Morgunblaðið - 10.12.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998 37
LISTIR
En Færeyjar eru ekki hluti af
þeim heimi og stílbrigðin sem lista-
menn þeirra velja sér - Parísarskóli
eftirstríðsáranna - eru því síður
hluti af þúsundáraríkinu. Þess
vegna verður að telja það meirihátt-
ar afturfór þegar Heinesen fer að
mála nákvæmlega eins og Nicolas
de Staél gerði fyrir hálfri öld. Ef ég
man rétt var Heinesen miklu per-
sónulegri og snöggtum tilþrifameiri
á ofanverðum 8. áratugnum. Hið
sama má segja um kollega hans.
Þeir lofuðu allir góðu í upphafí 9.
áratugarins þegar Norræna lista-
miðstöðin dró þá saman í sýningu,
sem hingað kom í salarkynni
Norræna hússins. Einlægni skein
úr hverju verki, enda voru Lanskoy,
Vieira da Silva, Riopelle og aðrar
„óheillakrákur" gamla Parísarskól-
ans ekki búnar að hreiðra um sig í
myndum þeirra.
Hans Pauli Olsen er eini mynd-
höggvarinn í hópnum. Þessi liðlega
fertugi nemandi þeiiTa Willy 0r-
skov og Bjarn Nprgaard er býsna
stórskorinn í list sinni. Þannig sver
hann sig fullkomlega í ætt við
málarana, en mónumental stærðir
og inntak virðist heilla alla þessa
færeysku listamenn. Léttleiki 0r-
skovs og húmor Norgaards er víðs
fjarri Olsen. Svo virðist sem hann
taki mun ákveðnara mið af dönsk-
um póstmódernistum á borð við
Henrik B. Andersen, Morten
Stræde og 0ivind Nygárd. Líkt og
þeir sver Olsen sig í þá sérdönsku
hefð að halda höggmyndinni á plani
minnisvarða í staðinn fyrir að
tvístra henni einfaldlega í_ margar
sjálfstæðar einingar. Útkoman
verður vægast sagt þunglamaleg
fyrir vikið.
Andspænis listmálurunum átta
standa vefararnir Astrid Andreasen
og Tita Winther - finnsk að upp-
runa - leirlistarmaðurinn Guðrið
Poulsen og teiknarinn Rannvá
Kunoy, langyngsti listamaðurinn í
hópnum og að því best verður séð
langvænlegasti fulltrúinn á sýning-
unni. Konurnar sýna að vaxtar-
broddurinn í færeyskri list er ekki
lengur fólginn í stórskorinni hetju-
list. Þótt verk þeirra brjóti vart blað
hvað frumleik áhrærir leita þær í
heilbrigðari og heillavænlegi'i áttir
en karlpeningurinn. Þær hafa vinn-
inginn vegna þess að list þein-a er
snöggtum lágværari og hógværari
en verk starfsbræðra þeirra. Hún
er þar af leiðandi sannari.
Af ofansögðu má sjá að færeysk
samtímalist stendur á tímamótum.
Það sem dugði svo vel og lengi hef-
ur nú tapað flugi og misst allan fyrri
sannfæringarkraft. Færeyjar eru
ekki lengur þær saklausu drauma-
eyjar sem þær voru fyrir nokki-um
áratugum. Eins og frændur þeirra í
norðri hafa Færeyingar lent í
þroskandi erfiðleikum - efnahags-
legum og stjórnmálalegum - sem
rænt hefur þá náttúrulegri einfeldni
sinni. Þess vegna geta færeyskir
listamenn ekki haldið áfram að láta
sem ekkert hafi breyst; að forsend-
ur séu hinar sömu og þær voni fyrir
hálfri öld. Því fyrr sem þeir snúa
sér að því að túlka færeyska samtíð,
þeim _mun skjótar megum við vænta
endurreisnar færeyskrar samtíma-
listar.
mym-
LIST/TOJVLIST
BLðjKDIID TÆKIVI
HALLDÓR ÁSGEIRSSON og
SNORRI SIGFÚS BIRGISSON
ÁKVEÐIN eftirvænting fylgii'
ávallt tilraunum á borð við sam-
vinnu þeirra Halldórs Asgeirssonar
og Snorra Sigfúsar Birgissonai- á
gangi Kjaivalsstaða. Það er ekki
langt síðan fjallað var um hljóðlist á
listasíðum Morgunblaðsins og getið
merkilegra tilrauna listamanna og
tónskálda til að bræða saman mymd-
list og tónlist. Skriabin ög Schönberg
voru meðal þeirra tónskálda sem
gerðu tilraunir með tónlist í litum,
meðan Kandinsky og Klee úr hópi
myndlistarmanna sökktu sér ofan í
hugmyndir um samruna mynd- og
tónmáls.
Meðfram endilöngum norður-
veggnum er einfóld stólaröð þar sem
gestir geta tyllt sér til að hlýða á im-
pressjónísk tónaljóð Snorra Sigfúsar,
Portrett nr. 1-7, sem höfundurinn
leikur á flygilinn, í milli þess sem
Halldór Asgeirsson gengur milli
þriggja upplýstra glerkerja, sem tyllt
er eins og fiskabúrum ofan á báts-
laga hjólavagna, og blandar mislitu
bleki í vatnið. Smám saman verða til
fegurstu litbrigði sem ljóskastarar
varpa upp á suðurvegg gangsins svo
úr verða tímabundnar vatnslita-
myndir.
