Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 10.12.1998, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Leiðtogi Tsjetsjena fordæmir morð á erlendum gíslum Myrtir þegar reynt var að bjarga þeim Grozní, Moskvu. Reuters. ASLAN Maskhadov, forseti Tsjet- sjníu, sagði í gær að mannræningj- arnir, sem afhöfðuðu fjóra erlenda gísla í héraðinu, hefðu myrt þá þeg- ar gerð hefði verið misheppnuð til- raun til að bjarga þeim. Höfuð gíslanna, þriggja Breta og Ný-Sjálendings, fundust í poka á vegi um þremur km frá þorpinu Dovydenko í fyrradag, tveimur mánuðum eftir að þeim var rænt er þeir voru að setja upp símkerfí í Tsjetsjníu. Aðrir líkamshlutar mannanna hafa ekki fundist. Algert sljórnleysi á svæðinu og mannrán algeng Algert stjórnleysi er á svæðinu og mannrán eru algeng en þetta er í fyrsta sinn sem gíslar eru myrtir þar frá lokum stríðsins í Tsjetsjníu á árunum 1994-96. Breska stjórnin kvaðst í gær hafa ráðið fyrirtæki mannanna, Granger Telecom, frá því að senda þá til Tsjetsjníu vegna ófremdarástandsins þar. „Mannræningjarnir myrtu gísl- ana með grimmdarlegum hætti þeg- ar reynt var að bjarga þeim,“ sagði Maskhadov. „Þetta er enn eitt hroðaverkið gegn erlendum borgur- um sem koma til að vinna í Tsjetsjn- Maskhadov heitir því að fínna mannr æningj ana og refsa þeim íu og voru gestir Tsjetsjena. Þetta hefur fyllt sál Tsjetsjena hatri í garð þeirra sem frömdu þetta illvirki." Maskhadov var miður sín þegar hann las yfírlýsinguna á blaða- mannafundi í Grozní. Hann vottaði Bretum og Ný-Sjálendingum samúð sína og hét því að fínna mannræn- ingjana og refsa þeim. Yfirlýsing Maskhadovs er ekki í samræmi við ummæli Mansurs Tagírovs, aðalsaksóknara Tsjetsjn- íu, sem kvaðst telja að mannræn- ingjarnir hefðu myrt gíslana af ótta við að þeir yrðu handteknir. Mann- ræningjarnir hefðu orðið hræddir þegar lögreglan tók einn félaga þeirra í yfirheyrslu og myrt gíslana „til að losa sig við þá sem vitni“. Bretar óska eftir upplýsingum Vopnaðar uppreisnarsveitir í Tsjetsjníu hafa haldið uppi andstöðu við Maskhadov og krafist þess að Tsjetsjenar stofni íslamskt ríki og rjúfi algjörlega tengslin við Rúss- land. Maskhadov sagði að „ákveðin öfl“, sem telji sig hagnast á ein- angrun Tsjetsjn- íu, hafi staðið fyrir mannrán- inu. Robin Cook, utanríkisráð- herra Bretlands, ræddi málið við rússneskan Maskhadov starfsbróður sinn, Igor Ivanov, sem féllst á að Cook sendi Maskhadov beiðni um að Bretar fengju ýtarlegar upplýsingar um morðin og hvernig hægt væri að finna mannræningjana og draga þá fyrir rétt. „Rússar hafa verið eins hjálplegir og þeir geta í þessu máli,“ sagði Cook. „Vandamálið er að stjórnin í Moskvu má sín ekki mikils í Tsjet- sjníu nú um stundir." Sendiherrar Bretlands og Nýja- Sjálands ræddu einnig við innanrík- isráðherra Rússlands og óskuðu eft- ir samstarfi við yfirvöld í Moskvu og Grozní til að hafa hendur í hári morðingjanna. Sekur um und- anfærslur - ekki meinsæri Málflutningi verjenda Clintons lokið Washington. Reuters. VERJENDUR Bills Clintons, for- seta Bandaríkjamanna, luku mál- flutningi sínum fyrir dómsmála- nefnd fulltrúadeildarinnar í gær- kvöld og skoruðu þá á hófsama repúblikana að gi-eiða atkvæði gegn málshöfðun á hendur forsetanum. Viðurkenndu þeir, að samband hans við Monicu Lewinsky hefði verið sið- ferðilega rangt og hann hefði reynt að villa um fyrir fólki en á hinn bóg- inn réttlætti það ekki, að hann yrði sviptur embætti. I skýrslu, sem Hvíta húsið Iagði fyrir dómsmálanefndina, og í mál- flutningi lögfræðinganna var lögð áherslu á, að forsetinn hefði ekki gert neitt það af sér, sem gæfi ástæðu til að reka hann úr embætti. Hann hefði ekki gerst sekur um meinsæri er hann neitaði því í sam- bandi við mál Paulu Jones, að hann hefði haft mök við Monicu Lewinsky vegna þess, að þá hefði hann svarað í samræmi við þá skilgreiningu, sem lögfræðingar Jones og dómarinn hefðu verið búnir að samþykkja. Vissulega hefði hann ekki sagt satt frá en um meinsæri hefði ekki verið að ræða. „Forsetinn vill, að allir