Morgunblaðið - 10.12.1998, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI - Haftækni - 462 7222 - B. Sigurgeirsson - 462 6015 • BORGARNES - Tölvubóndinn - 437 2050 •
DALVÍK - H.S. Verslun - 466 1828 • EGILSSTAÐIR - Tölvusmiöjan - 471 2266 • ISAFJÖRÐUR - Bókaverslun Jónasar
456 3123 • NESKAUPSTAÐUR - Tölvusmiðjan - 477 1005 • SAUÐÁRKRÓKUR - Element Skynjaratækni - 455 4555
VESTMANNAEYJAR - Tólvuver - 481 2566
Tæknival
Skeifunni 17 • Sími 550 4000 • Opiö virka daga 09:00 - 18:00 • laugardaga 10:00 -16:00
AKRANES - Tölvuþjónustan - 431 4311 • AKUREYRI - Tæknival - 461 5000 • EGILSSTAÐIR - Tölvuþjónusta
Austurlands - 470 1111 » HORNAFJÖRÐUR - Tölvuþjónusta Austurlands - 478 1111 « HÚSAVÍK - E.G. Jónasson -
464 1990 • ÍSAFJÖRÐUR - Tölvuþj. Snerpa - 456 3072 REYKJANESBÆR -Tölvuvæöing - 421 4040
SAUÐÁR KRÓKUR - Skagfiröingabúö - 455 4537 • SELFOSS - Tölvu- og rafeindaþj. - 482 3184
VESTMANNAEYJAR - Tölvun - 481 1122
EPSON
HflRSBREIDDIN
SKIPTIR MfiLI . . .
720dpi PhotoReal Ijósmynda-
gæSi fyrir svart/hvrta
og litaprentun J&Q
Einfaldur í notkun
CoSur hugbúnaður til
útprentunar og myndvinnslu
Tenging MS-Windows
• 1440dpi upplausn
ísvart/hvítu og Ht
• Hraðprentun (S bls. á mín.
ísvart/hvrtu, 3,Sbls.
á mín. ílit)
• EPSON PhotoEnhance
fyrir aukin gæði
í myndaprentun
• Sérhannaður fyrir Windows
stýrikerfið
• Ijásmyndahugbúnaður fylgir
• Með smæstu blekpunkta
sem völ er á, jafnt fyrir lit
og svort/hvíta prentun
• 1440dpi upplousn með
EPSON MicroPiezo Ultra
• Fullkomin PhotoReal
Ijósmyndaprentun
• Allt að 40% hrað-
virkari en Stylus Color 640
• Hannaður fyrir Windows DOS
og Macintosh
• Tenging fyrir PC og Moc
• Hahraðaprentun (9 bls.
á mín. í svart/hvítu, 8, S
bls. á mín. ílit)
• 1440dpi upplausn
í svart/hvítu og lit
• Fyrir Windows 3.1,
Windows 95, Windows
NT 4.0 og Macintosh
•Aukabúncður Postscript
og nettenging
EPSON prentararnir, sem eru tvímælalaust
mei þeim betri á markaSnum, henta jafnt
fyrirtækjum sem einstaklingum. LÍttu inn og
kynntu þér frábær gæSi útprentunar íEPSON.
NEYTENDUR
Döðlukonfekt
„KONFEKTGERÐ er úrvals tæki-
færi til þess að láta hugmyndaflug
fjölskyldunnar njóta sín, bæði í útliti
og innihaldi," segir Bryndís Eva
Birgisdóttir næringarfræðingur og
ráðgjafí matarklúbbs Vöku-Helga-
fells, Af bestu list. „Margir eiga jafn-
vel sitt uppáhaldskonfekt sem þeir
gera ár eftir ár og alltaf er jafnmikil
stemmning í eldhúsinu þar sem
drukkið er kakó eða kók eftir aldri
og aðstæðum eða jafnvel dreypt á
sérríi með, við kertaljós og jólalög."
