Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Sveifla frá fyrri árum TONLIST Múlinn, Sölvasalur, Sóion ísiandus SVEIFLUDJASS Pentti Lasanen tenórsaxófón, klarinett, og trompet, Árni Schev- ing víbrafón, Ólafur Stephensen pianó, Tómas R. Einarsson bassi og Guðmundur R. Einarsson trommur. Þriðjudagskvöldið 8. desember. KLARINETTIÐ hefur komið meira við sögu í íslenskum djassi sem af er þessum vetri en oft áð- ur, að vísu ber ekki á íslenskum klarinettleikurum eftir að Finnur Eydal og Bragi Einarsson kvöddu þessa lífstjörnu, en á Jazzhátíð Reykjavíkur blés Putte Wickman með kvartetti sínum þar sem Pétur Östlund sló trommurnar og ekki er langt síð- an Chris Speed þandi klarinettið með Panchora í Loftkastalanum og þar sló Skúli Sverrisson raf- bassann. í gærkvöldi blés einn fremsti svíngklarinettleikari Norðurlanda í Sölvasai á Sóloni íslandusi í félagsskap Árna Schevings og tríós Óla Steph. Verkurinn var bara sá að Pentti blés aðeins tvö lög í klarinettið, tenórinn var aðaihljóðfæri hans þetta kvöld. Pentti er íslending- um ekki ókunnur því hann lék hér á fyrstu RúRek djasshátíð- inni 1991 með Arna, Þorleifi Gíslasyni, Alfreð Alfreðssyni og tveimur löndum sínum. Það var feikna svíngsextett og sauð á keipum bæði í Duushúsi og Djúpinu. Sveiflan var ekki eins sterk í Sölvasal, enda var þetta djammsessjón. Ekkert laganna ellefu frá því eftir stríð og sum samin fyrir fyrra stríð. Þeir félagar hófu leikinn með Fats Waller klassíkinni, Ho- neysucle Rose og svo kom Sweet ’Georgia Brown, fyrra lagið sem Pentti blés í klarinettið. Það hefði svo sem mátt spila betur, en sveiflan var komin í gang í seinna klarinettiaginu hans: On The Sunny Side of The Street, tónn- inn var fínn og tilfmningin heit en einhvern veginn var Pentti ekki í stuði tii að blása í klarinett og gi'eip trompetinn eftir fínan ví- brafónsóló hjá Scheving, blés fyrst með dempara og svo demparalaust. Það voru ekki góð skipti. Eftir hlé blés hann annað lag í trompetinn, meistaraverk Ellingtons: In A Mellowtone, hann var betri þá en fyrir hlé, en Scheving átti besta sólóinn einsog oftar þetta kvöld og Oli Steph. lék nokkuð skemmtilegan sóló þar sem hann var jafn nótna- fár og Count Basie. Hann var ekki eins spar á nótumar í Blue Moon og þar fór tríóið hreinlega á kostum. Þeir eru ótrúlega vel samspilaðir þremenningamir og það er langt síðan íslensk djass- sveit hefur leikið jafn mikið sam- an. „Working band“ kallar Kan- inn slíkar sveitir og þær eru ekki á hverju strái í djassheiminum nú til dags. Pentti Lasanen er ágætur ten- óristi af gamla skólanum og minnir meira á Chu Berry en Coleman Hawkins. Tónninn er að vísu ekki í heimsklassa, en hann blés ágaetlega ópus Johnny Green, Body And Soul, sem Hawkins túlkaði öllum mönnum betur, og var það eina ballaða kvöldsins. Yfírleitt var leikið „moderato", sem getur orðið þreytandi til lengdar, en í loka- laginu, C Jam blúsnum hans Ell- ingtons, var orðið ansi heitt í kol- unum og sóló Tómasar skemmti- lega uppbyggður og það var ekk- ert verra að hann endaði á klisju - þær skutu upp kollinum við og við einsog vera ber á tónleikum sem þessum - og minntu menn á liðna tíð. Vernharður Linnet Ljósið í hraiminu I TILEFNI 90 ára afmælis Hafn- arfjarðar og útgáfu bókarinnar Ljósið í hrauninu var opnuð sýning í byrjun desember í Apótekinu í Hafnarborg á ljósmyndum úr bók- inni. Lái'us Kari Ingason ijós- myndari hefur gert bókina í sam- vinnu við Hafnarfjarðarbæ. A sýn- ingunni eru 28 Ijósmyndir Lárusar Karls, af þeim 120 sem prýða bók- ina. Sýningarsalurinn Apótekið var tekinn í notkun nú á afmælisári Hafnaríjarðar. Sýningin verður opin daglega fram að jólum frá kl. 12-18, nema þriðjudaga. Morgunblaðið/Jón Svavarsson LÁRUS Karl Ingason ljósmynd- ari afhendir Magnúsi Gunnars- syni bæjarstjóra Ilafnarfjarðar eintak af bókinni Ljósið í hrauninu. LISTIR______________ Mikil hljómaveisla TÓIVLIST Geislaplötur GUÐMUNDUR HAFSTEINSSON „Instrumental and Vocal Works.