Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 63 AÐSENDAR GREINAR I. Til ríkisstjórnar og Alþingis Að gengnum Valdi- marsdómi verður að taka því sem orðið er. Reynið ekki lengur viðbrögð loddarans, sem þykist ekki skilja hvaða kröfur eru til hans gerðar, né heimskingjans, sem getur ekki skilið það. Grípið ekki frekar til þeirrar lítilmennsku, að kasta rýrð á störf þess dómara, sem í mótsetningu við ykkur sjálf hafði manndóm til að gera skyldu sína. Hefjið strax af trú- mennsku það verk, sem ykkur bar að vinna fyrir löngu, í samræmi við þann eið sem þið unnuð að stjórn- arskrá landsins þegar þið tókuð sæti á þingi. Vinnið það í þágu þeirrar þjóðar sem réð ykkur til þess, án þess að hygla einum eða neinum. Meðal viðbragða ykkar hefur verið hugmynd um að breyta þeim grundvallarreglum samfélagsins, sem þið hafið sjálf sett því meðan þið tróðuð þær fótum. Að því úr- ræði er strax hugað, til að koma ykkur sjálfum út úr afleiðingum gerða ykkar og velta þeim yfir á það fólk, sem ekki framdi önnur mistök en fela ykkur umsjón mála sinna. Það gerið þið um leið og í fyrsta sinn reynir alvarlega á þær reglur í okkar 280.000 manna sam- félagi, fáeinum árum eftir að þið lögleidduð þær. Með slíku möndli með lagalegan grundvöll samfélagsins, í krafti stundarvalda og í þágu stundar- hagsmuna, kunnið þið að færa þá baráttu, sem landsmenn hafa orðið að heyja gegn sérhagsmunaþjónk- un ykkar, á annað og alvarlegra stig. Þið kunnið þá að skerða mögu- leika þeirra til að heyja þá baráttu á sviði laga og stjómmála, eins og siðuðu fólki sæmir. Með því gæti skapast ástand, sem íslendingar, þrátt fyrir allt ykkar dæmalausa dugleysi, hafa ekki þurft að þjást undir. Megi það aldrei verða. II. Til fólksins í landinu Við kjósum okkur löggjafa sjálf, og get- um því að miklu leyti sakað okkur sjálf um hvernig þeir standa sig. Þeir sitja nú sveittir við að gera það sem þeir áttu að vera búnir að gera 1983. Betra er seint en aldrei, og til þess verða þeir að fá frið. Nú, þegar afleiðingar verka þeirra standa opinberaðar er ekki réttur tími til að fjalla frekar um frammi- stöðu þeirra og getu. Sá tími mun brátt koma, en að fenginni áminn- ingu Hæstaréttar verðum við að búast við því, þar til annað sannast, að þeim sé unnt að vinna störf sín Endurreisum í friði, segir Lúðvík Emil Kaaber, traust hins almenna Islendings á samfélagi sínu. heiðarlega, með hagsmuni og rétt- indi okkar allra í huga. Þrátt fyrir að orð þeirra nú gefi tilefni til ótta megum við ekki brigzla þeim um undirhyggju meðan ekkert er kom- ið í ljós um hvað þeir ætlast fyrir. Við verðum í lengstu lög að halda í þá von, að viðbrögð þeirra séu ekki annað og alvariegra en tuð hins móðgaða hrokagikks, og að þeir muni átta sig á hvað til síns friðar heyrir, hafi þeir ekki þegar gert það. Mikill sigur hefur unnist, en hann er aðeins áfangasigur. Ovíst er um það sem við tekur, og auk þess hefur sá aðall, sem nú er aftur kippt niður til okkar hinna, fengið að halda gervöllu samfélaginu í gíslingu fyrir gerðum þjóna sinna um árabil. Nú liggur fyrir að vinda ofan af því, og reyndar verður lög- legu ástandi ekki komið á í landinu fyiT en því er lokið. Tugþúsundir iandsmanna hafa verið hvattar til að leggja honum til sparifé sitt, með von um góða ávöxtun í skjóli einkaréttar hans. Mörg atvinnufyr- irtæki, sem vel hafa verið rekin, kunna einnig beint eða óbeint að hafa byggt gengi sitt á ólöglegum einkarétti, sem nú verður að af- nema. Þar undir kann margt fólk að eiga atvinnu sína og fé. Síðast en ekki sízt eru það greifamir sjálfir, sem nú mega sjá af titli sín- um. Margir þeirra hafa af dugnaði og skynsemi stundað rekstur á sviði mikilvægasta atvinnuvegar okkar, við þær aðstæður sem Al- þingi bjó þeim. Klúður stjómmála- mannanna er ekki þeim að kenna. Þeirra vandamál eru einnig okkar vandamál, þegar þeir era orðnir að almennum samborguram okkar á ný. Það er höfuðnauðsyn að takast megi að leysa allan vanda, sem skapast meðan víma blekkingar- innar er að hverfa og þjóðin snýr sér aftur að raunveruleikanum, af réttsýni og í friði, og þannig að allt óhjákvæmilegt tjón verði sem minnst. Við, sem þoldum ósómann í fimmtán ár, verðum líka að þola