Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 73
FRÉTTIR
SNYRTISTOFAN Fegrun og Snyrtistofa Halldóru liafa sameinast
og heita nú Snyrtimiðstöððin sf.
Snyrtistofur sameinast
Skáld og
sagnfræð-
ingar á Sól-
oni Islandusi
SAGNFRÆÐINGAFÉLAG ís-
lands gengst fyrir málþingi fímmtu-
daginn 10. desember á kaffihúsinu
Sóloni Islandusi sem ber yfirskrift-
ina: Fortíðin í skáldskapnum. Eru
skáldin að taka yfir söguna? Sam-
koman hefst kl. 19.30 og stendur til
kl. 22.30.
Þrír rithöfundar sem gefa út sögu-
lega skáldsögu á þessu hausti, þeir
Thor Vilhjálmsson, Jón Karl Helga-
son og Einar Kárason, ræða um af-
stöðu sína til fortíðarinnar og hversu
vel þeim hafi nýst sú þekking sem
sagnfræðingar og aðilr fræðimenn
hafa aflað um tímabilið sem sögum-
ar gerast, segir í fréttatilkynningu.
Síðan fjalla sagnfræðingai-nir Lára
Magnúsardóttir og Olafur Rastrick
um tengsl sagnfræði og skáldskapar
með sérstöku tilliti til bóka Thors,
Jóns Karls og Einars.
Fundurinn er öllum opinn og
áhugamenn eru hvattir til að mæta.
Norræna
félagið opnar
heimasíðu
NORRÆNA félagið hefur opnað
heimasíðu á vefnum. Þar er að finna
ýmsar upplýsingar varðandi starf-
semi Norræna félagsins svo sem um
verkefni, ungmennastarf, vinabæi,
skólamál og ferðamál, segir í frétta-
tilkynningu.
Slóðin er http://www.norden.is
SNYRTISTOFURNAR Fegrun
og Snyrtistofa Halldóru hafa
sameinast og heita nú Snyrti-
miðstöðin sf. til húsa í Kringl-
unni 7, (Húsi verslunarinnar)
þar sem Snyrtistofa Halldóru
var áður.
Snyrtimiðstöðin hefur sérleyfi
til að reka Lancöme snyrtistofu:
Le Centre De Beauty Lancöme.
Lancöme leggur áherslu á há-
þróaðar húðmeðferðir, lúx-
usandlitsböð, líkamsmeðferðir
og býður viðskiptavinum sér-
fræðiráðgjöf um umhirðu húðar-
innar og notkun Lancöme-
snyrtivara. Snyrtistofan veitir
alla almenna snyrtiþjónustu auk
fótaaðgerða og býður upp á alla
snyrtivörulínu Lancöme.
Eigendur stofunnar eru Rósa
Þorvaldsdóttir, snyrtifræðingur
og löggiltur fótaaðgerðafræð-
ingur og Halldóra M. Stein-
grímsdóttir, meistari í
snyrtifræði og snyrtisérfræðing-
ur frá Lancöme í París.
Jólastemmning
í Barnahelli
JÓLASÖGUR verða lesnar á
norsku og sænsku við jólaljós í
Barnahelli Norræna hússins laug-
ardaginn 12. desember.
Kl. 15 les Astrid Oksendal
norska jólasögu, „Snekker Ander-
sen og julenissen" (Andrés smiður
og jólasveinninn) eftir Alf Proy-
sen. Kl. 16 les Elisabeth Alm
sögukaflann „Hur vi firar jul i
Bullerbyn" (Jól í Ólátagarði) eftir
Astrid Lindgren. I bæði skiptin
verður íslenska þýðingin lesin á
undan.
Þetta er sögustund fyrir fjöl-
skylduna og allir ena velkomnir.
