Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Fyrsti framboðslisti
samfylkingar A-flokkanna
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
HLUTI frambjóðenda fyrir samfylkingu A-flokkanna.
Sýningarsal-
ur fyrir bfla
og málverk
Borgarnesi - Svanur Steinarsson
hefur tekið í notkun bflasýningar-
sal í húsnæði Framköllunar-
þjónustunnar við Brúartorg í
Borgarnesi.
Svanur er með Toyota-umboðið
á Vesturlandi og kvaðst nú vera
kominn í beint tölvusamband við
Toyota-umboðið í Reykjavík sem
auðveldaði öll sölumál. Hann hef-
ur nú tekið í notkun sýningarsal
þar sem hann sýnir nýjustu gerðir
bifreiða frá Toyota. Sagði Svanur
að alltaf yrðu 4 til 5 bflar til sýnis
í salnum. Veggi Framköllunar-
þjónustunnar prýða málverk Ein-
ars Ingimundarsonar, sem var
föðurbróðir Svans. Eru myndirn-
ar til sölu og sagði Svanur að
margar þeirra væru seldar.
Aðspurður kvaðst Svanur vera
mjög ánægður með að vera kom-
inn með fyrirtæki sitt í nýtt og
rúmgott húsnæði í nýja miðbæn-
um í Borgarnesi en Framköllunar-
þjónustan var áður til húsa niðri í
gamla bænum gegnt Sparisjóðn-
um. f 450 fermetra húsnæði Fram-
köllunarþjónustunnar er verslunin
Borgarsport einnig til húsa.
Reyðarfirði - Fyrsti framboðslisti
samfylkingar A-flokkanna og
Kvennalista var lagður fram fyrir
Austurlandskjördæmi á Reyðai-firði
sl. sunnudag. Jóhann Geirdal, vai-a-
formaður Alþýðubandalagsins, Sig-
hvatui' Björgvinsson, formaður AI-
þýðuflokksins, og Pórann Sveinbjarn-
ardóttú', vai-aþingmaður Kvennalista,
voru mætt á fundinn. Fundarstjóri
var Smári Geirsson, forseti bæjai'-
stjórnar sveitarfélags 7300.
Hreinn Sigmarsson kynnti fram-
bjóðendur á listanum en hann ásamt
Sigurjóni Bjarnasyni var tilnefndur í
hóp sem halda á utan um framboðið,
þ.e. útgáfumál, fundi o.þ.h. Fundinn
sóttu um 40 manns úr kjördæminu
en vegalengdir eru miklar, 700 km
milli Bakkafjarðar og Skeiðarár-
sands. Fulltrúar flokkanna þriggja,
sem að þessu framboði standa,
ávörpuðu fundinn og lýstu yfir
ánægju með samstarfið, töldu það
kraftaverki næst að svo vel hefði
gengið að vinna að framboðsmálum á
Austurlandi.
Listann skipa: 1. Einar Már Sig-
urðarson, forstöðum. Skólaskrif-
stofu Austurl. Neskaupsstað, 2.
Gunnlaugur Stefánsson, sóknar-
prestur Heydölum, 3. Hjördís Þóra
Sigurþórsdóttir, form. Verkalýðsfél.
Hornafjarðar, 4. Sigurjón Bjarna-
son, bókari Egilsstöðum, 5. Guðný
Björg Hauksdóttir, stjórnmála-
fræðingur Reyðarfirði, 6. Aðalbjörn
Björnsson, skólastjóri Vopnafirði, 7.
Ólavía Stefánsdóttir, sérkennari
Seyðisfirði, 8. Jón Björn Hákonar-
son, bankamaður Neskaupstað, 9.
íris Valsdóttir, kennari Fáskrúðs-
firði, og 10. Aðalsteinn Valdimars-
son, fyrrv. skipstjóri Eskifirði.
Einnig fluttu ávörp frambjóðend-
urnir Einar Már, Gunnlaugur og
Hjördís. Lögðu þau mikla áherslu á
að nú yrði að móta íslenskt samfélag,
sýna víðsýni og réttlæti. Vinna að
uppbyggingu á landsbyggðinni; at-
vinna, menntun og afþreying væri
það sem þyrfti til að snúa fólksflótt-
anum til suðvesturhornsins austur
aftur. Vinna þyrfti gegn yfirgangi og
græðgi frjálshyggjunnar og koma á
jafnri samkeppnisaðstöðu.
Ekki hefur enn verið gengið form-
lega frá bókstaf fyrir Samfylking-
una, en beðið er sameiginlegi'ai'
stefnuskrár.
Á milli ávarpa fluttu Heiðrún
Helga og Magnús Ásgeirsson tónlist,
Óttar Guðmundsson las upp smásögu
og Bjarni Þór lagði fi'ambjóðendum
lífsreglur og söng lagið Bíldudals
grænar baunir fyrir hópinn.
Morgunblaðið/Theodór
f SÝNINGARSALNUM eru nýir Toyota-bflar og sölusýning á málverk-
um eftir Borgnesinginn Einar Ingimundarson, sem lést fyrir um ári.
Fjölbreytt þjónusta á Heilsuhæðinni í Hveragerði
Heilsu-
hæðin
Hveragerði - Nýir eigendur
hafa nú tekið við rekstri Heilsu-
hæðarinnar í Hveragerði, Aust-
urmörk 4.
