Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 76
ÍWtrjpinMfí§»it!» WWW.NYHHKJI.LS IIH Netfinity <33> NÝHERJI MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF569 1181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Kristinn RÆNINGINN huldi andlitið lambhúshettu og ógnaði sautján ára gamalli afgreiðslustúlkunni með dúkahnífi. Hótaði af- greiðslustúlku með dúkahnífí KARLMAÐUR vopnaður dúka- hnífi ógnaði sautján ára gamalli af- greiðslustúlku í söluturni við Grundarstíg á tíunda tímanum í gærkvöldi og rændi nokkrum þús- undum króna úr peningakassa. Um tíu mínútum síðar var maður á fer- tugsaldri handtekinn á gangi á Laugaveginum og er hann sterk- lega grunaður um ránið. Afgreiðslustúlkan var bakatil í versluninni þegar maðurinn kom inn. Þegar hún kom fram var hann kominn inn fyrir afgreiðsluborðið vopnaður hnífi, að öllum líkindum dúkahnífi, og klæddur drapplitri lambhúshettu sem huldi andlitið þannig að aðeins sást í augun, og dökkri úlpu. Hún lýsir honum svo að hann hafi verið meðalmaður á hæð en þrekvaxinn. Maðurinn krafðist þess að fá peninga og lét hún hann fá innihald peningakass- ans, en óljóst er hversu mikið það var. Þegar ræninginn var á leiðinni út úr söluturninum ýtti afgreiðslu- stúlkan á neyðarhnapp og því var lögreglu gert viðvart strax eftir ránið. Lögi’eglumenn handtóku skömmu síðar karlmann á Lauga- veginum og fóru klæðnaður og lík- amsburðir hans saman við lýsingu afgreiðslustúlkunnar. Hann hafði auk þess dúkahníf í fórum sínum og rúmar átta þúsund krónur. Samkvæmt upplýsingum lögreglu í gærkvöldi hafði maðurinn ekki ját- að verknaðinn. Hann hefur áður komið við sögu lögreglu. Deilur um flutninga fyrir varnarliðið á Keflavrkurflugvelli Eimskip vann mál- ið fyrir undirrétti EIMSKIPAFÉLAG íslands hefur unnið mál vegna flutninga fyrir varnarliðið fyrir undirrétti í Banda- ríkjunum, en málið var höfðað á hendur bandaríska hemum. Ekki er vitað hvort málinu verður áfrýjað til æðra dómstigs, en niðurstaðan þýð- ir að bjóða þarf út flutninga fyrir varnarliðið á nýjan leik, að sögn Þorkels Sigurlaugssonar, fram- kvæmdastjóra hjá Eimskip. Þorkell sagðist í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi ekki hafa fengið þetta ski-iflega staðfest né afrit af dómnum í hendur, en samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hefði, þá hefði Eimskip unnið málið og það þýddi að vamarliðið yrði að hætta að flytja vömr sínar með þeim aðila sem hefði flutningana með höndum og bjóða þá út á nýjan leik. Ber að bjóða út Forsaga málsins er sú að sam- kvæmt milliríkjasamningi milli Is- lands og Bandaríkjanna ber að bjóða út flutninga íyrir vamarliðið og skipta þeim milli lægstbjóðenda frá hvoru landi fyrir sig þannig að 65% flutninganna komi í hlut félags í því landi sem lægst býður, en 35% í hlut þess félags sem býður iægst í hinu landinu. Flutningarnir vom boðnir út á síðasta ári og var þeim úthlutað til bandarísks fyrirtækis sem heitir Transatlantic Lines LLC og íslensks fyrirtækis sem heitir Transatlantic Lines Iceland ehf. Þorkell sagði að íslenska félagið væri í eigu sömu aðila og það er- lenda. Eimskipafélagið hefði talið að þessi niðurstaða gæti ekki staðist milliríkjasamninginn og þær út- boðsreglur sem giltu og því hefði verið ákveðið að fara í mál við