Morgunblaðið - 09.12.1998, Síða 47

Morgunblaðið - 09.12.1998, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN því 5.100 kr. Til samanburðar er áætlaður kostnaður við Sundabraut 12 milljarðar og við tvöfóldun Reykjanesbrautar 6,5 milljarðar. Landfylling er leið til hagkvæmra landvinninga í hafnarborgum um allan heim. Hérlendis hafa landfyll- ingar einnig verið notaðar við hafn- argerð. Margir helstu flugvellir heims eru á landfyllingum t.d. í Tókýó, Hong Kong, Sydney, San Francisco, Toronto, Boston, New York, Ríó og Isafirði. Tilgangur tillagnanna er að sporna gegn öfugþróun byggðar, niðurníðslu miðborgarsvæðis og skelfílegu ástandi í umhverfismál- um í Reykjavík. Meginforsenda er að byggðarþróun næstu áratugi verði vestast í borginni. Reiknað er með þéttri íbúðar- og miðborgar- byggð á landfyllingum við Akurey, norðan Sæbrautar og í Vatnsmýri. Að auki er lagt til að gamla höfnin verði felld inn í miðborgarsvæðið og hafin þar uppbygging íbúðarsvæða og miðborgarstarfsemi í sambýli við hafnarstarfsemi. Slíkar lausnir eru vel útfærðar í hafnarborgum víða um heim. Þétting byggðar Þéttleiki byggðar er ein helsta kennistærð í skipulagi og segir til um umhverfisgæði og skilvirkni borga. Óhætt er að bera saman blóðþrýsting mannslíkamans og þéttleika byggðar. Hvorugur má vera of lágur né of hár til að ekki fari illa. Lágmarksþéttleiki byggðar með almenningssamgöngum er um 50 íbúar á hektara. 1940 var þétt- leiki byggðar í Reykjavík 170 íb./ha en 1998 er hann 28 íb./ha. Þessi tala lækkar mjög þegar byggð á Kjalar- nesi, á svokölluðum nýbyggingar- svæðum og í Blikastaðalandi er reiknuð með. Borgir með mjög lága þéttleikatölu er að finna í Banda- ríkjunum og Ástralíu og eru þær sniðnar að þörfum bflsins. Þéttleiki evrópskra borga er að jafnaði þrefalt hærri en í Reykjavík. Ábati af þéttingu byggðarinnar er mikill en byggist á flóknu sam- hengi. T.d. er erfitt að verðleggja fagurfræðileg gæði bygginga, götu- mynda og torga. Ný stofnbraut frá austri til vesturs um Vatnsmýri er forsenda þess að unnt sé að endur- hæfa byggð og gera borgina skil- virka. Óll Reykjavík mun njóta góðs af vegna skilvirkari samgangna, aukinna gæða opinbera rýmisins og vegna öflugrar miðborgar. í þéttri byggð er efnahagslegur gi-undvöll- ur íyrir vönduðum lausnum í sam- göngumálum. Gert er ráð fyrir að almenningssamgöngur standi undir sér og að dýrar lausnir í gatnagerð skili sér að fullu í bættri landnýt- ingu. Unnt er að meta afmarkaða þætti og spá í líklegan ábata. - T.d. má gera ráð fyrir að afgangur af lóða- gjöldum þéttrar byggðar í Vatns- mýri nægi fyrir landfyllingu undir flugvöll í Skerjafirði. - Friðun 20 þúsund íbúa byggðar fyrir hávaða- mengun af flugvelli gæti leitt til 7 milljarða króna hækkunar á fast- eignaverði þeirra. - Fari Reykvík- ingar árlega í 50 milljón atvinnu- tengdar ökuferðir sparast á ári hverju um 450 mannár fyrir hverja mínútu sem hver ökuferð styttist með tilkomu skilvirks samgöngu- kerfis. - Fækki ökuferðum Reykvíkinga um fjórðung minnkar kostnaður af einkabilaakstri í borg- inni um 10 milljarða króna á ári. - Ef helmingur Reykvíkinga byggi í þéttri og skilvirkri byggð kæmist hver fjölskylda e.t.v. af með einn bfl að jafnaði í stað 1,6 bfla eins og nú er. Þá gætu 18 þúsund fjölskyldur sparað árlega um 6 