Morgunblaðið - 20.01.1999, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 19
ERLENT
, , Reuters
FLOTTAFOLK frá þorpinu Racak í Kosovo sem flúði þaðan vegna árása serbneskra öryggissveita á sunnu
dag eftir að þær myrtu 45 íbúa þorpsins.
Fjöldamorð
og fyrirsláttur
NATO mun ekki verða
til að tryggja sjálfstæði
Kosovo vegna þess,
að þetta mesta her-
veldi í heimi óttast
mannfall, segir breski
blaðamaðurinn og
sagnfræðingurinn
Gwynne Dyer. Þess
vegna muni þjáningar
íbúanna halda áfram
þar til Serbum sjálfum
finnist nóg komið.
„HIÐ alþjóðlega samfélag er ekki
tilbúið til að sætta sig við grimmi-
legar ofsóknir og morð á óbreyttum
borgurum,“ sagði Joschka Fischer,
utanríkisráðherra Þýskalands, sl.
sunnudag _ og enginn viðstaddra
fréttamanna fór að hlæja. Blaða-
menn geta verið mjög kurteisir.
„Serbnesku lögreglumennimir
sögðu okkur að hlaupa,“ sagði einn
þeirra fáu, sem lifðu af fjöldamorðin
í þoi-pinu Racak í Kosovo en Fischer
var einmitt að tala um atburðina
þar. „Strax og við tókum á rás, fóru
þeir að skjóta á okkur.“ Þeir voru þó
miklu fleiri, sem fengu ekki tæki-
færi til að reyna að forða sér.
Er William Walker, bandarískur
yfirmaður alþjóðlegu eftirlitssveit-
anna í Kosovo, sá lík Albananna 45 í
Racak sl. laugardag var hann yfir-
kominn: „Eg á ekki orð til að lýsa
þessu viðurstyggilega voðaverki. Að
sjá lík þessara manna og andlitin,
sem hafa augljóslega verið skotin
sundur af stuttu færi.“
Walker sagði hreint út, að Serbar
hefðu framið þennan glæp og
Slobodan Milosevic, forseti Jú-
góslavíu og einræðisherra í Serbíu,
skipaði honum þá að hverfa úr landi
innan tveggja sólarhringa. Skipaði
hann líka svo fyrir, að landamærun-
um skyldi lokað til að Louise Arbo-
ur, helsti saksóknari stríðsglæpa-
dómstólsins í Haag, kæmist ekki til
Kosovo til að kynna sér fjöldamorð-
in. Júgóslavneski herinn skaut aftur
á yfirgefið þorpið og flutti 40 lík-
anna til Pristina, höfuðstaðar
Kosovo, hugsanlega með það fyrir
augum að eyðileggja sönnunargögn.
Og NATO, sem hótaði loftárásum í
september vegna fjöldamorða
Milosevics þá, reyndi að vera
strangt á svip og hneykslað.
Hvað sem öllum yfirlýsingum líð-
ur, þá er ekki líklegt, að NATO
sendi flugvélar sínar gegn herjum
Serba í Kosovo, hvað þá í Belgrad.
Það mun heldur ekki senda sína
eigin hermenn til Kosovo til að
stöðva manndrápin.
Hvað er sérstakt við Kosovo?
Hvers vegna ekki? NATO beitti
að lokum flugher sínum gegn Ser-
bum í Bosníu og batt um leið enda á
þjóðarmorð, sem staðið hafði í þrjú
ár. Hvers vegna vill bandalagið ekki
gera það sama fyrir íbúa Kosovo?
NATÓ hefur lagt blessun sína yfir
sjálfstæði Slóveníu, Króatíu, Bosn-
íu, Makedóníu, allra fyrrverandi
lýðvelda í sambandsríkinu Jú-
góslavíu nema Serbíu og Svart-
fjallalands. Það studdi Króata í
raun og beitti hernum í þágu Bosní-
ustjórnar gegn Serbum. Því er samt
haldið fram, að allt öðra máli gegni
um Kosovo.
Næstum 90% af tveimur milljón-
um íbúa Kosovo era múslimar af al-
bönsku þjóðerni og innan við 10%
eru Serbar. Kosovo-Albanar réðu
sínum málum sjálfir þegar Jú-
góslavía var sambandsríki undir
stjórn hins kommúníska einræðis-
herra Josips Titos og þá voru Ser-
bar aðeins stærsta þjóðarbrotið í
ríkinu en ekki herrar þess. Kosovo
var hins vegar aldrei formlega eitt
af „lýðveldunum", heldur sjálf-
stjórnarhérað í Serbíu. Var það
gert af tilliti til Serba, sem líta á
Kosovo sem helgan stað í sögu þjóð-
arinnar. Að því vai' heldur ekki mik-
ið fundið meðan réttindi albanska
meirihlutans voru virt.
