Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson IÐNSVEINARNIR, frá vinstri, Víðir Ólafsson, Einar Arason, Hjalti Reynisson og Björn Hallbjörnsson við fjarfundabúnaðinn sem komið hefur verið fyrir í Höfðaskóla á Skagaströnd. A skjánum er inynd frá kennslu- stofunni á Sauðárkróki þar sem kennarinn er. Iðnsveinar á Norðurlandi vestra afla sér frekari menntunar Fj arfundabúnaður opnar nýja möguleika Skagaströnd - Á fimmta tug iðn- sveina notfæra sér nú nýjan fjar- fundabúnað sem komið hefur verði fyrir á þéttbýlisstöðum á Norður- landi vestra. Stunda sveinarnir, hver á sínum stað, meistaranám við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki en námið er nýhafið. Er meistara- námið fyrsta námsbrautin sem boð- ið er upp á með þessari nýju tækni hér en ætlunin er að bjóða upp á fjölbreytta námsmöguleika í gegn- um fjarfundabúnaðinn í framtíð- inni. Það eru Byggðastofnun, Farskóli Norðurlands vestra, Fjölbrauta- skólinn á Sauðárkróki, Hólaskóli, Iðnþróunarfélag Norðurlands vestra og samtök sveitarfélaga á svæðinu sem hafa gert með sér samstarfssamning um að gera íbú- um á Norðurlandi vestra kleift að leggja stund á hvers konar nám með sérstakri áherslu á fjarkennslu. Til að ná þessu markmiði sínu hafa þessir aðilar beitt sér fyrir að koma upp fjarfundabúnaði sem víðast á svæðinu. Er slíkur búnaður nú kom- inn í notkun á öllum þéttbýlisstöð- um á Norðurlandi vestra allt frá Siglufirði til Hvammstanga. Eins og áður segir er búnaðurinn einkum ætlaður til fjarkennslu, endur- og símenntunar. Þar að auki geta fyrir- tæki og stofnanir fengið afnot af búnaðinum sem auðveldlega nýtist í samskiptum milli viðskiptaaðila inn- anlands og utan. Þá hafa einstak- lingar og félagasamtök aðgang að búnaðinum til annarra þarfa en þó mun menntun ávallt hafa forgang fram yfir annað. Búnaðurinn gerii- allt að 54 stöð- um kleift að vera í sambandi á sama tíma þar sem allir geta tekið þátt í fræðslu og skoðanaskiptum. Verður leitast við að sem flestar stofnanir bjóði þjónustu sína á Norðurlandi vestra með þessari tækni og verður reynt að koma á samstarfi við menntastofnanir víða á landinu. Iðnaðarmennirnir sem voru að byrja meistaranámið á Skagaströnd lýstu mikilli ánægju sinni með það að geta nú stundað þetta nám heima hjá sér í stað þess að þurfa að dvelja langdvölum fjarri fjölskyldum sínum með öllum þeim aukakostnaði sem slíku fylgir til að geta náð sér í meistararéttindi. Framsóknarflokkurinn á Vestfjörðum Magnús Reynir gefur kost á sér í 1. sæti Ísafírði - Magnús Reynir Guð- mundsson, fyiTum bæjarritari á Isafírði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í efsta sæti á lista Framsókn- arflokksins á Vestfjörðum í kom- andi þingskosningum. Hann stað- festi þetta í samtali við blaðið á þriðjudag. „Því er ekki að neita að það hefur verið rætt við mig um að vera í fyrsta sæti á þessum lista,“ sagði Magnús Reynir í samtali við blaðið. „Eg tók mér töluvert góðan frest til að íhuga þetta mál. Nú er ég búinn að íhuga það og komast að niður- stöðu og svar mitt er jákvætt. Ég geri þetta vegna þess að flokks- systkini mín hafa lýst málum þannig fyrir mér, að þrátt fyrir hæfileika Kristins H. Gunnarssonar og góða kosti telji framsókaiTnenn mjög viða óheppilegt að hann sé í forystu fyiir listanum. Og á grundvelli þess að þeir hafa sagt að ég nyti nokkurs stuðnings og treysta mér til þessa verkefnis þá segi ég já,“ sagði Magnús Reynir Guðmundsson. Uppstillinganefnd er að störfum. Hún leggur tillögur sínar um skipan framboðslistans fyrir kjördæma- þing Framsóknarflokksins á Vest- fjörðum laugardaginn 20. febrúar nk. og verður þá endanlega gengið frá listanum. Morgunblaðið/Ingimundur UNGIR þátttakendur á Íþróttahátíð UMSB bíða spenntir Alheims- meistara- mót í vík- ingaskák ísafirði - Sex kepptu á fyrsta Islandsmótinu í víkingaskák sem haldið var á Isafirði sl. föstudag. Mótið var jafnframt fyrsta heimsmeistaramótið í þessari íþrótt. Og ekki nóg með það, heldur nefndist það alheimsmeistaramót þótt ein- ungis jarðarbúar hafí verið með að þessu sinni hvað sem síðar verður. Fyrsti íslandsmeistarinn, heimsmeistarinn og alheims- meistarinn