Morgunblaðið - 20.01.1999, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Námumenn ganga til Bukarest til að krefjast launahækkana og hafna viðræðum
Ruddust í gegn-
um varðhring
lögreglunnar
Bumbcsti Jiu. Rcuters.
UM 10.000 rúmenskir kolanámu-
menn gengu í gær í átt að Búkarest
eftir að hafa ruðst framhjá hundruð-
um lögreglumanna, sem reyndu að
hindra göngu þeirra. Námumennim-
ir hafa verið í verkfalli í hálfan mán-
uð til að krefjast launahækkunar og
höfnuðu tilboði stjórnarinnar um
samningaviðræður.
Námumennirnir eru frá bænum
Bumbesti Jiu, um 270 km norðvestur
af Búkarest, og hófu gönguna á
mánudag. Þeir grýttu lögreglumenn,
sem reyndu að stöðva gönguna við
mynni Jiu-dals. Lögreglumennimir
svöraðu með því að beita táragasi en
það dugði ekki og verkfallsmennirnir
ruddust í gegnum varðhring lögregl-
unnar. 19 námumenn vora fluttir á
sjúkrahús, flestir vegna táragassins,
og einn lögreglumannanna særðist
alvarlega og nokkrir lítilsháttar.
Emil Constantinescu kallaði
helstu ráðhema stjómarinnar og yf-
irmenn hersins og leyniþjónustunnar
á sinn fund til að ræða málið. Victor
Babiuc varnarmálaráðherra var
sagður hafa boðist til að beita hern-
um til að stöðva gönguna.
Verkfallið úrskurðað ólöglegt
Námumennirnir hunsuðu tilboð
Radus Vasiles forsætisráðherra um
viðræður við leiðtoga þeirra í
Búkarest ef þeir hæfu störf að nýju.
Héraðsdómstóll úrskurðaði í vik-
unni sem leið að verkfallið væri ólög-
legt en námumennirnir sniðgengu
úrskurðinn. Þeir krefjast þess að
laun þeirra verði hækkuð um 35% og
að tvær kolanámur, sem vora lokað-
ar í fyrra, verði opnaðar á ný.
Fulltrúi stjórnarinnar bauðst til að
ræða við námumennina á íþróttaleik-
vangi í Bumbesti Jiu en þeir höfnuðu
því.
Rúmensk yfírvöld hafa bannað
verkfallsmönnunum að efna til mót-
mæla í Búkarest. Námumennirnii-
gengu berserksgang í höfuðborginni
árið 1990 þegar þeir mótmæltu um-
bótum stjómvalda og óeirðimar
urðu til þess að fyrstu stjóminni eft-
ir hran kommúnismans var vikið frá.
# Reuters
RUMENSKIR kolanámumenn kljást við hundruð lögreglumanna,
sem reyndu að stöðva göngu þeirra til Búkarest í gær.
Jeltsín
sagður á
batavegi
Jordaniukonungur snýr heim eftir sex mánaða fjarveru
Sagður vilja tilnefna
son sinn ríkisarfa
Reuters
HUSSEIN Jórdaníukonungur veifar til Jórdana sem söfnuðust sam-
an á götum Amman til að fagna honum eftir heimkomuna frá Banda-
ríkjunum þar sem hann fór í lyfjameðferð vegna krabbameins.
Moskvu. Reutcrs.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
var sagður á batavegi í gær, tveim-
ur dögum eftir að hann var færður
á sjúkrahús í Moskvu með blæð-
andi magasár. Akveðið var þó form-
lega að ferð forsetans til Frakk-
lands, sem ráðgerð var í næstu
viku, yrði frestað þar til um miðjan
mars. Jevgení Prímakov forsætis-
ráðherra ákvað að fara til ná-
grannaríkisins Kasakstans þrátt
fyrir veikindi forsetans.
Læknar Jeltsíns hafa sagt að lík-
lega verði hann á sjúkrahúsinu í að
minnsta kosti tvær til þrjár vikur.
Ráðgert er að hann gangist undir
magasjárskoðun í dag til að hægt
verði að skera úr um hvort lyfja-
meðferð dugi eða hvort skera þurfi
hann upp.
Talsmaður Jeltsíns sagði að for-
setanum liði miklu betur og hann
væri farinn að lesa skjöl og dag-
blöð. Hann væri með eðlilegan hita
og blóðþrýsting og blæðingin hefði
verið stöðvuð.
