Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 46
j*46 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 SKOÐUN MORGUNBLADIÐ HÖFUÐBORGí vanda REYKJAVIK er höfuðborg í vanda sem birtist í útþynntri byggð, splundraðri miðborgarstarfsemi, versnandi almenningssamgöngum, vítahring bílanotkunar, versnandi ástandi umhverfismála og hnignun miðborgarsvæðis. Orsakir vandans eru grandvaraleysi í skipulagsmál- ,um og vanræksla á stefnumótun til langs tíma. Aðdragandi Frá myndun þéttbýlis á 18. öld var byggðarþróun Reykjavíkur í jafnvægi og miðbærinn í samræmi við þarfir á hverjum tíma. Fólks- fjölgun varð ör í byrjun 20. aldar en þá voru íbúar 5.600 en 38 þúsund árið 1940. Margt fór úrskeiðis í skipulagi á þessum tíma og m.a. fór bæjarstjórnin í bága við fyrsta skipulagsuppdrátt Reykjavíkur frá 1928 með úthlutun baklóða þrátt fyrir aðvaranir kunnáttumanna til að spara í gatna- og holræsagerð. Þetta var talið jaðra við lögbrot og -■i „ . . . bænum til stórtjóns og sví- virðingar . . . „ eins og segir i bréfi Guðmundar Hannessonar til stjórnvalda 1935. Baklóðirnar hafa torveldað eðlilega uppbyggingu og endurnýjun miðsvæðis og eru tákn- rænar fyrir glundroða sem einkenn- ir skipulagsmál í Reykjavík. Allar hrakspár hafa ræst og uppsafnaður vandi þessarar byggðar er ólýsan- legur. A fyrri hluta aldarinnar voru þó settar fram áhugaverðar skipulags- hugmyndir sem gefa til kynna að Reykjavík hefði getað þróast úr kraftmiklum bæ í heilbrigða borg en með hemámi Breta 1940 og byggingu flugvallar í Vatnsmýri urðu þáttaskil. í stríðslok sneru ráðamenn baki við vandamálum eldri borgarhluta og skildu þá eftir án nothæfrar forsagnar um endur- nýjun og uppbyggingu. Þess í stað var sólundað dýrmætu byggingar- landi. Byggð tók að þróast hratt og óskipulega til austurs. Hvert hverf- ið af öðru reis án þess að fullnægj- andi samgöngukerfi næði að mótast og víða varð eftir mikið ónotað land. 1998 nær byggðin að Mosfellsbæ í norðri, að Kópavogi í suðri og í austri að heiðarlöndum og vatna- svæðum. í aðalskipulagi til 2016 er gert ráð fyrir að byggilegt land í Reykjavík verði fullnýtt á skipu- lagstímabilinu. Viðbrögð ráða- manna nú við yfirvofandi landleysi borgarinnar er sameining við Kjal- arneshrepp. Ef hugmyndir fjárfesta um uppbyggingu 6.000 íbúa byggð- ar í Blikastaðalandi verða að veru- snegla islenskir iistnuiiiir t e x t í 11 leirlist my ndlist silkisiæður englabjöllur ullartreflar smámyndir textíltöskur diskamottur kertastjakar leirvasar myndvefnaðu r s i 1 k i m y n d i r leika er þó úti um upp- byggingu á Kjalarnesi. Flugvöllur í Vatnsmýri Mestöll byggð höfuð- borgarsvæðisins væri á Seltjarnarnesi vestan Elliðaáa ef ekkert óvænt hefði dunið yfir. En reyndin varð önnur. Flugvöllurinn í Vatns- mýri gengur djúpt inn í borgina á viðkvæmasta stað líkt og öxi stríðs- manns og nær yfir rúmlega helming ness- ins. Svæði innan flug- vallargirðingar er 142 ha og ámóta svæði utan hennar nýtist illa vegna nálægðar. Flugvöllurinn er sá fleig- ur sem endanlega klauf Kópavog frá