Athugasemdir Verkalýðsfélags Húsavíkur
við yfírlýsingu Vinnumálastofnunar
Gagnrýna vinnubrögð
Vinnumálastofnunar
VEGNA yfirlýsingar Vinnumála-
stofnunar í Morgunblaðinu laugar-
daginn 5. desember sl. um málefni
atvinnulausra í Norðurlandskjör-
dæmi eystra vill Verkalýðsfélag
Húsavíkur taka eftirfarandi fram:
„í yfirlýsingu Vinnumálastofnun-
ar í Morgunblaðinu 5. desember sl.
er farið mjög frjálslega með stað-
reyndir varðandi málefni atvinnu-
lausra í Norðurlandskjördæmi
eystra og vegið mjög hart að þeim
aðilum sem unnið hafa að málefnum
atvinnulausra í Þingeyjarsýslum.
Það er ekki bara Verkalýðsfélag
Húsavíkur sem gert hefur alvarleg-
ar athugasemdir við breytt fyrir-
komulag vinnumiðlunar í Þingeyj-
arsýslum heldur hafa sveitarfélög,
atvinnurekendur, önnur stéttarfé-
lög og fólk í atvinnuleit í Þingeyjar-
sýslum gert það einnig. Þetta á
Vinnumálastofnun að vera kunnugt
um.
Þessii' aðilar, sem skynja þörfina,
hafa bent á nauðsyn þess að ráðinn
verði ráðgjafi til starfa á Húsavík í
tengslum við Svæðisvinnumiðlunina
á Akureyri. Ráðgjafanum verði ætl-
að að sinna atvinnulausum í Þing-
eyjarsýslum, ekki bara á Húsavík
eins og skilja má á yfirlýsingu
Vinnumálastofnunar.
I yfirlýsingu Vinnumálastofnunar
er lítið gert úr þeirri þörf að taka
þurfi sérstaklega á málefnum at-
vinnulausra í Þingeyjarsýslum og
Vinnumálastofnun sjái ekki ástæðu
til að ráðstafa almannafjármunum í
þarflausar ráðningar á starfsfólki.
Verkalýðsfélag Húsavíkur hefur
aldrei ætlast til að sérstakur ráð-
gjafi yrði ráðinn til að sinna ein-
göngu atvinnulausum á Húsavík,
heldur væri honum ætlað að vinna
með atvinnulausu fólki í Þingeyjar-
sýslum. Ráðning á slíkum starfs-
manni væri góð fjárfesting.
Það er mikil einföldun af hálfu
Vinnumálastofnunar að halda því
fram að atvinnuleysi á Húsavík síð-
ustu mánuði hafi verið 10-20 ein-
staklingar. Það getur ekki talist
eðlilegt að meta þörfina á ráðgjafa
eftir atvinnuástandi á Húsavík yfir
sumarmánuðina, þegar atvinnuá-
standið er hvað best. Það hlýtur
hins vegar að teljast eðlilegt að
meta þörfina eftir meðaltalsat-
vinnuleysi á hverjum tíma í Þing-
eyjarsýslunum báðum, ekki bara á
Húsavík.
Samkvæmt upplýsingum frá
Svæðisvinnumiðlun Norðurlands-
kjördæmis eystra sem heyrir undir
Vinnumálastofnun komu inn á skrá
í nóvember 87 einstaklingar í Þing-
eyjarsýslum, þar af var í lok mán-
aðarins 71 einstaklingur á skrá.
Mestur fjöldi atvinnulausra er á
Húsavík. Verkalýðsfélag Húsavík-
ur hefur áhyggjur af þessari stöðu
og hefur bent á leiðir til að bregð-
ast við þeim vanda sem Vinnumála-
stofnun gerir lítið úr í yfirlýsingu
sinni.
Ástæðan fyrir því að stéttarfélög,
sveitarfélög, atvinnurekendur og
fólk í atvinnuleit í Þingeyjarsýslum
hafa gert alvarlegar athugasemdir
við breytt fyi-irkomulag vinnumiðl-
unar er einfaldlega sú að þjónusta
við atvinnulausa í Þingeyjarsýslum
hefur versnað eftir að lögum um
vinnumarkaðsaðgerðir var breytt.
