Morgunblaðið - 09.12.1998, Page 51

Morgunblaðið - 09.12.1998, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 51 BJARNIJOHANN GUÐMUNDSSON + Bjarni Jóhann Guðmundsson fæddist í Stykkis- hólmi 15. júlí 1919. Foreldrar hans voru Guðmundur Þórólfsson trésmið- ur, f. 18.1. 1887 í Litluhlíð á Barða- strönd, d. 1921, og kona hans, Þorgerður Sigurð- ardóttir, f. 2.11. 1879 á Hellissandi, d. 14.12. 1964. Systkini Bjarna eru: Jónína, f. 3.11. 1902, d. 22.5. 1987, húsfrú í Reykjavík. Hún á Qögur börn á lífí. Sigmundur, dó á barns- aldri. Kristín, dó á barnsaldri. Anna Kristín, f. 10.7. 1910, d. 6. okt. 1939, hjúkrunarfræðingur. Hún á tvö börn. Sigmundur, f. 8.11. 1911, d. 27.12. 1939, kenn- ari. Hinrik Jón, f. 18.9. 1917, d. 23.3. 1985, húsasmíðameistari. Margrét, f. 25.10. 1920, hjúkr- unarfræðingur, búsett í Reykjavík. Hún á tvö börn. Bjarni varð fyrir föðurmissi á fjórða aldursári. Ólst upp í foreldrahúsum og hjá móður sinni eftir frá- fall Guðmundar í Stykkishólmi til sjö ára aldurs. Heilsu- leysi móður Bjarna, Þorgerðar, átti sinn þátt í að Bjarni ólst upp að Kolgröfum í Eyrarsveit frá sjö ára aldri fram yfír ferm- ingaraldur. Hafði samt ávallt þau ár gott samband við æskuheimilið í Stykkishólmi. Bjarni hlaut venjubundna mennt- un barna og unglinga. Að því búnu stundaði hann nám tvo vet- ur í Héraðsskólanum í Reykholti og lauk þaðan prófi 1937. Að lok- inni Reykholtsdvöl fluttist Bjarni til Reykjavíkur - þangað hafði móðir hans þá þegar flutt - þar bjuggii og öll systkini Bjarna. Bjarni stundaði sjómennsku frá MINNINGAR fyrstu Reykjavíkurárum. Á stríðsárum var hann í hópi tog- arasjómanna, sem stunduðu hættulegar siglingar til Bret- lands. Á árunum eftir heims- stríðið tók Bjami upp störf sem bifreiðastjóri í Reykjavik. Fyrst sem leigubílstjóri en síðan um langt skeið sem vömbflstjóri hjá Þrótti. Bjarni átti tvö börn með sam- býliskonu sinni, Elínu Þorgerði Magnúsdóttur, f. 12. október 1921, d. 2. september 1983. 1) Gróa Herdís, hjúkmnarfræð- ingur, f. 10.10. 1947, d. 2.2.1972 í Kaupmannahöfn - stundaði þar framhaldsnám. 2) Magnús Grétar Karl, f. 20.1. 1952, d. 29.8. 1975. Sambýliskona Bjarna um langt árabil var Sig- ríður Guðmundsdóttir, f. 1918, d. 1981. Heimili þeirra var á Kleppsvegi 34. Sigríður var ekkja þegar sambúð þeirra Bjarna hófst. Fóstursonur Bjarna og sonur Sigríðar er Árni Jón Baldursson, f. 21.8. 1944. Eiginkona hans er Jófríð- ur Guðjónsdóttir og eiga þau 3 syni. Sambýliskona Bjarna síð- ustu æviárin var Kristbjörg Guðmundsdóttir. Útför Bjarna fór fram frá Ás- kirkju 4. desember. Elsku afi minn, mig langar að minnast þín og fræða aðra um minningar mínar um þig. Þó svo að veikindi þín hafi gefið okkur tíma til að undirbúa okkur fyrir fráfall þitt var þetta mikið áfall fyrir mig. Við áttum eftir að gera svo margt sam- an, t.d. ætlaðir þú að koma með mér í bíltúr og skoða verkstæðið mitt. Eg veit að það gladdi þig þegar ég sagði þér að verkstæðið væri í Kópavogi þ.e.a.s. á Dalveginum, því þér fannst það svo góður staður. Það sem mér er minnisstæðast var þegar við fórum ásamt mömmu, pabba, Siggu ömmu og bræðrum mínum í Hvassahraunið þar sem þú varst með sumarhús, þú kenndir mér að smíða og bar það góðan ár- angur