Seltjamarneshreppi 1948 og leiddi til uppbyggingar þriggja sveitarfélaga á litlu svæði. Flugvöllurinn hindrar uppbygg- ingu stofnbrautakerfis vestur nesið og tekur upp verðmætt land fyrir byggð og útivist. Mikil hávaða- mengun og slysahætta rýra gildi miðborgarsvæðisins, draga úr eftir- spurn, leiða til lægi’a fasteignaverðs og stuðla almennt að hnignun svæð- isins. Hæðartakmörkun mannvirkja Ráðamenn borgarinn- ar hafa sjaldan verið til fyrirmyndar í skipu- lagsmálum, segir Örn Sigurðsson. Þeir hafa um of vanrækt eðlilegt forystuhlutverk Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu og frumkvæði borgarinnar í ýmsum málum hefur tapast. í aðflugslínum heftir uppbyggingu. Loftmengun er vemleg og sérlega áberandi við flugtak frá norðurenda NS brautar. Slysahætta og mengun af flug- vellinum hafa rýrt gildi stórra íbúð- arsvæða og stuðlað að lægi-a fast- eignaverði í Skerjafirði, Vesturbæ, Kvos, Þingholtum, Hlíðum, Foss- vogi og Vesturbæ Kópavogs. Sjón- mengun af flugvellinum og mann- virkjum við hann hefur neikvæð áhrif á allt umhverfi á verulegum hluta borgarlandsins vestan Elliða- áa og hávaðamengun við aðflugslín- ur hans rýrir gildi flestra útivistar- svæða. Frá yfirtöku Islendinga á flug- vellinum 1946 hefur hann verið hluti af rekstri Flugmálastjórnar. Reykjavíkurflugvöllur er ekki lög- aðili og hefur ekki kennitölu. Hann hefur ekki flugvallarstjóra, blaða- fulltrúa, yfirmann öryggismála né nokkurn annan starfsmann í fullu starfí. Hann hefur ekki skráð síma- númer. Þannig er brugðið huliðshjálmi yfir rekstur flugvallar- ins til varnar gegn kvörtunum Reykvík- inga sem daglega finna fyrir neikvæðum áhrif: um af nábýli við hann. 1997 voru 93.000 flug- hreyfingar á vellinum eða með þriggja og hálfrar mínútu millibili frá 7:30-23:00 dag hvern að meðaltali. Tíðni flughreyfinga er auðvitað mikið hærri á góðviðrisdögum þegar borgarbúar freista þess að njóta útiveru. Bráðlega verður rekstur flugvalla einkavæddur. Því þarf að finna Reykjavíkurflugvelli framtíðargrundvöll þar sem allt flug getur þróast til hagsbóta fyi-ir höfuðborgarsvæðið í sátt við íbúana því enginn friður verður um einka- rekstur flugvallar í Vatnsmýri. Undirbúningur að endurnýjun flug- brauta þar er á lokastigi og því brýnna en ella að finna nú framtíð- arlausn fyrir flugvöll því rangar milljarðafjárfestingar í Vatnsmýri valda óbætanlegum skaða með því að festa hann þar í sessi um ókomna áratugi. Línubyggð Þungamiðja byggðar á höfuð- borgarsvæðinu hefur færst hratt inn nesið og er nú svo komið að Kr- inglan er úr alfaraleið. Nú þegar mótar fyrir óreiðukenndri línu- byggð frá norðaustri til suðvesturs í meginstefnu strandlengjunnar með þungamiðju í Kópavogsdal. Rætt er um framtíðarborg frá Akranesi til Keflavíkur. Uppbygging miðbæjar í Kópa- vogsdal, tvöföldun Reykjanesbraut- ar og ný Sundabraut styrkja þessa þróun. Afleiðingin er minnkað vægi byggðar á útnesjum vestan Elliðaáa og á Álftanesi. Þessi línubyggð verður til af sjálfu sér verði ekkert vitrænt aðhafst í skipulagsmálum höfuðborgarsvæðisins, heldur