Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 13 deildarkerfinu. Frá og með upphafi næsta fiskveiðiárs er lagt til að aflaheimildum sem ætlaðar hafa verið bátum sem veitt hafa sam- kvæmt þessum kerfum verði dreift á einstaka báta í formi aflahlut- deildar. Verði frumvarp þetta óbreytt að lögum felur það í sér þá megin- breytingu að ekki eru lengur settar takmarkanir á stærð fiskiskipaflot- ans. Hins vegar eru ekki gerðar breytingar á aflahlutdeildarkerfinu að öðru leyti en því að það nær eftir breytinguna til alls fiskiskipaflot- ans. Gert er ráð fyrir að hver og einn sem fullnægir almennum skil- yrðum laga geti fengið almennt veiðileyfi án tillits til þess hvort hann á fiskiskip sem haldið var til veiða á ákveðnum tíma eins og nú gildir. í þessu felst annars vegar réttur til veiða á tegundum utan „kvóta“ og hins vegar möguleiki til að fá framseldar frá öðrum afla- heimildir af tegundum sem heildar- afli er takmarkaður af. Samkvæmt 7. gr. laga nr. 79/1997 eru grásleppuveiðar háðar sérstöku leyfi og eiga þeir bátar einh- kost á slíku leyfi sem rétt áttu til þess á grásleppuvertíðinni 1997. Hefur hliðstætt fyrirkomulag ríkt síðan 1978. Er augljóst að þetta ákvæði er hliðstætt 5. gr. laga nr. 38/1990 að því leyti sem Hæstiréttur taldi hana í andstöðu við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Er því lagt til í fylgifrumvarpi með frumvarpi þessu að ákvæðið verði að þessu leyti afnumið. FRUMVARP til laga um breyting á lögum nr. 79 26. maí 1997, um veið- ar í fiskveiðilandhelgi Islands (Lagt fyrir Alþingi á 123. löggjaf- arþingi 1998-99) 1. gr.: 1. mgr. 7. gr. laganna orð- ast svo: Grásleppuveiðar skulu háðar sér- stöku leyfi Fiskistofu. Ráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um skipulag veiðanna, þar á meðal um stærð báta er veiðamar stunda og veiðitíma. A sama hátt getur ráð- herra ákveðið svæðisskiptingu veið- anna, svo sem að einungis bátar sem skráðir eru á tilteknum svæð- um megi stunda þar veiðar. 2. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Athugasemdir við lagafrumvarp þetta Frumvarp þetta er lagt fram sem fylgifmmvarp með frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða. Eins og fram kemur í almennum athuga- semdum með því frumvarpi eru grásleppuveiðar háðar sérstöku leyfi og eiga þeir bátar einir kost á slíku leyfi sem rétt áttu til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997. Hefur hliðstætt fyrii'komulag gilt allt frá Eins og fram kemur í ákvæði til bráðabirgða IV þykir rétt að sjáv- arútvegsráðherra leggi fyrir lok ársins 2000 skýrslu fyrir Alþingi um áhrif laga um stjórn fiskveiða. Jafnframt er í ákvæðinu kveðið á um að endurskoða skuli lögin fyrir lok fiskveiðiársins 2000/2001. Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins Um 1. gr.: Með þessari grein er lagt til að afnumdar verði þær regl- ur sem frá 1983 hafa gilt varðandi takmarkanir á stærð fiskiskipaflot- ans. I því felst sú breyting að úreld- ing skipa sem fyrir eru í flotanum verður ekki lengur forsenda fyrir því að ný skip fái leyfi. Þar með falla niður allar reglur um mat á því hvaða skip eru sambærileg. Lagt er til að öll fiskiskip sem hafa haffær- isskírteini og skrásett eru á skipa- skrá Siglingastofnunar Islands eða sérstaka skrá stofnunarinnar fyrir báta undir 6 metrum geti fengið leyfi til. veiða í atvinnuskyni enda fullnægi eigendur þeirra og útgerð- araðilar skilyrðum laga til að stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Islands. Leyfí til veiða í atvinnu- skyni eru áfram bundin við skip enda er útgerð skipa forsenda veiða og þar með forsenda fyrir að þörf sé á veiðileyfi. Þá hafa allir lands- menn jafnan rétt til að kaupa skip og fá það ski'áð á skipaskrá Sigl- ingastofnunar. Af dómi Hæstarétt- ar verður ekki ráðið að neitt sé því til fyrirstöðu að binda veiðileyfi við skip eins og hér er lagt til. Eigend- árinu 1978. Er ákvæði 7. gr. laga nr. 79/1997 hér að lútandi hliðstætt 5. gr. laga 38/1990, um stjórn fisk- veiða, en Hæstiréttur taldi í dómi sinum 3. desember 1998, í máli nr. 145/1998, þá grein vera í andstöðu við jafnræðisreglu stjórnarskrár- innar. Með þessu frumvarpi er lagt til að umræddu ákvæði 7. gr. laga nr. 79/1997 verði breytt til samræm- is við niðurstöðu Hæstaréttar. í frumvarpinu er lagt til að fellt verði úr gildi það ákvæði 7. gr. að þeir bátar einir eigi kost á leyfi til gi'ásleppuveiða sem rétt áttu til leyfis á grásleppuvertíðinni 1997. Þó er gert ráð fyrir að ráðherra geti með reglugerð sett nánari ákvæði um skipulag og svæðaskiptingu veiðanna. Fylgiskjal. Fjármálaráðuneyti, íjárlagaskrifstofa: Umsögn um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi íslands. Með frumvarpinu er lögð til hlið- stæð breyting og ætlað er að gerð verði á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, sem snertir stærð fiski- skipaflotans. Ekki verður séð að frumvarpið hafi áhrif á útgjöld rík- issjóðs. ur og útgerðaraðilar skipa verða að fullnægja þeim skilyrðum til að stunda veiðar í fiskveiðilandhelgi Islands sem kveðið er á um í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í at- vinnurekstri og í lögum um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fisk- veiðilandhelgi Islands. Eftirtaldir aðilar fullnægja þessum skilyrðum: 1. Islenskir ríkisborgarar og aðrir íslenskir aðilar. 2. íslenskir lögaðilar sem að öllu leyti eni í eigu íslenskra aðila eða lögaðila sem uppfylla efth'farandi skilyrði: a. Eru undir yfirráðum íslenskra aðila. b. Eru ekki í eigu erlendra aðila að meira leyti en 25% sé miðað við hlutafé eða stofnfé. Fari eignar- hlutur íslensks lögaðila í lögaðila, sem stundar veiðar eða vinnslu í fiskveiðilandhelgi Islands, ekki yfir 5% má eignarhlutur erlendra aðila þó vera allt að 33%. c. Eru að öðru leyti í eigu ís- lenskra ríkisborgara eða íslenskra lögaðila sem eru undir yfirráðum íslenskra aðila. Um 2. gr.: Með þessari grein er lagt til að afnumdar verði sérreglur um veiðar svonefndra krókabáta. Fer því framvegis eftir almennum reglum laganna um stjórn fiskveiða um veiðar allra báta undir 6 brl., sbr. þó ákvæði til bráðabirgða I um veiðar krókabáta á þessu fiskveiði- ári. Munu krókabátar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða II fá úthlut- að fastri aflahlutdeild frá upphafi næsta fiskveiðiárs. Um