milljarða króna. Niðurlag Með flugvelli í Vatnsmýri hófst hálfrar aldar öfugþróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu og stöðnun miðborgar Reykjavíkur. Til urðu þrjú sveitarfélög á litlu svæði, sem í dag mynda þó eina efnahagsheild ásamt öði'um sveitaifélögum á höf- uðborgarsvæðinu en þar er þéttleiki byggðar miklu lægri en í Reykjavík og í sjálfu sér kominn langt niður mafyrir lífsmark venjulegs þéttbýlis og óskilvirknin er óskapleg. Ef ekk- ert vitrænt verður aðhafst í skipu- lagsmálum á svæðinu verður til af sjálfu sér dreifð og víðáttumikil línu- borg fyrir bfla. Það er því mikilvægt að byggja upp á útnesjum og þétta byggðina með öllum ráðum. Frum- skilyrði er að leggja niður flugvöll í Vatnsmýri. Það er að mati margra góð lausn að byggja nýja aðstöðu fyrir flugrekstur í Skerjaftrði. Á tímamótum er við hæfi að líta um öxl og fram um veg. Líklega eru Skólavörðustíg 21 a • 101 Reykjavík Sími / Fax: 552 1220 Netfang: blanco@itn.is Veffang: www.blanco.ehf.is Vitundarvígsla manns og sólar Dulfræði fyrir þá sem leita. Fæst f versl. BETRA LÍF í Kringlunni 4-6 Námskeið og lcshringar. Opnar umræður á hóppóstlista-rafpósti mjAhugamenn um Þróunarheimspeki Pósthólf 4124, 124 Reykjavík, fax 587 9777, sími 557 9763 þegar fæddir allmargir íslendingar sem munu lifa aldamótin 2100. Þeg- ar litið er yfir sögu Reykjavíkur á þessari öld virðist hún ekki mjög fjarlæg en íbúafjöldi þar árið 1900 var 5.600 og hefur því nærri tutt- ugufaldast á hundrað árum. Um aldamótin 2100 verða íbúar á höfuð- borgarsvæðinu 500-800 þúsund og er því brýnt að horfa langt inn í framtíðina þegar unnið er að skipu- lagi. Flestar borgir eiga sér langa sögu og byggingarhefð sem eru þeim bæði menningarleg kjölfesta og vegvísir til framtíðar. Ekki er slíku til að dreifa í Reykjavík og því mikilvægara en ella að móta hér mjög öfluga framtíðarstefnu í skipulagsmálum. Ráðamenn borgarinnar hafa sjaldan verið til fyrirmyndar í skipulagsmálum. Þeir hafa um of vanrækt eðlilegt forystuhlutverk Reykjavíkur á höfuðborgarsvæðinu og frumkvæði borgarinnar í ýmsum málum hefur tapast. Hefðbundin framsýni atvinnumanna í stjórn- málum er fjögur ár að hámarki og gagnast því t.d. ekki í skipulags- málum sem í eðli sínu eru mál framtíðarinnar. Hefð er fyrir því að tillögur sem ekki rúmast innan tímamarka eins kjörtímabils séu af- greiddar sem framtíðarórar en þessir atvinnumenn mega vita það eins og við hin að framtíðin byrjar strax í dag því nútíminn er aðeins andartak á mörkum fortíðar og framtíðar. Höfundur er arkitekt. éddvmta á(§f£ó/ddrú JÓLAMATSEÐILL með STEIKARHLAÐBORÐI í HHDEGINU 2.150 H KVÖLDIN 3-450 Skólobrú BOROHPnNTHNIR f SÍMfl S62445S MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 4% sími með kallkerfi. 300 m innanhúss og m utanhúss. Rafhlaðan endist 30 klst. í biðstöðu eða 4 klst. í notkun. Hægt að nota fleiri símtól við móðurstöð. íslenskur leiðarvísir. 9.900 (1011 númerabirtir er í minni. DRS sfmi með númerabirti Hátalari. Beinval. Tengi fyrir heyrnartól. 6.900 ) bonuó einit lunicf jó 100.000 krónur dregnar út vikulega! Ef þú verslar fyrir 7.000 krónur eða meira í verslun okkar I Sætúni 8 fer nafn þitt f lukkupottinn. (iátœhja Heimilistæki hf SÆTLIN8 SlMI 660 1500 www.ht.ls

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.