Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 09.12.1998, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1998 53 f FRÉTTIR Mótmæla skatta- hækkunum MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun miðstjórnar Samiðnar vegna skattahækkana sveitarfélaga: „Við gerð síðustu tveggja kjara- samninga beitti Samiðn sér fyrir því að skapa forsendur fyrir stöðugu verðlagi og auknum kaupmætti launafólks. Til að ná þessu mark- miði lagði Samiðn áherslu á að kaupmáttaraukningin kæmi að hluta til í gegnum breytingar á skattakerfmu. Um þessar breyting- ar myndaðist víðtæk sátt í síðustu kjarasamningum milli verkalýðs- hreyfingarinnar og stjórnvalda. Á síðustu misserum hefur árangurinn verið að koma í ljós með stigvaxandi kaupmætti og stöðugu verðlagi. Nú hafa hins vegar sveitarfélögin rofið þessa sátt með ákvörðunum um hækkun útsvars og þjónustu- gjalds. Með ákvörðun Reykjavíkur- borgar og Vestmannaeyjabæjar um hækkun útsvars er verið að taka til baka nær alla skattalækkun sem launafólki í þessum sveitarfélögum hafði verið lofað um næstu áramót. Þessu mótmælir miðstjórn Sa- miðnar harðlega og skorar á sveit- arfélögin í landinu að hætta við fyr- irhugaðar hækkanir og sýna með því að sveitarfélögin era ábyrgir samnningsaðilar. Samningsaðilar sem hægt er að treysta og eru til- búnir að standa við þær forsendur sem launafólki voru gefnar þegar samningar voru undimtaðir í mars 1997.“ Manna- nafnaskrá á Netinu SKRÁ yfir mannanöfn, þ.e. eig- innöfn karla og kvenna og milli- nöfn, hefur verið birt á heimasíðu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, samkvæmt því sem fram kemur í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Ný lög um mannanöfn, nr. 45/1996, tóku gildi hinn 1. janúar 1997. Samkvæmt lögunum skal mánnanafnanefnd semja skrá um þau eiginnöfn og millinöfn sem heimil ei'u. I mannanafnaskrá era eiginnöfn kvenna og karla og rit- myndir eiginnafna, ásamt skrá yfir millinöfn. Einnig er í mannanafna- skrá að finna skrá yfir eiginnöfn, ritmyndir eiginnafna og millinöfn sem mannanafnanefnd hefm- hafn- að. Mannanafnaskrá var gefin út í janúar 1997, en sú skrá var sam- þykkt á fundi mannanafnanefnd- ar hinn 6. janúar 1997. I þeirri skrá er að finna eiginnöfn sem mannanafnanefnd hafði samþykkt fyrir 1. janúar 1997 og eiginnöfn sem mannanafnanefnd hafði hafn- að samkvæmt ákvæðum eldri laga en teljast heimil samkvæmt nýj- um mannanafnalögum. Sú mannanafnaskrá sem nú er birt á heimasíðu ráðuneytisins er að stofni til sú skrá sem gefin var út í janúar 1997, auk viðbóta vegna úrskurða mannanafnanefndar frá 1. janúar 1997. Skráin verður uppfærð reglulega í samræmi við ákvarðanir mannanafnanefndar. Slóð heimasíðu dómsmálaráðu- neytisins er www.stjr.is/dkm. Skóvinnustofa Halldórs opnuð á ný SKÓVINNUSTOFA Halldórs Guðbjömssonar, Hrísateigi 19 við Sundlaugaveg, hefur verið opnuð á nýjan leik. í fréttatilkynningu frá Halldóri segir að hann bjóði upp á allar almennar hækkanir og við- gerðir og hann geri jafnframt við reiðtygi, töskur og fleira. „Er með gott úrval af mannbroddum, lepp- um, reimum og áburði. Geri við meðan beðið er,“ segir þar jafn- framt. ATViNNU- AUGLÝ5INGAR III MENNTASKÓUNN f KÓPAVOGI Kennarar Aðstoðarskóla- meistari Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir aö ráða kennara í eftirtaldar greinar á vorönn 1999: Dönsku 16—20 stundir íslensku 20 stundir Líffræði 12stundir Vélritun 12stundir Þá er auglýst starf aðstoðarskólameistara frá 15. febrúar 1999. Aðstoðarskólameistari er ráðinn til fimm ára í senn. Launakjör fara eftir samningum kennara- félaganna og ríkisins. Umsóknum skal skila til skólansfyrir 12. desember. Nánari upplýs- ingar veitir skólameistari eða aðstoðarskóla- meistari í síma 544 5510. Skólameistari. TILKYNIMINGAR Auglýsing um aðalskipulag Djúpárhrepps 1998—2010 Sveitarstjorn Djúpárhrepps hefur samþykkt að auglýsa tillögu að aðalskipulagi Djúpár- hrepps 1998—2010 samkvæmt 18. gr. skipu- lags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Aðalskipu- lagstillagan liggurframmi á skrifstofu Djúpár- hrepss á skrifstofutíma, frá fimmtudeginum 10. desember 1998 til mánudagsins 11. janúar 1999. Athugasemdum við skipulagstillöguna skal skila á skrifstofu Djúpárhrepps í síðasta lagi 26. janúar 1999 og skulu þær vera skrifleg- ar. Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Oddviti Djúpárhrepps. SEMENTSVERKSMIÐJAN HF. Ný símanúmer Sementsverksmiðjan hf. hefurfengið ný síma- númer á Akranesi: Skrifstofa: Sími 430 5000. Fax 430 5001. Sementsafgreiðsla: Sími 430 5050. Fax 430 5051. Sementsverksmiðjan hf. AUGLÝ5INGAR KENNSLA FJÁRFESTU í FRAMTÍÐ ÞINNI - NÁM í USA • Alþjóðlegt yfirbragð: 8200 nemendur frá 85 löndum • Möguleiki á launuðu hlutastarfi: Starfsþjálfun í viðkomandi fagi • Einstaklingurinn í fyrirrúmi: Meðalfjöldi í bekk er 22. KYNNINGARFUNDUR föstudag 11. desember kl. 19.00 til 20.30 • Akademísk námsskrá: Val um yfir 40 aðalnámsgreinar. • HPU býður upp á 7 prófgráður („graduate degrees"). • Öflug enskunámskeið, staðfest námsárangursskírteini og „Nám erlendis“ námskeið í boði. VIÐTÖL laugardaginn 12. desember frá 9.00 til 21.00 á HÓTEL SÖGU við Hagatorg, sfmi 552 9900. Ókeypis aðgangur - Foreldrar og nemendur velkomnir! HAWAII PACIFIC UNIVERSITY Office of Intemational Admissions 45 045 Kamehameha Highway, Kaneohe. Hl 96744-5297 USA Sími 001808 236 3502. Fax: 001808 236 3520. Netfang: international@hpu.edu Heimasíða: www.hpu.edu Victoría — Antik Antík og gjafavörur — sígildar vörur kynslóð eftir kynslóð. Antik er fjárfesting ★ Antik er lífstíll. Ný vörusending: Jólagjafir, brúðkaupsgjafir, afmælisgjafir og gjafavörur fyrir öll tækifæri. Gjafirsem ekki gleymast. 15% jólaafsláttur Sölusýning í dag, fim., fös. og lau. kl. 13—18 á Sogavegi 103, s. 568 6076 utan opnunartíma. Geymið auglýsinguna. FÉLAGSSTARF Auglýst eftir framboðum til prófkjörs á Suðurlandi Ákveðið hefur verið að viðhafa prófkjör um val frambjóðenda Sjálf- stæðisflokksins við næstu alþingiskosningar sem fari fram laugardag- inn 6. febrúar 1999. Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosningum. 20 flokksbundnir sjálf- stæðismenn, búsettir í Suðurlandskjördæmi, skuiu standa að hverju framboði og enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en 6. Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum eftir að framboðsfresti lýkur. Framboðum ber að skila ásamt mynd af viðkomandi og stuttu ævi- ágripi til kjörstjórnar ísíðasta lagi fimmtudaginn 7. janúar 1999 og sendisttil einhvers neðangreindra kjörstjórnarmanna. Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi: Bogi Karlsson, Selfossi, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson, Hellu. Ólafur Elísson, Vestmannaeyjum, Sesselja Jónsdóttir, Þorlákshöfn, Sveinn Pálsson, Vík. UPPBOD Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Gránugötu 6, Siglufirði, mánudaginn 14. desember 1998 kl. 13.30 á eftir- farandi eign. Hlíðarvegur 22, efri hæð, Siglufirði, þingl. eig. Guðrún Hjaltalín Guð- jónsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verkalýðsfélaga á Norðurl. vestra. Sýslumaðurinn á Siglufirði, 8. desember 1998, Guðgeir Eyjólfsson. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF □ GLITNIR 5998120919 III I.O.O.F. 9 = 1791298V2 = I.O.O.F. 18 = 1791298 ■ I.O.O.F. 7 = 179120981/2 = Jv. Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. áSAMBAND (SUENZKRA ___' KRISTNIBOÐSFÖAGA Háaleitisbraut 58 í kvöld kl. 20.30 verður samkoma í Kristniboðssalnum. Margrét Hróbjartsdóttir talar. Allir hjartanlega velkomnir. FERÐAFÉLAG ® ÍSLANDS MORKINNI6 - SlMI 568-2533 Miðvikudagur 9. desember kl. 20.30 Kvöldvaka um Færeyinga- sögu. Ögmundur Helgason fjall- ar um söguna og farið er á sögu- slóðir hennar í Færeyjum með myndum og frásögn. Ahugavert efni sem enginn ætti að missa af. Verð 500 kr. (veitingar innifaldar). Kvöldvakan verður í Ferðafé- lagssalnum í Mörkinni 6. Sunnudagsferð 13. desember kl. 13.00. Heiðmörk (Ferðafélagslund- urinn) — Elliðavatn. Auðveld ganga fyrir alla. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Minnum á áramótaferðina í Þórsmörk 30/12—2/1. Gist í Skagfjörðsskála, Langadal. Gönguferðir, kvöldvökur, flugeld- ar, brenna o.fl. Miðar á skrif- stofu. TILKYNNINGAR Sálarrannsóknarfélag íslands 80 ára Af því tilefni verður efnt til af- mælisfagnaðar í Iðnó fimmtu- dagskvöldið 10. desember kl. 20.00. Nokkrir af þeim miðlum sem starfa á vegum SRFÍ munu koma fram ásamt breska ærsla- miðlinum Derek Johnson sem ætlar að reyna að koma öllum verulega á óvart með dagskrá sem er ólík öllu því sem viö eig- um að venjast. Miðasala í Garða- stræti 8 og við innganginn. SRFÍ. EINKAMÁL Bandaríkjamaður á miðjum aldri Hvítur, fjárhags- lega vel stæður, I tilfinningalegu jafnvægi. Býr [ hlýju umhverfi í N-Ámeríku í Kent- ucky. Líkamlega hraustur og drekkur hvorki né reykir. Þær sem hafa áhuga á að kynnast honum og eru á aldrin- um 20—30 ára, leggi inn svör á afgreiðslu Mbl. merkt: B — 30". www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.