í yfirlýsingu Vinnumálastofnunar
er ýjað að því að þjónustuaðili henn-
ar á Húsavík hafi brugðist skyldum
sínum og sé sérstakt athugunarefni.
Þetta er sagt þrátt fyrir að for-
stöðumaður Vinnumálastofnunar
hafi getið þess sérstaklega á sam-
eiginlegum fundi svæðisráða og út-
hlutunamefnda atvinnuleysisbóta
sem haldinn var í Reykjavík, að á
Húsavík væri til staðar mikil
reynsla og þekking á málefnum at-
vinnulausra. >
Einnig kemur fram í yfirlýsingu
Vinnumálastofnunar, að það færi
betur á því að Verkaíýðsfélag Húsa-
víkur tæki þátt í því að móta starf-
semi svæðisvinnumiðlunar Norður-
landskjördæmis eystra, sem starfað
hefur í átta mánuði, í stað þess að
standa fyrir marklitlum upphrópun-
um.
Eins og Vinnumálastofnun er vel
kunnugt um á formaður Verkalýðs-
félags Húsavíkur sæti í svæðisráði
svæðisvinnumiðlunarinnar á Norð-
urlandi eystra sem fulltrúi ASÍ.
Formaður félagsins hefur tekið
virkan þátt í mótunarstarfi svæðis-
vinnumiðlunarinnar og komið m.a.
skoðunum félagsins á framfæri.
Hann hefur hins vegar ekki alltaf
verið samþykkur þeim leiðum sem
svæðisráðið og Vinnumálastofnun
hefur valið að fara og á þetta sér-
staklega við um hvernig ráðgjöf við
atvinnulausa í Þingeyjarsýslum hef-
ur verið háttað. Fulltrúar atvinnu-
rekenda og sveitarfélaga sem átt
hafa sæti í svæðisráðinu, búsettir í
Þingeyjarsýslum, og tekið hafa
virkan þátt í mótun starfsins frá
upphafi hafa verið sammála for-
manni Verkalýðsfélags Húsavíkur í
þessu máli og lagt mikla áherslu á
að ráðinn yrði ráðgjafi til starfa í
Þingeyjarsýslum sem fyrst. Full-
yrðingar Vinnumálastofnunar um
að Verkalýðsfélag Húsavíkur hafi
ekki komið að mótun starfsemi
svæðisvinnumiðlunarinnar á Norð-
urlandi eystra eiga því ekki við rök
að styðjast frekar en margt annað
sem fram kemur í yfirlýsingu
Vinnumálastofnunar í Morgunblað-
inu 5. desember sl. Þá vekur það at-
hygli að stjórn Vinnumálastofnunar
var ekki kunnugt um þessa yfirlýs-
ingu stofnunarinnar fyrr en hún
birtist í fjölmiðlum, þrátt fyrir að
hún sé sett fram í nafni Vinnumála-
stofnunar.“
Stjórn Samtaka fískvinnslu án útgerð-
ar um kvótadóm Hæstaréttar
Krefjast fjárhags-
legs aðskilnaðar út-
gerðar og vinnslu
EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur
borist frá Samtökum fiskvinnslu án
útgerðar:
„Stjórn Samtaka fiskvinnslu án
útgerðar fagnar nýgengnum dómi
Hæstaréttar íslands í máli Valdi-
mars Jóhannessonar gegn íslenska
í’íkinu.
Islensk stjórnvöld hafa á undan-
förnum áram rekið sjávarútvegs-
stefnu sem gengur út á það öðru
fremur að skapa þeim sem úthlutað
fá veiðiheimildum sem mest forrétt-
indi umfram aðra þá sem starfa í at-
vinnugreininni.
Það gerist með þeim hætti að
þeim, sem eiga skip, er ekki aðeins
veittur nýtingarréttur til fisk\'eiða
heldur er þeim einnig fenginn
lögvarinn réttur til þess að fénýta
veiðiréttindin á kostnað annarra.
