Morgunblaðið - 20.01.1999, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999 27
MENNTUN
Kennsla á
forrit á
geisladiskum
Kennsla á geisladiskum leysir kennslu á
myndböndum af hólmi. Notendur Word 97
og Excel 97 geta numið fræðslu Snorra
Karlssonar um forritin á geisladiskum.
ISLENSK tölvukennsla á
geisladiskum er nýjung sem
Myndbandaskólinn hefur sett
á markað. Um er að ræða
kennslu í Word 97-ritvinnsluforrit-
inu annars vegar og kennslu í Excel
97-tölvureikniforriti hins vegar. Áð-
ur hafði skólinn gefið út námskeið á
myndböndum.
Höfundur kennslunnar er Snorri
Karlsson en hann er einnig eigandi
skólans ásamt Karli Sigurhjartar-
syni. „Námskeiðin eru byggð upp á
mjög einfaldan hátt og það er auð-
velt að fara á milli kafla og velja út
það sem hver og einn hefur mesta
þörf fyrir,“ segir Snorri, „notandinn
getur því hagað hraða og áherslum
námsins að eigin þörí'um."
Hann segir að mikil áhersla hafi
verið lögð á að hafa námskeiðin að-
gengileg til að læra og þægileg til
að rifja upp. Forsendan var að not-
endur væru einnig að vinna að
raunverulegum verkefnum og
myndu læra á forritin á sama tíma.
Námskeiðin eru hvort um sig á
tveimur diskum og er hvor diskur
um það bil 90 mínútur að lengd.
Fyrri diskar er ætlaður byrjendum
og seinni lengi-a komnum.
Snoni segist selja mest í íyrirtæki
en einstaklingar hafi einnig sýnt mik-
inn áhuga. „Geisladiskar virðast
henta þeim betui' til kennslu en
myndbönd,“ segir Snorri. Hann segir
að fyrirtíeki með innanhússnet geti
sett námskeiðin þangað og auðveldað
með því starfsfólki aðgang að þeim.
Snorri telur þetta vera viðamesta
íslenska kennsluefnið á diskum sem
enn hafi verið gert. Hann og starfs-
menn Myndbandaskólans eru nú að
vinna að öðru kennsluefni á diskum.
Það er kennsla fyrir almenning um
Netið og verður það stærsta verk-
efnið sem skólinn hefur hingað til
ráðist í. „Það verður í stóru upplagi
og fer beint til notenda,“ segir
Snorri og að það komi út í mars
næstkomandi og verði dreift á al-
mennan markað. Jón Helgi Óskars-
son vinnur nú að kennsluhandriti
um Netið.
Video
Trainmg
Series
Exccl
Header and Footer
9 Dálkar á sídu
EXCtL
ile Edit View Insert Format lools Table Window Help
í
Bladsídunúmer .
* Times New Roman » 10 - B / U
Ingert AutoText ■> @ (9 («?
U © V % |'ÍÉ!É!’:<P’ fl056
Header
"
KHfri a’Uilitatónmin II- f.rri'.
Morgunblaðið/Ásdís
KENNSLA á geisladiskum er
nú viðamesta starfsemi Mynd-
bandaskólans. Snorri Karlsson
og Jón Helgi Óskarsson.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
UÓUtttV
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680
SÝNISHORN af umhverfinu sem birtist nemendum.
Upplýsingaskrifstofur um Evrópumál
Styrkir til jafnréttismála
FRESTUR til að sækja um styrki
til átaksverkefna (projects) á sviði
jafnréttismála rennur út 1. mars
nk. Umsóknar-
eyðublöð og leið-
beiningar fyrir
umsækjendur er
hægt að nálgast
hjá Skrifstofu
jafnréttismála.
Styi'kirnir eru
veittir innan 4. framkvæmdaáætl-
unar ESB um jafnréttismál og geta
allir sótt um, þótt þeir séu einkum
ætlaðir sveitarfélögum, félagasam-
tökum og aðilum vinnumarkaðar-
ins. Áhugasamir hafi samband við
Helgu Guðrúnu Jónasdóttur hjá
Skrifstofu jafnréttismála (s.
552 7420 eða netfang
helga@jafnretti.is).
Ungmeiinaskiptaverkefni
Næsti umsóknarfrestur „Ungs
fólks í Evrópu“ er til 1. febrúar.
Þessi umsóknarfrestur er fyiúr ung-
mennaskipta-
verkefni sem
framkvæmd eru
á tímabilinu 1.
apríl til 31. ágúst
1999. Umsóknar-
eyðublöð fást á
landsskrifstofu
UFE í Hinu húsinu, Aðalstræti 2.
