Morgunblaðið - 20.01.1999, Qupperneq 56
Drögum næst á
föstudaginn
&
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
fHtfgtm&fftfeifr
MORGUNBLADID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
KEA kaupir 60% hlut í Bifreiðastöð Islands
Oddur Einarsson framkvæmda-
stjóri BSÍ staðfesti þetta í samtali
við Morgunblaðið í gær. Hann sagði
að starfsemi sérleyfishafa í húsnæð-
inu kæmi til með að verða óbreytt,
þrátt fyrir kaupin. „Meiningin er að
núverandi starfsemi verði þarna
áfram og þjónustan aukist síðan,
bæði við ferðamenn og farþega. Síð-
ar mun starfsemi í húsnæðinu
aukast enn frekar og vershmarþjón-
usta, sem KEA mun koma að, bæt-
ast við,“ sagði Oddur.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er talið að KEA hyggi á
opnun Nettó-verslunar á staðnum,
en eins og kunnugt er hefur KEA
verið að leita fyrir sér með húsnæði
á höfuðborgarsvæðinu að undan-
fömu fyrir slíka verslun, en fyrir-
tækið rekur nú þegar Nettó-verslun
í Mjóddinni.
Oddur sagði að viðræður um mál-
ið hefðu hafist fljótlega eftir að
KEA var synjað fyrr í vetur um að
setja á fót Nettó-verslun í húsnæði
Jóns Ásbjörnssonar við Reykjavík-
urhöfn.
Óska eftir frekari
byggingarheimildum
Aðspurður hvort fyrirhugað væri
að byggja við húsnæðið sem fyrir e:1
á lóðinni sagði Oddur að fyrir lægju
byggingarheimildir og fljótlega yrði
farið í viðræður við Reykjavíkur-
borg um frekari heimildir.
A bak við minnihlutann í hinu ný-
stofnaða félagi eru, að sögn Odds, á
annan tug sérleyfishafa, þeirra á
meðal allir sérleyfishafar sem keyi'a
frá Reykjavík.
Eiríkur Jóhannsson kaupfélags-
stjóri KEA staðfesti í samtali við
Morgunblaðið, að KEA hefði samið
um ofangreind kaup við sérleyfis-
hafa og hygði á byggingarfram-
kvæmdir við BSÍ, en sagðist ekki
vilja tjá sig frekar um málið að svo
stöddu.
-------...........■■■
Flutninga-
bíll lokaði
Kerlingar-
skarði
VEGURINN um Kerlingarskarð
lokaðist í tvo tíma í gærkvöldi vegna
þess að stór flutningabíll sat fastur
þvert á veginum í norðanverðu
skarðinu.
Bíllinn var í brattri brekku er
hann rann til í hálku. Hann snerist á
veginum og stöðvaðist með fram-
endann fram af brúninni. Bílstjór-
inn slapp ómeiddur.
Um svipað leyti og tókst að losa
bílinn fór annar flutningabfll út af
veginum í Kerlingarskarði sunnan-
verðu. Rúma tvo tíma tók að losa
hann, en ökumaðurinn slapp
ómeiddur og bíllinn skemmdist
ekki.
Að sögn lögreglu í Stykkishólmi
var færðin léleg í gærkvöldi og
skyggni slæmt og áttu fólksbílar í
nokkrum erfiðleikum með að kom-
ast leiðar sinnar.
Snjóflóðahætta í S-Þingeyjarsýslu
Þjóðveginum
um Ljósavatns-
skarð lokað
Leitað eftir auknum bygging-
arheimildum á lóðinni
KAUPFÉLAG Eyfirðinga, KEA, hefur keypt 60% hlut í
Bifreiðastöð íslands, BSI, Vatnsmýrarvegi 10 í Reykjavík, af
sérleyfishöfum, sem eftir kaupin fara með 40% hlutafjár. Stofnað
hefur veríð félag um eignina; Vatnsmýrin ehf.
Morgunblaðið/Ásdís
Sprengt fyrir Torgbyggingu
VERIÐ er að undirbúa undir-
stöður fyrir Torgbygginguna við
Kringluna í Reykjavík en þar á
að rísa verslunarhús sem tengist
bæði Borgarkringlunni og
Kringlunni. Síðustu daga hefur
verið unnið við sprengingar í
grunninum og er stefnt að því að
Ijúka honum um mánaðamót
þannig að uppsteypa geti hafist.
