Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 15
Y erndun
íslenskra
erfðaauð-
linda
X Morgunblaðið/Kristján
Arfarvegur Glerár færður
NÝ LANDHELGI: Verndun ís-
lenskra erí'ðaauðlinda í alþjóðlegi-i
samkeppni er heiti á fyrirlestri sem
Jakob K. Kristjánsson, rannsóknar-
prófessor og framkvæmdastjóri Is-
lenskra hveraörvera ehf., flytur á
vegum Háskólans á Akureyri i dag,
fimmtudag 4. feberúar, kl. 16.15 í
Oddfellowhúsinu. Fyrirlesturinn er
öllum opinn.
I lögum nr. 57/1998 um rannsókn-
ir og nýtingu á auðlindum í jörðu
sem nýiega voru kynnt í bældingi
ríkisstjórnarinnar um hálendi Is-
lands eru hveraörverur teknar með
sem ein auðlindanna. Eins og al-
mennt gildir um ailar auðlindir
lands og sjávar eru rannsóknir á
hveraörverum því háðar leyfi stjórn-
valda. Á grundvelli þessara laga
sóttu Islenskar hveraörverur ehf. í
júní síðastliðinum um fimm ára sér-
leyfi til hagnýtra rannsókna á
hveraörverum, gegn skuldbindingu
um að setja 350 milljónir króna í
rannsóknirnar á sama tímabili.
I erindi sínu mun Jakob gera grein
fyrir þessu máh og setja það í sam-
hengi við þá alþjóðlegu þróun sem
átt hefur sér stað á undanfómum ár-
um varðandi stöðu erfðaauðlinda.
VERIÐ er að færa árfarveg
Glerár á móts við gömlu verk-
smiðjuhúsin dálítið norðar en
hann áður var. Það eru starfs-
menn verktakans við gerð
Borgarbrautar, Arnarfells,
sem vinna við þetta verkefni,
en það tengist legu vegarins.
Byrjað var á þessu verki í
fyrrasumar og möl þá tekin
upp úr farveginum sem notuð
var í undirbyggingu Borgar-
brautar, en nú fljótlega verður
hafist handa við að klæða árfar-
veginn.
Húsnæði Byggðastofnunar
Febrúarspá Veðurklúbbsins á Dalbæ
Lögmenn og fast-
eignasalar í húsið
BYGGÐASTOFNUN hefur tekið
kauptilboði frá Jóni Kr. Sólnes lög-
manni á Akureyri í húsnæði stofn-
unarinnar við Strandgötu á Akur-
eyi-i. Þrjú tilboð bárust í húseignina,
öll frá heimamönnum og voru þau
nokkuð svipuð.
Guðmundur Malmquist, forstjóri
Byggðastofnunar sagði að tilboð
Jóns Kr. Sólnes hafi verið metið
hagstæðast en hann kaupir húsið á
46 milljónir króna. Brunabótamat
eignarinnar er rúmar 78 milljónir
króna. Húsið er samtals um 680 fer-
metrar að stærð, tvær hæðir og ris.
Jón Kr. Sólnes rekur lögmanns-
stofu og fasteignasölu í Brekkugötu
á Akureyri ásamt fleirum. Hann
sagði stefnt að því að flytja starf-
semi þeirra á fyrstu hæðina í
Strandgötunni og þá jafnvel um
næstu mánaðamót. „Við höfum verið
að leita að húsnæði að undanfórnu
og vildum komast í húsnæði með
betra aðgengi, til að geta veitt betri
þjónustu," sagði Jón.
Aðrar stofnanir
áfram í húsinu
Byggðastofnun hefur hætt starf-
semi á Akureyri en starfsemin var á
fyrstu hæð hússins. Til viðbótar eru
átta stofnanir í húsinu og hafði
leigusamningi þeirra verið sagt upp.
Jón sagðist hins vegar gera ráð íýrir
því að önnur starfsemi í húsinu yrði
þar áfram. Stofnanirnar sem hér um
ræðir eru Meistarafélag bygginga-
manna Norðurlandi, Verðlagsstofa
skiptaverðs, Útvegsmannafélag
Norðurlands, Ferðamálaráð ís-
lands, Skrifstofa atvinnulífsins, Hér-
aðsnefnd Eyjafjarðar, Atvinnumála-
nefnd Akureyrar og Eyþing.
Leiðindatíð
framundan
DRAUMAR meðlima Veður-
klúbbsins á Dalbæ hafa verið með
þeim hætti undanfarnar nætur að
þeir sjá sér ekki annað fært en spá
leiðinlegri tíð með snjókomu og
umhleypingasömu veðri á næst-
unni.