Friðsamleg mótmæli
ná ekki eyrum umheimsins
Eftirmenn Titos virtu þennan
samning allt þar til kom að Milos-
evic, sem byrjaði valdabröltið 1989
með því að afnema sjálfstjórnar-
réttindi Kosovo og setja öll ráð þess
í hendur serbneska minnihlutanum.
Ibúarnir, meirihlutinn, voru því
æfareiðir en í níu ár beittu þeir að-
eins friðsamlegum mótmælaaðgerð-
um gegn serbneska ofbeldinu.
Það var kannski vegna þess, að
þeir beittu engu ofbeldi, að ekki var
eftir þeim tekið enda voru stórveld-
in upptekin af því að slökkva þá
elda, sem Milosevic hafði kveikt í
Króatíu, Bosníu og víðar. Að því
hlaut hins vegar að koma, að
Kosovo-Albanar risu upp og Milos-
evic svaraði með kúgun og
fjöldamorðum. Það varð aðeins til
að reka allan almenning í fangið á
uppreisnarmönnum.
Serbar drápu a.m.k. 2.000
óbreytta borgara og gerðu fjórðung
landsmanna heimilislausan í ágúst
og september áður en NATO
neyddi þá til að fallast á vopnahlé.
Nú hafa manndrápin hafist aftur
enda veturinn óvenjumildur og því
hentugur til hernaðaraðgerða.
Hvers vegna gi'ípur NATO ekki í
taumana?
Opinbert svar við þessari spurn-
ingu er, að NATO geti ekki fallist á
sjálfstæði Kosovo hvernig sem Ser-
bar hagi sér vegna þess, að héraðið
sé lögum samkvæmt hluti af Serbíu.
Þetta er þó bara fyrirsláttur. Innan
NATO óttast i raun enginn, að sjálf-
stæði Kosovo verði notað sem for-
dæmi af Böskum á Spáni eða að-
skilnaðarsinnum í Quebec í Kanada.
Ókyrrð eða áfram-
haldandi fjöldamorð
Svarið, sem gefið er undir fjögur
augu, er allt annað. Það er, að sjálf-
stætt Kosovo myndi sameinast Al-
baníu og mynda stórt, múslimskt
ríki, sem aftur gæti kynt undir ólgu
meðal albanskra þjóðarbrota í Ma-
kedóníu og Grikklandi.
Þetta er út í hött. Engin ástæða
er til að ætla, að vel menntaðir og
tiltölulega velmegandi Albanar í
Kosovo fari að binda trúss sitt við
upplausnina og örbirgðina í Albaníu
og hvað með það þótt þeir gerðu
það? Albanar era fjórðungur íbú-
anna í Makedóníu og þar gæti orðið
einhver smávegis ókyi’rð en engin í
Grikklandi þar sem þeir eru 2%
landsmanna.
Hér er annars vegar um að ræða
hættu á dálítilli ókyrrð, hins vegar á
áframhaldandi fjöldamoi'ðum.
Hvers vegna lætur NATO þá ekki
hendur standa fram úr ermum í
stað þess að vera með innantómar
hótanir, sem gera ekkert annað en
grafa undan trúverðugleika þess?
Svarið er þetta: NATO óttast
mannfall í eigin röðum. Það er allt í
lagi að beita flugvélum en til að
tryggja sjálfstæði Kosovo þarf að
beita landher. Það þýðir um leið, að
einhvei'jir muni falla í valinn.
Mesta hernaðarvél í heimi er al-
gjört pappírstígrisdýi' vegna þess,
að í'íkisstjórnir aðildarríkjanna hafa
ekki kjark til að horfast í augu við
afleiðingar þess innanlands, að ein-
hverjir láti lífið. Þess vegna verða
þjáningar Kosovo-Albana að halda
áfram eða þar til tugir þúsunda
manna hafa látið lífið, þorpin
brennd til ösku og Serbum sjálfum
finnst nóg komið.
í kvöld er dregið
I Vikingalottóinu um
tugi milljóna króna!
Fáöu þér miða fyrir kl. 17 í dag.
C ATH! AðeinsgHkr. röðin )