ÞJÓÐVEGI1 um Ljósavatnsskarð
í S-Þingeyjarsýslu, frá Stóru-
tjamaskóla og suður að Krossi, var
lokað um miðjan dag í gær, vegna
^snjóflóðahættu. Sigurður Brynj-
ólfsson, yfirlögregluþjónn á Húsa-
vík, sagði í samtali við Morgun-
blaðið seinni partinn í gær að veg-
urinn yrði tæpast opnaður á ný
SIF eykur
veltuna
HEILDARVELTA SÍF-sam-
stæðunnar nam á síðasta ári
um 18,8 milljörðum króna,
samanborið við 11,7 milljarða
króna á árinu 1997 en það er
um 61% aukning á milli ár-
anna. I þessum veltutölum er
búið að taka út öll innbyrðis
viðskipti á milli móðurfélags
og dótturfélaga samstæðunn-
ar. Samtals voru seld um
43.300 tonn af fullunnum af-
urðum hjá samstæðunni síð-
asta ári, samanborið við um
38.400 tonn á fyrra ári og nem-
ur aukningin um 21%. Velta og
sala allra dótturfélaga sam-
stæðunnar hefur aukist nokk-
uð frá fyrra ári. Að sögn Gunn-
ars Arnar Kristjánssonar,
framkvæmdastjóri SIF hf.,
nemur velta samstæðunnar á
síðasta ári rúmum einum millj-
arði króna umfram þær
rekstraráætlanir sem gerðar
hafi verið fyrir síðasta ár og
það sé það besta í sögu félags-
ins frá því það var gert að
hlutafélagi.
■ 61% veltuaukning/Bl
fyrir umferð fyrr en í dag, miðviku-
dag.
„Það var talin hætta á snjóflóði
við svokallaða Sandvík, þar sem
vegurinn liggur raunar úti í Ljósa-
vatninu en þar er þekkt snjóflóða-
svæði. Eftir athugun í morgun,
(gærmorgun) þótti ekki annað
ráðlegt en að loka veginum. Þarna
hefur verið mikil snjósöfnun að
mati heimamanna og snjóflóðaat-
hugunarmenn frá Veðurstofu Is-
lands mátu aðstæður þannig að
þarna væri veruleg hætta á snjó-
flóði.“
Sigurður sagði versnandi veður
á svæðinu og því yrði ekki hægt að
meta aðstæður fyrr en veðrið gengi
niður eða vindátt breyttist, hvenær
sem það yrði.
Einnig var nokkur snjóflóða-
hætta í Fnjóskadal, þar sem snjó-
flóð féllu um helgina. Þar var mikil
ófærð á vegum í gær og var fólk á
þessum svæðum hvatt til þess að
sýna varúð og vera ekki á ferðinni
að nauðsynjalausu.
■ Snjóflóðið/14
Morgunblaðið/RAX
Skipshundurinn Neró
ÞAÐ er gaman að fylgjast með
starfseminni við höfnina, jafnt
fyrir tvífætlinga sem fer-
fætlinga. Það finnst a.m.k. hin-
um státna skipshundi Neró
sem Iagði leið sína niður að
Reykjavíkurhöfn í gær. Hann
horfði dreymandi á smábáta-
eigendurna frá bryggjunni við
Kaffivagninn og virtist þess
albúinn að skella sér á
sjóinn.
Búið að salta sfld í um 86 þúsund tunnur á vertíðinni
Kvótinn langt kominn
ÞAÐ sem af er sfldarvertíðinni hef-
ur verið söltuð síld í um 86 þúsund
tunnur hérlendis, að sögn Gunnars
Jóakimssonar, framkvæmdastjóra
Íslandssíldar hf. Hann segir að nú
eigi aðeins eftir að salta í 5 til 6 þús-
und tunnur upp í gerða samninga.
„Síldveiðar hafa gengið vel eftir að
síldin fannst fyrir vestan land á síð-
asta ári. Ótíðin eftir áramót hefur
hins vegar sett strik í reikninginn
og minna veiðst en ég vonaðist eft-
ir,“ segir Gunnar.
Mest hefur verið saltað hjá Sfld-
arvinnslunni hf. í Neskaupstað, eða
í um 30 þúsund tunnur. Þá hefur
verið saltað í um 13 þúsund tunnur
hjá Samherja hf. á Eskifirði og í
svipað magn hjá Borgey hf. á
Homafirði.
Nú eru aðeins eftir um 7.500
tonn af síldarkvóta vertíðarinnar,
en þegar hefur verið landað um
81.800 tonnum af síld. Flest skip
eru þegar búin eða langt komin
með kvóta sína og var Húnaröst
SF eina skipið á miðunum í
fyrrinótt.
■ Saltað í/C2
Vill nýj a Nettó-
verslun við BSI