Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 30
80 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ I L TOIVLIST lligraneskirkja KAMMERTÓNLEIKAR Donatoni: Fili; C.P.E. Bach: Sónata f g; Sciarrino: D’un faune; Boulez: Sónatína; Schumann: Þrjár rómönsur Op. 94; Atli Ingólfsson: POST SCRIPTUM (frumfl.). Þuríður Jóns- dóttir, flauta, altflauta og pikk- ólóflauta; Stefano Malferrari, píanó. Digraneskirkju, mánudaginn 7. des- ember kl. 20.30. ÞAÐ er ekki oft sem maður sér dagskrá vega jafnfullkomið salt milli nýs og gamals og gerðist í Digraneskirkjunni á mánudags- kvöldið var. Raunar var fortíðartón- listin í minnihluta, „B“ í tveim ABA- samlokum sitt hvoru megin við hlé, og miðklassískur C.P.E. Bach og miðrómantískur Schumann auk þess frá ólíkum tíma, en tónrænar tilfinningar gömlu meistaranna samsvöruðu sér hins vegar furðu vel, þrátt fyrir meira en hálfrar ald- ar tímagjá, og hreinsuðu loftið á milli framúrstefnuverkanna með gamalkunnugu tónmáli sínu. Ekki rekur mann minni til að Þuríður Jónsdóttir hafi áður komið fram sem flautuleikari á tónleikum hér, né heldur ítalski píanóleikarinn Stefano Malferrari, en um það var LISTIR Rödd að handan ekkert tekið fram í annars velrituð- um tónleikaskrártexta Atla Ingólfs- sonar. Eins og mörgu áhugafólki um nýja tónlist mun kunnugt, hafa þau hjónin Atli og Þuríður dvalið langdvölum suður í Bologna á ítal- íu, þar sem Þuríður hefur numið flautuleik og tónsmíðar, þó að tón- leikaskráin vildi sem minnst um það vita. Fjölbreytnin var í fyrirrúmi á þessum tónleikum. Ekki einasta voru fjögur gjörólík nútímaverk á dagskrá innan um tvö aftan úr öld- um, heldur komust allir meðlimir þverflautufjölskyldunnar (að bassaflautu undanskilinni) í pontu, því auk C-flautunnar hefðbundnu kvaddi altflautan í G sér hljóðs í verki S. Sciarrinos og pikkólóflaut- an í verki Atla Ingólfssonar sem þau Þuríður frumfluttu við þetta tækifæri. Virtist Þuríður jafnvíg á allar blístrumar, sem hljóta að út- heimta töluvert mismunandi munn- stillingu og blásturstækni, þó að fingrasetningin sé eins. Tónskrámótur Atla um verk og höfunda voru öðravísi en menn eiga að venjast; skemmtilega persónu- legar athugasemdir með spakljóð- rænum undirtóni á kostnað hefð- bundinna æviskráratriða. Franco Donatoni sagði hann m.a. hafa upp- götvað, að „þótt sköpunin væri liðin undir lok, væri uppgötvunin enn möguleg.“ „Fili“ (=Þræðir) bar með sér að leggja litla áherzlu á sam- hengi. Það hófst á slitróttum púls- lausum punktastíl sem síðar varð hvassari, sló yfir í mínímalíska þrá- frumaítrekun ásamt örum samstíg- um píanóhljómum, þaðan yfir í ólíka heima vellandi vatns og blakandi fiðrilda, tilbrigði um trillur og fors- lög og loks í iðandi „agitato". Verkið var mjög vel leikið, og vottaði þá og þegar fyrir þeirri afbragðs tækni og fjölhæfni í túlkun beggja flytjenda sem seinni verk dagskrár áttu eftir að staðfesta frekar. Hamborgarsónata Emmanúels Bach frá 1786 er elliverk í tveim þáttum, þar sem hinn ljúfsári Al- legretto ber enn keim af hinum brautryðjandi „tilfinningastíl“ hans 30 ámm áður, en hið bjartara lokar- ondó stendur nær háklassík Moz- arts. Verkið léku þau Þuríður