af- nám hans. Það er ekki raunhæft að ætlast til þess, að nú sé unnt að gera í einu vetfangi það sem svikist hefur verið um að gera allan þann tíma. Mikilvægast af öllu er þó að við glötum ekki virðingu og tillitssemi fyrir okkar eigin samborgurum, hverjir sem þeir era, og hvaða að- stæður sem þeim hafa áður verið búnar. Réttum þeim hönd okkar í vinsemd, sem áður vora yfir aðra hafnir, og hvetjum þá til dáða við að skapa landinu hagsæld og vinna því gagn. Við eram og verðum á sama báti. Endurreisum því í friði traust hins almenna Islendings á samfélagi sínu. Látum dóm Hæsta- réttar vísa veginn til þess. Hið eina, sem getur komið í veg fyrir það, er að stjómmálamenn- irnir bregðist aftur skyldum sínum. Þeir hafa enn fengið tækifæri til að vinna sína vinnu. Bíðum þess að sjá, hvort þeir muni nú skríða á endurtekningarprófi fallistans. Höfundur er lögfræðingur. Viðvörun og hvatning Lúðvík Emil Kaaber LISTSKAUTAR Hvítir: 28-44 Svartir: 33-46 Verð aðeins kr. 3.990 stgr. Stærðir (28-36) kr. 4.455 stgr. Stærðir (37-46) SMELLU- SKAUTAR Stærðir 29-41 Verð aðeins kr. 4.740 stgr. kr HOKKISKAUTAR Stærðir 36-46 Verð aðeins 5.690 stgr. BARNASKAUTAR (Smelluskautar) Stærðir 29-36 Verð aðeins kr. 3.790 stgr. Opið laugardaga frá kl. 10-14 ðlUMMF* Skelfunnl 11, síml 588 0890 Ótl ntaMbéttikdi til katida öttuh Hátíðardagskrá í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. í tilefni 50 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna, þann 10. desember, 1998. Frá kl. 14.00 -19.00 verður opin upplýsingamiðstöð um mannréttindastarf á íslandi í Tjarnarsal Ráð- hússins. Þar verða einnig til sýnis Ijósmyndir úr Ijósmyndamaraþoni sem ungmenni frá Félags- miðstöðvum íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkurtóku þátt í, þema Ijósmyndamaraþonsins er „Öllmannréttindi tilhanda öllum Kl.15.00 Dagskrá: Skemmtidagskrá fyrir börn og ungmenni. Fram koma ungmenni frá Þjóðráði Bahá'ía, sönghópur frá leikskólanum Sólborg, Hallfríður Ingimundar- dóttir, sem les úr nýútkominni bók sinni Pési og verndarenglarnir, börn frá Háteigsskóla og ung- mennifrá Hlíðaskóla. Kl.16.45 Haldinn verður opinn stofnfundur félags til að vinna að jafnrétti á íslandi og að fyrirbyggja misrétti á grundvelli kynþáttar, litarháttar, þjóðernis, uppruna eðatrúarbragða. Kl.17.15 Málfundur um áhrif Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna á íslandi. Ávarp flytur HalldórÁsgrímsson, utanríkisráðherra. Erindi flytja Gréta Gunnarsdóttir, lögfræðingur og Davíð Þór Björgvinsson, formaður stjórnar Mann- réttindastofnunar Háskóla íslands. Að fram- sögunum loknum verða umræður. Fundarstjóri er Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, varaformaðurstjórnar Mannréttindaskrifstofu íslands. Kl.20.30 Skemmtidagskrá Meðal þeirra sem fram koma eru: Lögreglukórinn, Snorri Sigfús Birgisson píanóleikari, Edda Þórarinsdóttir leikkona og Júlía G. Hreinsdóttir, Daði Kolbeinsson óbóleikari ásamt strengjatríói, danshópurinn Extremety, Sif Ragnhildardóttir söngkona og Rússíbanarnir. Ávarp flytur Haraldur Ólafsson prófessor, afhent verða verðlaun fyrir bestu myndaröðina í Ijósmyndamaraþoninu „Öll mannréttindi til handa öllum". Kynnir dagskrár verður Ævar Kjartansson. Hlé verður gert á dagskránni, Ráðhúskaffi verður opið og ýmislegt góðgæti á staðnum. Dagskráin er öllum opin og aðgangur ókeypis. Dagskráin verður túlkuð á táknmáli og rittúlkuð á íslensku. Mannréttindaskrifstofa íslands • Barnaheill • Hjálparstarf kirkjunnar* Landssamtökin Þroskahjálp • íslandsdeild Amnesty International • Öryrkjabandalag íslands • UNIFEM á íslandi • Rauði kross íslands • Kvenréttindafélag Islands • Félag Sameinuðu þjóðanna á íslandi • ELSA-lsland • Þjóðráð Bahá'ía á íslandi • Mannréttindastofnun Háskóla íslands • Félag heyrnarlausra • Lögmannafélag íslands og Undir- búningsnefnd um stofnun félags gegn misrétti. I samstarfi við félagsmiðstöðvar íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, Hitt húsið og Miðstöð nýbúa. ftftft ft* <r • » • • » • • • • • • • • • • • • • • « m • a • j* ■ÍBJL jt. JL, A. 7va7v 7va7v 7va7v tva7v tvaTv TvaTv 7va7v Tvatv 7v7vl ItvtvTv TvaTv
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.