Morgunblaðið - 04.02.1999, Síða 8

Morgunblaðið - 04.02.1999, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tilboðsverð - sem er komið til að vera! , ' Þvottavél WG1035 Þú þarft ekki að bíða eítir næsta tilboði. Þu tærð okkar lága tniDESIT verð alla daga M Þurrkari SG 510 / nj r Jí'úhli ii'úunujij húhií jjíuúÍ. • Barki fylgir • Tekur 4.5 kg • Snýrtromlu í báöar áttir • Ryöfrí tromla • Hnappur fyrir kaldan blástur • Tvö þurrkkerfi • Barki fylgir • Mál: hxbxd 85x60x54 cm Kr.29.9Q0.- stgr. • Tekur 5,0 kg • Þvottakerfi 15 • Hitastillir stiglaus • Vinduhraöi 1000 - 600 sn/mín. • Sjálfvirk vatnsskömtun • Öryggislæsing • Belgur ryðfrír • Tromla ryðfrí • Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 49.900.-stgr. Þvottavél WG 935 • Tekur 5,0 kg • Þvottakerfi 15 • Hitastillir stiglaus • Vinduhraði 900 - 500 sn/mín. • Sjálfvirk vatnsskömtun • Öryggislæsing • Tromla ryöfrí • Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 39.900.- stgr. 00 • Með þéttibúnaði (þarf ekki barka) • Tekur 5,0 kg • Snýr tromlu í báöar áttir • Ryðfrí tromla • Valhnappur fyrir venjulegt eða viðkvæmt tau • Tvö þurrkkerfi • Aðvörunarljós fyrir vatnslosun • Aðvörunarljós fyrir lósigti • Rúmmál tromlu 106 Itr. • Stórt hurðarop 40 cm • Hægt að breyta hurðaropnun • Mál: hxbxd: 85x60x60 cm Kr. 56.900.- stgr. Þvottavél WG 1235 • Tekur 5,0 kg • Þvottakerfi 15 • Hitastillir stiglaus • Vinduhraði 1200 - 600 sn/mín. • Sjálfvirk vatnsskömtun • Öryggislæsing • Belgur ryðfrír • Tromla ryðfrí • Mál: hxbxd 85x60x60 cm Kr. 52.900.- stgr. B R Æ Ð U R N I R Lágmúla 8 • Sími 53 3 2800 mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is LLTAf= Œ/TTH\Sy\T> A/ Matarkassi Þjóðminjasafnsins Matur og mataráhöld frá 19. öld Sigurborg Hilmarsdóttir JÓÐMINJASAFN íslands kynnir nú á þorranum nýjan safnkassa sem lánaður er skólum. Hlutverk kassans er að kynna mat og matar- áhöld sem voru notuð á 19. öld. Sigurborg Hilmars- dóttir safnkennari hafði umsjón með gerð kassans. „Þetta er fjórði kassinn sem við setjum á laggirnar hér á Þjóðminjasafninu. Einn kassinn er um barna- leiki. I honum eru horn, kjálkai-, leggir, völur og þeytispjöld og ýmislegt sem krakkar léku sér með fyrir hundrað árum. Annar kassi er um tó- vinnu. I honum eru ull, lopi, halasnældur, skyggn- ur og greinar um tóvinnu. Sá kassi hefur ferðast víða. Auk þessa lánum við farandsýningu til skólanna. Hún er um landnám íslands og var gerð í samvinnu Þjóðminjasafns; ins og Minjasafnsins á Akui’eyri. I fimmta bekk grunnskóla er kennt um landnám og á meðan sýningar Þjóðminjasafnins voru opnar á Suðurgötu kom stór hluti grunn- skólabarna þangað og skoðaði sýninguna og unnu verkefni í kjöl- farið.“ Sigurborg segir að farandsýn- ingin hafi upprunalega verði skipulögð til að mæta þörfum skólanna úti á landi sem ekki gátu komið með nemendur á Þjóð- minjasafnið. Nú er sýningarhús- næði okkar lokað fram til ársins 2000 og því komast grunnskóla- nemendur ekki á sýningar. Þess vegna leggjum við nú meiri áherslu á safnkassana og að þjóna skólunum með þeim hætti. Um þessar mundir erum við að kynna kassa um mat og mataráhöld frá 19. öldinni.