Þannig hafa slíkir aðilar m.a. átt
þess kost að færa fjármuni úr út-
gerð, starfsemi sem bundin er
stjórnvaldsleyfum, inn á þann opna
samkeppnisvettvang sem ríkir í
viðskiptum með ferskfisk til
vinnslu.
Þessi harða aðskilnaðarstefna
þekkist hvergi í viðskiptaumhverfi
meðal annarra siðaðra þjóða.
Stjórn Samtaka fiskvinnslu án út-
gerðar hefur ekki trú á að sú „sann-
Jólakveðjur til
Islendinga í
Gautaborg
ÍSLENDINGAÚTVARPIÐ í
Gautaborg gefur fólki kost á að
senda jólakveðjur til vina og
vandamanna, sem búa í borginni og
nágrenni hennar. Þátturinn verður
20. desember og verða kveðjurnar
að hafa borist fyrir þann tíma, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Hægt er að senda kveðjurnar í
bréfi, bréfasíma eða í tölvupósti.
Heimilisfangið er: Linnégatan 21,
S - 413 03 GÖTEBORG, Sverige.
Bréfasími: +46 (31) 425110. Tölvu-
póstur: ig@hem.passagen.se
LEIÐRÉTT
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með fóðurnafn
Ingibjargar Stefánsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Kvennalistans, í
blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar
á þessu.
Rangt titluð
í FRÉTT í Morgunblaðinu í gær
um afhendingu gjafa til Mæðra-
styrksnefndar var Bryndís Guð-
mundsdóttir sögð starfsmaður
nefndarinnar en hún er varaformað-
ur.
leiks- og sáttanefnd" sem nú starfar
(Auðlindanefnd) muni nokkrum til-
lögum skila sem taka á vandanum.
Því beinir stjórn Samtaka fisk-
vinnslu án útgerðar þeirri ein-
dregnu áskoran til stjórnvalda að
nú þegar verði gripið til nauðsyn-
legra ráðstafana. Eina raunhæfa
leiðin er sú að fjárhagslegur að-
skilnaður milli útgerðar og fisk-
vinnslu verði áskilinn með lögum og
allur ferskur fiskur verði seldur á
íslenskum fiskmörkuðum.
Þannig gæti starfsumhverfi ís-
lensks sjávarútvegs færst í eðlilegt
horf og uppfyllt stjómarskrái-varin
réttindi þegnanna um jafnræði og
atvinnufrelsi.“
Jólakort
Iþróttasam-
bands fatlaðra
ÍÞRÓTTASAMBAND fatlaðra hef-
ur gefið út jólakort sem seld era til
styrktar íþróttastarfi fatlaðra.
Ymsir listamenn hafa undafarin
ár skreytt korti og gefið Iþrótta-
sambandi fatlaðra til styrktar starf-
semi þess en að þessu sinni er það
frístundalistakonan Alma Lilja
Ævarsdóttir frá Húsavík sem
myndskreytti jólakortið.
Kortið verður selt um allt land og
verður ágóðinn notaður til að efla
starf íþróttafélaga fatlaðra á ís-
landi.
Surefiiisvönir
Karin Herzog
Kynning
í dag í Apótekinu
Iðufelli kl. 14—18 og Apóteki
Keflavíkur kl. 14-18.
Þar sem þjálfunin byrjar
pulsmælar
P. Ólafsson ehf.,
Trönuhrauni 6, Hafnarfirði,
sími 565 1533, fax 565 3258.
Söluaðilar POLAR púlsmæla:
Akranes: Guöm. B. Hannah úrsm. Ólafsvík: Verslunin Hrund. ísafjörður: Vestursport.
Sauðárkrókur: Sundlaugin. Ólafsljörður: Tíska og sport. Akureyri: Úrsmíðavinnust. Halldórs
Ólafssonar. Húsavik: Skokki, heilsurækt. Egilsstaðir: Apótekið. Neskaupstaður: SÚN-búðin,
Vestmannaeyjar: Hressó, heilsurækt. Seifoss: Styrkur. Kellavík: Georg V. Hannah úrsm.