Oleg Sysújev, aðstoðarskrifstofu-
stjóri Kremlar, sagði að Jeltsín
héldi enn um stjórnartaumana og
væri fær um að gegna helstu
skyldustörfum sínum.
Fjárlagafrumvarp samþykkt
Dúman, neðri deild rússneska
þingsins, samþykkti framvarp
stjórnarinnar til fjárlaga þessa árs
við aðra umræðu af fjórum í gær.
Skömmu áður höfðu kommúnistar
lagt fram breytingartillögu um að
dregið yrði úr endurgreiðslum er-
lendra lána til að hægt yrði að auka
útgjöldin til velferðarmála. Stjómin
hafnaði tillögunni og frumvarpið
var samþykkt óbreytt með 297 at-
kvæðum gegn aðeins 54.
Nokkrir þingmenn höfðu krafíst
þess að Prímakov tæki þátt í um-
ræðunni um frumvarpið, en forsæt-
isráðherrann ákvað hins vegar að
fara til Kasakstans í boði Núrsúlt-
ans Nazarbajevs, sem sver emb-
ættiseið forseta í dag, en hann var
endurkjörinn nýlega.
Amman. Reuters.
HUNDRUÐ þúsunda Jórdaníu-
manna flykktust út á götur Amman
í gær til að bjóða Hussein Jórdaníu-
konung velkominn heim, en sex
mánuðir eru nú síðan hann hélt til
Bandaríkjanna í því skyni að leita
sér lækninga vegna krabbameins í
eitlum.
Hussein, sem er 63 ára, gekk í
gegnum erfíða lyfjameðferð á Ma-
yo-stofnuninni í Bandaríkjunum en
kom til Jórdaníu í gær frá London
þar sem hann hefur dvalist síðustu
vikumar til að ná aftur íyrri styrk
eftir að lyfjameðferðinni lauk. Segja
talsmenn konungsins að hann hafí
náð fullum bata.
Hussein ávarpaði þjóð sína frá
London síðastliðinn laugardag og
sagðist þá vart geta beðið eftir því
að komast heim til Jórdaníu. Kvaðst
Hussein nú undirbúa mikilvægar
breytingar sem ætlað væri að draga
úr þeirri óvissu sem Jórdaníumönn-
um finnst einkenna framtíð ríkisins.
Ekki kom fram í sjónvarpsávarpi
Husseins hverjar þessar breytingar
væru, en líklegt þykir að þær teng-
ist vangaveltum manna um hver
skuli erfa konungdæmið að Hussein
gengnum.
Akveðið var fyrir þrjátíu og fjór-
um áram að Hassan prins, yngri
bróðir Husseins, myndi verða kon-
ungur eftir Hussein, en að undan-
förnu hefur þótt æ líklegra að
Hussein hygðist endurskoða þessa
ákvörðun og tilnefna í staðinn elsta
son sinn, hinn átján ára gamla
Hamza prins. Þótti sem þessum
getgátum væri gefínn byr undir
báða vængi þegar konungshöllin gaf
frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
ekki var áréttað, eins og venjulega
er gert, að Hassan væri ríldsarfi.
Sagði einungis að Hussein myndi
taka þá ákvörðun sem best tryggði
þjóðarhag.
Margir erlendir stjórnarerind-
rekar era sagðir hafa áhyggjur,
verði gengið framhjá Hassan, sem
er fímmtíu og eins árs. Hann hefur
nefnilega haft yfírumsjón með þró-
un efnahagsmála í landinu undan-
farna áratugi og þykir tákn um þá
traustu stjórnarhætti í Jórdaníu
sem fært hafa landinu stöðugleika
þrátt fyrir að Mið-Austurlönd séu
að öðru leyti mikið óróasvæði, eins
og kunnugt er.
Á hinn bóginn segja frétta-
skýrendur að Hussein hafi á sjúkra-
beði sínu mjög leitt hugann að
þeirri arfleið sem hann mun skilja
eftir, en fjörutíu og sjö ár era nú lið-
in síðan hann varð konungur í
Jórdaníu. Mun Hussein nú gjarnan
vilja afhenda einhverjum sona sinna
konungdæmið og þykir líklegast að
Hamza prins verði fyrir valinu, eins
og áður sagði, en þeir feðgar eru
sagðir afar nánir. Dvaldi Hamza t.d.
við sjúkrabeð fóður síns í Banda-
ríkjunum, einn bræðra sinna.
