Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 68
68 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
fótboltaferð fyrir
tvo til Englands
Ferðir á enska boltann
www.mbl.is
*
Spreyttu þig á skemmtilegum
spurningum um enska boltann og ef
þú svarar rétt gætir þú unnið eintak af
nýju bókinni Enski boltinn, sex mánaða
áskrift að Sýn eða fótboltaferð fyrir tvo
til Englands með Úrvali-Útsýn.
Þu þarft ekki að vera sérfræðingur!
Svör við öllum spurningunum er að
finna á Enska boltavefnum á mbl.is.
Með hverri spurningu fylgja leið-
beiningar um hvernig hægt er að
nálgast svörin.
m^URVAL UTSYN
Vinningar:
35 eintök
af bókinni
þrjar halfs ars askriftir
AÐSENDAR GREINAR
Mannréttindi
og trú
UM þessar mundir
er þess minnst að 50 ár
eru liðin frá samþykkt
mannréttindayfirlýs-
ingar Sameinuðu þjóð-
anna. Mannréttindayf-
irlýsingin er horn-
steinn eða undirstaða
að umfjöllun um mann-
réttindi og alþjóðlega
löggjöf í heiminum.
Meðal þess sem yfir-
lýsingin geymir, eru
ákvæði um líf, frelsi og
mannhelgi, að enginn
skuli sæta pyndingum
eða ómannúðlegri
meðferð og að allír séu
jafnir fyrir lögum og
eigi rétt á dómsmeðferð, séu þeir
bornir sökum. Þá eru ákvæði um
ferðafrelsi, rétt til ríkisfangs og
rétt til griðlands vegna ofsókna. I
yfirlýsingunni er einnig kveðið á
um skoðana- og tjáningarfrelsi, trú-
frelsi og rétt fólks til að játa trú
sína og einnig frelsi til að skipta um
trú. Þessi grundvallaratriði sem er
að finna í Mannréttindayfirlýsing-
unni voru síðar frekar útfærð í sátt-
málum um menningarleg, félagsleg
og efnahagsleg réttindi og kjör.
Það er ef til vill ekki ástæða til að
fagna svo mjög á þessum tímamót-
um, því enn er ástand í mannrétt-
í tilefni af 50 ára af-
mæli mannréttindayfir-
lýsingar SÞ skrifar
Þorbjörn Hlynur Arna-
son um mannréttindi
og alþjóðlega löggjöf.
indamálum víða bágborið og brot á
grundvallarréttindum sem sáttmál-
inn kveður á um stunduð skipulega
og samviskulaust um gjöi-valla
heimsbyggðina. Nú hin síðustu ár
hefur hins vegar orðið til öílug
hreyfing á heimsvísu sem vill um-
ræðu og aðgerðir vegna mannrétt-
inda og krefst þess að einstök ríki
geti ekki ráðskast með þegna sína
eins og skepnur og sagt í krafti
stöðu sinnar að umheiminum komi
þetta ekki við - staða þegnanna sé
eins og hvert annað innanríkismál.
Mörg aiþjóðasamtök gera sér far
um að standa vörð um mannrétt-
indi og reka áróður fyrir því að þau
séu virt. Þar á meðal má nefna
samtök eins og Amnesty
International og Rauða krossinn.
Starf Amnesty er reyndar einstakt
í sinni röð, því þeim samtökum hef-
ur tekist að virkja almenning í and-
ófi gegn mannréttindabrotum, ekki
síst með því að benda á og draga
fram í dagsljósið voðaverk sem að
öllu jöfnu fá ekki mikla umfjöllun í
hasarfréttum sjónvarpsstöðvanna.
Alþjóðleg kirknasamtök á borð
við Alkirkjuráðið, Samtök evr-
ópskra kirkna og Lútherska heims-
sambandið hafa einnig látið mann-
réttindamál til sín taka.
Allt frá stofnun, árið 1947, hefur
Lútherska heimssambandið fjallað
um mannréttindi; hvort tveggja það
sem mætti kalla almenn réttindi og
félagsleg, menningarleg og efna-
hagsleg réttindi. Lútherska heims-
sambandið hefur ávallt haft baráttu
fyrir mannréttindum framarlega í
starfi sínu. I fjölþættri starfsemi
þess er mannhelgi grundvallarat-
riði, hvort sem fengist er við
menntun, fjölmiðlun, trúboð, neyð-
arhjálp eða þróunaraðstoð.