Febrúartungl kviknar þriðjudag-
inn 16. febrúar og er það mál
manna að þriðjudagstungl séu ann-
að hvort mjög slæm eða mjög góð,
á þeim sé enginn millivegur. Þriðju-
daginn 16. ber að auki upp á
sprengidag, sem ekki eykur bjart-
sýni veðurklúbbsmanna. Þykir
þeim í febrúarspá sinni liklegast að
öskudagur verði leiðinlegur og sem
kunnugt er á hann sér 18 bræður.
Ekki sé því glæsilegt útlit hvað veð-
ur varðar eftir miðjan mánuð og
muni þá snjóa meira og verða
stormasamara en fyrrihluta mánað-
arins.
Þá telja þeir Dalbæingar að
hætta geti verið á snjóflóðum, sér-
staklega ef það fer eftir að snjó
kyngi niður í mánuðinum.
Spáðu snjóþungum
vetri
Strax í haust spáðu félagar í Veð-
urklúbbnum því að veturinn yrði
ekki góður, frekar snjóþungui’ og
rysjótt veður og telja þeir að sú spá
sé nú að ganga eftir. Að einhverju
leyti byggja þeir spá sína á því
hvernig veður hefur að jafnaði ver-
ið þau ár sem enda á 9, en nær und-
antekningarlaust hafa þá verið
snjóþungir og erfiðir vetur. Við það
bætast svo draumfarir félaga í
klúbbnum undanfarið.
Formaður húsfélagsins um íbúð sem var yfírfull af sorpi
Kröfur um lagfæringar
sendar eiganda íbúðarinnar
„ÉG TEL að við séum heilt yfir að
veita góða félagsþjónustu og því
þykir mér sorglegt ef þetta dæmi
verður notað sem mælikvarði á þá
þjónustu sem við erum að veita, það
er fráleitt að slíkt sé hægt,“ sagði
Oktavía Jóhannesdóttir formaður
félagsmálaráðs Akureyi’arbæjar, en
íbúð öryrkja sem býr í einni af íbúð-
um Öryrkjabandalags íslands á
Akureyri, reyndist yfirfull af sorpi.
Ættingjar komu til að taka til í íbúð-
inni eftir að konan hafði leitað sér
lækninga. Aðkoman var ófógur og
íbúðin mjög illa farin, teppi ónýt og
sníkjudýr á sveimi í skápum.
Svala Stefánsdóttir formaður hús-
félagsins sagði að íbúar og fulltrúar
Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar
hefðu tekið saman lista yfir þau verk
sem þyrfti að vinna í kjölfar þessa
atviks, en ýmislegt þyrfti að gera.
Myndu þeir snúa sér til Öryrkja-
bandalags Islands, eiganda íbúðar-
innar, með kröfur sínar. „Vissulega
hvarflar að manni hvort maður sé of
skeytingarlaus um náungann, við
höfum velt upp þeim spurningum,
en ég tel líka að einhver hlekkur í
kerfinu hafi brugðist en hver hann
nákvæmlega er skal ég ekki segja,“
sagði Svala.
Ekki haft sérstakt eftirlit
með öryrkjum
Kvartað hafði verið við Öryrkja-
bandalagið sem á íbúðina og félags-
málayfirvöld vegna óþefs úr íbúðinni
en ekki kom í ljós hvers kyns var
fýrr en nú byrjun í vikunnar.
„Okkar tengsl eru þau að við tök-
um niður biðlista í íbúðh- Öiyrkja-
bandalagsins, það er arfur frá Svæð-
isskrifstofu um málefni fatlaðra sem
við höfum sæst á að taka að okkur án
þess að til sé um það skriflegur
samningur. Við sjáum ekki um hús-
vörslu í þessum íbúðum, en höfum
milligöngu þurfi að lagfæra eitt-
hvað,“ sagði Oktavía Jóhannesdóttir.
Hún kvaðst ósátt við þá gagnrýni
sem fram hefði komið, að kerfið
hefði brugðist. „Fólk virðist halda
að sérstakt eftirlit sé haft með ör-
yrkjum, að þeir séu á öðru mann-
réttindaplani en aðrir og yfirvöld
hafi rétt til að fylgjast með að þeir
hafi allt sitt á hreinu. Við getum
ekki og megum ekki skipta okkur af
einkamálum fólks, nema það sé gert
í samkomulagi við viðkomandi.
