Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 04.02.1999, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ■ ^>1 BJÖRN Steinar Sólbergsson við orgelið í Hallgrímskirkju. „Orgelið er eins og snu'ðað fyrir þennan konsert." Morgunblaðið/Kristinn Þar sem ís og eldar mætast Hallgrímskirkja verður í kvöld vettvangur tónlistar- sögulegra tíðinda, þegar Sinfóníuhljómsveit Islands og Björn Steinar Sólbergsson frumflytja hér á landi Orgelkonsert Jóns Leifs, fyrsta íslenska einleiks- konsertinn. Orri Páll Ormarsson hitti Björn Steinar að máli í Hallgrímskirkju og ræddi við hann um þetta tæplega sjötíu ára gamla tónverk. EGAR hann var frumfluttur á nor- rænni tónlistarhátíð í Wiesbaden 1935 vakti hann „langmesta at- hygli af öllu því, sem þar var leik- ið“. Þegar hann var leikinn öðru sinni, í Berlín sex árum síðar, var flutningi hans mótmælt „með barsmíðum og salflótta". Eftir það lá hann í þagnargildi í tæpa hálfa öld, eða þar til Fílharmóníuhljómsveitin í Stokkhólmi tók hann upp á sína arma 1988. Vakti sá flutningur mikla athygli og hrifn- ingu. Hvemig verður brugðist við honum í kvöld? Nú þegar hann er loksins kominn heim til landsins, náttúrunnar, sem hann er sprottinn úr, íslands. Orgelkonsert Jóns Leifs er ekki aðeins fyrsti einleikskonsertinn frá hendi íslensks tónskálds, hann á sér líka merkilegri sögu en flest önnur íslensk tónverk, eins og Ámi Heimir Ingólfsson doktorsnemi í tónvísind- um rekm- í Lesbók Morgunblaðsins síðast- liðinn laugardag. Hefur konsertinn bæði verið kallaður frumlegt og stórfenglegt listaverk sem „hrífur menn miskunnarlaust með sér með kynngi sinni og hörku“ og al- gjört hneyksli, hugmyndarheimur hans sagður einkennast af kvalafullri þröngsýni. I ljósi þessa hlýtur það að vera nokkur herhvöt og dirfska að ráðast til atlögu við verkið, eins og Sinfóníuhljómsveit Islands gerir í Hallgrímskirkju í kvöld. Við orgelið verður Bjöm Steinar Sólbergsson org- anisti Akureyrarkirkju. Er hann ekki log- andi hræddur? Hef ekki séð hann svartari „I fyrstu atrennu var ég hræddur," segir Bjöm Steinar og spurningin kemur honum bersýnilega ekki á óvart. „Eiginlega er þetta fyrsta - og eina - verkið sem ég hef orðið hræddur við um dagana. Það er óhemju flókið tæknilega - ég hef ekki í annan tíma komist í kynni við neitt þessu líkt. Það sem kom mér mest á óvart er að þetta er allt annar heimur en ég á að venj- ast, nótur sem líta vel út áblaði reynast svo gjörsamlega óspilandi. Eg hef ekki séð hann svartari.“ Bjöm Steinar byrjaði að kynna sér verkið fyrir um tveimur ámm en undanfama sex mánuði hefúr hann svo að segja helgað sig því alfarið. „Ég fékk listamannalaun í hálft ár og hef dvalist í Cambridge undanfama mánuði við stífar æfíngar. Sérstaða verksins kallaði að hluta til á nýja æfingatækni en smám saman náði ég tökum á verkinu." Er hann þá búinn að ná úr sér skjálftan- um? „Já, það má segja það. Síðustu dagana íyrir svona stóra tónleika fínnur maður reyndar alltaf fyrir smá skrekk - en það er bara eðlilegt." Bjöm Steinar kveðst hafa fengið hjálp úr ýmsum áttum meðan á glímunni við konsertinn hefur staðið. Nefnir hann tvo menn einkum í því sambandi, sænska org- elleikarann Gunnar Idenstam og fyiT- nefndan Ama Heimi Ingólfsson. „Gunnar lék verkið með Fílharmóníuhljómsveitinni í Stokkhólmi á sínum tíma og hefur því gengið í gegnum sömu „hremmingar" og ég. Þar sem hann er ágætur vinur minn hef ég getað leitað í smiðju til hans - hef meðal annars haft upptöku með flutningi hans undir höndum. Áma Heimi