Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 22

Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/Kristinn KOLBEINN Bjarnason, Áshildur Haraldsdóttir, Guðrún Birgisdóttir og Martial Nardeau á æfingu í Salnum. Atli Heimir Sveinsson fylgist með. Flaututónlist eftir Atla Heimi Sveinsson á Myrkum músíkdögum FIMM flautuverk eftir Atla Heimi Sveinsson verða flutt á tónleikum Myrkra músíkdaga í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20.30. í einu verkanna, Tónamínútum, er flautuleikurunum fjórum dreift um lýmið, þar sem þeir kallast á; tveir eru sinn til hvorrar hliðar á sviðinu og hinir tveir eru uppi á svölunum, einnig hvor í sínu homi. Að sögn Atla Heimis gefur Salurinn mikla og góða víðómun, betri en nokkru sinni hefur heyrst hér á landi innanhúss. Flautuleikararnir fjórh- ei-u þau Guðrún Birgisdóttir, Martial Nar- deau, Kolbeinn Bjamason og Áshild- ur Haraldsdóttir og sjálfur leikur Atli Heimir einnig á píanó í einu verkanna, Xanties. Raunar segir hann að til hafi staðið að halda tón- leikana á síðastliðnu ári en vegna anna flautuleikaranna hafi ekki reynst unnt að ná þeim öllum saman fyrr en nú. „Þetta fólk hefur allt svo mikið að gera - sem er jú í raun og veru mjög gott. Þetta er allt afburða- fólk, hvert á sínu sviði,“ segir Atli. Styrkur frá menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar, sem hann hlaut á síðasta ári, gerir honum kleift að háldá þessa tónleika. „Svo á ég smá afgang og ætla að nota hann í aðra tónleika bráðlega. Þar er ég að hugsa um að hafa blásarakvintett sem heitir Fimmhjóladrif.“ Fyrsta verkið á tónleikunum í kvöld er Grand duo concertante I: Handanheimar, fyrir tvær flautur og tónband. Verkið kveðst Atli hafa samið fyrir flautuhjónin Guðrúnu og Martial árið 1991. ,,í okkar hópi er verkið uppnefnt Ástir samlyndra hjóna,“ segir hann. Þá er það verkið Xanties fyrir flautu og píanó frá 1975, þar sem Áshildur og Ath spila og tala íjóð byggt á sagnabálki Prousts, I leit að glötuðum tíma. Verkið var á sínum tíma samið fyrir Manuelu Wiesler og Snorra Sigfús Birgisson til flutnings í einleikarasamkeppni í Helsinki - sem þau unnu. Lethe er verk fyrir bassaflautu, skiúfað árið 1986, og nú flutt af Kolbeini Bjarnasyni. „Hann hefur flutt Lethe oftar en nokkur annar, enda er hin fagra, seiðmagn- aða bassaflauta ekki algengt hljóð- Fullkominn víðómur í Salnum færi. Mér finnst snilld Kolbeins njóta sín vel í Lethe,“ segir Atli, en sam- kvæmt goðafræði Fom-Grikkja er Lethe nafn á fljóti í helheimum. Þeg- ar drukkið er af vatni þess gleymast allar jarðneskar sorgii-. Tónsvið flautunnar þanið til hins ýtrasta Eftir hlé er komið að viðómaverk- inu Tónamínútum, þar sem flautuleik- aramir fjórir standa hver í sínu homi og kallast á. „Þú upplifir fullkominn víðóm, líkt og maður heyrir á Breiða- firði þegai' fuglai'nir syngja í mismun- andi eyjum. Þetta er ný hlið á þessum sal, sem kemur svona prýðilega út. Þetta vorum við bara að uppgötva núna við æfingamar," segir tónskáld- ið. Hvert lag er ein mínúta að lengd og er hún gefin tU kynna með hvössu