Morgunblaðið - 10.12.1998, Page 75

Morgunblaðið - 10.12.1998, Page 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 75 JOYS Gullfallegar prjónadragtir frá AR4 BRÉF TIL BLAÐSINS Tískuverslun»Kringlunni 8-12 • Sími 553 3300 Ekki kemur góðærið á Sogaveginn Frá Guðmundi Bevgssyni: FORSÆTISRÁÐHERRA sagði þegar þing kom saman að það væri góðæri í landinu og ég dreg að sjálfsögðu ekki orð hans í efa. Fjármálaráðherra kom litlu síðar í sjónvarp í viðtal og sagði að tekju- afgangur væri svo mikill hjá rík- inu að hann ætlaði að borga niður erlendar skuldir. Ég hrökk því ónotalega við þegar maður kom og sagði að stór halli væri á viðskipt- um við útlönd, um tugi milljarða. Þrátt fyrir mikinn útflutning var þó innflutningur margfalt meiri. Þegar hann var spurður nánar út í það sagði hann að vélar og tæki, þó aðallega bílar, væru orsökin. Það sem bætti svona hag ríkis- sjóðs væru innflutningstollar af bílum landsmanna. Þegar bílasöl- urnar fóru að auglýsa hver af annarri útsölu á bílum með alls konar tilboðum, fór ég mér til gamans á eina af þeim stærstu og þar gaf á að líta, margir salir fullir af nýjum bílum sem ekki sá út yfir og minnti helst á safnið við Skeiðarétt hér áður fyrr. Eitt er alveg víst að það hafa ekki allir notið góðærisins og nægir að minna á aðferð öi-yrkja til að minna á sín kjör við setningu Al- þingis nú í haust. Félag eldri borgara hefur ekki haft kjark til að vekja eftirtekt á sínum málstað ennþá eins og hinir gerðu og væri þó ekki vanþörf á því. Á síðasta vori fékk ég bréf þar sem mér voru færð þau tíðindi að laun mín úr lífeyrissjóði hefðu verið skert um fímm prósent og nú í haust fékk ég annað bréf frá Trygginga- stofnun þess efnis að tekjutrygg- ing mín væri skert, þar sem ég hefði farið fram úr í tekjum. Ég gerði mér ferð í Tryggingastofnun til að vita hverju þetta sætti. Þá var þar biðröð út fyrir dyr og flestir með bréf í höndunum, sum- ir þó bara með krepptan hnefann og kona sem ég hitti sagði að ekk- ert þýddi að tala við Trygginga- stofnun, þetta væri ekki frá þeim komið, þeir færu bara að fyrir- mælum. Þann veg fór það. Það hefur komið í ljós að menn áttu ekki fyrir öllum nýju bílunum og að heimilin safna skuldum í góð- ærinu. Seðlabankastjóri sagði að bankarnir þyrftu að draga úr út- lánum svo ekki þyrfti að grípa til vaxtahækkana. Því er haldið fram að verðlag sé stöðugt og lítið um hækkanir. Það er ekki á því sem snýr að sjúkum og öldruðum því meðul hafa stórhækkað og kaffi sem mörgum finnst gott að fá ann- að slagið, þar er pakkinn nærri 100 krónum hærri en á síðasta ári og bakkamatur, sem margir sem eru rólfærir en nenna ekki alltaf að elda kaupa af og til, er nú helm- ingi dýrari en í fyrra, eftir því sem einn fullyrðir í Mogganum 21. þ.m. og nú á að hækka afnotagjald af útvarpinu um 5 prósent. Við, þessi gömlu sem erum alin upp í heimskreppunni og lifðum á stríðstímum og viðreisn, að ógleymdri allri framsóknar- mennskunni, við kippum okkur ekki orðið upp við neitt. Arnþór Helgason sá ástæðu til að minna framsóknarmenn á flokksþingi á slagorðið frá síðustu kosningum sem þeir höfðu gleymt „Fólk í fyr- irrúmi“. Gott hjá honum, en vont fyrir framsókn, því nú geta þeir ekki notað það aftur á næsta vori. GUÐMUNDUR BERGSSON, Sogavegi 178, Reykjavík ÍÓTRÚlVgTi ! JÓLATILBOÐ ! HÓTEL OG BÍLL í DESEMBER LYKIL HÓTEL CABIN býður gistingu og bfl á aðeins kr. I 5.800,- sólarhringinn | Innifalið: Steikjum Frá Helgu Brekkan: HÓPUR fólks hefur undanfarið lát- ið eins og hálendi