Morgunblaðið - 10.12.1998, Síða 79

Morgunblaðið - 10.12.1998, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 79 FÓLK í FRÉTTUM Svalur sveitavargur TOJVLIST Geisladiskur ERT’ ÚR SVEIT Pyrsta geislaplat a Hundslappadrífu, meðlimir sveitarinnar eru Þorkell S. Símonarson, Þormóður G. Sfmonar- son, Helgi Axel Svavarsson, Eyþór Osterby, Brynja Grétarsdóttir og Ingibjörg Hrönn Guðmundsdóttir. Hljóðritun fór fram í Stúdíó Stef, upptökustjóri var Björgvin Gfslason en hann ásamt Birgi Jóhanni Birgis- syni sá um hljóðblöndun. Hunds- lappadrífa gefur sjálf út en Japis dreifir. LENGI, kannski síðan fyrsta þéttbýlið myndaðist, hefur staðið rígur milli landsbyggðarfólks og þéttbýlinga. Borgarbúar skamm- ast sín fyrir að vera úr bænum þegar út á land er komið og sveit- ungarnir hræðast að vera kallaðir sveitavargur þegar á mölina er komið, þetta er einmitt viðfangs- efni sveitasveitarinnar Hunds- lappadrífu enda titill geislaplöt- unnar eftir því. Ert’ úr sveit er sextán laga disk- ur, viðfangsefnin eru m.a. sveitalíf- ið, reynslan af borginni, ófógnuðin- um þar, harmakvein trillukarlsins o.fl. Ekki er þó svo að skilja að sveitasveitin sé full fordóma, grín- ið er góðlátlegt. Tónlistin sveiflast frá því að vera írsk þjóðlagatónlist yfir í blús, hljófæraleikur er allur órafmagnaður, gítarar, harmon- ikka, mandólín og stórskemmtilegt ásláttarhljóðfæri að nafni bobrain leiða tónlistina auk söngvaranna tveggja. Lögin eni flest smíðar bræðranna Þorkels S. Símonar- sonar sem semur alla texta utan einn og Þormóðs G. Símonarsonar sem semur öll lögin nema tvö. Þetta samstarf bræðranna hljómar vel, ekki síst fyrir aðstoð annarra meðlima sveitarinnar. Textarnir eru að öðru ólöstuðu aðal Hundslappadrífu, viðfangs- efnin eru mörg og misalvarleg; drykkjuskapur, fjárhagserfíðleik- ar og samskipti kynjanna. I laginu Dúett kveðast Ingibjörg Hrönn Guðmundsdóttir og Þorkell á, „Ég er hætt að hella upp á kaffi, / handleika víxla og kúst.“ Þorkell svarar, „Hættu að tuða, hugsa og suða, / og hentu í mig ísköldum bjór.“ Textarnir eru yfirleitt vel samdir, Þorkell notar stuðla og höfuðstafi án þess innihaldið líði fyrir það. Hann er einnig beittur þegar svo á við, úr laginu Um Reykjavík; „Hrappar mynda hrafnaþing, / Hökta druslur allt í kring / Myrða fyrir misskilning / meðalgreindan Reykvíking.” Ann- ars staðar tekst Þorkeli ekki eins vel upp, en það er sjaldan og spillir lítt fyrir heildinni. Þorkell er einnig slarkfær söngvari, laglaus oft en skemmtilega eins og heyrist í einu besta lagi plötunnar Draugasögu, stöku sinni fer hann þó yfir strikið og rembist t.d. í Bumbubrag. Rám rödd Eyþórs Österby hefði þar átt betur við, hann sýnir í laginu Línudans í landi að hann getur sungið engu síður en leikið á gítar, það sama á við um Ingibjörgu, rödd hennar er nær óaðfinnanleg en hún mætti þó nota röddina meira, söngurinn er á stundum tilþrifalaus, sem er mið- ur. Lagasmíðar Þorra verða seint taldar frumlegar, enda flokkast tónlistin helst undir þjóðlagatón- list, sú tónlist er hefðbundin og kannski ekki þörf á að breyta út frá því. Hann er lunkinn lagasmið- ur, best tekst honum upp í lögun- um Draugasögu og laginu þar á eftir, Búkoilu, einnig eni lögin Helvítis Disco eftir Þormóð og Axiar Björn eftir Eyþór Österby skemmtileg. Hundslappadrífa er sérstök sveit og í raun þarft framlag til íslenskr- ar tónlistai', sveitin eltist ekki við strauma og stefnur heldur leikur eftir sínu eigin höfði. Flest eru lög- in skemmtileg, samspil lags og texta afbragð og hljóðfæraleikur sem og söngur til fyrirmyndar. Stöku sinnum fellur sveitin niður í meðalmennskuna og geislaplatan hefði mátt vera styttri, betra er að semja mikið og velja aðeins það allra besta til útgáfu. Engu að síð- ur getur sveitasveitin Hundslappa- drífa verið ánægð með sitt framlag, sveitavargurinn hefur sannað sig. Gísli Árnason Engir fýlupokar TOIVLIST Geisladiskur HLÁTURINN LENGIR LÍFIÐ Hljómsveitin Papar flytur 14 lög og lagasyrpur úr ýmsum áttum. Papar eru Dan Cassidy, fiðla, Eysteinn Ey- steinsson, trommur, slagverk, raddir, Georg Ólafsson, bassi, raddir, Ingvar Jónsson, gítar, söngur, Páll Eyjólfs- son, hljómborö, harmónika, raddir, Vignir Ólafsson, banjó, gítar, söngur, raddir. Auk þeirra