látið reka á reiðanum hér eftir sem hing- að til. Þessu til staðfestingar eru t.d. áform um byggð í Blikastaða- landi. Valkostur við þessa þróun er þétting byggðar á útnesjum og nýt- ing grunnsævis til landfyllinga. Þannig nýtast borgarkerfi sem fyrir eru og til verður skilvirk borg þar sem menningarsögulega mikilvæg svæði styi’kja stöðu sína til framtíð- ar. Þessi leið ki-efst mikillar fram- sýni, næmni og kjarks sem og mik- illar sköpunar og þekkingar í skipu- lags- og byggingarmálum. Reykjavík er dreifbýlasta höfuð- borg Evrópu og þó víðar væri leit- að. Ibúum á hvern hektara hefur fækkað mjög og t.d. bjuggu 38.000 manns innan Hringbrautar og Snorrabrautar 1940 en nú búa þar 16 þúsund. Stefnuleysi í skipulags- málum mun valda meiri þynningu byggðar á ókomnum árum. Oum- flýjanlegt virðist að aukinn íbúa- fjöldi færi Reykjavík fjær því að teljast alvöru borg. Mikil útþynning byggðar hefur neikvæð áhrif á dag- legt líf allra íbúa höfuðborgarsvæð- isins. Byggðin er dýr og óskilvirk og leiðir til sóunar á tíma og fjármun- NÝ RÖK EFTIR GUNNLAUG GUÐMUNDSSON O'j SAiV|-S>/. RK! \\ \ \ Peisénuleiki allta stjötntimsrkjanna Hvemig merkin eiga sansan Bókm er 270 bls. og (ull af fréðleik UTCöANDi STJÖRNUSPEIOSTÖÐIN S;SS3 707S Örn Sigurðsson f aÖÐATJ- OO MIOBOBGA8BYCWO A UNDFYUINGU VHJ AKUHfeY 450 HA - AO.T AD 30 ÞÖ3. J8ÚAB: /'■ W\ «* NÝR F UX3VÖLUIR MW ikUÐSOWOARBYOOÐ |i J.10ÞÖS.IBUAR KðPAVOGUR TILLAGA AÐ NÝJUM FLUGVELLI I REYKJAVlK OG LANDFYLLINGU VIÐ GRANDAHÓLMA OG AKUREY HAFNARFJI um. Þróun línuborgarinnar, sem minnst var á, mun gera illt ástand verra. Vítahringur Vítahringur bflsins krefst aukins lands undir gatnakerfið og með ári hverju eyðum við lengri tima undir stýri á yfirfullum og menguðum ak- brautum. Æ meiri tími fer í að vinna fyrir rekstri bflsins og oft er lítið afgangs af tíma og fé_ til að njóta raunverulegra gæða. Ai-legur kostnaður af bílaumferð er hátt á annað hundrað milljarðar króna. Annar hluti vítahringsins snertir mikla stækkun opinbers rýmis. Að baki hverjum hektara af akbraut- um, gangstéttum, bílastæðum og aðlögunarsvæðum eru stöðugt færri íbúar. Þannig hefur fé og tími til endurbóta og þrifa í opinberu rými minnkað ár frá ári og umhverfis- gæðum hrakar jafnt og þétt. Þetta leiðir til þverrandi virðingar borg- aranna fyrir byggða umhverfinu og stuðlar að auknu hirðuleysi á al- mannafæri. Gangandi vegfarendum fækkar ört og nú skynja flestir borgarbúar stækkandi opinbert rými út um rúð- ur bíla sinna. Fáir þekkja umhverf- isálagið í opinbera rýminu. Það er ekki lengur hluti af reynsluheimi ökumanna og snertir ekki hagsmuni þeirra. En þó er þetta umhverfisá- lag nánast alfarið af völdum þeirra, ekki aðeins umferðarhávaði, nagla- skruðningar, svift-yk, útblásturs- mengun og löskuð umferðarmann- virki heldur líka megnið af ruslinu við götur og vegi. Öryggi barna og unglinga sem eru uppistaðan í hópi viðskiptavina strætisvagna, minnk- ar á gangstígum borgarinnar því í þessu umhverfi aukast líkur á af- brotum. Miðborg Splundrun miðborgarstarfsemi