málmgjallsslagi. Lögin má leika í hvaða röð sem er, öll eða nokkur þeirra. Atli segir þau augnabliks- myndir hughrifa, sem reynt er að tjá í tónum. Dæmi um nöfn þeirra eru Karlatónar, Bamatónar, Kvennatón- ar, Morguntónar og Gamlir tónai'. Síðasta verkið á tónleikunum er Kvartett númer 1 og er hér á ferð frumflutningur á íslandi. Verkið var pantað af Kuhlaukvartettinum í Kaupmannahöfn sem frumflutti það á tónlistarhátíð á Borgundarhólmi 1991. „Þetta er fjórþætt sónata með ein- og tvfleikskadensum. Milliþættir era hægir, jaðarþættir hraðir. Hver flautari leikur á ýmsar flautur. Fyrir utan fjórar venjulegar flautur era notaðar fjórar pikkólóflautur, tvær Þeir sem eru skilaskyldir vegna skatts á fjármagnstekjur á árinu 1998 eiga að hafa fengið sendan gíróseðil til að standa skil á afdreginni staðgreiðslu. Hér er átt við banka, sparisjóði, lögmenn, löggilta endurskoðendur, verð- bréfamiðlara, verðbréfafyrirtæki, tryggingafélög og aðra sem hafa atvinnu af fjárvörslu, milligöngu eða innheimtu í verðbréfaviðskiptum eða annast innheimtu fyrir aðra. Hlutafélögum ber að standa skil á afdreginni staðgreiðslu af arði. Gjalddatfi var 15. janúar 1999 0£i cindagi er 30. janúar 1999 Gíróseðilinn má greiða í bönkum, sparisjóðum, pósthúsum og hjá inn- heimtumanni ríkissjóðs. Þeir sem ekki hafa fengið gíróseðil geta fyllt út greiðsluseðil hjá innheimtumanni ríkissjóðs og skilað skattinum þar. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI altflautur og tvær bassaflautur. Tón- svið flautunnar er þanið til hins ítrasta,“ segir Atli um verkið í efnis- skrá og bætir við að það sé samið fyi'h' fjóra virtúósa og jafnræði sé með þeim öllum. Þess má geta að Atli Heimir er upphafsmaður tónlistarhátíðarinnar Myrkra músíkdaga, sem fyrst var haldin árið 1980. „Hugmyndin var sú að nota þessa eyðu sem verður í menningarlífinu eftir jólin, þá er myrkasti tíminn hér á Islandi. Við Þorkell Sigui'bjömsson unnum að þessu, hann stóð með mér eins og klettur. I okkar vinnuplöggum kom þetta nafn fyrir á ensku svona af og til, Dark Music Days, við vissum ekk- ert hvað við ættum að kalla þetta, svo fóram við bara að tala um Myrka músíkdaga. Nafnið vakti mikla at> hygli og við fengum fyrirspumir víða að utan úr heimi, um hvað væri eigin- lega að gerast héma uppi á íslandi," segir hann og bætir við að það hafi reynst mjög auðvelt að fá flytjendur til að taka þátt í þessu á þessum tíma. „Það virtist vera þörf fyrir einhvers konar tónleikahald í janúai'. Tilgang- urinn var að opna smiðju íslenskra tónskálda, spila þau verk sem hefðu komið fram ný, endmflytja íslensk verk sem okkm' þótti merkileg og svo að hafa samband til útlanda, en hlut- fallið var í upphafi 70% innlend verk og 30% erlend," segir hann. Atli Heimh' hefm' möi'g jám í eld- inum um þessar mundh'. Hann er að ljúka við að semja tónlist við Sjálf- stætt fólk, sem verið er að setja á fjalimar í Þjóðleikhúsinu, og næsta verkefni sem hann er að ýta úr vör er ópera um ki’istnitökuna á Islandi. „Þorsteinn Gylfason er núna að skrifa texta, eða libretto, eins og það heitir í óperam, litla