Um leið og litadýrðin stendur full-
sköpuð rennir Snon-i Sigfús sér eftir
nótnaborðinu og vekur upp
kliðmjúka hljóma, nokkurs konar
tónræna samsvörun endurkasts-
mynda Halldórs. Ef málverk hans
líkjast þeim stílbrigðum sem Green-
berg kallaði „Post-painterly
Abstraktion“, og Morris Louis og
Helen Frankenthaler voru helstu
fulltrúar fyrir, mætti skilgreina
píanóverk Snorra Sigfúsar sem post-
atónskan krómatisma. Reyndar
minnir margt í Portrettum hans á
Þrjú píanóstykki Schönbergs frá
1909, en tónsmíðar Snorra eru
snöggtum impressjónískari og til-
finningalegiá, enda eru þær tilraunir
til mannlýsinga með tónum.
Reyndar er eins og gjömingnum
sé lokað með hljómdiski þeim sem
Smekkleysa gefur út í nánum tengsl-
um við Kjarvalsstaði. Þar er að finna
píanóverk Snorra Sigfúsar, ásamt
fagurri sýningarskrá Halldórs As-
geirssonar; eins konar samantekt í
bókarformi á samvinnu þeirra. Þar
kemur reyndar betur í Ijós en á sjál-
fri sýningunni hvert Halldór hvarflar
huganum meðan hann litar vatnið
sitt. Hafrótið umhverfis landið sem
tekið hefur sinn toll af sjómönnum
litar alla útgerðarsögu okkar. Ara-
báturinn sem klýfur tilbúna ölduna á
veröndinni við safnið og mannskap-
urinn sem hoi-fir á, túlkaður með
skuggamyndum á glerplötur, fá
hljómrænan styrk frá mannlýsingum
Snorra Sigfúsar og dæmið gengur
upp.
Þetta er heillandi tilraun til að vefa
saman tóna og liti í einum gjömingi;
á einum diski og í einni sýningarskrá.
Næstu tvo sunnudaga; 13. og 20. des-
ember - stundvíslega klukkan 17 -
gefst gestum Kjarvalsstaða kostur á
að upplifa merldlega samvinnu þess-
ara tveggja listamanna. Af því skyldi
enginn missa.
Halldór Björn Runólfsson
Jólatónleikar
Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar
SKÓLATÓNLEIKAR í Tónleika-
skóla Hafnarfjarðar í Hásölum hefj-
ast í kvöld, fimmtudag, kl. 20 á tón-
leikum grunndeildar. Nemendur
leika á ýmis hljóðfæri undir stjórn
Helgu Bjargar Amardóttur.
Miðvikudaginn 16. desember kl. 20
verða jólatónleikar miðdeildar.
Fimmtudaginn 17. desember kl. 20
verða tónleikar framhaldsdeildar.
Mánudag og þriðjudag, 14. og 15.
desember, heldur forskólinn tón-
leika og jólaball kl. 17.
--------------
800 söngraddir í
Hafnarborg
í HAFNARBORG, menningar- og
listastofnun Hafnarfjarðar verður á
morgun, laugardag kl. 13 ,
tónlistardagskráin Syngjandi jól í
Hafnarborg.
Dagskráin er samvinnuverkefni
Hafnarborgar og Skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar. Tuttugu og einn kór
og sönghópur, alls um 800 manns
koma fram og lýkur dagskránni kl.
20.
HALLDÓR Ásgeirsson blandar bleki í eitt af búrum sínum. Snorri
Sigfús Birgisson fylgist með við flygilinn, en hljóðfærið er hluti af
skipan sýningarinnar.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
HLUTHAFAFUNDUR
Boðað er til hluthafafundar í Trygginga-
miðstöðinni hf. og verður hann haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu í Reykjavík, fimmtudaginn
1 7. desember 1998 og hefst kl. 1 6:00.
Dagskrá:
Tillaga stjórnar um hlutafjárhækkun.
Lögð verður fram tillaga um að hækka hlutafé félagsins um kr.
50.699.042, þannig að hlutafé hækki úr kr. 182.400.000 í allt að
kr. 233.099.042. Hlutafjárhækkunina skal alla nýta til skipta á
útistandandi hlutafé í Tryggingu hf., að nafnverði kr. 203.599.696,
samkvæmt samkomulagi stjórna Tryggingamiðstöðvarinnar hf. og
Tryggingar hf., sem gert var í nóvember 1998. Vikið er frá
forkaupsrétti hluthafa til áskriftar að hinum nýju hlutum og hafa
eigendur hlutafjár í Tryggingu hf. einir rétt til að skrifa sig fyrir
aukningarhlutunum og greiða þá með hlutabréfum í Tryggingu hf.
Tillaga stjórnar ásamt greinargerð mun liggja frammi á skrifstofu
félagsins, Aðalstræti 6-8, Reykjavík, hluthöfum til sýnis viku fyrir
hluthafafundinn.
Stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf.