Morgunblaðið - 10.12.1998, Page 70
70 FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
glæsilegum þýzkum hópum sem
sigraði.
Úrslit
Úrslitin hjá hópunum tveimur,
sem okkar pör voru í, hófust laust
íyrir kl. 14. Yngri pörin hófu leik-
inn með suður-amerískum döns-
um og dönsuðu bæði pörin mjög
vel. I úrslitum vora bæði íslensku
pörin, bæði þau dönsku, eitt
finnskt og eitt norskt og vora
þetta allt sterkir dansarar. Sigur-
vegarar urðu Sonny Fredie-Pet-
ersen og Jeanne Aunel sem Davíð
og Halldóra hafa löngum att
kappi við og í öðra sæti urðu
Finnarnir Toni Rasimus og Laura
Haapaniemi en bæði þessi pör
kepptu einnig hér á landi þegar
Norðurlandamótið var haldið fyr-
ir tveimur árum. Davíð og Hall-
dóra höfnuðu í 4. sæti og era það
nokkur vonbrigði fyrir okkur ís-
lendinga þar sem búist var við að
þau myndu keppa um fyrstu tvö
sætin. En svona er nú keppni,
stundum vinnur maður og stund-
um ekki. Hrafn og Helga lentu í
6. sæti og dönsuðu vel. í flokki
14-15 ára áttu Islendingar tvö pör
og hvert hinna Norðurlandanna
átti eitt par í úrslitum. Þar er
skemmst frá því að segja að ísak
og Halldóra gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu mjög öragglega í þess-
um sterka riðli, unnu alla dansana
nema quickstep og komu heim
með Norðurlandameistaratitil. Er
þetta í annað sinn sem við íslend-
ingar eignumst slíkan titil. I öðru
sæti var danskt par, Marc
Christensen og Ea Jacobsen. í
þriðja sæti var íslenzkt par,
Gunnar Hrafn Gunnarsson og
Sigrún Yr Magnúsdóttir, sem
dönsuðu mjög vel. En svo
skemmtilega vill til að það var
Sigrún Yr sem kom heim með
fyrsta „íslenzka“ Norðurlanda-
meistaratitilinn fyrir nokkram ár-
um.
Skipulag keppninnar þótti
vera óhentugt, byrjað of
snemmma að morgni og of mikið
um biðtíma og eyður. En í heild-
ina séð þótti ferðin skemmtileg
og sérdeilis ánægjulegt að koma
heim með Norðurlandameistara-
titil í farteskinu og þrenn verð-
laun þar fyrir utan. Næsta stóra
keppni verður heimsmeistara-
keppnin sem haldin verður 27.
desember í Litháen.
Jóhann Gunnar Arnarsson
DANS
Jón
ÍSAK Nguyen Hall-
dórsson og Hall-
dóra Ósk Reynis-
dóttir, Norður-
landameistarai- í
dansi í flokki
14-15 ára.
S c a n d i ii a v i u in - h ö 11 i n
f Gautaborg
NORÐURLANDAMÓT f DANSI
Sjö íslensk pör kepptu
5. desember sl.
NORÐURLANDAMÓTIÐ í
dansi fór fram í Scandinavium-
höllinni í Gautaborg laugardag-
inn 5. desember sl. Umgjörð
keppninnar var hin glæsilegasta,
búið var að tjalda af hluta hallar-
innar fyrir keppnina og útbúa
400 fm dansgólf. Svo stór dans-
gólf eru sjaldséð en ástæða þess
hve gólfið var stórt mun vera sú
að samhliða Norðurlandamótinu
fór fram heimsmeistaramót í
mynsturdönsum.
Einnig var keppt í
Boogie Woogie og
Rock’n Roll á Norður-
landamótinu sem er ný-
mæli. Islendingar hafa
ekki lagt mikla stund á
þessa dansa a.m.k. ekki
sem keppnisíþrótt og kepptu
því engin pör fyrir íslands hönd í
þessari keppnisgrein.