“ - Hvað er íþeim kassa? „I honum eru eftirlíkingar af mataráhöldum sem Kári Þor- steinsson, smiður á Sauðárkróki, smíðaði. Það eru askar, trog, brauðmót, kerdiskur, þvörur, sleifar og fleira. í kassanum er einnig myndband með fimm stutt- um fræðsluþáttum um foma mat- gerð sem Hallgerður Gísladóttir sá um og hefti sem heitir Súrt og sætt eftir Sigríði Sigurðardóttur, safnstjóra í Glaumbæ. Þá er í kassanum mappa með ýmsum greinum um mat og mataráhöld og öðru fræðsluefni." - Verða fleiri kassar sem þessir útbúnir á næstunni? „Við erum með í undirbúningi kassa um steinöldina sem er ætl- aður eldri nemendum, þ.e.a.s. elstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskólum. Ég er að leggja drög að þeim kassa í samvinnu við Guðmund J. Guðmundsson kenn- ara og vona að hann verði tilbúinn næstkomandi haust.“ - Hvernig er þessi hugmynd með safn- kassana til komin? „Víða á söfnum er- lendis tíðkast að útbúa svona kassa og frumkvöðullinn að þessu framtaki á Þjóðminjasafn- inu var Bryndís Sverrisdóttir safnkennari. Hún sá um gerð fyrstu tveggja kassanna. Markmiðið með kössunum er að kynna safnið og safngripina og gefa kennurum tækifæri á til- breytingu í kennslunni. Það er tvennt ólíkt fyrir börn að lesa um hlut eða fá að handfjatla hann. Það má læra svo margt af hlutum. Til dæmis er hægt að kenna ► Sigurborg Hilmarsdóttir er fædd á Eskifirði árið 1946. Hún lauk BA prófi í íslensku og sagn- fræði frá Háskóla Islands árið 1971 og cand.mag. prófi í ís- lenskum bókmenntum frá Há- skóla íslands árið 1983. Sigurborg starfaði sem fram- haldsskólakennari frá 1972-1991, lengst við Mennta- skólann á Laugarvatni. Hún var sendikennari í íslensku máli og bókmenntum við Óslóarháskóla frá 1991-1994 og hefur verið safnkennari á Þjóðminjasafninu frá árinu 1996. Eiginmaður hennar er Krist- ján Eiríksson kennari og eiga þau þrjú börn. margt um gamla bændasamfélag- ið út frá einum aski sem maður hefur í höndunum. Lögun asksins hentar vel í þröngum húsakynn- um torfbæjanna þar sem ekki var rúm fyrir matarborð og menn mötuðust sitjandi á rúmi sínu. Þá er gott að halda á aski en askar fara hins vegar heldur illa á borði. Og svona mætti lengi telja." - Hvemig hefur safnkössunum veríð tekið? „Þeim hefur verið tekið afskap- lega vel. Kassamir eru á stöðug- um ferðalögum bæði hér á höfuð- borgarsvæðinu og um land allt. Þeir eru lánaðir í viku í senn og á ákveðnum tímum á veturna myndast biðlisti. Yfirleitt komast þó allir að lokum.“ Sigurborg segir að börn séu mjög áhugasöm þegæ- þau koma og heimsækja Þjóðminjasafnið. Þau hafa næman smekk fyrir list- rænu handbragði og eru áhuga- söm um tréskurð, vefnað og út- saum. „Þeim finnst líka mjög gaman að skoða fallega kirkjumuni, Maríulíkneski og alt- aristöflur og heyra sögur tengdar þeim. Börnin eru líka upptekin af mannabeinunum og beinagrind- inni í kumlinu og þegar þau hafa verið að skoða þá hluti hafa komið upp skondnar athugasemd- ir. „Sjö ára piltur kom til dæmis einu sinni með hóp til okkar og var mjög upptekinn af þremur hauskúpum í fornaldarsalnum á Suðurgötu. „Eru þetta ekta hauskúpur?" spurði drengurinn og starði á fyr- irbærin. Hann fékk jáyrði við þessari spurningu og þá kom sú næsta. „Eru þetta hauskúpur úr fólki?“ Aftur fékk hann jákvætt svar og þá horfði hann á mig um sund en sagði svo með tilþrifum: „Djö, maður, þú verður sett í fangelsi!" Kassi um steinöldina í undirbúningi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.