“ Brum (Blastula fyrir tólf blásara), stjórnandi Guðmundur Hafsteinsson. Hann veitir kraft, Marta Guðrún Halldórsdóttir (sópran), Lenka Mátéova (orgel), Ásgeir Steingríms- son (trompet), Eiríkur Orn Pálsson (trompet), Emil Friðfinnsson (horn), Sigurður Þorbergsson (básúna). Stjórnandi Guðmundur Hafsteins- son. Spuni II, Sigrún Eðvaldsdóttir (fiðla). Borgarkveðja. Pétur Grétars- son, víbrafónn. Elísabet Waage (harpa), Anna Guðný Guðmundsdótt- ir (píanó), Guðmundur Hafsteinsson (cimbalóm). Stjórnandi Snorri Sigfús Birgisson. Hugur minn líður. Marta Guðrún Halldórsdóttir (sópran), Guðmundur Hafsteinsson (píanó). Brunnu beggja kinna björt Ijós. Ár- mann Helgason (klarinetta), Bryndís Halla Gylfadóttir (selló), Guðmundur Hafsteinsson (pianó). Hljóðritun: Tæknideild Ríkisútvarpsins. Tón- meistari: Bjarni Rúnar Bjarnason. Upptökustaður: Fella- og Hólakirkja Rvk. Utgefandi tónlistar: Sjö máva útgáfan 1998 SMÚ - 1 - 98. Dreifing: íslansk tónverkamiðstöð. GUÐMUNDUR Hafsteinsson hefur kennt hljómfræði og tón- smíðar m.m. við Tónlistarskólann í Reykjavík síðan hann kom frá framhaldsnámi við Juilliard í New York, þar sem hann kenndi reynd- ar tónfræðigreinar í tvo vetur. Frá 1992-’98 var hann jafnframt deild- arstjóri tónfræðadeildar Tónlist- arskólans. Tónverk eftir Guðmund hafa verið flutt í Bandaríkjunum, Englandi, Svíþjóð, Danmörku og Hollandi auk Islands. Hann hefur tekið þátt í flutningi verkanna sem stjórnandi, píanisti og cimbalóm- isti. Að framansögðu þarf engan að KVIKMYJVDIR Háskólabíó Vetrarvindar — kvikmyndaliátíð Háskólabfós og R e g n b o g a n s FJÁRHÆTTUSPILARINN „THE GAMBLER" irk'k Leikstjóri: Karoly Makk. Aðalblut- verk: Michael Gambon. Channel Four Films ofi. 1998. BRESKA bíómyndin Fjárhættu- spilarinn eða „The Garnbler" á Vetrarvindum, kvikmyndahátíð Háskólabíós og Regnbogans, er sögð byggjast á sönnum atburðum úr lífi rússneska rithöfundarins Dostojevskís sem urðu árið 1866 í Pétursborg. Hann hafði eins og hver annar fjárhættuspilari veðjað framtíð sinni sem rithöfundur; ef hann ekki lauk skáldsögu innan 27 daga eignaðist útgefandi hans höf- undra þó að hér sé á ferðinni tónskáld og alhliða tónlistarmaður sem kann sitt fag - og m.a. allt um hljóm- fræði og kontrapunkt, sem verkin á þessum diski eru meira eða minna til vitnis um. Hitt sætir e.t.v. enn meiri tíðindum að tón- listin er innihaldsrík (sem auðvitað verður ekki aðskilið tónfræði- þekkingu, svo ekki sé minnst á þann al- ræmda kontrapunkt), jafnvel innblásin og djúp, þegar best læt- ur. Alltaf áheyrileg og stundum beinlínis æsileg. í fyrsta verkinu (frá 1994) teflir tónskáldið fram tólf blásurum, og er hér um að ræða mikla hljóma- veislu. Næsta verk, sem einnig er fremur stutt, er af trúarlegum toga, Hann veitir kraft (áminning úr bók Jesaja um mátt trúarinn- ar), frá 1989. Marta Guðrán Hall- dórsdóttir syngur mjög vel í þessu verki, en ég var að velta því fyrir mér hvort einradda barnakór, sem gert hafði verið ráð fyrir í upphafi (samkv. beiðni Tónmenntasjóðs þjóðkirkjunnar), hefði snortið mann enn meir. Afturámóti er þetta erfitt hlutverk, jafnvel fyrir úrvalssöngvara - sem „ber bara ábyrgð á sjálfum sér“. Þá kemur frábært verk, Spuni II (frá 1991), í fjórum þáttum fyrir einleiksfiðlu. Langt og strangt, með æsilegum öðrum kafla og skáldlegum lokakafla, þar sem far- ið er út í allt annan sálm með ein- faldri laglínu, sem svifur til himna - líkt og Ganymed forðum. Verkið er tileinkað Sigrúnu Eðvaldsdótt- ur, sem leikur það hér af hreinum