Farsæll konungur
Hussein var sjálfur táningur þeg-
ar hann varð konungur í Jórdaníu
árið 1952. Hann þykir hafa verið af-
ar farsæll konungur og er jafnframt
talinn eiga mikinn þátt í þeim ár-
angri sem þó hefur náðst í deilum
Israela við nágrannaþjóðir sínar á
undanfömum áratugum. Jórdanía
átti um áratuga skeið í stríði við fsr-
ael og tapaði Vesturbakkanum í
þeima hendur í stríðinu árið 1967.
Þegar löndin loksins sömdu frið árið
1994 sagði Hussein að langþráðum
áfanga hefði verið náð.
Hussein hefur reynt að stuðla að
úrlausn deilumála ísraela og Palest-
ínumanna og stóð t.d. fársjúkur upp
af sjúkrabeði sínu í október á síð-
asta ári og heimsótti Wye Mills-
plantekruna, þar sem fulltrúar
deilenda reyndu að komast að sam-
komulagi. Þótti Hussein afar veik-
burða á að líta og veltu margir því
fyrir sér þá hvort Jórdaníukonung-
ur stæði við dauðans dyr. Þótt því
sé nú haldið fram að Hussein hafí
náð fullum bata hafa veikindi hans
engu að síður vakið menn til um-
hugsunar um hvað taki við þegar
hann fellur frá.
Höfn
Freetown
á valdi
ECOMOG
HERSVEITIR Efnahags-
bandalags Vestur-Afríkuríkja,
ECOMOG, sem hafa barist við
uppreisnarmenn í Sierra Leo-
ne, sögðust í gær hafa náð
höfninni í Freetown, höfuðborg
landsins, á sitt vald. Það ætti
að auðvelda matvælaflutninga
til borgarinnar, sem hefur ver-
ið einangruð vegna átakanna
við uppreisnarmennina. Starfs-
menn hjálparstofnana segja að
matvælabirgðimar í Freetown
séu á þrotum og óttast hung-
ursneyð meðal íbúanna, blossi
átökin upp að nýju.
Vikulangt vopnahlé, sem
uppreisnarmennirnir lýstu yf-
ir, hefur verið í gildi í tvo daga.
Fréttastofa kaþólsku kirkjunn-
ar í Róm skýrði frá því í fyrra-
kvöld að uppreisnarmennimir
hefðu rænt ellefu nunnum og
prestum frá ftalíu, Indlandi,
Spáni og Kenýa.
Aitken játar á
sig meinsæri
JONATHAN
Aitken, sem
sagði af sér
sem aðstoð-
arráðherra í
stjórn breska
íhaldsflokks-
ins fyrir
tveimur ár-
um, játaði í
gær að hafa
gerst sekur
um meinsæri og tilraun til að
hindra framgang réttvísinnar í
hneykslismáli sem varð honum
að falli. Aitken hafði höfðað
mál gegn dagblaðinu Guardian
og Granada-sjónvarpinu vegna
ásakana um að kaupsýslumað-
ur frá Saudi-Ai-abíu hefði
greitt hótelreikninga hans í
París. Hann játaði að hafa bor-
ið ljúgvitni vegna málsins og
gert er ráð fyrir að dómur
verði kveðinn upp yfir honum í
júní.
Schröder
hafnar bótum
til Breta
BRESKA stjómin hefur mót-
mælt ummælum Gerhards
Schröders, kanslara Þýska-
lands, þess efnis að Þjóðverjar
þurfí ekki að greiða Bretum
bætur vegna þeirrar ákvörðun-
ar þýsku stjórnarinnar að rjúfa
samninga um endurvinnslu
kjarnorkuúrgangs erlendis.
Samningar Þjóðverja um end-
urvinnslu í kjarnorkustöðinni í
Sellafield era metnir á 1,2
milljarða punda, andvirði 138
milljarða króna.
N-kóresk hjón
leita hælis
STJÓRNARERINDREKI frá
Norður-Kóreu og eiginkona
hans, sem hurfu í Berlín á dög-
unum, hafa óskað eftir hæli i
Bandaríkjunum sem pólitískir
flóttamenn, að sögn dagblaðs í
Suður-Kóreu í gær. Þýska ut-
anríkisráðuneytið kvaðst ekki
geta staðfest að hjónin hefðu
flúið til Bandaríkjanna.
Aitkcn