aðstoða við flutn- Eyjólfur Kristjánsson, söngur, gítar, Hermann Ingi Hermannsson, söngur, Bergsveinn Árelíusson, söng- ur, James Olsen, raddir, Gunnar Óla- son, söngur. Diskurinn var hljóðrit- aður og hljóðblandaður í Grjót- námunni, suinarið 1998. Verkið ann- aðist Ólafur Hallddrsson. Umsjón með útgáfu höfðu Eiöur Arnarsson og Arnar Matthíasson. Umbúðir hönnuðu Nonni og Manni. SPOR gef- ur út. 38,44 mínútur. HLÁTURINN lengir lffið er téttnefni á glaðlegum geisladiski hljómsveitarinnar Papa. Sveitin hefur um árabil verið í fremstu röð þeiira sem halda uppi kráar: stemmningu hér á iandi og víðar. í lagavali eru famar troðnar slóðir, tuttugu og fimm kunnugleg lög sem ýmist eru flutt í heild eða sett í syrpur. Lögin eru mörg hver löngu orðin sígild í rútubílasöngbókum landans og flestir geta raulað með. Syrpurnar þrjár, m.a. ein með lög- um úr vinsælum skandinavískum barnaþáttum og leikritum og önn- ur með þjóðhátíðarlögum frá Vest- mannaeyjum, eru einkar skemmti- lega saman settar. Flutningurinn er líflegur og smitandi til fótanna. Sönggleðin og léttleikinn í fyrirrúmi, enda ekki við öðru að búast þegar ræturnar liggja hjá hinum söngglöðu Kelt- um. Bæði tónlistin og flytjendur eiga rætur að rekja til Eyjunnar grænu, Irlands, eru vestmennsk að uppruna. Að plötunni kemur enda írskt blóð með vestmannaeysku og færeysku ívafi! Stílbrigðin eru allt frá banda- rísku blági'esi (bluegi'ass) og írskri þjóðlagasveiflu til íslensks gullaldarpopps. Dan Cassidy fiðl- ari setur mikinn svip á flutning- inn, eins er gaman að heyra ba- njóspil Vignis Olafssonar ásamt. gítarleik hans og Ingvars Jóns- sonar. Páll Eyjólfsson sýnir fína drætti á dragspil og hljómborð. Spilverkið er svo knúið af pott- þéttri undiröldu hrynsveitar þeirra Georgs Olafssonar og Ey- steins Eysteinssonar. Söngvarar skila sínu með prýði. Diskurinn Hláturinn lengir lífið er skemmtilegur áheyrnar og kjör- inn til að lífga upp samkvæmi eða gleðja dapurt geð. Það sannast hér að Papar eru engir fýlupokar, held- ur sannkallaðir gleðigjafar. Guðni Einarsson Hátíðinni lýkur með Skoteldum ► TVÆR nýjar kvikmyndir verða teknar til sýninga í kvöld á kvikmyndahátíðinni Vetrarvindum sem hefur stað- ið yfir í Háskólabíói og Regn- boganum undanfarnar tvær vikur. Eru það lokamyndir há- tíðarinnar Skoteldar og Falinn farangur. Skoteldar Ekki verður af japanska leikstjóranum Takeshi Kitano skafið að hann kann ýmislegt fyrir sér. Hann skrifar handrit að, leikstýrir, klippir og fer með aðalhlutverk í sinni sjö- undu mynd, Skoteldum, sem fékk gullljónið á Kvikmynda- hátíðinni í Feneyjum árið 1997. Kitano er gífurlega þekktur í heimalandi sínu og heimskunnur fyrir stfltök sín sem einkennast af minimal- isma í bland við biksvartan húmor og hrottalega raunsæ ofbeldisatriði, t.d. í myndinni OfbeldisfuII lögga. Skoteldar fjallar um fyrrverandi lög- reglumann sem stendur í skuid við japönsku mafiuna (Yakuza). Hann reynir að ann- ast dauðvona konu sína sem liann elskar af öllu lijai'ta en umhverfi hans verður sífellt ofbeldisfyllra. Falinn farangur Hollenski leikarinn Jeroen Krabbe vakti heimsathygli í myndunum Odauðleg ást og Flóttamanninum. Falinn far- angur er fyrsta myndin sem hann leikstýrir og fer hann HOLLENSKI leikstjórinn Jeroen Krabbé. jafnframt því með aðalhlut- verk á móti Isabellu Rossellini. Falinn farangur gerist í Antwerpen snemma á áttunda áratugnum. Chaja er tvítug skólastúlka sem felst á að ger- ast barnapía hjá strangtrúuð- um gyðingum og annast fjögur börn þeirra. þar á meðal er vandræðabarnið Simcha sem neitar að tala. Chaja hefur já- kvæð áhrif á drenginn en á erfítt með að umbera strangar hefðir og ofsafengna trúrækni foreldra Simcha. Chaja er sjálf gyðingur en fjölskylda hennar hefur fjarlægst trúnni eins mikið og hægt er í kjölfari seinni heimsstyrjaldarinnar. Jeroen krabbé fékk leikstjórn- arverðlaun á Kvikmyndahátíð- inni í Berlín fyrir þessa frumraun sína. mmm ÚR japönsku verðlaunamyndinni Skoteldum. í ^ ftábæra Pt H stuðhljómsveit %% 'W ÁTTAVILLT \w " skemmtir á I ^ Kafíi Reykjavík íimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld. Misstu 6KKl af stuðdansleikjum ársins HEITASTI STAÐURINN í BÆNUM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.