viti, nefnd- in, þingið og þjóðin öll, að hann iðr- ast þess, sem hann hefur gert rangt,“ sagði Greg Craig, sérstakur ráðgjafi Clintons, og hann og aðrir verjendur vona, að sá boðskapur verði til að milda nokkuð hug sumra repúblikana áður en til atkvæða- greiðslu í fulltrúadeildinni kemur um málshöfðun. „Lögfræðilegur útúrsnúningur" Clinton hafði nokkra ástæðu til að fagna í gær, þegar Amo Houghton, repúblikani frá New York, ákvað að greiða atkvæði gegn málshöfðun og er þá vitað um sex repúblikana, sem hafa tekið þá afstöðu. Henry Hyde, formaður dómsmálanefndarinnar, var hins vegar jafn harður sem fyrr og kallaði málflutning verjendanna „lögfræðilegan útúrsnúning". Demókrötum er mikið í mun að ljúka þessu máli, sem mun óhjá- kvæmilega verða blettur á forseta- ferli Clintons og gæti lamað störf öldungadeildarinnar meira eða minna á næsta ári verði það sent til hennar. Hefur verið lagt að Clinton að tjá sig á nýjan leik, til dæmis með því að biðjast afsökunar enn einu sinni, og er nú talið líklegt, að hann geri það. FASTEIGNA rf m MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551 1540, 552 1700, FAX 562 0540. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/ GARÐABÆR Arnarnes Stórglæsilegt 373 fm einbýlishús meö tvöföldum bílskúr á frábærum útsýnisstað við Kríunes. Húsið er teiknað og hannað að öllu leyti af Vífli Magnússyni arkitekt. Vandaðar innréttingar. Arinn í stofu. Kinverskar flísar og parket á gólfum. Gufubað. Möguleiki á lítilli séríbúð. Falleg ræktuð lóð með miklum skjól- veggjum. Laust strax. EIGN í SÉRFLOKKI. Hæðarbyggð Stórglæsilegt 315 fm einbýlishús á tveimur hæðum. Allar inn- réttingar eru sérsmíðaðar skv. teikn. Gunnars Magnússonar arkitekts. Vönduð gólfefni: Marmari, parket og indverskar flísar. Arinn í stofu. Innaf svefnherb. er stórt fataherb. Niðri er gert ráð fyrir stúdíóíbúð, góður vel innréttaður veislusalur og sauna. Fyrir framan húsið er lækur með fossum og að sunnanverðu er heitur pottur með vatnsnuddi og gott gróðurhús. Garðurinn fékk viðurkenningu árið 1994 og gatan var kosin fegursta gata Garðabæjar árið 1991. FALLEG OG VÖNDUÐ EIGN MEÐ ^ MIKLU ÚTSÝNI. ^ Ognir í Alsír ALSÍRSKIR uppreisnarmenn skáru 42 á háls í þorpi vestar- Iega í Alsír í fyrrinótt, að sögn fulltrúa stjórnvalda í gær. Áttu morðin sér stað í þorpinu Tadjena í Chlef-héraði, um 170 kílómetra vestur af Algeirs- borg, höfuðborg Alsír. Hafa uppreisnarmenn þá murkað lífið úr meira en hundrað óbreyttum borgurum í Vestur- Alsír á síðustu sjö dögunum. Hefur skálmöld undanfarinna ára valdið því að íbúar í Vestur- Alsír búa við stöðugan ótta um að verða næstu fórnarlömb ódæðismannanna og hefur þurft að grípa til strangra ör- yggisráðstafana á þessu svæði. Geymir íjölskyldan á myndinni, sem býr í bænum Haouch Omar í Metidja-héraði, t.d. AK-47 sjálfvirkan hríðskota- riffil á stofuborði sínu skyldu uppreisnarmenn leggja til atlögu í bænum. Reuters Bóluefni g’eg'n heila- himnubólgu? BRESKIR vísindamenn rannsaka nú bóluefni sem gæti valdið straumhvörfum í baráttunni gegn hinum mann- skæða sjúkdómi heilahimnu- bólgu. Bóluefnið var þróað af læknum á Kúbu og halda Kúbumenn því fram að þar sé búið að útrýma heilahimna- bólgu. Er nú unnið að því að rannsaka bóluefni Kúbu- mannanna og kanna hvort fullyrðingar þeirra standist. Var haft eftir Michael Levin, einum vísindamann- anna, að Kúbumenn hefðu unnið afar eftirtektarvert af- rek. „A fremur stuttum tíma hafa þeir framleitt bóluefnið, gert á því prófanir, hafið al- menna notkun á því og segj- ast hafa gert útlægan hræði- legan sjúkdóm.“ GÓÐUR VEITINGASTAÐUR Vorum að fá í sölu einn af þekktari og eldri matsölustöðum bæjarins. Mjög vel staðsett fyrirtæki í nýlegum og góðum ca 350 fm húsakynnum. 95 manna veitingasalur. Vínveit- ingaleyfi. Langtímaleigusamningur. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum. LUNDUR FASTEIGNASALA Sími 533 1616, fax 533 1617, netfang: lundur(S)mmcdia.is. Opið virka daga kl. 9—18, sunnudaga kl. 12—14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.