af sérlega samtaka næmni og þokka. Eftirminnilegasta verk kvöldsins var án efa „S’un faune“ eftir Sciarr- ino, sem að sögn tónskrár leitast við að „stöðva tímanrí1, auk þess sem hann kvað hafa „sérstakt dálæti á flautunni og hefur uppgötvað ótal ný blæbrigði í rödd hennar“. Það voru orð að sönnu, því það sem úr altflautu Þuríðar kom (hafi það þá komið þaðan en ekki að handan; erfitt var að staðsetja uppsprett- una) var líkara draugalegum söng tónsagar en flautublæstri. Þó að efniviður væri afar sparneytinn, var útkoman með ólíkindum áhrifamik- il, að maður jafni ekki við dulræna reynslu; e.k. tímafrystur ballett fyr- ir útfrymi og Hitchcoek-píanó á milli ógnar og yndis. Forðum tið vora menn brenndir á báli fyrir minna en þetta. Sónatína Boulez frá 1946 var ekki nærri eins áhrifamikil, þótt vissu- lega gengi ekki lítið á, sérstaklega í knúsuðum píanópartinum sem var í forystu allt til enda og hefði að ósekju mátt vera með hálfopið lok en ekki alopið. Þó að flytjendur léku sín hlutverk með glans, skildi verkið lítið eftir miðað við átökin og bar, eins og svo mörg öfgaframúrstefnu- leg verk fyrrí tíma, ekki aldurinn vel, þrátt fyrir vel útilátnar spil- tæknikröfur. Hinar þrjár Rómönsur Schumanns voru kærkomnar eftir hamaganginn, þótt eilítið í tilfinn- ingasamari kantinum væru, n.k. melódrömu án orða og mjög fallega mótaðar í flautu og píanó, þó að flaututónninn hefði mátt vera eilítið bjartari í nr. 2 og píanóið - enn á opnu loki - aðeins veikara í heild. Að lokum var frumflutt nýtt verk eftir Atla Ingólfsson, POST SCRIPTUM íyrir pikkólóflautu og píanó, stutt en fersk samleiksetýða á diskant-tíðnisviði sem þó vakti meiri væntingar en hlustendur gátu með góðu móti náð að torga á að- eins þremur mínútum. Mætti vel hugsa sér að efniviðurinn dygði í helmingi lengi-a verk. Eins og flest fyrr á dagskránni var stykkið skín- andi vel leikið. Ekki tókst síður uppklöppunar- verk utan prentaðrar dagskrár, „Þrjár anddrár“ eftir Atla, sérlega fallegar öi-myndir fyrir sömu áhöfn í ofurlítið eldri stíl sem enduðu á ljóðrænni depurð í anda Prokofievs. Og hvað sem fálæti tónleikaskrár- ritara líður um hvort hér hafi „debút“ Þuríðar Jónsdóttur á flautu farið fram eður ei, verður ekki ann- að sagt en að frammistaða hennar hafi verið hin ánægjulegasta, tækni- lega gegnheil og músíkölsk fram í fingurgóma. Ríkarður Ö. Pálsson l !> I í Gunnar Guðbjörns- son á Jólatónleik- um Mótettukórsins Morgunblaðið/Ámi Sæberg STEFAN Arngrímsson, f.v., Svava Ingólfsdóttir, Hreinn Hjartarson, f.h. Hjartar Hreinssonar, Berglind Garðarsdóttir, f.h. Huldu B. Garð- arsdóttur, og Hrönn Hafliðadóttir. Ekki meir! Ekki meir! TENÓRSÖNGVARINN Gunnar Guðbjömsson syngur einsöng með Mótettukór Hallgrímskirkju á jólatónleikum föstudaginn 11. og sunnudaginn 13. desember nk. og mun Hjálparstarf kirkjunnar njóta ágóða af tónleikunum. Á efnisskránni er aðventu- og jólatónlist frá ýmsum löndum, m.a. Svíþjóð og Frakklandi. Af íslensk- um verkefnum má nefna frumflutn- ing á jólalagi eftir stjórnanda kórs- ins, Hörð Áskelsson, og tónlist eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Með kórn- um koma fram