Morgunblaðið - 07.01.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1999 33
LISTIR
Ný tímarit
• NY saga, tímnrit Sögufélags, er
komið út. Þetta er 10. hefti ritsins
en það kom fyrst fyrir sjónir les-
enda árið 1987.
Níu ritgerðir eru í tímaritinu að
þessu sinni. Fyrsta greinin í ritinu
er eftir Véstein Olason prófessor og
íjallar um Halldór Kiljan Laxness.
Þar tekur Vésteinn til athugunar
ritgerðir þær sem Halldór skrifaði
um fornmenningu Islendinga. Þar á
eftir kemur grein eftir ungan sagn-
fræðing, Hörð Vilberg Lárusson,
um Kanasjónvarpið sem svo var
nefnt og þær deilur sem það vakti
með þjóðinni, einkum á sjöunda
áratugnum. Því næst er einn af
föstu þáttunum í ritinu, Sjón og
saga. Þar rekur einn ritstjórnar-
manna, Sigurður Ragnarsson sagn-
fræðingur, sögu Miðbæjarskólans í
stórum dráttum og birtar eru
margar myndir sem varpa ljósi á
sögu þessa merkilega húss og sýna
um leið hvernig það tengist ýmsum
stórviðburðum þjóðarsögunnar á
þessari öld. Oskar Guðmundsson
blaðamaður segir frá Magnúsi Kri-
stjánssyni, smið og meðhjálpara í
Olafsvík, en hann var afkastamikill
rithöfundur og fræðimaður og hélt
dagbók í um 70 ár. Birtar eru tvær
frásagnir eftir Magnús, sú fyrri er
um móverk en hin síðari um flutn-
ing Fróðárkirkju til Ólafsvíkur.
Guðmundur Hálfdánarson, dósent
við Háskóla Islands, tekur fullveldi
Islands árið 1918 til umfjöllunar í
þættinum Afmæli og í öðrum föst-
um þætti, Sjónarhóli, ræðir Halldór
Ármann Sigurðsson prófessor um
gagn og nauðsyn ættfræðinnar.
Fjórði fasti þátturinn er svo Af
bókum en þar hugleiðir Kristján
Jóhann Jónsson þróun og stöðu ís-
lenskrar leiklistar út frá þremur
nýútkomnum ritverkum um leik-
hússögu og nefnir grein sína Saga í
sviðsljósi. Ritin sem hann leggur út
af eru Aldarsaga Leikfélags
Reykjavíkur eftir Eggert Þór
Bernharðsson og Þórunni Valdi-
marsdóttur, Leyndarmál frú Stef-
aníu eftir Jón Viðar Jónsson og ís-
lensk leiklist I og II eftir Svein
Einarsson.
Ein þýðing birtist að þessu sinni í
Nýrri sögu. Það er þýðing Finn-
boga Guðmundssonar, fyrrverandi
landsbókavarðar, á Gotasögu,
sænskri fornsögu sem lýsir upphafi
byggðar á eyjunni Gotlandi í
Eystrasalti. Með þýðingunni fylgir
formáli þýðanda.
------------------
Myndlist
á Netinu
Ellert Grétarsson, Egilsstöðum, hef-
ur opnað tölvu-myndlistarsýningu á
Netinu, á vef Eldsmiðsins á Horna-
fírði. Þai' er að finna 13 myndir sem
hann vann á síðasta ári og notaði til
þess myndvinnsluforritið Photoshop
og þrívíddarfomtið Brvce. Þetta er
önnur sýningin sem Ellert setur upp
á Netinu; sýningin er á slóðinni
http://www.eldhorn.is/~eIg
Listræn gjafavara
Listakot
Eyrnalokkagöt
Nú einnig
100 gerðir af eyrnalokkum
3 stœrðir
■£
árgreiðslustofan
apparstíg (sfmi 5513010)
-t -tc,„r„,a iQin
^ðaluö útsala
hefst í dag kl. 10.00
Allt að 70% afslóttur
SKÆÐI
Allar eldri tegundir af
POLLINI
seldar með JU/o afslætti
Kringlunni, 1. hæð,
simi 568 9345
Húsnæðismálanefnd Sjálfstæðisflokksins
Ný skipan húsnæóismála
Opinn fundur í Valhöll í dag, fimmtudag 7. janúar, kl. 17.
Fundarefni:
1. Ný skipan húsnæðismála - íbúðalánasjóður.
Frummælandi Gunnar S. Bjömssonr formaður
stjórnar íbúðalánasjóðs og starfandi fram-
kvæmdastjóri.
2. Stefna Sjálfstæðisflokksins í húsnæðismálum.
Kynning á drögum að ályktun 33.
landsfundar Sjálfstæðisflokksins.
Nefndin