Morgunblaðið - 20.01.1999, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 15
LANDIÐ
Fjarnám í búfræðum
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
FRÁ undirritun samningsins.
Grund - Bændaskólinn á Hvanneyri
og Hugvit hf. gengu frá þjónustu-
samningi er tengist miðlun upplýs-
inga um Internetið s.s. fjarkennslu
með vefhugbúnaði, heimasíðu og
fleira. Við undirritun samningsins á
Hvanneyri rakti skólastjórinn,
Magnús B. Jónsson, ástæður þess
að Bændaskólinn býður þessa þjón-
ustu og sagði m.a.:
„Bændaskólinn á Hvanneyi-i er nú
að hefja fjamám í búfræði. A undar-
fömum misserum hefur allmikið
verið leitað eftir þessari þjónustu og
virðist sem áhuginn sé vaxandi.
Bændaskólinn fékk styrk á árinu
1998 frá Framleiðnisjóði landbúnað-
arins til þess að byggja upp námsá-
fanga í búfræðinámi til fjarkennslu.
Nú er verið að ýta verkefninu á flot
og era 19 nemendur skráðir í fjar-
námið. Flestir þeima eru starfandi
bændur enda var það forgangshóp-
ur sem boðið var upp á þessa nýj-
ung. Þá eru í hópnum fyrram nem-
endur skólans sem ekki hafa að fullu
iokið búfræðinámi en óska nú að
ljúka því. Með búfræðinámi í fjar-
námi gefur Bændaskólinn starfandi
bændum sem ekki hafa áður lokið
búfræðiprófi tækifæri til þess að
auka við þekkingu sína og ljúka fag-
menntun á starfssviði sínu. Þetta er
því að okkar mati mikilsverður
áfangi að því marki að efla menntun
íslenskra bænda.
Fjarnámið verður byggt upp á
svipaðan hátt og hefðbundið bú-
fræðinám. Nemendur verða innrit-
aðir í skólann og fyn-a nám þeirra
metið. Þeir velja sjálfir umfang
námsins og hraða. Áætlað er að
bjóða sem flestar námsgreinar skól-
ans í fjarnáminu. Það verður þó
lögð aðaláhersla á sérgreinar bú-
fræðinnar en í samræmi við sam-
komulag þar um verður nemendum
vísað á fjarnám Verkmenntaskólans
á Akureyri varðandi almennar und-
irstöðugi'einar. Verklega hluta bú-
fræðinámsins er ætlunin að kenna á
námskeiðum sem haldin verða með
reglulegu millibili. Það er ásetning-
ur skólans að hafa skipulag námsins
þannig að sem flestir geti notfært
sér það.
Samskiptin verða í upphafí í meg-
indráttum með tölvupósti en í fram-
tíðinni munu þau í meira og meira
mæli fara fram á vefnum. I því
skyni hefur skólinn fengið fyi’irtæk-
ið Hugvit hf. til þess að byggja upp
fjarkennsluumhverfí á vefnum og
aðlaga núverandi upplýsingamiðlun
skólans að nýju og íúllkomnara vef-
umhverfi. Þetta er mikilvægt til
þess að geta boðið fram fjarnám
sem uppfyllir kröfur notendanna á
hverjum tíma. Þá verður fjarfund-
arbúnaður skólans nýttur til ákveð-
inna verka í tengslum við fjarnámið.
Vegna sérstöðu starfsmenntanáms
með mikið af verklegum æfíngum
er einnig gert ráð fyrir að nemend-
urnir komi að Hvanneyri nokkram
sinnum meðan á náminu stendur."
Fyi-stu fjarnámsnemendurnir
komu svo á kynningamámskeið á
Hvanneyri daganna 7.-8. janúar þar
sem verkefnið var kynnt, en nú þeg-
ar hafa 30 manns sýnt fjarnáminu
áhuga, þar af eru 19 þegar skráðir.
Vill virkja
öll kirkju-
kórasambönd
Hvammstanga - Á aðalfundi
Kirkjukórasambands íslands,
sem var haldinn á Akranesi,
var kosin ný stjórn fyrir sam-
bandið og er hún öll af Norð-
urlandi. Formaður er Sigur-
bjöng Kristínardóttir á Akur-
eyri, aðrir í stjórn eru Garðar
Eggeitsson á Kópaskeri, Karl
Sigurgeirsson á Hvamms-
tanga, Sigurdríf Jónatans-
dóttir á Sauðárkróki og Þóra
Ólafsdóttir Hjartar á Dalvík.