bandaríska herinn. Niðurstaða lægi nú fyrir og hún væri sú samkvæmt þeim upplýsingum sem hann hefði að bandaríski herinn yrði að aftur- kalla úthlutunina til þessai’a félaga og bjóða flutningana út aftur, þar sem ekki hefði verið fylgt ákvæðum milliríkjasamningsins né þeim regl- um sem giltu um útboðið. Morgunblaðið/Sven*ir SVERRIR Elefsen og Guunar Sigurðsson, vatnamælingamenn Orkustofnunar, að störfum við Skeiðará í gærkvöldi, en þá var talið að hlaupið væri hægt vaxandi. Ekki talið að hlaup í Skeiðará valdi tjóni Freysnesi. Morgunblaðið. 11 apótek í nýrri keðju ÞESSA dagana er verið að ganga frá sameiningu Apótekanna og Lyfjaverslana Hagkaups. Apótekin eru átta en verða á næstu þremur mánuðum 11 talsins. Að sögn Guð- mundar Reykjalín, framkvæmda- stjóra nýju keðjunnar, er vinna haf- in við að opna nýtt apótek í Spöng- inni í Grafarvogi, apótek verður opnað í Nýkaup Kringlunni í apríl og það þriðja í maí í Hraunbæ. Hann segir að til standi á næstu mánuðum að stofna vörudreifing- armiðstöð fyrir apótekin í sam- starfi við aðra, jafnvel erlenda að- ila. „Fram að þessu hefur hvert ap- ótek verið að kaupa lyf frá sex lyfjaheildsölum og til að einfalda rekstur apótekanna er meiningin að hafa þessa starfsemi nú alla á einum stað,“ segir Guðmundur. HLAUP er hafið í Skeiðará. Magn- ús Tumi Guðmundsson, jarðeðlis- fræðingur, segir að hlaupið verði trúlega ekki stórt, þar sem ekki sé mikið vatn í Grímsvötnum. Segist hann eiga von á því að hlaupið verði innan við helmingur af venju- legu Skeiðárhlaupi síðustu ára. Ekki er taiið að mannvirki séu í hættu af völdum hlaupsins og hafa því ekki verið gerðar sérstakar ráðstafanir í þeim efnum af hálfu Vegagerðar eða Almannavama- nefndar á svæðinu, en fylgst er ná- ið með framvindu hlaupsins. Vatnamælingamenn urðu fyrst varir við aukningu í ánni í fyrradag og í gærkvöldi mældist rennsli í ánni 1.300 rúmmetrar á sekúndu, en þess má geta til samanburðar að á fóstudaginn var var rennsli ár- innar tæpir 25 rúmmetrar á sek- úndu. Hægt vaxandi Sverrir Elefsen, vatnamælinga- maður á Orkustofnun, segir að hlaupið sé hægt vaxandi. Hann treystir sér ekki til þess að fullyrða að hlaupið hafi náð hámarki. Með- alhlaup í Skeiðará er í kringum 2.000 til 3.000 rúmmetrar á sek- úndu en þegar stóra hlaupið var í hámarki í nóvember 1996 var rennslið 45 þúsund rúmmetrar á sekúndu. Venjulega nær hlaup í Skeiðará hámarki á nokkrum sól- arhringum. Töluverð óvissa ríkir nú um framvindu hlaupsins vegna breyt- inga sem urðu á ísstíflunni í Grím- svötnum í stóra hlaupinu, auk þess sem gos er nýafstaðið í Vatnajökli. Hins vegar er vatnið í ánni koldökkt, en ekki er að finna jökla- fýlu af ánni. Þá hafa borist fregnir af því að einhver vöxtur sé kominn í Gígjukvísl. Arnarnesland Samstarf við Lands- bankann LANDSBANKI íslands hf. og Jón Olafsson kynntu í gær samstarf um uppbyggingu á Arnarneslandi. Landsbankinn fjármagnaði kaupin og hyggst í framhaldi bjóða fjáiTnögnun í tengslum við uppbygginguna. Að sögn Jóns Olafssonar er mikil eftirspurn eftir landinu en yfir 50 einstaklingar og nokkur fyrirtæki hefðu óskað eftir að kaupa lóðir. Jafnframt hefur hann fengið fyrirspurn frá verktaka sem hefur sýnt áhuga á að kaupa allt landið. ■ Stefnt að/C2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.