AJls voru það 7 íslensk pör
sem tóku þátt í Norðurlandamót-
inu í Gautaborg að þessu sinni.
En íslendingar hafa rétt á að
senda 2 pör S hverja keppnis-
grein úr hverjum aldursflokki og
hefur sú venja skapast hér á
landi að Islandsmeistarar og silf-
urverðlaunahafar fari til keppn-
innar.
Það var með nokkurri eftir-
væntingu sem íslenzki hópurinn
fór út að þessu sinni, því vonir
manna stóðu til þess að við næð-
um að krækja okkur í tvo Norð-
urlandameistaratitla, í flokki
14-15 ára og í flokki 12-13 ára.
Mótið hófst óvenju snemma á
laugardagsmorgni, mörgum
fannst það fullsnemmt því fyrsti
hópurinn, 12-13 ára, byrjaði
keppni kl. 9.30. Menn eru jú mis-
morgunglaðir og ekki í sérlega
miklu dansstuði svo snemma
morguns.
í flokki 12-13 ára náðu bæði
íslenzku pörin að tryggja sér
sæti í úrslitum, þau Davíð Gill
Jónsson og Halldóra Sif Hall-
dórsdóttir og Hrafn Hjartarson
og Helga Björnsdóttir. Það var
sama upp á teningnum í flokki
14-15 ára, þar komust áfram
Gunnar Hrafn Gunnarsson og
Sigrún Ýr Magnúsdóttir og ísak
Nguyean Halldórsson og Hall-
dóra Ósk Reynisdóttir. Hins
vegar gekk ekki eins vel hjá
ungmennum, 16-18 ára, því
hvorugt parið, Kári Örn Óskars-
son og Margrét Guðmunsdóttir
eða Ragnar M. Guðmundsson og
Kristjana Kristjánsdóttir
komust í úrslit. Þau dönsuðu
hins vegar ágætlega. í flokki
fullorðinna var aðeins eitt par
frá Islandi, Björn Sveinsson og
Bergþóra M. Bergþórsdóttir.
Þau fundu sig ekki alveg þennan
morguninn og náðu ekki inn í úr-
slit en voru hins vegar næsta par
A góðum degi hefðu þau
reyndar átt að geta verið í hópi
þeirra sem komust í úrslit.
Mynstur-
dansarnir
Eftir að undanúrslitum var
lokið hófst keppni í mynstur-
dönsum. Þar kepptu 15
danshópar víðs vegar að.
Klæðnaðurinn er enn þá
meira áberandi en í
paradönsunum og
málningin mjög
mikil og hóparnir
eru því mjög
skrautlegir á að
líta. Flestir hóp-
arnir voru mjög vel
samæfðir og í
mörgum þeirra er
eins og dansararnir
séu líka valdir vegna
útlitsins, því stundum finnst
manni öll pörin vera eins. Allir
eru með eins hárgreiðslu og
sama háralit auk þess að vera
eins klæddir. Úr 15 hópum var
valið niður í 10 og síðan í 6 hópa
sem dönsuðu til úrslita seint um
kvöldið. Það var annar af tveimur
Það ar engin tilviljun að Umax skannar sru söluhæstu skannarnir í
Bandaríkjunum. Þassir margverðlaunuðu skannar henta sérlega vel fyrir
skrifstofuna þar sem hágæða skönnun er skilyrði. Einnig eru þeir mjög
fýsilegur kostur fyrir þá sem stunda tölvumyndvinnslu heima fyrir því
Nýherji býður nú Umax skanna á verulega lækkuðu verði.
UMAX
(flslra 122DP | Parallel I PC 12 900 - )____________________
^^^sJra^Jlj8!2IJJIjJJniversaJ^jriaJJhi!j^PC/iMa^^4^90D^-^
Cflstra 1220S | 5CSI + 5CSI spjald f. PC/Mac | 17.900,- ) NÝH E RJI
Skaftahlið 24 • Sími 569 7700
http ://www.nyherji.is
Isak og Halldóra
Osk Norðurlanda-
í dansi
Söluaðilar um land allt