er vel þekkt í Reykjavík. Strax eftir seinna stríð stöðvaðist öll þróun á miðborgarsvæðinu. Það varð að- kreppt á allar hliðar af íbúðar- byggð, vesturhöfninni og flugvellin- um í Vatnsmýri, sem að auki setti þröngar skorður við hæð mann- virkja. Það hætti að taka við nýrri miðborgarstarfsemi stækkandi byggðar og síðan þá hefur miðborg- arstarfsemi dreifst á óskipulegan og óskilvirkan hátt um alla byggð- ina með ófyrirsjáanlegum afleiðing- um. A s.l. 50 árum hefur ekki verið tekist á við skipulagsvanda mið- borgarsvæðisins og annarra eldri borgarhluta í Reykjavík og nú eru þeir án nothæfrar forsagnar um nauðsynlega endurnýjun og upp- byggingu. Vegna uppsafnaðs vanda í hálfa öld ríkir þar því stöðnun og niðurníðsla og reyndar fullkomin upplausn. Umræða um þennan vanda hefur verið lítil sem engin en í því tóma- rúmi sem myndaðist vegna þagnar ráðamanna og fagaðila hafa vernd- unarsinnar haslað sér völl með til- lögum um varðveislu húsa, húsar- aða og heilla reita í „upprunalegu horfi“. A sama tíma býr fjöldi Reykvíkinga við eins konar átthaga- fjötra í eldri hverfum því eignir þeirra eru illseljanlegar vegna ástands í skipulagsmálum svæð- anna. Og þó ættu þessar eignir sannarlega að vera verðmætari en ella vegna legu sinnar í borginni ef allt væri með felldu. Rekstrarskilyrði almenningssam- gangna _ munu halda áfram að versna. I dag er reynt að halda uppi ódýru kerfi með lágri ferðatíði sem einkum þjónar börnum og öldruð- um en þessi þjónusta virðist fjar- lægjast óðfluga það markmið að ná til ört stækkandi hóps ökumanna. Tillögur 1997 gerðu Miðborgarsamtökin, Sigurður Kolbeinsson arkitekt og undirritaður athugasemdir við aðal- skipulag Reykjavíkur til 2016 til að vekja athygli á þeirri háskalegu þróun sem hér er um rætt, annars vegar við ákvörðun um að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi í Vatns- mýri og hins vegar við ákvörðun um að efla olíuhöfn í Öi-firisey. Einnig var kynnt tillaga að nýjum flugvelli á landfyllingu í Skerjafirði, tillaga þess efnis að skipulagt verði mið- borgarsvæði i Vatnsmýri og tillaga að miðborgarsvæði á landfyllingu við Akurey. Aður voru settar fram í einstök- um atriðum svipaðar hugmyndir. 1975 lögðu Trausti Valsson arkitekt og aðrir fram tillögu að flugvelli í Skerjafirði og forsvarsmenn Björg- unar hf. gerðu tillögu að landfylling- um norðan Örfiriseyjar. 1981 gerði Þórður Ben myndlistarmaður tillög- ur að byggð í Vatnsmýri og að veg- tengingu yfir Skerjafjörð að Álfta- nesi. 1988 gerðu Þorsteinn Magnús- son verkfræðingur og undinitaður tillögu að nýrri legu stofnbrautar á brú yfir hafnarmynni Vesturhafnar til að vekja athygli á mikilvægi landfyllinga við Ákurey. 1996 vann Sigurður Kolbeinsson arkitekt til- lögu að alþjóðlegum flugvelli í Skerjafirði. í tillögu að flugvelli í Skerjafirði er stærð landfyllingar 83 ha, magn fyllingarefnis 7,8 milljónir rm og lengd brimvarnar 8.000 m. Líklegur kostnaður er 4,2 milljarðar króna og verð fyrir fermetra tilbúins lands
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.