Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 74
74 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
(SRETTIR, X>A£> ER MÓS f
ELPHÓSINU
\J/{ SSGÐU HENnT)
' r/*e> FÆieAAiéKM
Hundalíf
“7----------------------s
•' SeppiW' henncnr Zó'Lu
elti miy niÍurcULcu
3unnu<?ötu og svo upp
V
Sem betur -fyrír m/g erv
þi/j noiSur fyrir frú ZöLu
þó- erhansv enn. óc/nai/n/v
Ljóska
Smáfólk
MT PLAN L0A5 TO
6ET APOPTED BT
50ME BEAUTiFUL
6IRL, BUTIN5TEAD
I ENDEP UP IN
THE H05PITAL.
—<0-
ANTWAV, HERE I AM
BACK MOME A6AIN..
I 6UES5 l‘M REALLT
PRETTT LUCKT..
I 5TILLHAVE
MT MICKET
M0U5ESHOES
ANDAFAITHFUL
FRIEND TO
LEAN ON..
Áætlun mín var sú að verða
ættleiddur af einhverri
fallegri stúlku, en í staðinn
hafnaði ég á sjúkrahúsi...
Hvað um það, hér er
ég kominn heim á ný
„ég býst við að ég sé
reglulega heppinn"
Ég á enn Mikka-
Mús skóna og
tryggan vin sem
ég get treyst.
Æ!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Eldri borgarar
og vextir
Frá Halldóri Finnssyni:
í MORGUNBLAÐINU 25. nóv. sl.
kynnir fyrirtækið „Fjárfesting og
ráðgjöf' könnun, sem gerð var hjá
fólki „á besta aldri“ eins og þeir orða
það, eða á aldrinum 50-60 ára, um
hvernig fjárhag þeirra yrði háttað
þegar það kæmist á lífeyrisaldurinn.
Þetta er mjög gott framtak, sem
gæti kannski orðið til þess að fólk á
þessum aldri hugsaði meira um,
hvemig fjárhagurinn verður á efri
árunum.
Það kom í ljós, sem manni kom
ekki á óvart, að mikill meirihluti
þessa fólks hafði lítið gert sér grein
fyrir því, hvað það hefði til ráðstöfun-
ar, þegar að lífeyrisaldrinum kæmi.
Hvað gera svo bankarnir fyrir
eldra fólkið, því staðreynd er að það
á helming, eða meira, af innistæðum
einstaklinga í bönkunum.
Eg hef trú á því að hluti skýringar
á því að bankar hafa lítið sem ekkert
gert íyrir þessa aldurshópa sé að
fæstir geri sér grein íyrii- því hversu
stór hluti af sparifé einstaklinga í
bönkum er í eigu eldra fólksins.
Þegar verið var að undirbúa
álagningu fjármagnstekjuskatts á
árinu 1996, létu bankarnir gera
könnun á því hvernig innistæður í
bönkum skiptust á milli einstakra
hópa. Þá kom þetta í Ijós: Fólk 67
ára og eldri átti 49% af innistæðum
einstaklinga í bönkunum, og á aldr-
inum 60-66 ára átti 13% af innistæð-
unum. - Þannig að einstaklingar 60
ára og eldri áttu 62% af innistæðun-
um - þótt ótrúlegt sé. Þetta hefur
trúlega ekkert breyst.
Hvaða vexti greiða bankarnir svo
af þessum innistæðum? - Vegna
bankaleyndar fæst það auðvitað ekki
uppgefið - en af nokkuð mörgum
dæmum fengnum eftir öðrum leið-
um, virðast vextir vera þetta 1-2%
og í einstaka tilfellum 3-3,5%, og er
þetta svipað og könnunin sýnir.
Af hverju á fólk svona mikla pen-
inga á svona lágum vöxtum?
Það er fyrst og fremst vegna þess
að fólk treystir á bankana. Þeir eru
jú alltaf að auglýsa alls konar kjara-
reikninga, en svo er þeim breytt, og
aðrir koma í staðinn, án þess að fólk
geti fylgst með.
Hvað ættu bankarnir
að gera fyrir fólkið?
