Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 51 Sigurður Svavar Sigurðs- son fæddist í Reykjavík 20. apríl 1952. Hann lést í Reykjavík 2. desem- ber síðastliðinn. Foreldrar hans eru Sigurður Svavar Gíslason og Jóna Salvör Eyjólfsdóttir á Urðarstíg 14. Sig- urður átti fimm systkini. Hinn 24. maí 1980 giftist Sigurður Matthildi Pálsdótt- ur, f. 31. júlí 1960. Þau eignuð- ust þijú börn saman, en Sigurð- Fjórir spegilgljáandi túkallar liggja í rennusteininum fyrir utan húsið hans Fúsa, á horninu á Urð- arstíg og Njarðargötu. Heil auðævi fyi-ir litla stráka. Siggi litli og ég tíndum peningana upp varlega og virtum þá fyrir okkur. Gat þetta verið? Túköllunum var skipt bróð- ur átti eitt barn frá fyrra hjónabandi. Börnin eru Hall- dóra Guðríður, f. 19. september 1975, Róbert Þórir, f. 29. september 1981, Rósa Svava, f. 12. ágúst 1983, og Páll Sigurður, f. 16. des- ember 1992. Sig- urður átti eitt barnabarn, Söndru Sif, f. 17. mars 1995. Utför Sigurðar fer fram frá Garða- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. urlega og síðan var vinur okkar, kaupmaðurinn í Víði, heimsóttur í búðina. Þá var nú glatt á hjalla. Tveir fjögurra ára guttar bruna á kassabílnum sínum niður Njarðar- götuna. Mömmurnar koma á harðahlaupum á eftir, en þeir ná samt að renna sér alla leið frá Bergstaðastræti yfir Laufásveginn og niður að Hljómskálagarði. Kannski ekki alveg eins gaman þegar mömmurnar höfðu hlaupið sömu vegalengd og náð í skottið á þeim. Og þó ... Við veiddum silung í Rauðavatni, sigldum um á vindsængum, köfuð- um og heilsuðum upp á brunn- klukkurnar eða bara lágum í sól- inni við bústaðinn sem Jóna og Siggi stóri höfðu reist. Það var víst alltaf sólskin á þessum árum. Lék- um okkur í fótbolta, voram vinir og frændur, héldum um axlir hvor annars. Við urðum líka stundum ósáttir og flugumst á. En við urð- um vinir strax aftur. Við vorum leikfélagar í æsku, fjarlægðumst á unglingsáninum og sáumst sjaldan eftir að við urðum fullorðnir. En við voram samt alltaf meira en bara frændur, við vorum alltaf vinir í hjartanu og í minningunum. Minningabrotin leiftra og lýsa hugann. Þau era of mörg til að telja upp hér en þau gleymast ekki. Það er sagt, að á meðan einhver er á lífi sem man sé maður ekki dáinn. Þannig munt þú, Siggi litli frændi minn, lifa, meðan ég lifi. Tryggvi Þór Tryggvason. SIGURÐUR SVAVAR SIGURÐSSON TOMAS GRÖNDAL Tómas Gröndal fjölmiðla- fræðingur fæddist í Reykja- vík 27. maí 1955. Hann lést á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu í Gautaborg og fór útför hans fram í Partille í Svíþjóð 27. nóv- ember siðastliðinn. Tómas Gröndal, vinur minn, er allur. Það er langt síðan ég sá hann fyrst í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Myndarlegur, hávax- inn piltur gekk í gegn um salinn eins og hann ætti allan heiminn. Grági-ænn jakkinn flaksaðist til við hvert spor. „Hmm, hvaða gervigæi er þetta?“ hugsaði ég með sjálfri mér, „sá er góður með sig.“ Engu að síður gat ég ekki stillt mig um að horfa á eftir honum. Eitthvað hafði hann við sig, þessi maður. Ekki man ég hins vegar hvernig við kynntumst, en víst er að af þeim kynnum spratt vinátta sem stóð allt til dánardægurs Tomma. Brölluðum við ýmislegt saman í kjallaranum á Miklubrautinni og átti sameigilegur áhugi okkar á tónlist þar drjúgan þátt. Vora kunningjar okkar alls ekki á eitt sáttir hvers eðlis samband okkar var og pískraðu margt um það. Höfðum við af því lúmskt gaman. Þótti þeim víst skrítið þegar Tómas fór að vera með stúlku, að ég hélt samt sem áður áfram að venja komur mínar heim til hans. Tómas átti gott með að tala, og var vitnað til þess í útskriftabók okkar MH-inga, að svo væri maðurinn mælskur, að sæjust margar tungur á lofti er hann talaði. Oftar en ekki vora það gamansögur sem frá hon- um komu og umfram allt var