Morgunblaðið - 10.12.1998, Síða 58
_ 58 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Jyrir jólabaksturinn H
KitchenAid'xsMw
ásamt öflugri hakkavél að verðmæti kr. 5.480
KitcKenAid
Kóróna eídhússins!
/■/■- KitchenAid einkaumboð á íslandi Einar Farestveit &Cahf.
| BORGARTÚN 28 - S: 562 2900 & 562 2901 |
AÐEINS KR:
28.340,-
meö hakkavélinni!
(stgr. - hvít vél)
5 litir
áanlegir
Brandtex fatnaður
^
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
I tilefni 50 ára afmælis Mannréttinda-
yfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna
í DAG eru 50 ár síð-
an Mannréttindayfir-
lýsing Sameinuðu
þjóðanna var sam-
þykkt á allsherjar-
þingi SÞ. Síðan þá
hafa fulltrúar yfir 160
þjóða, þ.á m. Islend-
inga, skrifað undir
hana. Þótt yfirlýsingin
sé aðeins viljayfirlýs-
ing og hafi ekki laga-
gildi hefur hún gegnt
mikilvægu hlutverki,
gefið viðmiðanir um að
hverju beri að stefna
og verið notuð sem
mælistika á athafnir
og aðgerðir þeirra
ríkja heimsins sem hafa staðfest
hana. Auk þess hafa stórir hlutar
hennar verið notaðir í samninga
sem hafa lagagildi, s.s. Mannrétt-
indasáttmála Evrópu.
„í samæmi
við skipulag"
Yfirlýsingin er undirrituð
skömmu eftir lok seinni heims-
styrjaldarinnar, í langþreyttum
heimi vegna nýafstaðinna stríðs-
hörmunga og skýrir það e.t.v.
hversu langt menn voru tilbúnir til
að ganga og þann anda sem í henni
birtist. Það má leiða að því líkum
að ekki væri hægt að ná samstöðu
á meðal þjóða heimsins í dag um
yfirlýsingu sem næði eins langt.
Sumum þykir hún þó ekki ganga
nógu langt og benda á að í henni
séu glufur sem nota megi til að
réttlæta mannréttindabrot. Má
t.d. benda á 22. grein, 1. lið, þar
sem sagt er: „Hver og
einn hefur, sem þjóð-
félagsþegn, rétt til fé-
lagslegs öryggis og á
tilkall til fram-
kvæmda, fyrir við-
leitni þjóðfélagsins og
með alþjóðlegu sam-
starfi og/í samræmi
við skipulag og efna-
hag hvers þjóðríkis á
þeim efnahagslegu, fé-
lagslegu og menning-
arlegu réttindum sem
eru ómissandi fyrir
sjálfsvirðingu hans og
frjálsa þróun persónu-
leikans". Með þessari
setningu; „í samræmi
við skipulag og efnahag hvers
þjóðríkis", er í raun búið að opna
fyrir að skipulagsleg og efnahags-
leg áhrif geti á einhvern hátt tak-
markað mannréttindi og er það al-
gjörlega óviðunandi. Það býður
upp á að ríki geti réttlætt og stutt
mannréttindabrot með því að vísa
til að þau séu hluti af menningu
þeirra. Einnig hafa fylgt upplýs-
inga- og tæknibyltingunni ýmis
vandamál sem kalla á ítarlegri
skilgreiningar á mannréttindum
og er nærtækt að minnast á per-
sónuupplýsingar í tengslum við
miðlægan gagnagrunn í heilbrigð-
ismálum í því sambandi.
Yfirgnæfandi
kostir
Þrátt fyrir minniháttar ann-
marka eru kostir þess að hafa
slíka yfirlýsingu undirritaða af
þjóðum heims yfirgnæfandi og má
Þrátt fyrir minniháttar
annmarka, segir
Kjartan Jónsson, eru
kostir þess að hafa
slíka yfirlýsingu
undirritaða af
þjóðum heims
yfirgnæfandi.
fullyrða að heimurinn yrði tölu-
vert mikið betri ef ríki heimsins
færu að fylgja henni í auknum
mæli. Skýrslur Amnesty
International um mannréttinda-
brot undanfarin ár sýna þó að víð-
ast eigum við langt í land, meira
að segja í löndum sem þykjast
vera til fyrirmyndar í þessum efn-
um. Ótal dæmi um pyntingar,
ólöglegar fangelsanir og önnur
mannréttindabrot er að finna í
skýrslum samtakanna. Leiddar
hafa verið líkur að því að nýfrjáls-
hyggjan og einkavæðingin sem
fylgir í kjölfar hennar vinni bein-
línis gegn mannréttindum þar sem
einkavæddir skólar og einkavædd
sjúkrahús geta þýtt að mannrétt-
indi eins og menntun og heilsu-
gæsla verða aðeins í gildi fyrir þá
sem hafa efni á þessari þjónustu.