þessa breytingu vísast að öðru leyti til al- mennra athugasemda hér að fram- an og athugasemda við bráða- birgðaákvæði I og II. Um 3. og 4. gr.: Breytingar sam- kvæmt þessum greinum leiðir af af- námi 6. gr. og þarfnast þær ekki frekari skýringa. Varðandi fyrir- komulag á yfirstandandi fiskveiði- ári vísast til tveggja síðustu máls- greinanna í ákvæði til bráðabirgða I. Um 5. gr.: Með greininni er gerð tillaga um tvær breytingar á 11. gr. laganna. Annars vegar er lagt til að brott falli það ákvæði að framsal á afla- hlutdeild skuli háð samþykki Fiski- stofu þegar það skip sem flutt er til hefur ekki aflahlutdeild af þeirri tegund sem framseld er. Þetta er gert til að þess að tryggja að skip sem fá veiðileyfi en hafa ekki afla- hlutdeild geti hindrunarlaust fengið framselda til sín aflahlutdeild. Hins vegar er lagt til að reistar verði skorður við því að framselja megi aflahlutdeild báta undir 6 brl. til skipa sem eru 6 brl. eða stærri. Þessi takmörkun tekur mið af því að allt frá árinu 1990 hafa flestir bátar af þessari stærð, sem notaðir eru í atvinnuskyni, stundað veiðar í svokölluðu ki’ókakerfi. Auknar afla- heimildir krókabáta á undanfórnum árum hafa eflt smábátaútgerð og er hún nú undirstaða atvinnulífs á ýmsum smærri stöðum. Þykir eðli- legt að reisa nokkrar skorður við því að röskun hljótist af þeirri breytingu að krókabátar stundi hér eftir veiðar með aflahlutdeild. Ekki verður hjá því komist að um leið breytist til samræmis framsals- heimild báta undir fyrrnefndum stærðarmörkum sem nú stunda veiðar með aflahlutdeild. Um 6. gr.: í a-lið greinarinnar er lagt til að afnumin verði sú heimild ráðherra að geta með reglugerð bundið flutning aflamarks af ein- stökum tegundum því skilyrði að það skip sem fært er til hafi afla- hlutdeild af þeirri tegund sem milli- færð er. Um ástæður þessa vísast til þess sem fram kemur í athuga- semd við 5. gr. I b-lið greinarinnar er lagt til að einungis sé heimilt að framselja aflamark báts sem minni er en 6 brl. til báts eða báta undir þeim stærðarmörkum. Eiga hér við sömu ástæður og búa að baki reglu 5. gr. og vísast til skýringa í athugasemd- um við hana. I viðskiptum á Kvóta- þingi mundi þurfa að taka tillit til þessara takmarkana og sýnist það unnt innan ramma núgildandi laga um Kvótaþing. Um 7. gr.: Greinin þarfnast ekki skýringa. Um ákvæði til bráðabirgða I Ákvæði um það hverjir geti feng- ið leyfí til veiða með línu og hand- færum, fyrir báta minni en 6 brl. að stærð, svonefnd krókaleyfi, er nú að finna í 5. gr. laga um stjórn fisk- veiða. Er talið ótvírætt að þau fái ekki staðist eftir dóm Hæstaréttar í málinu nr. 145/1998. Þetta skapar mikinn vanda varðandi veiðar krókabáta vegna þess að í veruleg- um mæli eru aflaheimildir þeirra beinlínis tengdar við veiðileyfi þótt ákveðin sameiginleg aflaviðmiðun gildi varðandi þorsk hjá dagabát- um og þorskaflahámarksbátar hafi einstaklingsbundna magntakmörk- un í þorski. Ailaheimildir króka- báta eru því ekki aðgreindar frá veiðileyfum þeirra hliðstætt því sem gerist varðandi aflahlutdeild- arbátana. Þykir einsýnt að vinda verði bráðan bug að breytingum á þessu fyrirkomulagi