Þótt fæstir vilji tengja jólin mikilli
hollustu er auðvelt að bjóða upp á og
búa til mat sem fellur þar undir,
segir Bryndís Eva. „Það má til
dæmis gera með því að bjóða upp á
heimatilbúið konfekt í bland við
ávexti er gesti ber að garði. Blanda
má nettum konfektmolunum á
bakka með ýmsum ferskum ávöxt-
um í stað hefðbundnu smákakanna.
Þá er ekki verra að konfektið sé í
hollari kantinum. Með því að nota
t.d. meira af þurrkuðum ávöxtum og
hnetum, svo sem döðlur, gráfíkjur,
apríkósur, rúsínur og kúrenur,
heslihnetur og möndlur, og minna af
súkkulaði er hægt að búa til sælgæti
sem er mun ríkara af næringarefn-
um en hreint súkkulaði og hefð-
bundið konfekt."
Ekki borða í hugsunarleysi
Bryndís Eva reiknaði út næring-
arinnihald í 100 g af
rjómasúkkulaði annars vegar og
hins vegar í döðlukonfektinu sem
uppskriftin hér að neðan er af. Eins
og sjá má er rjómasúkkulaði tölu-
vert orkuríkara en döðlukonfektið.
Til samanburðar má geta þess að
meðalorkuþörf konu er um 2.000
kkal á dag. Súkkulaðið inniheldur
aukinheldur mun meira af mettaðri
o cl o Rjómasúkkulaði 100 g J Döðlukonfekt 100 g
Hitaeiningar 530 kkal 350 kkal
Prótein 10 g 3 g
Kolvetni "" J 54 g 53 g
Fita 31 g Jj 13 g
Mettuð fita 18 g í '"- \ 6 g
Trefjar 0,4 g 8,0 g
ekki nema 0,4 g af trefjum en
döðlukonfektið aftur á móti 8,0 g.
„Mikilvægast af öllu er síðan að
njóta hvers og eins bita sem maður
fær sér i stað þess að raða í sig í
hugsunarleysi," minnir Bryndís
Eva á.
Döðlulconfekt
_______300 g steinlausor döðlur___
__________50 g heslihneiur________
V2 dl sérrí/púrtvín (nota má eplasafa)
_________30 g suðusúkkulaði_______
___________1 dl kókosmjöl_________
kökuskraut
Úr uppskriftinni fást 25 molar.
Setjið döðlur, smátt saxaðar hesli-
hnetur og helminginn af kókosmjöl-
inu í matkvörn. Mótið 2 rúllur úr
deiginu. Setjið í kæli á meðan hjúp-
urinn er búinn til. Bræðið súkkulaðið
í vatnsbaði og penslið á rúllm'nai'.
Veltið rúllunum upp úr kókosmjölinu
og/eða kökuskrautinu og skerið í
sneiðar.
Morgunblaðið/Golli
GIRNILEGT döðlukonfekt í
bland við ávexti. Bryndís Eva
segir döðlukonfektið vera afar
bragðgott.
fítu en döðlukonfektið. Athugið
einnig hversu miklu munar á trefja-
innihaldinu. Súkkulaðið inniheldur
Höfðað til skynseminnar
ÞAÐ er hinn eðlilegasti hlutur að húð-
in á okkur eldist. Þegar það gerist
þynnist efsta laga hennar, svokallað
epidermis, og bandvefstrefjum, svo-
nefndu kollageni, fækkar. Teygjan-
leiki hennai' minnkai' þar með og hún
verður hrukkótt.