í víkingaskák er Skúli Þórðarson. Hann fékk fjóra vinninga í fimm skákum. I öðru sæti varð Hálfdán Bjarki Hálfdánsson með þrjá og hálfan vinning og í þriðja sæti Sigurður Páll Olafsson með tvo og hálfan vinning. I fjórða til fimmta sæti urðu Jón Reynir Sigurvinsson og Krist- inn Orri Hjaltason með tvo vinninga hvor og í sjötta sæti Þorkell Þórðarson með einn vinning. Þorkell vann reyndar það afrek að sigra sjálfan al- heimsmeistarann í síðustu um- ferðinni. Skákstjóri og dómari var Brynjar Viborg. Undanfarið hefur víkingaskák verið þreytt af kappi í Framhalds- skóla Vestfjarða. Stefnt er að því að alheimsmeistaramót í þessari merku og sérstæðu íþrótt verði árlegur viðburður á ísafirði. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson KRISTINN Orri Hjaltason og Sigurður Páll Ólafsson þungt hugsi yfír skákinni. eftir því að hefja keppni. Ura 300 keppendur a Íþróttahátíð UMSB Borgarnesi - Íþróttahátíð UMSB, hin ellefta í röðinni, fór fram í Iþróttamiðstöðinni í Borgamesi 30. janúar sl. Keppt var í frjálsum íþróttum og sundi. Mótið er fyrh' grunnskólanema á félagssvæði Ung- mennasambands Borgarfjarðar. Agætur árangur náðist í mörgum greinum, en mesta athygli vakti ár- angur Sigurðar Jóns Ásbergssonar, 14 ára, en hann stökk 1,75 m í há- stökki. Keppendur voru um 300 tals- ins á aldrinum 5-16 ára frá flestum ungmennafélögum í Borgarfjarðar- héraði. Allh' þátttakendur á mótinu hlutu að gjöf frá Skógræktarfélagi Borgarfjarðar gjafabréf að birki- plöntu. En félagið átti 60 ára afmæli á síðasta ári. I tilefni þess efndi UMSB til skógargangna víðsvegar um héraðið í sumar. Fimleikaflokkur frá Akranesi sýndi dans. Veitt voru sérverðlaun í sundi og frjálsum íþróttum frá mótum í sumar og há- tíðin endaði með því að greint var frá kjöri íþróttamanns Borgarfjarðar. Loðskinn send á markað Sölutregða vegna efnahagsástandsins í Rússlandi og Asíulöndum Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson STEFÁN og Katrín í Mön ineð falleg minkaskinn. Hrunamannahreppi - Katrín Sig- urðardóttir og Stefán Guðmunds- son, loðdýrabændur í Mön í Gnúp- verjahreppi, voru að ganga frá minkaskinnum og pakka niður fyrir uppboð í Danmörku þegar fréttarit- ari leit inn til þeirra nýlega. Þau fengu aðstöðu til þess að Ásgerði II, þar sem rekið er stórt minkabú og ein besta aðstaða til skinnaverkunar á landinu. Þau búa með rúmlega 1.000 læð- ur en tvö ár eru síðan þau hófu loð- dýrabúskap. Stefán er formaður fé- lags loðdýrabænda á Suðurlandi og hann því spurður um stöðuna í loð- dýi'aræktinni sem er erfíð um þess- ar mundir. „Það má kannski segja að þetta sé öðruvísi kreppa en var fyrir nokkrum árum,“ segir Stefán. „Þá stafaði hún af offramleiðslu en í sjálfu sér er ekki um offramleiðslu að ræða núna. Það má heldur kalla þetta sölutregðu vegna efnahagsá- standsins í Rússlandi og í Austur- Asíulöndum. Rússar keyptu mikið af högnaskinnunum, þau eru verð- meiri enda stærri. Lækkunin er mikil síðan í fyrra en félagar okkar í Danmörku og Finnlandi telja að nú sé kominn ákveðið jafnvægi í verðið og loðskinn lækki ekki meira á þessu ári, eiga heldur von á að þau hækki eitthvað. Nýir kaupendur eru að koma inn á upp- boðin, einkum Evrópubúar." Stefán segir að loðdýrabændur séu í erfíðum málum, einkum þeir sem lentu með afurðir sínar í verð- fallinu fyrir nokkrum árum. Nokkrir loðdýrabændur á Suður- landi hafi hætt búskap í haust. Þeir sem eftir eru standi vonandi af sér kreppuna. „Fóðurframleiðsla í fóð- urstöðinni á Selfossi hefur minnkað og það gerir rekstur hennar óhag- kvæmari en hún getur afkastað margfalt meira en þar er framleitt í dag. Þá þarf að stækka búin og gera rekstur þeirra hagkvæmari," segir Stefán. Þau Katrín og Stefán segja þessa búgrein skemmtilega og að loðdýra- bændur geri mikið til að auka þekk- ingu sína á skinnaframleiðslu, m.a. séu loðdýranámskeið á Hvanneyri betur sótt en í öðrum búgreinum. Einnig er sótt mikil þekking til Dana þar sem loðdýrarækt er mjög öflug. Þau söðu að síðstu vilja minna á hina árlegu sýningu loð- dýrabænda sem fer fram á Hótel Sögu í lok þessa mánaðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.