Heimili sambandsins er hjá
formanninum, Einholti 8Á,
Akureyri.
Á nýbyrjuðu ári og því
næsta verða mikil hátiðahöld
í' íslensku þjóðkirkjunni af til-
efni 1000 ára kristnitöku á ís-
landi. Ljóst er að þá verður
ætlast til mikillar og virkrar
þátttöku kirkjukóranna og
organista. Á fundi stjórnar
sambandsins hinn 8. janúar
1999 var ákveðið að leitast
við að ná sambandi við öll
kirkjukórasambönd sem til
staðar eni vítt um land, en
þau hafa sama starfssvæði og
prófastsdæmin. Sum sam-
böndin eru virk og hafa
nokkra starfsemi, en önnur
hafa ekki starfað árum sam-
an.
Stjórn Kirkjukórasam-
bands Islands setur sér það
markmið að virkja öll sam-
böndin. MikiII fjöldi
kirkjukóra er um allt land og
er mikilvægt að unnið verði
að samstarfí kóra sem starfa
á samliggjandi svæðum. Það
bæði eflir starf innan kór-
anna og gefur kórstarfinu
nýja vídd og tilgang.
Kirkjukórasambandið inun
hafa yfir nokkru fé að ráða
og mun leitast við að veita
þeim samböndum nokkurn
fjárstuðning, sem hyggjast
ráðast í samstarfsverkefni
kóra í tilefni hátíðarhaldanna
árin 1999 og 2000.
Haukur Guðlaugsson söng-
málastjóri sat stjórnarfund-
inn og sagði frá áformum
nokkurra sambanda um há-
tíðahöld og m.a. útgáfu á
söngverkum sem þar verða
flutt. Hann sagði það von
sína að sem víðtækust þátt-
taka yrði með kirkjukórum
við að taka þátt í hátíðahöld-
unum og efla þar með söng-
starf hverrar kirkju. Sagði
hann skrifstofu söngmála-
stjóra reiðubúna til að út-
vega söngefni og leggja mál-
inu lið.
Fundur um atvinnumál í Stykkishólmi
Fjárfestingafélag á Yest-
urlandi í undirbúningi
Morgunblaðið/KVM
ERLA Kristjánsdóttir á teiknistofu sinni.
Ný starfsemi
í Grundarfírði
Grundarfirði - Erla Kristjánsdóttir
landslagsarkitekt hefur opnað
Teiknistofuna Eik ehf. í Grundar-
firði. Erla er landslagsarkitekt frá
Landbúnaðarháskóla Noregs. Hún
flutti til Grundarfjarðar haustið
1996 ásamt eiginmanni sínum, Jóni
Gíslasyni húsasmið, og tveimur
börnum þeirra Fanneyju og Agli.
Upphaflega réð Erla sig sem kenn-
ara til Grunnskóla Eyrarsveitar í
Grundarfrði, en Jón réð sig til
Pálmars Einarssonar trésmíða-
meistara.
Samhliða kennslunni tók Erla að
sér ýmis hönnunar- og skipulags-
verkefni fyrir sveitarfélög og ein-
staklinga. Upp úr því hætti Erla að
kenna og sneri sér alveg að lands-
lagsarkitektúr. Erla hefur nú inn-
réttað teiknistofu heima hjá sér að
Hlíðarvegi 14, Grandarfrði. Við það
hefur hún notið góðrar aðstoðar eig-
inmanns síns. Það var svo fyrir
mánuði síðan að Erla stofnaði form-
lega Teiknistofuna Eik ehf.
Verkefni Teiknistofunnar Eikar
eru næg og segir Erla að það hafi
komið sér þægilega á óvart hversu
mikið sé leitað til hennar. En Erla
vinnur nú bæði fyrir sveitarfélög á
Vesturlandi og einstaklinga um allt
land.