Ýmsir hlutii' flýta fyrir þessari þró-
un, svo sem sólarijós, mengun og
reykingar. Sífellt er reynt að finna
leiðir til að spoma gegn þróuninni svo
húðin haldist ungleg fram eftir aldri
og svo lengi sem kostur er. Það er
meðal annars gert með kremum. Eitt
slíkt krem, Servital frá Syenee, er ný-
komið á markað hér á landi og hefur
Lyfja ein verslana leyfí til að selja það
næsta hálfa árið. Þuiíður Ottesen,
sem flytur kremið inn, segh' ástæðuna
fyrir því vera þá að notkun kremsins
eigi að höfða til skynseminnar, þ.e.a.s.
fólk eigi að nota kremið vegna þess að
það skilur hvemig það virkar en ekki
vegna þess að því sé sagt að það geri
gagn. Þess vegna hafi hún viljað þjálfa
nokkra starfsmenn vel svo þeir geti
miðlað upplýsingum um kremið til
væntanlegra notenda. Það skipti
miklu máli að kremið sé notað á rétt-
an hátt og þess vegna ríði á að fólk fái
rétta tilsögn.
Fitu- og vaxefni í húðinni
Servital-kremið er þróað af banda-
rískum húð- og lýtalæknum sem þótti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞURÍÐUR segir hér frá „skyn-
sömu“ kremi og notkun þess.
ástæða til að finna upp krem sem inni-
héldi lítið af fitu- og vaxefnum en þau
vilja, að því er Þuríður segir, setjast í
húðina. Að hennar sögn komust lækn-
amir að því að efnin töfðu íyrir því að
húðin greri eftir lýtaskurðaðgerðir.
Fimmtán ár em síðan þeir fóru að
þreifa fyrir sér eftir þessari nýju leið
til að auka raka húðarinnar svo hún
héldist ungleg. Fyrii' tveimur áram
vora niðurstöður óháðrar rannsóknar,
sem þeir fengu vísindamenn við Guy’s
Nufiield Hanse sjúkrahúsið í London
til að gera til að meta hvort kremið
bæri tilætlaðan árangm-, birtar í
Intemational Joumal of Aesthetic
íind Restomtive Surgery.
Kremið er ekki ávaxtasýrakrem
eins og flest hrukkukrem sem þegar
era á markaði. Það inniheldur aftur á
móti hýalúroniksýra en hún getur
haldið mjög miklu magni af vatni í
sér og A-vítamín, ásamt C- og E-
vítamíni en þau koma í veg fyrir nið-
urbrot A-vítamínsins, sem er mjög
viðkvæmt efni. A-vítamín öi’var
frumuskiptingu í efsta lagi húðarinn-
ar og veldur því að húðin þykknar og
þéttist. Rannsóknin sem gerð var á
þriggja vikna tímabili með þátttöku
60 einstaklinga á aldrinum 40-68 ára
leiddi í ljós að húð þeirra 40 einstak-
linga sem nudduðu andlitið með
kreminu þykknaði marktækt miðað
við húð þehra 20 sem ekki báru á sig
kremið en nudduðu húðina með sama
hætti og þeir sem notuðu ki'emið. I
viðmiðunarhópi voru 20 einstaklingar
um tvítugt. Þátttakendur nudduðu
húðina kvöld og morgna og var þykkt
hennar síðan mæld með sérstökum
hljóðbylgjumæli á 1., 3., 7., 14. og 21.
degi. Að rannsókn lokinni vai' þátt-
takendunum fylgt eftir til að fylgjast
með hvort breytingamar væra var-
anlegar. Svo er ekki og segja vísinda-
mennimir í niðurstöðum sínum að
það sé að sjálfsögðu æskilegt því þar
með hafi notendurnir sjálfir fulla
stjóm á áhrifum kremsins. I þessu
sambandi segir Þuríður að um krem-
ið gildi sömu lögmál og um venjulega
líkamsrækt. Maður nær árangri ef
maður stundai' hana en ef maðui'
hættir fer líkaminn smám saman úr
formi.
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrœn
eðaltré, í hcesta gæðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
10 ára ábyrgð
12 stærðir, 90 - 500 cm
Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
Truflar ekki stofublómin
SNORRABRAUT 60
Eldtraust
t*. Þarf ekki að vökva
mu íslenskar leiðbeiningar
Traustur söluaðili
;■*■ Skynsamleg fjárfesting
Bcmdalag íslenskra skóta