fræga fólkið þó meira
en að ljá nöfn sín til styrktar góðum
málstað. Þrjátíu og þrír einstakling-
ar hafa ritað hver sinn þáttinn til
birtingar í bókinni. Þar sem hún er
aðeins ellefu arkir gefur augaleið að
þættirnir eru flestir mjög stuttir.
Og enginn langur. Misjafnir em
þeir þó að lengd, sumir röskar tvær
síður, aðrir allmiklu lengri. Lengst-
ur mun vera þáttur Steingríms J.
Sigfússonar alþingismanns, tuttugu
síður. Höfundamir segja þarna frá
einhverju sem á dagana hefur drif-
ið. Margur rifjar upp atvik frá
bernsku og æsku. Aðrir segja frá
minnisstæðum einstaklingum sem
þeir hafa fyi-irhitt á lífsleiðinni.
Sumir þættirnir eru endurprentað-
ir; hafa birst áður í öðrum ritum.
Svo er t.d. um Fáeinar myndir úr
minningunni eftir Friðrik Þór Frið-
riksson, þann ágæta kvikmynda-
gerðarmann sem varð svo stórfræg-
ur að tylla tánum á þröskuld sjálfra
Óskarsverðlauna. Fram kemur í
þættinum að Friðrik Þór hlaut kvik-
myndaáhuga sinn að erfðum nánast.
Sem barn naut hann þeima forrétt-
inda að komast inn á bannaðar kvik-
myndasýningar »í fylgd með full-
orðnum.« Þegar eitthvað rosalegt
var í aðsigi lagði faðir hans »svartan
hatt sinn yfir höfuð mér svo að al-
myrkvað varð fyrir augum mínum.
Þetta voru fyrstu kynni mín af kvik-
myndaeftirliti,« segir Friðrik Þór.
Siv Friðleifsdóttir nefnir þátt
sinn Skemmtilegur samferðamaður.
Forvitni lesandans er strax vakin.
Auðvitað ætlar kjarnakonan að
þeim þökk fyrir. Fyrir það líka, að
þeir (þau) reyna að vanda mál sitt,
tekst yfirleitt mætavel. En fyrst
Jónas frændi á afmæli í dag, og
þjóð heiðrar skáld með lofræðu-
skjalli innan um prúðbúin fyrir-
mennin, þá verð eg að benda á orð
eins og: brandari; brjálað fjör;
game over (24); vesen (65); partí
(66). Þessi orð hæfa íslenzkri bók
15. nóv. og 17., og alla hina daga
ársins, sé hún aðeins til skemmtun-
ar á tölvuna slegin, en ekki sext-
ánda, það er alveg af og frá. Nú
það eru villur á síðum 65 og 88,
meinlausar, en eg hló að jafnréttis-
áráttunni er birtist á síðum 71 og
39; 87 og 11, þar sem kvk. og kk.
eru felld í faðma, sömu gamanyrðin
flutt, aðeins breytt um kyn.
En hættum tuði og leyfum hlátri
að óma: „Þjónn, eruð þér með
segja frá ferðalagi með mótorhjóla-
köppum! Nei, ekki er það nú svo.
Líkast til með hliðsjón af tilgangi
útgefanda greinir hún frá kynnum
sínum af Jóhanni Pétri Sveinssyni
lögfræðingi sem var maður mikilla
hæfileika og bar mikla persónu en
var fatlaður sem mest mátti verða
og lést langt um aldur fram.
Ingibjörg Pálmadóttir segist í
fyrirsögn hafa erft ríkustu konu
landsins. í ljós kemur að ekki er átt
við við peningaauð, langt því frá,
heldur manngildi. Konan sú var
Margrét Guðnadóttir, »langamma
mín frá Miðkoti í Fljótshlíð«. Ingi-
björg er ekki ein um það í bók þess-
ari að hafa notið samvista við sér
eldra fólk í uppvexti. Kynslóð henn-
ar - kannski hin síðasta sem slíka
sögu hefur að segja - var ekki stíað
frá öðru fólki. Og langamma hennar
hafði mikið að gefa. »Slík minning
er ómetanleg arfleifð og minnir á
það,« segir Ingibjörg, »hvað er
mest virði þegar upp er staðið og
vekur mig oft til umhugsunar um
það hversu margir, sem virðast eiga
allt, hafa samt ekkert að gefa.«
Önnur kona, sem kemur úr ann-
ars konar stétt, sr. Soffía Helga
Konráðsdóttir, segir frá langdvölum
sínum erlendis og heimþránni sem
getur gripið fslendinginn í fjarlægu
landi þegar jólin nálgast. Eigi að
síður kveðst hún hafa átt góð ár er-
lendis. Því óski hún þess að útlend-
ingum, sem hér dveljast, megi líða
eins vel. Vonandi taka allir undir þá
ósk. Og fara eftir því!
