Morgunblaðið - 09.12.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 21
fenu
GARÐURINN
-klæðirþigvel
G3HJ
Lambakjötssala Kjötumboðsins/Goða í Bandaríkjunum gengur vel
Markaðsátak
skilar tvöfaldri
Opel
sendibíll verð án vsk 1.075.000
rekstrarleiga per mán 19.367
Opel
3dyra verð án vsk. 891.552
rekstrarleiga per mán. 16.213
Opel
3dyra verð án vsk. 1.020.867
rekstrarleiga per mán. 18.838
Opei
verð án vsk. 1.103.596
rekstrarleiga per mán 20.231
Rekstrarleiga miðast við 20þús km akstur á
ári og leiga í 36 mán. Öll ofangreind verð
eru án vsk. Merking á bílana fylgir frítt með.
GPEL'B Bílheimar ehf.
-Þýskt eðalmerki Sœvarhöfba 2a SímÍ:52S 9000
sölu á einu ári
ÚLPAR Finnbjörnsson matreiðslumaður og Bryndís Hákonardóttir í
bás Goða á „Taste of DC“.
SALA á fersku íslensku lambakjöti
frá Kjötumboðinu/Goða í heilsu-
búðir í Bandaríkjunum hefur geng-
ið vel í ár og hefur salan tvöfaldast
frá því í íyrra þegar kjötið var
fyrst kynnt á markaðnum.
Arangurinn er að þakka öflugri
markaðssetningu fyrirtækisins
ytra síðastliðin tvö haust sem hófst
með utanför Magnúsar Vers
Magnússonar, fyrrverandi
sterkasta manns heims, Hörpu
Lindar Hilmarsdóttur, fyrrverandi
ungfrú Island, og Lovísu Guð-
mundsdóttur, fyrrum ungfrú Elite,
til að kynna lambakjötið.
Að sögn Bryndísar Hákonar-
dóttur, útflutningsstjóra Goða,
gekk kynningin mjög vel og var í
kjölfar hennar ákveðið að fara í
enn frekari markaðssetningu nú í
haust. „Við byrjuðum á að dreifa
miðum með upplýsingum um ís-
lenska lambið og skiiaboðum um að
það væri komið í búðir og síðan var
birt auglýsing í Washington Post.
Að auki dreifðu búðimar sjálfar
300.000 kynningarbæklingum um
kjötið,“ sagði Bryndís.
Hún sagði að mikið hefði verið
gert úr sölunni og meðal annars
hefði starfsfólkið verið með fjalla-
lambs hatta, auglýsingaborði var
hengdur út og fólk gat tekið þátt í
getraun um ísland þai- sem verð-
launin voru íslenskar lopapeysur.
Völdu lambakjöt
í stað hamborgara
Stærsta einstaka kynningarupp-
ákoman í Washington var að sögn
Bryndísar þátttaka í Taste of DC
sem er árleg hátíð haldin í október
ár hvert. A henni eru jafnan kynnt-
ar helstu kræsingar frá veitinga-
stöðum í Washington og fram
koma þekktir tónlistarmenn og
spila fyrir gesti.
Goði fékk matreiðslumannin Ulf-
ar Finnbjörnsson til að sjá um
matreiðsluna á íslenska lambinu á
hátíðinni og mæltist matreiðsla
hans vel fyrir.
Að sögn Bryndísar var kjötið
borið fram á pinnum og var fólk
mjög áhugasamt um að smakka og
jafnvel áhugasamara um það en
hamborgara og pylsur sem Goði
bauð einnig upp á í bás sínum.
Sýninguna sóttu um 1,5 milljónir
manna og fékk íslenska lambakjöt-
ið gott umtal í sjónvarpi og í blöð-
um ytra, að sögn Bryndísar.
„Við erum mjög sátt við gang
mála í Bandaríkjunum og við finn-
um að við erum á réttri leið. Það
má búast við að magnið sem við
sendum á þennan markað muni
aukast enn frekar á næsta ári þar
sem Kaupfélag Þingeyinga á Húsa-
vík er að vinna í því að stækka
kjötvinnsluna og auka þar með af-
köstin. Við förum okkur þó hægt
því við viljum byggja upp traustan
markað,“ sagði Bryndís.
Súrefiiisvönir
Kynning
í dag í Reykjavíkur Apóteki
kl. 12—17 og Vesturbæjar
Apóteki kl. 14—18.
Aðsendar greinar á Netinu
mbl.is
_ALLT/\f= e/TTHV'AÐ NÝTT