Þetta á við um alla, hvort sem um er
að ræða öryrkja, svonefnda skjól-
stæðinga Félagsmálastofnunar eða
fólk almennt. Mér fmnst umræðan
síðustu daga snúast um að öryrkjar
séu flokkaðir sem hópur sem á og
þarf að hafa sérstakt eftirlit með
umfram annað fólk þar sem þeim sé
ekki treystandi til að lifa sínu lífi.
Atburður sem þessi hefði eins getað
átt sér stað í íbúð í einkaeigu," sagði
Oktavía.
Áleitnar spurningar
„Þegar eitthvað kemur upp sem
segir okkur frá alvarlegri einangrun
einstaklings hlýtur það að vekja
margar spurningar. Eg vænti þess
að fólk í félagsþjónustu, heilbrigðis-
kerfi og almennir borgarar spyrji
sig áleitinna spurninga í kjölfar
þessa máls. Það er eðlilegt þegar at-
vik sem þetta kemur upp að við öll
spyrjum sjálf okkur hvað við getum
af þessu lært,“ sagði Valgerður
Magnúsdóttir, félagsmálastjóri á
Akureyri.
íþrótta- og
tómstundaráð
Varað við
fljótræði
HUGMYNDIR um byggingu
verslunarmiðstöðvar á lóð
Akureyrarvallar voru ræddar
á fundi Iþrótta- og tómstunda-
ráðs Akureyrar nýlega en ráð-
inu hefur ekki borist formlegt
erindi þar um.
„Iþrótta- og tómstundaráð
mótmælir eindregið þeim hug-
myndum sem komið hafa upp
um breytingar á Akureyrar-
velli án þess að tryggt sé að
áður komi sambærileg eða
betri aðstaða en þar er,“ segir
í ályktun ráðsins og einnig
varar ráðið við fljótvirknisleg-
um ákvörðunum í þessu máli.
Á sama fundi ráðsins er
minnt á að Sanavöllurinn á
Akureyri var lagður af síðast-
liðið haust og Iþróttaskemman
verður lögð niður eftir 27
mánuði. Engin framtíðarlausn
hefur verið fundin vegna þess-
ara mannvirkja. Leggur ráðið
brýna áherslu á að farið verði
strax í vinnu vegna þeirra
vandamála sem skapast hafa
og munu skapast í framtíðinni
verði ekekrt að gert.
Rafveitustjóri
Rafveitu Akureyrar
Rafveitan
verði hluta-
félag
SVANBJÖRN Sigurðsson raf-
veitustjóri hefur lagt fram til-
lögu í stjórn veitustofnana um
að Rafveita Akureyrar verði
gerð að hlutafélagi eigi síðar
en á árinu 2000. Tillaga er
lögð fram vegna breytinga
sem iýrirsjáanlegar eru á
skipulagi raforkumála á ís-
landi,. til að gera fyrirtækið
hæft til að taka þátt í þeirri
samkeppni sem framundan er
á raforkumarkaðnum.
Tillöguna byggir rafveitu-
stjóri á þeirri umræðu sem
fram hefur farið í landinu á
undanfómum áram, þar sem
sýnt hefur verið fram á ótví-
ræða kosti þess rekstrarforms
fram yfir núverandi rekstrar-
form Rafveitu Akureyrar.
Einnig bendir rafveitustjóri á
reynslu annarra þjóða hvað
þetta varðar, en hún þykir
góð.
Miklar umræður urðu um
tillöguna, en frekari umræðu
og afgreiðslu frestað.
Skákþing- Akureyrar
• •
Onnur umferð
í kvöld
ÖNNUR umferð á Skákþingi
Akureyrar verður tefld í
kvöld, fimmtudagskvöldið 4.
febrúar, og hefst hún kl. 19.30.
Skákþingið hófst síðasta
sunnudag. Teflt er í skákheim-
ilinu við Þingvallastræti 18 á
Akureyri. Fischerklukku-
mót verður haldið í skákheim-
ilinu annað kvöld, fóstudags-
kvöldið 5. febrúar, kl. 20 og
hefst það kl. 20.
Rúnar Sigurpálsson og sveit
hans fór með sigur af hólmi í
sveitakeppni í atskák sem
fram fór nýlega, fékk 13 vinn-
inga af 18 mögulegum. Sveit
Gylfa Þórhallssonar fékk 9,5
vinninga og varð í öðru sæti,
sveit Hjörleifs Halldórssonar
lenti í þriðja sæti með 7 vinn-
inga og restina rak sveit for-
mannsins Sigurðar Eiríksson-
ar með 6,5 vinninga.