Og þar sem nú hátíð ljóss og frið-
ar er í nánd hlýðir að staldra sér-
staklega við þátt biskupsins, herra
Ólafs Skúlasonar, I nýjan heim.
Biskupinn hverfur þar aftur til árs-
ins 1955. En á því herrans ári var
hann vígður til þjónustu við Vestur-
fslendinga í Mountain í Kanada. ís-
lendingar voru þá hvergi orðnir því-
líkir heimsborgarar sem þeir eru
orðnir nú. Presturinn ungi hafði að
vísu skroppið út fyrir landsteinana.
Kona hans aldrei! í New York kom í
ljós að þau höfðu misst af flugvél-
inni til Winnipeg. En ungu hjónin
grísalappir?" „Nei, ég geng bara
svona."
Lína gamla er orðin svo hrörleg
að í hvert skipti sem hún bregður
sér inn í fomgripaverslun reynir
einhver að fá hana keypta.
„Hefurðu séð ættartréð ykkar?“
„Ættartréð? Við eigum nú ekki
einu sinni rifsberjarunna!“
„Læknir, mig verkjar í hvert
einasta bein í skrokknum." „Þakk-
aðu fyrir að þú skulir ekki vera
síld.“
Á heimili prófessorsins: „Kemur
þú oft hingað, ljúfan?" „Ég er kon-
an þín, fiflið þitt!“
Mál er að linni með þökk til
þeirra er sólskin vilja í bæinn bera.
Að brosa er sagt hollt, hlæja holl-
ara. Kitlubók íyrir fullorðna.
Sig.Haukur
Vörum að fá
mikið úrval
af öklaskóm
Stærðir 36-41
Verð frá kr. 6.900
Pósfsendum samdægurs
SKÆÐI
Kringlunni, 1. hæð, s. 568 9345
OG HLÁTUR
Fréttir á Netinu vóh> mbl.is
/\LL.TAf= e/TTH\SAÐ A/Ý7~7
voru hugguð með þvi að »það fer
flugvél seinna í kvöld um London og
þið getið tekið hana.« Þessa sak-
lausu ferðalanga óaði við slíkri
dómadags krókaleið. Þar til þau
komust að raun um að átt var við
London í Kanada! Fleira átti eftir
að koma þeim hjónum á óvart vest-
anhafs. Énn eimdi eftir af þeim
mögnuðu trúardeilum sem skiptu
Vestur-íslendingum upp í andstæð-
ar fylkingar snemma á öldinni þótt
sjálf ágreiningsmálin væru að
mestu úr sögunni. Fjármál safnaða
voru með allt öðrum hætti en hér.
Útfararsiðir sömuleiðis.
Biskupinn segir ekki aðeins vel
frá. Frásögn hans býr líka yfir
hljóðlátum húmor og kristilegu um-
burðarlyndi eins og títt er hjá kirkj-
unnar mönnum sem orðið hafa að
taka mannfélaginu eins og það er og
sætta sig við mótsagnir mannlífsins
í sínum fjölbreytilegustu myndum.
Þátta þessara er ekki getið hér
vegna þess að þeir séu endilega
markverðastir og bestir. Fremur
sakir hins að þeir eru dæmigerðir
fyrir efni bókarinnar sem er býsna
fjölbreytilegt. Sá er hins vegar galli
á útgáfunni að ábyrgðarmanns eða
ritstjóra er hvergi getið á titilsíðu.
Og undir Aðfaraorðum stendur ein-
ungis: Stoð og styrkur. Ekkert
nafn! Það er hins vegar tekið fram
að »fáeinir þeirra sem lýst höfðu
vilja sínum til að leggja til efni urðu
þó að hætta við það vegna mikilla
anna á hinum skamma tíma sem var
til stefnu.«
Útgefandi virðist ekki hafa áttað
sig á að til undirbúnings safnrits af
þessu tagi dugir enginn skammur
tími!
Erlendur Jónsson
Nýju örbylgjuofnarnir frá
Dé Longhi heita PERFECTO
og bera nafn sitt svo
sannarlega meö rentu!
17 LÍTRA OFNAR:
MW-311 m/tímarofa
kr. 15.900,-
MW-345 m/rafeindastýringu
kr. 19.390,
MW-401 m/grillelementi
kr. 21.400,-
23 LÍTRA OFNAR:
MW-530 m/tímarofa
kr. 21.900,-
MW-535 m/rafeindastýringu
kr. 27.900,-
MW-600 m/grillelementi
kr.36.000,-
MW-605 m/rafeindastýringu
og grillelementi
kr. 38.500,-
MW-675 m/rafeindastýringu,
grilli, blcestrí o.fl.
kr. 56.800,-
Þú finnur örugglega rétta ofninn
hjá okkur og nú á stórgóöu
JÓLATILBOÐSVERÐI
HÁTÚNI6A REYKJAVIK SÍMI 552 4420