hjá krókabát- unum en samkvæmt þessu ákvæði er þó lagt til að breytingin verði ekki fyrr en við upphaf næsta fisk- veiðiárs enda óhægt um vik að breyta um fyrirkomulag á miðju fiskveiðiári. Með lögum nr. 83/1995 var ákveðið að reikna einstaklings- bundna aflareynslu fyrir hvem krókabát vegna þess að þótt veiði- heimildir þeirra hefðu aukist gríð- arlega blasti við að veiðidögum þeirra mundi fækka með aukinni sókn. Var ákveðið að útgerðaiTnenn gætu valið hvort hlutdeild þeirra í veiðum krókabáta yrði notuð sem einstaklingsbundin magntakmörk- un eða lögð inn í sameiginlegan há- marksafla krókabáta á sóknardög- um. Reiknuð aflaviðmiðun fyrir hvem bát byggðist á meðaltali tveggja bestu áranna af þremur, almanaksáranna 1992, 1993 og 1994. Um 70% af þeirri sókn rám- aðist innan heildarþorskveiðiheim- ilda krókabáta sem þá voru orðnar 21.500 lestir. Vorið 1996 var ákveð- ið að miða heildarþorskafla króka- báta við tiltekið hlutfall af heildar- þorskafla sem þá var í lágmarki eða 155.000 lestir. Síðan hafa veiðiheim- ildir krókabáta aukist um nálega 60 af hundraði vegna hlutfallstenging- arinnar eða í 34.375 lestir. Hafa nú allir krókabátar hærra reiknað þorskaflahámark en meðaltal tveggja bestu veiðiáranna gaf við- miðunarárin 1992-94. Krókabátar í heild eru nú 825 og hefur þeim fækkað um fjórð- ung frá árinu 1994, m.a. vegna að- gerða Þróunarsjóðs. Mest hefur fækkað meðal báta sem valið hafa þorskaflahámark. Þeir eru nú 497, með tæp 92% veiðireynslunnar viðmiðunarárin 1992-94. Hins vegar skiptast 8% á milli 277 báta á handfærum og 51 báts á línu og handfærum og hefur hvor flokkur nálægt 9 lesta viðmiðun að meðal- tali á hvern bát. Afli á dag hefur aukist hröðum skrefum á undan- förnum árum. Fór aflinn úr 560 kg á dag á handfæri að meðaltali fyrir tveimur árum í 1.300 kg á dag á síðasta fiskveiðiári. Að óbreyttu verða leyfðir sóknardag- ar einungis níu á hvern bát í sókn- ardagakerfunum á yfirstandandi fiskveiðiári. Þess má geta að frá árinu 1995, þegar einstaklings- bundin veiðireynsla var reiknuð fyrir hvern bát, hefur nálægt helmingur sóknardagabáta skipt um eigendur samkvæmt gögnum Fiskistofu eða 146 bátar af 328. Þá hafa 42 bátar af 328 verið end- urnýjaðir með nýsmíði á þessum tíma. í þessu ákvæði til bráðabirgða er lagt til að núverandi fyrirkomulag á veiðum krókabáta haldist að mestu óbreytt út þetta fískveiðiár. Þó er lagt til að eftirfarandi breytingar verði gerðar: Veiðidögum sóknar- dagabáta verði fjölgað frá því sem verið hefði úr níu í 32 fyrir hand- færabáta en í 26 fyrir línu- og hand- færabáta. Til mótvægis við fjölgun sóknardaga er sett 30 lesta hámark á þorskafla hvers báts á fiskveiðiár- inu. Loks eru gerðar nokkrar breytingar á endurnýjunan’eglum krókabáta og horfa þær fyrst og fremst til rýmkunar. Um ákvæði til bráðabirgða II Með ákvæði þessu er lagt til að fyrir upphaf næsta fiskveiðiárs verði ákveðin aflahlutdeild fyrir þá báta sem nú stunda veiðar sam- kvæmt svonefndu krókakerfi. Jafn- framt eru gerðar tillögur um hvernig að þessari úthlutun afla- hlutdeildar skuli staðið. Ljóst er að nokkur munur hlýtur að vera á nálgun að úthlutun