skemmtilegt að vera návistum við hann. Eftir að hann fór til Svíþjóðar sendi hann mér ófá bréf, sem fengu mig til að brosa, og síðar meir var það tölvupóstur sem bar kveðjur okkar yfir hafið. Síst af öllu átti ég von á því að Tómas, þessi lífsglaði, orkumikli vinur minn, ætti eftir að kveðja okkur hin svo fljótt. Sökn- uðurinn fyllir huga minn er ég hugsa til hans, en gömlu minning- arnar sem ég á um samverastundir okkar og samskipti, munu ætíð kveikja bros á vöram mínum, og þakklæti í hjarta mínu. An kynna okkar hefði líf mitt orðið snauðara. Sendi ég Milvi, konu Tómasar, foreldrum hans og bræðram, mín- ar dýpstu samúðarkveðjur. Megi minningarnar um Tómas ylja þeim um hjartarætur um ókomna tíð. Linda S. Gísladóttir. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordper- fect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA VALGERÐUR ANDERSEN, (f. Friðriksdóttir, Bakka, Bakkafirði), lést sunnudaginn 29. nóvember sl. í Nyköping, Falster. Jarðarförin hefur farið fram. Knud Bernt, Helen og Peter, Lis og Rasmus, Jon og David, Sara og María. t Þökkum innilega þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug viö andlát og útför systur okkar, mágkonu og frænku, BERTU STEFÁNSDÓTTUR frá Hóli, Stöðvarfirði. Hjördís Stefánsdóttir, Maggý Ársælsdóttir, Arthur Stefánsson, Helga Þorsteinsdóttir, Carl Stefánsson, Ásta Tómasdóttir, Stefán N. Stefánsson, Ragnheiður Pálsdóttir og fjölskyldur. + Við þökkum innilega auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa, JÓNASAR SIGURÐSSONAR frá Hellissandi. Jarþrúður Jónasdóttir, Lárus Skúli Jónasson, Auður Jónasdóttir, Trausti uuiasun, Sigríður Jónasdóttir, Sigurður A. Böðvarsson, Vilhjálmur Hafberg, Svala Geirsdóttir, Sigurþór Jónasson og barnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar SIGURÐAR S. SIGURÐSSONAR verður lokað frá kl. 12 — 16 í dag, fimmtudaginn 10. desember. Vörumerking ehf., Hafnarfirði. Ævar Harðarson, Sigríður Karlsdóttir, Sonja Harðardóttir, Þorvaldur Karlsson, Kristjana Harðardóttir, Karitas Rósa Karlsdóttir, Þórður Harðarson, Júlíus Karlsson, Kristín Á. Harðardóttir, Guðmundur Karlsson, Ástþór Harðarson. + Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir, ÁSGEIR ARNGRÍMSSON, Brekkusíðu 18, Akureyri, iést af slysförum þriðjudaginn 8. desember. Fyrir hönd fjölskyldu, Baldvin Hermann Ásgeirsson, Bjarni Hrafn Ásgeirsson, Brynjar Helgi Ásgeirsson, Bjarni Sigmarsson, Arna Hrafnsdóttir og systkyni hins látna. + Elskulegur eiginmaður minn, fósturfaðir okkar, tengdafaðir og bróðir, BJÖRN KJARTANSSON, Mávahlíð 44, Reykjavík, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir að kvöldi þriðjudagsins 8. desember. Sóley Oddsdóttir, Jóna Sæmundsdóttir, Grétar Leifsson, Oddur Sæmundsson, Jónína Guðmundsdóttir, Sigurveig Sæmundsdóttir, Haildór Snorrason, Margrét Kjartansdóttir, Jónína Kjartansdóttir, Þorleifur Gunnarsson. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, dóttir og amma, STEFANÍA ÞÓRUNN SÆMUNDSDÓTTIR húsfreyja í Syðra-Vallholti, Skagafirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, laug- ardaginn 5. desember. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju, laugar- daginn 12. desember kl. 14.00. Jarðsett verður í Víðimýrarkirkjugarði. Gunnar Gunnarsson, Jónína Gunnarsdóttir, Trausti Hólmar Gunnarsson, Sæmundur Jónsson og barnabörn. + Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, GUNNAR P. ÓSKARSSON, Sólvallagötu 4, Reykjavík, sem andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fimmtudaginn 3. desember sl., verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. desember nk. kl. 10.30. Sonja Schmidt, Gylfi H.S. Gunnarsson, Geir H. Gunnarsson, Hólmfríður Gunnarsdóttir, Guðmundur B. Sigurgeirsson, Sigríður Soffía Gunnarsdóttir, Már Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.