Lútherska heimssambandið leitast
við að vinna að þessum markmiðum
með aðstoð við heimakirkjur, í sam-
starfi við önnur kirkjuleg samtök
og í samvinnu við alþjóðlegum félög
og samtök.
Mannréttindayfir-
lýsingin er ekki nema
50 ára. Mannréttindi
eru vitaskuld eldri.
Hvaðan koma okkur
hugmyndir um jafnan
rétt fólks? Hægt er að
leita fanga í kristnum
arfi og álykta, að nú-
tíma hugmyndir um
mannréttindi séu krist-
in afurð, í það minnsta
gyðing-kristinn arfur
ef lagt er saman mann-
skilningur og trúfræði
Gamla og Nýja testa-
mentisins. Aðrar skoð-
anir eru líka uppi og
vel er hægt að rök-
styðja að jafnaðarhugsjónir hafi
brotist inn í vestræn samfélög á
upplýsingartímanum þrátt fyrir
andstöðu kirkju- og ríkisvalds.
Það er óhætt að segja, að í gegn
um aldirnar hafi kristnir menn oft
staðið hálfvolgir álegndar fjær,
þegar um rétt náungans hefur ver-
ið að tefla, eða þá lagt allt í sölurn-
ar, líf og eignir og tekið þátt í blóð-
ugri uppreisn gegn kúgurunum.
Saga kristinnar kirkju segir ekki
allt um hver er hin kristilega af-
staða í þessum efnum. Oft hefur
leiðitöm kirkja verið í innilegu
bandalagi við spillt ríkisvald og lagt
jáyrði sitt við ójöfnuði og misrétti.
En kirkjan sem sagan sér og skráir
er ekki ávallt hin sanna kirkja.
Kirkjan á líka í sögu sinni og sam-
tíð spámenn og píslarvotta sem
hafa gefið krafta sína og jafnvel líf
sitt fyrir réttlætið. Líka venjulegt
fólk sem sýnir trú sína í verki. Sið-
bótarmenn voru ekki aðeins fyrir-
ferðarmiklir á 16. öld, heldur hafa
þeir verið til á hverjum tíma kirkj-
unnar. Þeir hafa minnt á að ritning-
in kennir að allir menn eru skapað-
ir í Guðs mynd. Það merkir að
hvert okkar á vilja hug og hjarta og
ber sjálfstæða persónu; að við öll
erum sköpun Guðs, án hans ekkert,
í augum hans allt; þess vegna
heilög og ósnertanleg. Ög að ráðast
að þessari Guðsmynd mannsins og
svívirða hana er glæpur; dauða-
synd.
Verum líka minnug þess sem
Drottinn Jesús kennir er hann les
úr ritningunni og túlkar sem spá-
dóm um sig og erindi sitt í heiminn:
„Andi Drottins er yfir mér, af því
að hann hefur smurt mig. Hann
hefur sent mig til að flytja fátækum
gleðilegan boðskap, boða bandingj-
um lausn og blindum sýn, láta
þjáða lausa og kunngjöra náðarár
Drottins." (Lúk. 4.18-19)
Á vettvangi Lútherska heims-
sambandsins er meðal annars unnið
að umbótum á kjörum kvenna og
barna. Konur vítt um heim búa við
bág kjör. Þær eru annars flokks
víða. Og ekki bara í þriðja heimin-
um. Barnaþrælkun viðgengst í
mörgum löndum . Kynferðisglæpir
gagnvart börnum eru algengir alls
staðar og á ákveðnum svæðum er
til umfangsmikill iðnaður í kring
um þessi myrkraverk. Börn úr
þriðja heiminum eru þolendur
glæpsins; karlmenn frá Vesturlönd-
um yfirleitt gerendur.
Skuldastaða þriðja heimsins er
einnig brýnt viðfangsefni. Á stjórn-
arfundi Lútherska heimssam-
bandsins í sumar var ítrekaður
stuðningur við hreyfinguna Jubilee
2000, er berst fyrir því á alþjóða-
vettvangi, að skuldastaða þriðja
heimsins verði löguð, eða henni
breytt með eftirgjöf skulda árið
2000.
Mörg ríki í þriðja heiminum,
einkum Afríkuríki, sunnan Sahara,
eru að kikna undan óréttlátri
skuldabyrði. Dæmi eru um að ríki
eigi að greiða á ári, í vexti og af-
borgarnir, sem svarar 200% af
þjóðartekjum. Þetta er í raun
Þorbjörn Hlynur
Árnason