trompetleikaramir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Öra Pálsson, Daði Kolbeinsson óbó- leikari og Douglas A. Brotchie org- Sýningum lýkur Gallerí Stöðlakot SÝNINGU Magnúsar Þorgríms- sonar á eld- og reykbrenndum leir- kerum lýkur á sunnudag. Stöðlakot er opið daglega frá kl. 14-18 og á öðrum tíma eftir sam- komulagi. Mokkakaffi Sýningu Þórodds Bjarnasonar lýkur nú á fóstudag. elleikari. Gunnar Guðbjörnsson kemur sérstaklega hingað til lands frá Frakklandi til þess að syngja með Mótettukómum en hann hefur að undanfornu verið á ferð og flugi milli óperuhúsa á meginlandi Evr- ópu þar sem hann hefur hlotið ein- róma lof fyrir söng sinn. I fréttatilkynningu frá Mótettukórnum segir að efnisval tónleikanna sé að mestu sprottið af rótum rómantískrar tónsköpunar. „Gunnar syngur Kirkjuaríu Stra- della og Ó, helga nótt eftir Adams, auk jólalaga, m.a. eftir Agusta Holmes og Max Reger. Kórinn flyt- ur einnig tónlist eftir Otto Olsson, Þorkel Sigurbjömsson, Hörð Áskelsson, auk þekktra jólasálma. Á tónleikunum verða frumflutt tvö lög, inngangsmúsík fyrir tvo trompeta og orgel yfir aðventusálm- inn Kom þú, kom vor Immanúel eft- ir Þorkel Sigurbjörnsson og jóla- sálmurinn Jólagjöfin eftir Hörð Áskelsson við texta Sverris Páls- sonar frá Akureyri," segir þar enn- fremur. Tónleikarnir verða í Hallgríms- kirkju kl. 20 á föstudagskvöld og kl. 17 á sunnudag og verður forsala að- göngumiða í Kirkjuhúsinu við Laugaveg. Þrír hlutu styrk úr Söngvara- sjóði FÍL ÞRÍR söngvarar hafa hlotið styrk úr Söngvarasjóði FIL, Fé- lag islenskra leikara, sem styrk- ir unga og efnilega söngmenn til framhaldsnáms, svo og starf- andi söngvara til frekari mennt- unar í listgrein sinni. Styrki hlutu : Hulda Björk Garðars- dóttir, Svava Ingólfsdóttir og Hjörtur Hreinsson. Uthlutunarnefnd sjóðsins skipa þau Stefán Arngrímsson, Ingveldur G. Ólafsdóttir og Hrönn Hafliðadóttir. BÆKUR Barnabók DÓMSDAGSFLASKAN Eftir Clive Gifford. Hannað af Russell Punter. Teiknað af Geo Park- in. Þýðandi: Björn E. Arnason. Rit- stjóri: Jane Chisholm. Prentað í Englandi. Utgefandi: Hávellir ehf. 1997 48 síður. Æ! Æ! Hvers vegna er verið að eyða prentsvertu og vinnu í slíkt verk? Það er mér með öllu óskilj- anlegt. Að vísu skal á það bent, að margar myndanna eru mjög vel gerðar, en meir þarf til svo úr verði þokkaleg bók. Ekki nægir heldur löngun til að fræða, sem virðist tilgangur kvers- ins, það les eg úr spumum í lok hverrar opnu, sem lagðar eru fyrir lesandann. Því líka, að aftan við að- alefni er spumunum svarað, hafi gátur ekki verið rétt ráðnar. Virðingarverður ásetningur lyftir ekki lélegum efnistökum yfir lág- kúra „spennumynda" sjónvarpsiðn- aðarins, og til hvers er þá verið að kalla bam frá skjá að bók? Dómsdagsflaskan er sögð íyrst í flokki ævintýrasagna. Æ! Æ! Æ! Sig. Haukur Ævisögur Péturs og Steingríms kynntar BÓKAKYNNING á vegum Minja og sögu verður haldin í Norræna húsinu í dag kl. 17. Jakob F. Ásgeirsson les úr bók sinni, Pétur Ben, og svar- ar fyrirspumum og Dagur B. Eggertsson les úr bók sinni, Steingrímur Hermannsson, ævisaga. Steingrímur og Dag- ur svara lyrirspumum að lestrinum loknum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.