Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 72
72 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Hagatorgi, simi 530 1919
Sýnd kl. 4.30, 6.40, 9 og 11.20. b.í. 16.
★ ★★;
Kvikmyndir.is
Mtrr |oe Bt ack
Sýnd kl. 5 og 9.
★★★«
Mbl ★ ★★
ÁS DV
Velkomin í
rúöuhúsið
llie dollhousc
Sýnd kl. 11.
www.kvikmyndir.is
F£RDU í BÍÓ
mnuHi i-iuiiBi mmÆk i -muújIh aMaíiHjF
BliHftiim
Álfabakka 8, slmi S87 8900 og 587 8905
SPENNA
BINZil WflSHIHGTON ANNiTIl BiHINE
THE SIEGE
...BBÍCI NIUH
ao/TIW SAN DLEB
- ■' r-- .. ■■-;■
. ...___........
Nýi grínsmeHurími fra fólkinu
sem gerði Tlie Wedding Singer
Friðrik Örn Hjaltested Ijósmyndari
Með myndavél
frá mömmu
MÓTORHJÓL, verslunar-
keðjur og stórstjömur hafa
verið helstu viðfangsefni
Friðriks Amar Hjaltested ljósmynd-
ara i Los Angeles undanfarin átta ár.
Hann hefur komið víða við, myndað
fyrir Guess og Disney og verið að-
stoðarmaður frægra ljósmyndara á
borð við Mark Seliger sem kemur til
landsins um helgina og heldur fyrir-
lestur í tengslum við sýningu Ljós-
myndarafélagsins og Blaðaljós-
myndarafélagsins í Gerðarsafni.
Friðrik Öm flutti heim til Islands
á þessu ári og opnaði ljósmyndastofu
ásamt Kristjáni Maaek í Skeifunni.
Hann fæst mestmegnis við auglýs-
ingamyndir og óhefðbundnar por-
trett-myndir og var einmitt verð-
launaður á sýningu Ljósmyndarafé-
lagsins um síðustu helgi fyrir bestu
mynd í opnum flokki. „Þetta er það
sem ég hef mest gaman af,“ segir
hann og bendir á nokkrar polaroid-
myndir eftir sig. „Mamma mín
keypti svona vél þegar ég fæddist og
hún fylgir mér enn í dag.“
Nóg að hafa kókdós og hníf
„Ég fór út fyrir átta áram og hóf
ljósmyndanám í Brooks Institute,"
segir Friðrik Öm.
„Eftir ár á skólabekk ’
fór mér að leiðast þóf-
ið, enda fannst mér
námið ekki nógu krefj-
andi. Ég var orðinn
blankur og má segja að
ég hafí dottið í lukku-
pottinn þegar ég hóf
starfsnám í Los Angeles
hjá Ijósmyndaranum Jay
P. Morgan. Ég aðstoðaði
hann við að setja upp
myndatökustaði og var
það skemmtilegur tími.
Þetta var áður en Photos-
hop kom til sögunnar svo
við urðum að gera ævin-
týralegar leikmyndir trú-
verðugar með sem minnstum til-
kostnaði. Ég lærði mikið af honum
og umfram allt að ekkert er ófram-
kvæmanlegt."
Svo mikið segist Friðrik Örn hafa
lært af Morgan að seinna þegar
hann fékk meðmælabréf frá öðrum
Ijósmyndara stóð í bréfinu: „Það er
hægt að skilja hann [Friðrik Örn]
eftir á eyðieyju með kókdós og sviss-
neskan hníf og hann getur byggt
hvaða leikmynd sem er.“
Eftir nokkra hríð ákvað Friðrik
Örn að spreyta sig á eigin spýtur.
Hann komst fljótlega í kynni við ljós-
myndarann Peggy Sirota sem tekur
J^mikið af tískumyndum fyrir evr-
FRIÐRIK
speglar
ópsku útgáfurnar af Vogue og Elle.
„Við fórum meðal annars tvær vikur
út í eyðimörkina að mynda Tatjönu
Patitz. Hún hefur það orð á sér að
vera þurr á manninn við aðstoðar-
menn en við urðum fljótt perlumát-
ar. Ég komst nefnilega að því að hún
er sænsk og notaði tækifærið til að
æfa menntaskóladönskuna. Það
skildi enginn í því á tökustað hversu
vel fór á með okkur,“ segir Friðrik
Örn og hlær.
„Ég held að það sé ekki síðra há-
skólanámi að vera aðstoðarmaður
ljósmyndara sem hafa haslað sér völl
í heiminum," bætir hann við. „Þá
lærir maður hvemig hlutirnir ganga
fyrir sig í framkvæmd án þess að
þurfa sjálfur að borga brúsann.“
Heima hjá Lee Iacocca
Að sögn Friðriks vinna þeir ijós-
myndarar sem mest hafa að gera
aldrei með eigin búnað heldur taka
allt á leigu. „Þá verður ekkert úrelt
og þeir hafa alltaf aðgang að því besta
á markaðnum,“ segir hann. Hann
vann um tíma hjá Smash Box sem
leigir út Ijósmyndabúnað og þannig
komst hann í tæri við Mark Seliger.
„Það myndaðist góður vin-
skapur á milli okkar,“
segir hann.
„Við fórum víða í tök-
ur og einna eftirminni-
legast er þegar við fór-
um heim til auðjöfurs-
ins Lee Iacocca. Þetta
var glæsihýsi með
sundlaug og öllu til-
heyrandi og í vinnu-
herberginu var einn
veggurinn fóðraður
með myndum af hon-
um á yfír 150 forsíð-
um allra helstu
tímarita heims. í
íiinsunni. miðjum tökum
sl81 þurfti ég að nota sím-
ann og settist inn í eldhúsið. Þá sá ég
lista sem hékk á veggnum með síma-
númerum og þar var margt athyglis-
vert eins og bein númer hjá George
Bush og Bill Clinton."
Friðrik Örn kann ótal svipaðar
sögur úr heimi ævintýi'anna í Los
Angeles og leikur blaðamanni for-
vitni á að vita af hverju hann ákyað
að koma heim til Islands. „Ótal
margir hafa spurt mig þessarar
spurningar og til að byrja með var
fátt um svör. Enda hefur mér gengið
mjög vel úti. Þegar ég hitti íslenska
stúlku sem var nýkomin heim eftir
sex ára dvöl á Italíu spurði ég hana
því sömu spumingar. Hún svaraði:
„Hér á ég heima.“
örnHjaUested
NEVE Campbell á mynd Seling-
ers úr Rolling Stone ...
. í góðum höndum Friðriks.
ÆVINTÝRALEG sviðsmynd úr samstarfi Friðriks
og Jays P. Morgans. Laugin er hálfs metra djúp og
hákarlarnir úr trefjaplasti.
PORTRETT af Styrkári Þóroddssyni.
FRIÐRIK Örn hefur myndað fyrir bæklinga
mótorhjólarisans Honda undanfarin ár.
im inn iiiiiTiiiiimiii iii 11 iii 11 iiixmi nrnnTTTT