íslands sé eitt- hvað merkilegt. Það má auðvitað finna jákvæða punkta. Snæfell er t.d. ókei i fullu tungli. Eyrarrósir í Þjórsárverum oft smartar og gott að sitja við Dettifoss. En þessu má nú fórna fyrir stór- iðju. Ungt fólk á þslandi dreymir um að vinna í kerskála. Þetta vita ráðamenn og flýta sér. Ráðamenn ræða enga drauma, þeir ráða þá ekki heldur, þeir láta þá bara rætast. Svo er hópur fólks að ibba gogg og skilur ekki að ráða- menn eiga landið. Eins og ráðamað- urinn sagði í hádeginu: „Land getur ekki krafist mannréttinda." Vinur minn gerði sjónvarpsþátt um álver í bænum Sundsdvall í Sví- þjóð fyrir nokkrum árum. Reyndar gat hann ekki tekið upp inni í kerskálanum því hátt segulmagn ruglaði tökuvélina í ríminu. Aftur á móti gat hann látið bréfaklemmu standa beint upp í loft í lófanum. Forstjórinn fullvissaði hann um það að segulmagnið hefði engin áhrif á starfsfólkið. Þetta álver notar jafn- mikla orku og öll Gautaborg. í Gautaborg býi’ rúmlega hálf milljón manns. Vegna skorts á vatni og há- lendi er heilt kjarnorkuver í gangi til þess að sjá álverinu fyrir orku. Skapa meiri spennu. Forstjórinn vildi ekki svara spurningum um það hvers vegna börn í Sundsvall væru með mun meira ofnæmi en börn annars staðar í Svíþjóð. Og hvers fjöreggið vegna ætti hann að svara því? Hann er forstjóri álvers og ekki barna- læknir. Mótmæli gegn virkjunum á há- lendi Islands eru út í hött. Við höf- um slæm fordæmi úr sögunni. Ef hún Sigríður í Brattholti hefði ekki verið með kjaft og þar með hindrað virkjun Gullfoss fyrr á öldinni, þá væri Hvítá bara lítil spræna sem truflaði engan. Nú er þarna þessi foss sem alltaf þarf að vera að sýna erlendum þjóðhöfðingjum. Og mörg þúsund túristum sem fara í taugarnar á hundruðum rútubílstjóra. Ég sem leiðsögumaður vil auðvitað heldur vinna inni í álverksmiðju á sumrin en að ganga á fjöll með ferðamenn og sýna þeim þrjósk blóm og garg- andi gæsir. Þá slyppi ég við bréf frá fólki allstaðar að úr heiminum þar sem það minnist daga á há- lendinu. Konur og menn sem tala um tilfinningar sínar til hrauns og heiða. Og fólkið ekki einu sinni ís- lenskt. Væri ekki snjallt að loka hluta há- lendisins og leigja hann út undir kjarnorkuúrgang? Ekkert land í heimi hefur leyst það vandamál. Hér er kjörið tækifæri fyrir ís- lenska ráðamenn að koma landinu á heimskortið. Og þeir geta grætt um leið. Náttúruvernd er í engum takti við tímann. Við stefnum inn í nýja öld og eins og allir vita verður árið 2000 ár álsins. HELGABREKKAN, leiðsögumaður, Schlytersvagen 41, Stokkhólmi. Vandaðar jólagjafir Frönsk náttföt Á HAGSTÆÐU VERÐI O G N E R werslun v/Oðinstorg, ^fÍ1ÍkS52:5177 Tveggja manna herbergi í eina nótt, með morgunverði + bílaleigubíll með 100 km (trygging og VSK innifalinn). Góður kostur fyrir þá sem heimsækja höfuðborgina í desember. Upplýsingar og pantanir í síma 511 6030 og fax 511 6031. IIJEIQ / VESðyAI MJAij RENf ;mmn snyrtivörurnar fást aðeins í eftirtöldum snyrtivöruverslunum .-r *~i"**U } ,jH£C I ts&CT’' Sigurboginn, Laugavegi 80 Bjarg, Akranesi Tara, Akureyri Clara, Kringlunni Krisma, ísafirði Óculus, Austurstræti Sandra, Smáratorgi Þekking og þjónusta í UVETAZZ nýr ilmur fyrir menn sem kunna að njóta lífsins Urval glæsilegra gj afapakkninga Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld mllli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, félag laganema Handboltinn á Netinu m b I. i s /\LLTAf= £!TTH\SAÐ A/ÝT7

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.