Notkun atvinnuleysis sem hag-
stjórnartækis er annar fylgifiskur
sem gerir ráð fyrir að gott sé að
ákveðinn hluti fólks sé atvinnu-
laus, það gefi fólki aðhald og haldi
því við efnið. Þetta stangast alger-
lega á við Mannréttindayfirlýsing-
una, þar sem hún segir í 23.1.:
„Hver maður á rétt á atvinnu að
frjálsu vali, á réttlátum og hag-
kvæmum vinnuskilyrðum og á
vernd gegn atvinnuleysi."
Húmanistaflokkurinn
Húmanistaflokkurinn hefur
Mannréttindayfirlýsingu Samein-
uðu þjóðanna í heild sinni sem
hluta af sinni stefnuskrá. Mörgum
finnst kannski fjarlægt að tala um
mannréttindabaráttu á Islandi, en
þegar nánar er að gáð kemur ým-
islegt í ljós. Nú á t.d. að leggja
fram lög sem takmarka eða banna
hópuppsagnir. Það er þvert á þann
anda sem kemur fram í Mannrétt-
indayfirlýsingunni. Við eigum eftir
að taka ýmis skref í málefnum t.d.
samkynhneigðra og útlendinga
sem hingað flytjast; umræður um
miðlægan gagnagrunn í heilbrigð-
ismálum kalla á nánari skilgrein-
ingar á persónuvernd sem mann-
réttindi og hér ríkir mismunun í
úthlutun fiskikvóta sem Hæstirétt-
ur hefur staðfest að brjóti jafn-
ræðisreglu stjórnarskránnar.
Einnig hefur verið bent á að ríkis-
styrkt þjóðkirkja brjóti í bága við
þau mannréttindi sem trúfrelsið
er. Það eru því ótal ástæður fyrir
þvi að við höldum vöku okkar
áfram og er þetta afmæli Mann-
réttindayfirlýsingarinnar gott
tækifæri til þess að blása lífi I
mannréttindabaráttu hvar sem er í
heiminum.
Höfundur er sölustjóri og félagi í
Húmanistaflokknum.
Kjartan
Jónsson
Bf ICVAL
&i ertt alltaf
GREINILEG
Thomson samsteypan er fjórði stærsti framleiðandi
raftækja í heiminum og eru vörumerki hennar Thomson,
General Electric, Proscan, RCA, Saba og Telefunken.
Thomson er leiðandi í framleiðslu sjónvarps-,
myndbanda- og hljómtækjabúnaðar. Fyrirtækið var
meðal annars fyrst til að innleiða DVD spilara og
plasmatækni en sú tækni er undirstaða fyrir þynnri og
fyrirferðarminni skjái.
TÖLVUN
'Sf
Skeifunni 11
Reykjavíkurvegi 64
Stjóm Olíufélagsins hf. boðar
til hluthafafundar fimmtudaginn 17. desember,
kl. 16.00 síðdegis, í húsnæði Olíufélagsins hf.,
Suðurlandsbraut 18, 5. hæð, Reykjavík.
Á dagskrá fundarins er tillaga stjómar
félagsins um sammna Olíusamlags Keflavíkur
og nágrennis ehf. við Olíufélagið hf., skv.
fyrirliggjandi samrunaáætlun félaganna.
Verði tillagan samþykkt, þá felst jafnframt
í henni breyting á samþykktum Olíufélagsins hf.
um hækkun á hlutafé, en hækkuninni verður varið
til að skipta á hlutum hluthafa í yfirtekna
félaginu á hlutabréfum í Olíufélaginu hf.
jj
m
Hluthöfum er bent á að skjöl viðkomandi 5
fyrirhuguðum samruna, skv. 5. mgr. 124. gr. |
hlutafélagalaga, hafa legið frammi |
á skrifstofum félagsins frá 1. nóvember 1998.
Hluthafar geta fengið framangreind gögn send
skv. beiðni fyrir fundinn, eða nálgast þau
á skrifstofu félagsins, en rétt er að taka fram
að gögnin liggja einnig frammi til skoðunar
á sjálfum hluthafafundinum.
Stjóm Olíufélagsins hf.
Olíufélagiðhf