Heiðrún Ólafsdóttir og Agnar
Þór Agnarsson bjóða viðskipta-
vinum sínum upp á íjölbreytta
þjónustu. Á Heilsuhæðinni eru
tveir ljósabekkir en þar er
einnig boðið uppá „slenderto-
ne“ vaxtarmótun sem ennfrem-
ur gagnast vel við ýmiskonar
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
HEIÐRUN Ólafsdóttir er annar
eigandi Heilsuhæðarinnar.
kvillum. Einnig er boðið uppá
förðun og naglaásetningu en
Rósa Björk Hauksdóttir,
förðunarfræðingur, kemur á
laugardögum og sér um þá hlið
mála.
Móttökur verið mjög góðar
Heilsuhæðin býður ennfrem-
ur uppá mikið úrval undirfata
og náttfatnaðar bæði á konur
sem karla.. Að sögn Heiðrúnar
hafa móttökur Hvergerðinga
verið mjög góðar og stefna þau
að því að vera með skemmtileg-
ar uppákomur á Heilsuhæðinni
í framtíðinni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
vicl
7. BEKKUR grunnskólans í Stykkishólmi í tíma hjá dönsku sendikennurunum.
Þar sem jólin nálgast þótti rétt að læra nokkur dönsk jólalög.
Stykkishólmi - í Stykkishólmi hef-
ur dvalið í mánaðartima danskur
sendikennari og starfað við
grunnskólann. Fyrir þremur ár-
um ákvað danska ríkisstjórnin að
styðja við dönskukennslu á Islandi
með því að kosta árlega stöður
þriggja sendikennara.
I vetur starfar sendikennari á
Vesturlandi í fyrsta skipti. Kenn-
arinn er á vegum Skólaskrifstofu
Vesturlands og Kennaraháskóla
Islands. Hann fer á milli skóla á
Vesturlandi, sem þess óska, og er
á hverjum stað allt frá viku til
mánaðartíma. Kennarinn heitir
Jane Pedersen. Hún er frá Oden-
se og á að baki 25 ára kennslu.
Með henni er maður hennar, Bent
Pedersen, sem er einnig kennari.
Hann fór á á eftirlaun í vor og að-
Danskur
sendikennari
starfar á Vest-
urlandi í vetur
stoðar konu sína í kennslunni.
Fréttaritari hitti þau í skólan-
um síðasta kennsludaginn og þá
voru þau að kenna nemendum
dönsk jólalög. Jane sagði að þau
hjón hefðu lengi haft áhuga á að
heimsækja Island. Hún sá
auglýsta sendikennarastöðu á Is-
landi og greip tækifærið og sótti
um. Það voru yfir 60 umsækjend-
ur um þessar þrjár stöður á Is-
landi og hún var svo heppin að
vera valin. Jane segir að markmið
sendikennarans sé að þjálfa mál-
notkun nemenda. Talmálið er svo
ólíkt ritmálinu. Því er það svo
mikils virði fyrir nemendur að fá
faekifæri til að heyra talaða
dönsku og fá þjálfun í talmálinu.
Þau hjón spjalla við nemendur og
leggja fyrir þau fjölbreytt verk-
efni. Jane segir að þeim hafi verið
mjög vel tekið á Vesturlandi.
Fyrst í haust voru þau á Akranesi
og frá Stykkishólmi fara þau í
Andakflsskóla.
Olafur Jóhannsson kennir
dönsku við grunnskólann og er
hann mjög ánægður með komu
dönsku kennaranna. Hann telur
heimsókn Jane og Bents efla
dönskukennsluna.
Nýtt g'æsluvallar-
hús í Njarðvík
Keflavík - Nýtt gæsluvallarhús
var nýlega tekið í notkun á
Brekkustígsvelli í Njarðvík sem
er elsti skipulagði gæsluvöllur-
inn í Reykjanesbæ og var á árum
áður frægur fyrir leiktæki sem á
vellinum voru.
Völlurinn var upphaflega
gerður árið 1946 og var Aðal-
steinn Hallsson íþróttakennari
fenginn til að skipleggja leikvöll-
inn og hafði hann frjálsar hendur
í þeim efnum. Sett voru upp
margvisleg leiktæki sem þóttu
alger bylting á sínum tíma. Ell-
ert Eiríksson, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ, sagði við þetta
tækifæri að þrátt fyrir viðhald á
vellinum hefði fyllilega verið
kominn tími til að fá nýtt gæslu-
vallarhús.
Nýja gæsluvallarhúsið er tæp-
ir 100 fermetrar, timburhús á
steyptum undirstöðum og botn-
plötu. Fram kom að efnisval og
verkgæði væru miðuð við að
halda viðhaldskostnaði í lág-
marki í framtíðinni. Heildar-
byggingarkostnaður var tæpar
10 milljónir og áætlaður kostnað-
ur vegna endurbyggingar lóðar,
leiktækja, aðkomu og bílastæða
er um 8,5 milljónir.
Fyrsta húsið samkvæmt
nýrri byggingarsamþykkt
Ellert Eiríksson sagði þetta
fyrsta húsið í Reykjanesbæ sem
tekið væri út samkvæmt kröfu í
nýrri byggingarsamþykkt af
embætti byggingafulltrúa, heil-
brigðiseftirliti, vinnueftirliti - og
eldvarnareftirliti. Samkvæmt
þeirri úttekt hefði byggingin
staðist allar ýtrustu kröfur
viðkomandi reglugerða.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
ELLERT Eiríksson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, við opnun nýja
gæsluvallarhússins við Brekkustígsvöll í Njarðvík.