bókin. Þetta er stór ópera sem verður sýnd á vegum Islensku óperannai' á ái'inu 2000,“ segir hann. Þá era einnig framundan tvö stórverk hjá Sinfóníuhljómsveit Islands. „Það er svíta úr Vikivaka, sjónvarpsóperu sem ég gerði á sín- um tíma, og svo er ný sinfónía sem verður frumflutt í lok apríl, Sinfónía númer 1, sem Bernharður Wilkinson mun stjórna,“ segir Atli. Sinfónían á sér nokkuð langan aðdraganda. „Uppkastið varð til í París fyrir átta eða níu árum, þegar ég dvaldi þar í eitt ár, en svo dagaði það einhvern veginn uppi,“ segir hann. Nú hefur hann tekið bunkann fram aftur og er að leggja síðustu hönd á verkið. Og hann er búinn að gera langtímaáætl- un: „Á næstu tíu áram ætla ég að gera tíu sinfóníur," segir tónskáldið. DAUÐINN Á SLÆPINGI KVIKMYJVDIR II á s k ó I ab í ó, Laugarásbíó MÁ ÉG KYNNA JOE BLACK („MEET JOE BLACK") irk Leikstjóri: Martin Brest. Handrits- höfundar: Ron Osborn, Jeff Keno, Kevin Wade og Bo Goldman. Kvik- myndatökustjóri: Emmanuel Lu- bezki. Tónskáld: Thomas Newm- an. Aðalleikendur: Brad Pitt, Ant- hony Hopkins, Claire Forlani, John Weber, Marcia Gay Harden, Jeffrey Tambor. 178 mín. Banda- rísk. Universal Pictures 1998. FJÓRIR handritshöfundar boða ekki gott. Síst ef sá fjórði (Bo Goldman), er þekktur „hand- ritalæknir", sem oftast er kallað- ur á staðinn ef allt er í óefni. En jafnvel sjálfur Goldman (Gnuks- hreiðríð, Melvin og Howard), get- ur litlu bjargað að þessu sinni. Hann hefði átt að skera og skera niður. Stærsti gallinn við Má ég kynna Joe Black, er hrikaleg, al- gjörlega ónauðsynleg, þriggja klukkutíma lengd. Efnið er einnig vandmeðfarið. Dauðinn í líki snyrtipinnans Joe Black (Brad Pitt), kemur til mann- heima til að fylgjast með fjölmiðla- kónginum Bill Parrish (Anthony Hopkins), síðustu dagana fyrir brottfór hans héðan, og lóðsa hann síðan yfir á sígræna velli himna- ríkis. Flest fer eftir áætlunum hr. Dauða, uns upp kemur óvænt vandamál: Maðurinn með ljáinn verður ástfanginn. Sú lukkulega er Susan (Claire Forlani), yngri dóttir og augasteinn Parrish. Nóg um efnið. Það er glóra- laust og hefði sjálfsagt getað not- ið sín betur ef þessi rómantíska gamanmynd hefði verið klippt niður í normal lengd. Leikstjór- inn, Martin Brest, hefur gert frá- bærar spennu- og gamanmyndir eins og Beverly Hills Cop, Midnight Run og A Scent of a Woman. Að þessu sinni er hann í mestu ógöngum, leikstýrir á hálf- um hraða - sem kemur nokkuð vel út fyrstu 90 mínúturnar. Þeg- ar á líður er maður hins vegar farinn að óska þess að Joe Black kippi öllu heila klabbinu í snatri yfir í Edens grænan rann. Það sem bjargar því sem bjarg- að verður íMá ég kynna ... er hörkufínn leikur hjá Hopkins og Pitt. Forlani er aðlaðandi en verður þreytandi vegna ógnar- lengdarinnai', og aukaleikararnir standa sig með prýði. Eins er þessi klisjusúpa einkar fagmann- lega unnin á öllum sviðum (enda kostaði hún hartnær 100 milljónir dala), og á allnokkur fyndin og til- finningarík augnablik. Það er bara alltof langt á milli þein-a. Sæbjörn Valdimarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.