því í dag er ég húsasmiður. I Hvassahrauninu fórum við með ömmu niður í fjöru og nutum útiver- unnar. Á jólunum vorum við öll saman heima hjá þér og Siggu ömmu og þar kom í Ijós hversu rólegur þú varst, þú pakkaðir inn jólagjöfunum okkar rétt áður en klukkan sló sex, þar sem við stóðum og horfðum á. Þegar ég var ungur drengur kom svo smááfall fyrir lítinn dreng, jú jólasveinninn var ekki til og Bjarni afi var í raun ekki alvöru afi minn heldur fósturafi, en ég leit alltaf á hann sem alvöru afa enda þekkti ég engan annan afa. Þar sem þú varst vörubílstjóri fékk ég stundum að koma með í ferðir. Hvort sem við vorum að keyra vörubílinn, Volguna eða Löd- Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útfór er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: I sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í mið- vikudags-, fimmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. una voru nánast allir aðrir í umferð- inni annaðhvort asnar eða eitthvað verri bflstjórar en þú, því að eigin sögn varst þú besti bílstjórinn í bænum. Þegar ég var níu ára gekk ég í Hólabrekkuskóla og varst þú þá að vinna rétt hjá á vörubflnum og hljóp ég þá oft til þín í frímínútunum og ósjaldan gafst þú mér pening fyrir nammi. Eitt skiptið þegar ég hitti þig ásamt vini mínum gafst þú okk- ur einn rauðan (500 kr.) og við sýndum öllum bekknum peninginn. Eftir þetta talaði vinur minn um þig sem peningaafa. Árið 1981 dó Sigga amma og við það breyttust samskipti okkar, þú fórst alltaf til útlanda um jólin og man ég að fyrstu árin saknaði ég þín og fannst mikið vanta. Árin liðu og voru samverustundir okkar alltof fá- ar og sé ég eftir því í dag. Því miður áttar maður sig of seint á hvað tím- anum líður, en ég og Andri Már vor- um sem betur fer duglegri síðasta árið að heimsækja þig og vinkonu þína, Kristbjörgu. Okkur var ávallt vel tekið með nammi, drykkjum og meðlæti. Eg fann mjög vel hversu góðan hug þú barst til sambýliskonu minnar Eddu Júlíu og hrósaðir þú henni mikið og spurðir ávallt um hana og kunni hún vel að meta það. Einu verð ég að koma á framfæri LEGSTEINAR JL Gruníl' HELLUHRAUN 14 220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629 HEIMASIÐA: www.granit.is og biðja ungt fólk að gleyma ekki þeim gömlu og bíða ekki með heim- sóknir því tíminn líður svo hratt. Eftir andlát þitt keyrði ég og sonur minn framhjá heimili þínu og þá sagði hann, hér býr afi Bjarni. Sagði ég syni mínum, Andra Má, sem er þriggja ára að þú værir dá- inn og farinn til Guðs og reyndi ég að útskýra þetta eins vel og ég gat, leit hann þá á mig og sagði, já, þá breytist hann afi bara í flugu. Elsku afi minn og alnafni, ég bið Guð að geyma þig og veita yl. Avallt mun ég bera nafn okkar með stolti. Svo hittumst við seinna og klárum það sem við áttum eftir að gera. Þitt bamabarn, Bjarni Jóhann Árnason. Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ UTFARARSTOFA OSWALDS sími 551 3485 ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN AÐALSTRÆTI 4B • 101 REYKJAVÍK LIKKISTUVINNUSTOFA EY\aNDAR ÁRNASONAR © ÚTFARARÞJÓNUSTAN Stofnað 1990 Persónuleg þjónusta Sími: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is utfarir@itn.is Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson útfararstjóri útfararstjóri ARNBJORG ARNADOTTIR + Árnbjörg E. Concordía Ámadóttir fæddist í Reykjavík 10. júlí 1906. Hún lést á kvennadeild Landspítal- ans 21. nóvember síðastliðinn og fór útför liennar fram frá Dómkirkjunni 2. desember. Þegar ég hugsa til æskuáranna er mér minnisstætt hversu ná- komnar systumar Día og Unnur voru, þær heyrðust daglega, og studdu hvor aðra í daglegu amstri. Þegar móðir mín lést var Día mér innan handar, ég gat hringt til hennar og fengið leiðbeiningar ef mig vantaði. Día hringdi iðulega til að athuga hvernig okkur gengi og sýndi þannig hversu kærleiksrík hún var í garð fjölskyldu systur sinnar. Þau vora ófá skiptin sem ég hringdi til Díu til að vita hvað lengi ég ætti að sjóða matinn eða hvern- ig ég ætti að búa til sósur eða gera einhverja aðra hluti tengda heimil- ishaldi. I nokkur ár fór ég með saltkjötið og pottinn fyrir sprengi- daginn yfir til Díu og sótti hann síðan um kvöldið. Þetta þótti mér ákaflega vænt um þar sem mér óx þessi eldamennska í augum í fyrstu. Það sem stendur einnig upp úr og ekki síst em allar góðu stund- imar við Álftavatn í litla fjöl- skylduvæna sumarbústaðnum þai- sem allir vom saman í einni stofu sem var bæði stofa og svefnher- bergi í senn, mjög vel skipulagt og fjölskylduvænt. Eg sakna þessa verustaðar þar sem öllum leið svo vel úti í náttúmnni í gróðrinum og í vatninu að sulla og skottast. Eg man mest eftir Díu í slopp utan yfir fótin sín með net yfir hárinu í fínu stígvélunum sínum með skóflu í hendinni á leiðinni að reka bola í burtu og við máttum alls ekki koma með, en það var ekki laust við að ég væri hrædd um að hún myndi nú kannski ekki bera hærri hlut fyrir bola, þar sem Día var mjög nett kona, og beið eftir að hún kæmi til baka. Eg vissi ekki fyrr en mörgum áram síðar hvað hún var að fara að gera, hún var að losa kamarinn. Boli gerði nú um- hverfið ekki mjög öraggt á kvöldin og nóttunni en hann var greinilega aldrei til staðar á daginn þar sem hún fór aldrei í þessa múnderingu fyrr en skyggja tók. Nú höfum við kvatt Díu í hinsta sinn, hún hefur nú hitt maka sinn og fjölskyldu og er því örugglega fegin. Þótt hennar sé saknað þá gleðjumst við með henni. Björg Vigfúsína Kjartansdóttir (Lilla). Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Ástkær móðir okkar, HELGA STRÖM SCHJETNE, Norðurbrún 1, lést á Landspítalanum að kvöldi sunnu- dagsins 6. desember. Dætur hinnar látnu. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BJÖRGVINS GUÐNASONAR, illugagötu 16, Vestmannaeyjum. Erna Alfreðsdóttir, Auðbjörg Svava Björgvinsdóttir, Helgi Þór Gunnarsson, Aðalheiður Björgvinsdóttir, Ómar Reynisson, Guðný Björgvinsdóttir, Georg Skæringsson, Sigfríð Björgvinsdóttir, Hallgrímur Gísli Njáisson, Harpa Björgvinsdóttir, Ólafur Vestmann Þórsson og barnabörn. t Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför EINARS HELGASONAR bókbandsmeistari, hjúkrunarheimilinu Eir. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins, sem reyndist honum vel í hvívetna. Ragnar G. Einarsson, Guðlaug Friðriksdóttir, Helgi R. Einarsson, Helga Stefánsdóttir, Dagný H. Leifsdóttir, Steinunn Sigurgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.