Bankamir ættu að bjóða eldra
fólkinu upp á sérkjarareikninga,
með ákveðinni þjónustu, eins og
bankar bjóða nokkrum aðilum nú
þegar. Reikningar þessir bæru
sæmilega vexti, (t.d. miðað við 1998
- svona 5% + verðbætur) - þar að
auki bjóði þeir upp á þjónustu, svo
sem að sjá um greiðslur vegna íbúð-
arhúss, síma, útvarps og annarra
fastra gjalda, og taki bankarnir ekki
sérstaklega fyrir það.
Meiri þjónustu gætu bankarnir
eflaust lagt þessum aldurshópi til,
Má t.d. nefna að trúlega verða eftir
stuttan tíma (kannski 2-4 ár) komin
rafræn skattframtöl. Vegna þess
hversu einfóld skattframtöl þessa
fólks eru í flestum tilfellum mundu
framtöl þeirra vera með þeim
fyrstu. Þetta geta fulltrúar fólksins í
bönkum auðveldlega hjálpað þeim
með.
Þegar talað er um að fólk 60 ára
og eldri eigi um 62% af innistæðum
einstaklinga í bönkum, er nærri ör-
uggt að þarna eru ekki stóreigna-
menn með, - ég meina þá sem eiga
tugi milljóna - þeir hafa sína ráð-
gjafa hvernig best sé að ávaxta fé
sitt.
Niðurstaðan er þessi: Aldraðir
eiga í bönkum mun meira fé, en
haldið hefur verið, og af þessu fé eru
greiddir mjög litlir vextir.
HALLDÓR FINNSSON,
fv. bankamaður,
Grundarfirði
Hvað er að gerast hjá
Landmælingum Islands?
Frá Hafsteini Þór Haukssyni:
LANDMÆLINGAR íslands, sem í
mínum huga vora lengstum faglegt
fyrirtæki, vh'ðast nú ef marka má
fjölmiðla, sokknar á kaf í spillingu
og stöðnun. Minna frásagnir helst á
ríkiseinokunarfyrirtæki í Rússlandi
fyrir hrun Sovétríkjanna.
Sem áhugamaður um sagnfræði
hef ég eilítið kynnt mér sögu Land-
mælinga íslands. Stofnun þessi var
byggð á arfleifð danskra kortagerð-
armanna sem unnu ötullega að kort-
lagningu landsins á fyrri hluta ald-
arinnar. Síðan tóku Bandaríkja-
menn við dæminu. Það sem Land-
mælingar Islands hafa gert síðan
1956 er einfaldlega að endurskoða
þessi gögn, taka loftmyndir og selja
kort. I kringum þessa einföldu fram-
leiðslu og þjónustu óx hins vegar
bákn sem hefur lítið annað gert en
að sjúga til sín fjármagn frá skatt-
borgurum til viðhalds á teiknistofu,
skrifstofu og kortasölu, sem sam-
kvæmt fjárlögum tapaði 50 milljón-
um á ári. Samhliða hefur stofnunin
hindrað alla eðlilega samkeppni í
landinu á þessu svið í skjóli úreltrar
ríkiseinokunar. Er skemmst að
minnast nýútgefinnar birtingar-
gjaldskrár sem er fráleitt íyrirbæri í
nútíma upplýsingasamfélagi og
minnir helst á daga haftastefnunnar.
Landmælingar Islands standa held-
ur ekki undir nafni, því þar hafa
ekki verið stundaðar landmælingar
svo árum skiptir. Aðrar stofnanir
eins og Orkustofnun og Vegagerðin
virðast hafa tekið við forystuhlut-
verkinu í þeim málaflokki.
A að breyta þessari stofnun eða
einkavæða hana? Nei, það á að
leggja hana niður og spara ríkinu
100 milljónir árlega. Landmælingar
íslands er tímaskekkja í nútíma
samfélagi, þar sem ótal einkafyrir-
tæki eru nú þegar betur í stakk búin
til að sinna verkefnum á sviði korta-
gerðar, loftmyndatöku og landmæl-
inga. Ríkið hefur nóg annað við fjár-
magn sitt að gera.
HAFSTEINN ÞÓR HAUKSSON,
Þernunesi 8, Garðabæ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.