kann ég líka bestu þakkir en hann skrifaði fyrir tveimur árum mastersritgerð um orgelkonsertinn. Hún hefur hjálpað mér mikið við undirbún- inginn, einkum hugmyndafræðilega." I desember síðastliðnum hélt Björn Steinar síðan til Frakklands þar sem hann lék konsertinn fyrir gamlan kennara sinn, Susan Landale. Segir hann Landale hafa heillast mjög af verkinu. Þegar Björn Steinar er beðinn um að lýsa orgelkonsertinum kemur honum orðið „hrikaleiki" fyrst í hug. „Það hefur oft ver- ið talað um kraftbirtingu íslenskrar nátt- úru í verkum Jóns Leifs og það á svo sann- arlega við hér. Það nær enginn þessu rammíslenska á jafn magnaðan hátt og Jón, þessum ógurlega krafti. Maður sér nánast eldgos í Vatnajökli fyrir sér þegai- hlýtt er á konsertinn. Is og eldar mætast í þessu verki.“ Eitt af bestu verkum Jóns Og orgelleikarinn lætur ekki þar við sitja. „Konsertinn ber rosalegi’i vogun vitni - Jón hreinlega lætur vaða. Ég hika ekki við að segja að þetta sé eitt af hans allra bestu og glæsilegustu verkum - og er þó af nógu að taka.“ En hvað með viðtökur? Era íslenskir tónleikagestir tilbúnir að hlýða á þetta sjö- tuga en framúrstefnulega verk? Óttast Björn Steinar ekki að bragðist verði við flutningnum með salflótta og glymjandi hlátrasköllum eins og í Berlín forðum? „Nei, það geri ég ekki,“ segir hann og brosir. „Það hefur mikið vatn rannið til sjávar frá því konsertinn var fluttur í Berlín. Verkum Jóns hefur verið sýndur mikill áhugi á undanförnum árum og miss- erum, bæði hér heima og erlendis, og mikil eftirvænting virðist ríkjandi fyrir þessa tónleika." Þeim orðum til stuðnings er sú stað- reynd að miðar á tónleikana seldust upp fyrir nokkrum dögum. En hvers vegna í ósköpunum hefur þetta sögufræga verk ekki verið leikið á tónleik- um hér á landi áður? „Ég hugsa að skýr- ingin sé fjTst og fremst sú að hljóðfærið hefur ekki verið til staðar," segir Bjöm Steinar. „Það er ekki fyrr en með tilkomu orgelsins hér í Hallgrímskirkju að þetta er hægt.“ Og gott betur! „Aðstæður eru frábærar hér í Hallgrímskirkju, gætu ekki verið betri. Orgelið er eins og smíðað fyrir þenn- an konsert." Sænska útgáfufyrirtækið BIS mun gangast fyrir upptöku á konsertinum á morgun og gerir Björn Steinar ráð fyrir að hann verði gefínn út á geislaplötu innan tíðar. „Það er mjög mikilvægt að hljóðrita verk af þessu tagi, kannski verður geisla- platan til að kveikja áhuga víðai’." Mótettukór Hallgrímskirkju syngur Requiem Tónleikamir í kvöld hefjast á öðra verki eftir Jón Leifs, Requiem, sem Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harð- ar Áskelssonar. Verkið var samið árið 1940 en tilefnið var sá hörmulegi atburður að dóttir Jóns, Líf, drakknaði í skerjagarðin- um utan við Stokkhólm. Tónleikunum lýkur svo á Sjöttu sinfóníu Antons Bruckners sem samin var á árun- um 1879-1881. Hún er ekki meðal þekktari sinfónía tónskáldsins og var ekki flutt í heild sinni meðan það var á lífi. Það var ekki fyrr en 1899, þremur áram eftir and- lát Bruckners, að Fílharmóníuhljómsveit Vínarborgar flutti verkið í heild sinni undir stjórn Gustavs Mahlers. Hljómsveitarstjóri kvöldsins er Kín- verjinn En Shao. Hann er orðinn nokkuð hagvanur hjá Sinfóníuhljómsveitinni en síðast var hann hér á ferð í september á síðasta ái’i við hljóðritanir á verkum Jóns Leifs. En Shao er eftirsóttur hljómsveit- arstjóri og hefur stjórnað mörgum þekkt- ustu hljómsveitum Evrópu. Hann er fast- ur stjórnandi fílharmóníuhljómsveitar BBC. Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.