„Vitund fólks og skynjun íyrir
umhverfi sínu fer vaxandi og því
leitar það ráða í auknum mæli hjá
landslagsarkitektum. Sveitarfélög
gera sér æ betur grein fyrir gildi
vel unnins skipulags í tengslum við
þróun byggðarlaga. T.d. verða
sveitarfélög að vera vel vakandi fyr-
ir því að nægar lóðir séu fyrir hendi.
Gott og vænt skipulag byggða getur
oft haft áhrif á það hvar fólk velur
sér búsetu,“ sagði Erla.
Hinar miklu breytingar og fram-
farir í tölvu- og fjarskiptaheiminum
gera það að verkum að Erla getur
tekið að sér verkefni fyrir fólk um
allan heim og átt samvinnu við fag-
aðila sem búa annars staðar. Enda
er Erla að hefja samstarf við Ragn-
hildi Sigurðardóttur umhverfís-
fræðing, frá sama skóla og Erla, en
Ragnhildur er nýflutt að Álftavatni
í Staðasveit, Snæfellsbæ. I gamni
og alvöru má þannig segja að Snæ-
fellsnesið sé í miðju heimsins ekki
síður en stórar borgir. Erla segir að
þessar tækniframfarir geri það að
verkum að fólk á þessu sviði og
sambærilegum geti í stórauknum
mæli búið hvar sem er á landinu og
veitt viðskiptavinum víða um heim
fyrsta flokks þjónustu.
Þess vegna ætti sveitarfélögum að
vera kappsmál að hafa skipulag sitt
og umhverf sem best úr garði gert.
Stykkishólmi - Atvinnumálanefnd
Stykkishólms boðaði foiTáðamenn
helstu fyrirtækja í bænum til fund-
ar um atvinnumál 11. janúar sl.
Efni fundarins var að ræða stöðu
og horfur í atvinnumálum bæjarins
á nýbyrjuðu ári.
Á fundinn mætti Ólafur Sveins-
son frá Atvinnuráðgjöf Vesturlands
og kynnti hugmyndir um stofnun
eignarhaldsfélags sem hefði það
markmið að fjárfesta í atvinnulífi á
Vesturlandi. Á aðalfundi Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi í haust
var skipuð nefnd til að vinna að
málinu. Lagt er til að hlutafé verði
100 milijónir og það kæmi frá
Byggðastofnun (40%), frá sveitarfé-
lögum (40%) og frá fagfjárfestum
(20%). Vilyrði liggur fyrir hjá
Byggðastofnun og nú er verið að
leita eftir svöram frá sveitarfélög-
um. Svar hefur komið frá Akranes-
kaupstað þar sem fram kemur að
kaupstaðurinn verði ekki með að
svo komnu máli.
Ólafur Sveinsson telur að eignar-
haldsfélagið muni hafa mikil áhrif á
atvinnuþróun á svæðinu. Félagið
muni stuðla að nýsköpun í atvinnu-
lífínu, sem er ein stærsta forsenda
fyrir að treysta og efla búsetu á
Vesturlandi. Þörf á nýsköpun á
Vesturlandi er mikil. Hlutfall starfa
í framvinnslugreinum er hátt. Þær
greiriar hafa átt á brattann að
sækja á undanförnum áram. Sam-
dráttur hefur orðið í landbúnaði og
fiskveiðum. Með tilkomu Hvalfjarð-
arganga hafa skapast ný sóknarfæri
sem er mikilvægt að nýta. Fram
kom hjá Ólafi að það mundi ráðast á
næstu dögum eða vikum hvort af
stofnun eignarhaldsfélagsins yrði.
Farið var yfir verkefnastöðu hjá
stærstu fyrirtækjum í bænum. Þar
kom fram að horfurnar hjá flestum
þeirra væra nokkuð góðar. Skelver-
tíð lýkur í næsta mánuði og þá mun
störfum fækka og eins eru ekki
góðar horfur með rækjuvinnslu á
þessu ári. Á fundinum komu fram
hugmyndir um nýsköpun í atvinnu-
málum sem leggja áherslu á að full-
vinna meira sjávaraflann og eins
skapast möguleikar þegar hitaveita
tekur til starfa á þessu ári.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
ATVINNUMALANEFND Stykkishdlmsbæjar ásamt forsvarsmönnum fyrirtækja í Stykkishólmi á fundi um
horfur í atvinnumálum bæjarins á nýbyrjuöu ári.