Morgunblaðið - 09.12.1998, Page 20
20 MIÐVTKUDAGUR 9. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Vandaðar
innréttingar frá Belgíu á verði
sem ekki hefur sést áður.
Otal möguleikar!
VERSLUN FYRIR ALLA !
ilLDSOI
ERSLUNI
tívérði/
Vi& Feiismúia Sími 588 7332
NWDNAM
hefst í janúar 1999.
Nuddnámið tekur eitt og hálft ár.
Utskriftarheiti er
nuddfræðingur.
Námið er viðurkennt
af Félagi íslenskra
nuddfræðinga.
Upplýsingar í síma 567 8921
eða á Smiðshöfða 10,
112 Reykjavík
alla virka daga kl. 13-17.
Hægt er að sækja um í síma,
á staðnum eða fá sent
umsóknareyðublað.
Nuddskóli Guðmundar
VIÐSKIPTI
Bankar og fjármálastofnanir halda áfram að safna kennitölum
SPRON hækkar, Landsbanki og
Islandsbanki bjóða afturvirkt
Morgunblaðið/Kristinn
í GÆRDAG stóð starfsmaður Landsbankans, lengst til vinstri, í sér-
stökum bás úti á gangi Kringlunnar og kynnti „kaupréttarþjónustu"
bankans fyrir vegfarendum og úthlutaði þar til gerðum eyðublöðum
þar sem fólk gat framselt kauprétt sinn. I baksýn má sjá liðsmann
Hjálpræðishersins selja Herópið.
Bankar og fjármálastofnanir héldu
áfram í gær að bítast um kennitölur
og kauprétt fólks í þeim tilgangi að
kaupa út á hann hlut í Búnaðar-
banka íslands.
Fjárvangur býður besta kaup-
gengið, eða 2,54, og á eftir þeim
kemur Handsal með 2,52, þá Kaup-
þing Norðurlands með 2,50. í gær
bættist SPRON í hóp næsthæstu
bjóðenda, einnig með gengið 2,50.
Landsbankinn sem í Morgunblað-
inu í gær tilkynnti að hann myndi
veita alla sömu þjónustu við hluta-
bréfakaupin og Islandsbanki hafði
tilkynnt, þar á meðal að kaupa kaup-
rétt fólks, sendi í gær frá sér frétta-
tilkynningu þar sem sagt er að bank-
inn hafi ákveðið að kaupa kauprétt
að hlutabréfum í hlutafjárútboði
Búnaðarbankans á nýju gengi 2,40
og á gengið einnig að gilda aftur-
virkt, þ.e. fyrir þá aðila sem þegar
hafa framselt kauprétt sinn til bank-
ans. Áður hafði Landsbankinn boðið
2,28 líkt og íslandsbanld.
Boð Landsbankans er nokkru
lægra en hæsta boð, sem verðbréfa-
fyrirtækið Fjárvangur býður þeim,
sem framselja vilja kauprétt sinn,
2,54.
I kjölfar tilkynninga um afturvirkt
boð Landsbankans boðaði íslands-
banki breytingu á boði sínu og sagði
í tilkynningu að allir fengju aftur-
virkt kauptilboð á genginu 2,40. í tii-
kynningunni frá banknaum segir: „í
kjölfar þess að íslandsbanki hækk-
aði gengi sitt á kauprétti á hlutabréf-
um í Búnaðarbankanum úr 2,28 í
2,40 hefur hann ákveðið að láta alla
þá 10 þúsund einstaklinga, sem strax
á fýrsta degi sýndu bankanum þá
velvild að framselja honum rétt sinn
með bindandi samningum á genginu
2,28, að njóta þessarar hækkunar að
fullu.“
Búist við stíganda
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, SPRON, hækkaði tilboð
sitt til fólks í annað sinn á hádegi í
gær en í fyrradag hafði bankinn
boðið kaupgengið 2,28 og síðai- þann
dag 2,45. Boðið var 2,50 og þar með
varð SPRON annar hæsti bjóðandi
ásamt Kaupþingi Norðurlands sem
einnig býður 2,50 í kauprétt al-
mennings.
Búist er við því á markaðnum að
bréfin í Búnaðarbankanum stígi
áfram rólega, enda þýðir kaupgeng-
ið 2,52 17% hækkun bréfanna frá
sölugenginu 2,15. Það er til dæmis
enn nokkru minna en gengi á bréf-
um Landsbankans hefur hækkað
um frá byrjunargengi, 25%, og
gengi á bréfum FBA, 30%.