aflahlutdeildar hjá annars vegar dagabátum og hins vegar þorskaflahámarksbát- um. Þeir síðarnefndu sæta hver um sig takmörkun í þorskveiðum sem auðvelt er að afmarka sem beina hlutdeild hvers báts í heildar- þorskafla. Varðandi þessa báta þarf því aðallega að leysa úr því hver hlutdeild þeirra eigi að vera í afla- hlutdeild annarra tegunda sem þeir stunda veiðar á. Hér er lagt til að notað verði til viðmiðunar veiði- tímabil sem sé eins nærri í tíma og kostur er og að krókabátar njóti sem heild þeirrar sömu hlutdeildar og veiði þeirra hefur verið síðastlið- in þrjú almanaksár. Skipting inn- byrðis milli veiðihópanna í öðrum tegundum en þorski verði í sömu hlutfóllum og skipting þorskveiði- heimilda. Það sem í hlut þorskafla- hámai’ksbáta kemur af aflahlut- deild í öðru en þorski skiptist milli þein’a í hlutfalli við aflareynslu síð- astliðin þrjú almanaksár, þó þannig að fyrir hvern bát er miðað við tvö bestu ár af þremur. Hefur það iðu- lega verið gert í slíkum tilvikum til að koma til móts við sjónarmið sem varða frátafir báta frá veiðum o.fl. Varðandi dagabáta liggm' fyrir að þeir veiða nú í félagslegu kerfi, sem svo má kalla, þ.e. allir bátarnir í hvoru dagakerfi um sig hafa sam- eiginlega aflaviðmiðun og búa allir við sömu veiðitakmarkanir. Við út- hlutun. aflahlutdeildar til þeirra þykir því eðlilegast að úthluta jafnt á dagabáta innan hvors kerfis, ann- ars vegar þorskveiðiheimildum þeirra og hins vegar því sem í þeirra hlut kemur af aflahlutdeild í öðrum tegundum. Um ákvæði til bráðabirgða III Samkvæmt ákvæði til bráða- birgða I í lögum nr. 83/1995 var ár- lega úthlutað 5.000 lesta aflaheim- ildum af þorski miðað við óslægðan fisk til þeirra skipa sem urðu fyrir mestri skerðingu við úthlutun afla- marks frá fiskveiðiárinu 1991/1992. Gildir ákvæðið í fjögur fiskveiðiár, frá fiskveiðiárinu 1995/1996 til fisk- veiðiársins 1998/1999. Skyldi skerðing umfram tiltekin mörk að fullu bætt, en þó þannig að ekkert skip skyldi fá í sinn hlut uppbót umfram 10 lestir af þorski, miðað við slægðan fisk, og skip sem leyfi hafa til fullvinnslu botnfiskafla skyldu ekki fá uppbót samkvæmt ákvæðinu. Frá því að þetta lagaákvæði var lögfest hefur úthlutað aflamark í þorski farið vaxandi, vegna stækk- andi þorskstofns, og er þess því ekki að vænta að upprunalegt jöfn- unartilefni verði fyrir hendi mikið lengur. Vegna 10 lesta hámarksins sem verið hefur á úthlutun til hvers báts hefur þessi jöfnunaráthlutun nýst minnstu bátunum best. Með þessu ákvæði til bráða- birgða er gerð tillaga um framleng- ingu úthlutunar í eitt fiskveiðiár og að lögð verði til grundvallar meðal- talsúthlutun síðustu tveggja fisk- veiðiára. Um ákvæði til bráðabirgða IV Akvæðið þarfnast ekki skýringa. Fylgiskjal. Fjármálaráðuneyti, fjárlagaskrifstofa: Umsögn um fi-umvarp til laga um breyting á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, með síðari breyt- ingum. Með frumvarpinu er lögð til breyting á lögum um stjórn fisk- veiða er varðar stærð fiskiskipaflot- ans. Ekki verður séð að frumvarpið hafi áhrif á útgjöld ríkissjóðs. Fleiri eigi kost á aðgangi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.