MEDIA Kvikmynda-
og sjónvarpsáætlun
Fyrsti skilafrestur ársins 1999
fyrir dreifíngu evrópskra kvik-
mynda og sjónvarpsefnis er til 29.
janúar nk. og fyrir
dreifingu mynd-
banda- og margmiðlunarverkefna til
9. apríl nk. Umsóknarfrestur fyrir
þá sem sækja vilja um styrki til að
halda námskeið rennur út 25. febrú-
ar. Umsóknargögn og nánari upp-
lýsingar fást á skrifstofu MEDIA
upplýsingaþjónustunnai', Hallveig-
arstöðum, Túngötu 14, 101 Reykja-
vík, s. 562 6366, fax. 561 7171, net-
fang. mediadesk@centrum.is
Vinnufundur fyrir uinsækjendur
Vinnufundur fyrir þá sem ætla að
sækja um styrki fyrir mannaskipti í
Leonardó-starfsmenntaáætlun
Evrópusambands-
ins verður haldinn
í Tæknigarði,
föstudaginn 22.
janúar nk. kl. 12.
Þátttaka tilkynn-
ist í síma 525 4900.
Minnum á umsóknafrest til 31. jan-
úar 1999.
Sérfræðingar til niats
á umsóknum
ESB auglýsii- eftir hæfum einstak-
lingum til að meta umsóknir og hafa
eftirlit með framgangi rannsókna- og
tækniþróunaiverkefna í 5. rammaá-
ætlun ESB. Sérþekkingar á ein-
hverju eftirtalinna sviða er krafist:
Nýting rannsóknaniðurstaðna og
tækniþróunarverkefna, tækniyfir-
færsla og nýsköp-
un, alþjóðleg sam-
vinna í vísindum og tækni, nýting
mannauðs, hagfræðileg og félags-
fræðileg áhrif.
Nánari upplýsingar og eyðublöð
er að finna á netsíðunni
http://www.cordis.lu/expert-candi-
dature, og hjá KER í síma 525 4902.
Netfang: grimurk@rthj.hi.is
Styrkir til lista
og menningar
Fyrsti og eini skilafrestur í
KALEIDOSCOPE, lista- og menn-
ingaráætlun Evi-ópusambandsins,
fyrir árið 1999 er 2. mars nk.
Fyrsti og eini skilafrestur ársins
1999 í RAPHAEL, áætlun Evrópu-
sambandsins varðandi menningar-
ai-fleifð, verður 26. mars nk.
Umsóknargögn og nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu upplýsinga-
þjónustunnar, Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, 101 Reykjavík, s.
562 6388, fax. 562 7171, netfang:
culturalcontactpoint@centrum.
progrem|
L=ONAia«
OA V
4 ►
Nýjar bækur
• HEFÐB UNDIN setningafræði
handa framhaldsskólum er eftir
Ragnheiði Briem. í lesbók eru lyk-
ilhugtök setn-
ingafræðinnar
skýrð og gefin
fjöldamörg
dæmi um hvert
atriði. Gefin eru
hagnýt ráð til að
greina setninga-
hluta og á þrem-
ur stöðum í bók-
inni er raðað
upp minnis-
punktum sem auðvelda nemendum
mjög að ná tökum á efninu. I bók-
inni eru rifjuð upp þau málfræðiat-
riði sem eru nauðsynleg undirstaða
í setningafræði. - í verkefnahefti
sem fylgir bókinni eru fjölbreyttar
æfingar og verkefni við hvern kafla
lesbókar.
Ragnheiður Briem er íslensku-
kennari við Menntaskólann í
Reykjavík og hefur skrifað kennslu-
bók í stafsetningu, auk blaðagreina
um stafsetningar- og málfræði-
kennslu.
Útgefandi er Mál og menning.
Lesbókin er 117 bls., verð 1.999 kr.,
verkefnaheftið er 38 bls., verð 599
kr. Bækurnar fást einnig saman í
pakka, verð 2.399 kr. Bækurnar
eru unnar í Prentsmiðjunni Odda
hf. Kápuna prýðir höfðaleturs-
skreyting eftir Gunnlaug S.E.
Briem.
La
qerútsala
á herra-, kven- og
barnafatnaði frá
heildversluninni
Eddu hf. verður
haldin í
Sundaborg 11
dagana 20. og
21. janúar frá
kl. 10.00-18.00
Gengið inn
norðanmegin