Áskriftartímabilinu lýkur nk.
föstudag klukkan 16 og verða allar
áskriftir að hafa borist bankanum
fyrir þann tíma. Hver einstaklingur
getur skráð sig fyrir 500.000 króna
hlut að nafnvirði.
Financial Times
fjallar um íslenskan
snyrti vörumarkað
HEILDVERSLUN Halldórs Jóns-
sonar hefur tiyggt sér umboð íyrir
framleiðsluvörur japanska snyrti-
framleiðandans Shisheido hér á
landi. Fjallað er um sókn Shisheido
á mörkuðum í Evrópu í fjármála-
blaðinu Financial Times og segir að
á Islandi vaxi markaður íýrir krem-
vörur um 7% á ári.
I frétt blaðsins segir að vörur
Shisheido-fýrirtækisins, stofnað
1872, væru seldar í 27 löndum í
Evrópu og að forsvarsmenn þess
gerðu gerð ráð fýrir að sala utan
Japans verði 25% af heildarsölu árið
2000. Þá kemur fram að fýrirtækið
hafi hafið sölu á framleiðslunni í
Rússlandi og sala hefjist á Islandi
næsta vor.
Ráðandi á Asíumarkaði
Kristján Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri Heildverslunar Hall-
dórs Jónssonar, segir að Shisheido
framleiði m.a. snyrtivörur, krem og
ilmvörur fyrir dömur og herra.
Hann segir að vörur fyrirtækisins
hafi verið alls ráðandi á Asíumörk-
uðum um áratuga skeið, en fyrst
komið á markað í Evrópu fyrir 35
árum. „Viðræður hafa staðið yfir í
tvö ár og var skrifað undir í nóvem-
ber sl. Við eigum von á fulltrúum
frá japanska fyrirtækinu síðar í
þessum mánuði til að undirbúa
markaðssetningu vörunnar. Fyrir-
tækið setur strangar reglur um
hvar vörur þess eru seldar, en þær
eru meðal annars ekki seldar í frí-
höfnum. Shiseido leggur mikla
áherslu á þjálfun, þekkingu og þjón-
ustu og þar af leiðandi þarf að þjálfa
starfsfóik heildverslunarinnar og
þeirra verslana sem koma til með að
selja þessa vöru.“
Heildverslun Halldórs Jónssonar
var stofnað árið 1955 og hefur um
áratugaskeið selt m.a. WELLA-
hársnyrtivörur, en hóf sölu á snyrti-
vörum árið 1994.
Samsung og Da-
ewoo vilja losa sig
við tugi deilda
Seoul. Reuters.
SAMSUNG- og Daewoo-fyrir-
tækjasamsteypurnar í Suður-
Kóreu munu skiptast á bágbornu
bílafyrirtæki og skuldugu rafeinda-
tæknifyrirtæki og hafa skýrt frá
ráðstöfunum til að losa sig við tugi
deilda.
Ríkisstjórn Suður-Kóreu reynir
um leið að hrinda af stað endur-
skipulagningarherferð með því að
tilkynna að fjölskyldureknar fyrir-
tækjasamsteypur (kallaðar chaebol)
hygðust afla 58 milljarða dollara
með erlendum fjárfestingum, fjár-
magnsaukningu og sölu eigna.
Almenningur kennir aðallega
chaebol fyrirtækjum um ef efna-
hagsþrengingar eru í landinu og er-
lendir fjárfestar eru vantrúaðir á
umbætur í fyrirtækjum. Kim Dae-
jung forseti kallaði því á sinn fund
leiðtoga fimm helztu fyrirtækjanna
til að ræða ástandið.
Eina áþreifanlega samkomulagið
sem hefur náðst var á þá leið að
Samsung Group samþykkti „í meg-
inatriðum“ að selja nýtt bílafýrir-
tæki sitt Daewoo Group í skiptum
fyrir óskráð fyrirtæki, Daewoo
Eleetronics.
Samsung er helzta rafeindaiðnað-
arfýrirtæki Suður-Kóreu og mesti
örgjörvaframleiðandi heims. Da-
ewoo Motors er næststærsti bfla-
framleiðandi Kóreu á eftir Hyundai
Motors.
Daewoo Electronics skuldaði 3,7
milljarða won í lok júní, eignir fyrir-
tækisins voru metnar 4,8 milljarða
won. Samsung Motors skuldaði 3,6
milljarða won, en eignir fýrirtækis-
ins námu 4,3 milljörðum won.
Sérfræðingar segja að örlög
Samsung Motors hafi verið ráðin
þegar fýrirtækinu tókst ekki að
komast yfir Kia Motors og Asia
Motors Hyundai Group sigraði á
uppboði í október.