yfirburðum - hvernig sem á það er Við spila- borð undarréttinn á öllum óbirtum skáldsögum hans. Dostojevskí réð til sín hraðritara, Önnu, og þau hófust handa við hið ómögulega. Handritið er skemmtilega upp- byggt að því leyti að um leið og það segir sögu Dostojevskís á heimili hans í Pétursborg segir það söguna sem hann er að bögglast við að koma frá sér og fjallar um fjár- hættuspilara í svonefndri Rúllettu- borg þar sem allir tapa á endanum. Að einhverju leyti virðist um sjálfsævisögulegt efni að ræða, raunveruleiki og skáldskapur blandast saman og myndin nær að gefa innsýn í þau sálrænu átök sem kvöldu Dostojevskí og tengdust fortíð hans í fangabúðum og hans litið. Síðan er slegið á aðra strengi og önnur hljómborð í Borgar- kveðju (sem er reynd- ar kveðja til New York-borgar, sér í lagi Manhattan); mjög skemmtilega hljóm- andi verk frá 1995 og samið af mikilli íþrótt í anda borgarinnar - þangað sem fólkið flykkist til að njóta veraldlegra lystisemda. Vel leikið og vel stjórnað (Snorri Sigfús Birgisson). Hugur minn líður (1996-97) er samið við samnefndan ljóðaftakk eftir Snorra Hjartarson. A diskinum eru fjögur síðustu lögin flutt. „Hér er á ferð formlega glæsilegur skáldskapur, sveipaður slæðu hóg- værðar, ögunar og eðalborinnar fágunar, sem hvorki þrengir að hinum kjarnmiklu myndum né dregur úr þeim skáldlegan mátt,“ segir tónskáldið, sem að sínu leyti vinnur fagurlega úr svo vandmeð- förnum og erfiðum efniviði. Mjög vel flutt af Mörtu Guðránu og höf- undi. Og að lokum verk fyrir klar- inettu, selló og píanó, sem hreif undirritaðan einna mest (a.m.k. á köflum). Verkið heitir Brunnu beggja kinna björt ljós og er frá 1982. Ég hugsa að leikur þeirra Bryndísar Höllu Gylfadóttur, Ar- manns Helgasonar og höfundar eigi sinn þátt í hrifningu minni. En þetta er orðið nokkuð mikið mál. I lokin má þó minnast á hljóð- ritun, sem er í gæðaflokki - og um- slagið, sem er sérlega fallegt og við hæfí. Og ekki má gleyma því að all- ir sem hér koma fram eru fyrsta flokks. Oddur Björnsson eigin spilafíkn. En það er erfitt að gefa persónu eins og honum setn- ingar við hæfi: Ég veit ekki hvem- ig bækur þú lest, en ég skrifa um lífið, hljómar svolítið holt úr munni meistarans. Annars staðar tekst handritshöfundinum betur upp. í mynd Karoly Makk fer sá ágæti leikari Michael Gambon með hlutverk hins mikla rithöfundar og virkar túlkun hans stundum of- keyi'ð en þó einnig furðulega sann- færandi. Gambon virðist álíta að fyrst hann er með slíkt ofurmenni í höndunum þurfi hann að hafa meira fyrir honum en ella og það vill skína í gegn en annars er leikur hans bæði ástríðufullur og kraft- mikill. Að öðra leyti er leikurinn misjafn hjá leikurunum, sumir hefðu þurft ákveðnari leikstjórn. í allt er hér um forvitnilega og athyglisverða mynd að ræða sem aðdáendur skáldsins hefðu ugg- laust gaman af. Arnaldur Indriðason Guðmundur Hafsteinsson MYNDIN er tekin í upphafi æfinga á Brúðuheiniilinu. Þjóðleikhúsið Brúðuheimili Ibsens á jólafrumsýningu JÓLAFRUMSÝNING Þjóðleik- hússins verður að þessu sinni Brúðuheimili Ibsens. Brúðu- heimili er eitt þekktasta verk Henriks Ibsens, og var leikritið á sínum tíma gífurlega umdeilt. Leikendur eru: Elva Ósk Ólafsdóttir, Baltasar Kormák- ur, Edda Heiðrún Backinan, Pálmi Gestsson, Þröstur Leó Gunnarsson, Halldóra Björns- dóttir og Margrét Guðmunds- dóttir. Þýðandi er Sveinn Ein- arsson. Höfundur leikmyndar er Þórunn Sigríður Þorgríms- dóttir, höfundar búninga Mar- grét Sigurðardóttir og Þórunn Sigríður, lýsingu hannar Björn Bergsteinn Guðmundsson. Leik- stjóri er Stefán Baldursson. Sýningarstjórar eru Baltasar Kormákur og Elva Ósk Ólafs- dóttir. Hvíslari er Helga Þ. Stephensen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.