Morgunblaðið - 04.02.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 23
ÚR VERINU
Mikilvægt að komandi loðnuvertíð
fyrir frysta loðnu og hrogn heppnist vel
Stærð loðmmnar
ræður úrslitum
LOÐNUVINNSLAN á mikið undir því komið að loðnan, sem fer í
frystíngu verði stór, því þá fæst hæsta mögulega verðið.
GÓÐ flokkun loðnunnar skiptir höf-
uðmáli á komandi loðnuvertíð.
Japanskii- kaupendur hafa lítinn sem
engan áhuga á smáloðnu og verð fyrir
minnstu stærðarflokkana hefur lækk-
að mikið frá síðustu vertíð. Afkoma
framleiðenda hér á landi byggist því á
hvernig loðna kemur úr hafínu þegar
frystingin hefst á næstu vikum.
Þó að sjómenn hafí orðið varir við
mikið af loðnu út af Austfjörðum síð-
ustu vikur þá hafa margir áhyggjur
af því að stóra loðnan hafí enn ekki
skilað sér inn í veiðina. Af þeirri
loðnu sem skipin hafa borið á land að
undanfórnu, bendir flest til þess að
hún fari í stærðarflokkinn 60 stk. eða
meira í kílói.
A síðustu vertíð var mun minna
framleitt af stærstu og verðmætustu
Japansloðnunni en á vertíðinni 1997.
I fyrra flokkuðust um 60% fram-
leiðslunnar í stærðarflokkinn 60 stk.
eða meira í kílói. A móti kom að fyr-
ir vertíðina í fyrra varð um 20%
verðhækkun á Japansloðnunni,
einkum vegna skorts á loðnu þar í
landi. Reyndar var verðhækkunin
mismunandi eftir stærðarflokkum
en áætla má að þá hafí fengist í
kringum 60 krónur fyrir kílóið að
meðaltali.
Ekkert fryst á Rússlandsmarkað
A síðustu vertíð flutti Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna hf. út um 10 þús-
und tonn af frystri loðnu til Japans
en um 14 þúsund tonn á vertíðinni
árið 1997. Þá voru einnig fryst um
12 þúsund tonn fyrir Rússlands-
markað í fyrra. Islenskar sjávaraf-
urðir seldu um 8 þúsund tonn af
frystri loðnu til Japans í fyrra sem
var nokkru meira en á vertíðinni
1997 þegar fryst voru um 5.800 tonn
hjá framleiðendum ÍS. Rúm 20 þús-
und tonn af loðnu voru fryst hjá IS
fyrir Rússlandsmarkað á síðasta ári.
Úmboðs- og heildverslunin Nes hf.
seldi um 900 tonn af Japansloðnu í
fyrra. Samtals voru því aðeins fryst
tæp 20 þúsund tonn af loðnu fyrir
Japansmarkað á síðustu vertíð.
Framleiðslan olli nokkrum von-
brigðum þar sem áætlað var að
hægt yrði að selja allt að 30 þúsund
tonn til Japan. Áætluð verðmæti
Japansloðnunnar í fyrra var 1,1
milljarður króna.
Mikilvægt að framleiða
í stærstu flokkana
Pétur ísleifsson, deildarstjóri hjá
Islenskum sjávarafurðum, segist
vongóður um að takist að framleiða
mikið fyrir Japan og ílokkun verði
góð. Mikilvægt sé að framleiða sem
mest í stærðarflokkunum 50-55
stk./kg og 56-60 stk./kg. „Á síðustu
vertíð náðist ekki að framleiða
nema sáralítið í þessa flokka. Eg
hef haldið því fram að stóra loðnan
hafi verið veidd á sumrin og þá fáist
ekki eins góð loðna á vetrarvertíð-
inni, líkt og gerðist í fyrra. Síðast-
liðið sumar var veitt mun minna en
oft áður og því hlýt ég að telja að
stóra loðnan eigi eftir að láta sjá
sig, þó enn sé fátt sem bendir til
þess,“ segir Pétur.
Pétur segir loðnuveiðar Norð-
manna og Kanadamanna ekki þurfa
að hafa mikil áhrif á markaðsstöðu
íslendinga í Japan. „Vertíðin hér
heima er á undan þeirra og því tel ég
að við ættum að geta selt eins mikið
til Japans og við getum framleitt. Ef
við framleiðum ekki nóg þá leita Jap-
anir annað til að fullnægja eftir-
spum. Þar fyrir utan hafa bæði hrá-
efnis- og bragðgæði verið hvað mest
hjá okkur og þess vegna vilja Japan-
ir fá sem mest frá Islandi," segir
Pétur.
Aukin samkeppni frá
Noregi og Kanada
Steindór Gunnarsson, markaðs-
stjóri hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, segir það skipta sköpum fyrir
framleiðendur, og reyndar þjóðarbú-
ið allt, að loðnuvertíðin heppnist vel.
„Það em aðrar þjóðir að banka á
dyrnar hjá Japönum, svo sem Norð-
menn og Kanadamenn. Ef við höld-
um ekki okkar hlut þá missum við
hreinlega af lestinni.“
Steindór segir loðnuveiðar Norð-
manna enn sem komið er óskrifað
blað, en ljóst sé að þeir geti framleitt
sambærilega loðnu við þá sem ís-
lendingar framleiða. Kanadaloðnan
hafí það fram yfír þá íslensku að hún
er tiltölulega stærri, þó stærsti hluti
hennar á vertíðinni í sumar hafí farið
í stærðai'flokkinn 50-60 stk./kg.
„Það er einmitt sá stærðarflokkur
sem við þurfum að framleiða sem
mest af á komandi vertíð. Reyndar
var hluti Kanadaloðnunnar ekki
nógu góður og Japanir eru ekki sér-
lega ánægðir með hana.“
Eins og greint hefur verið frá hef-
ur SH samið við Japani um verð á
loðnu á komandi vertíð. Ljóst er að
verð mun lækka talsvert frá síðustu
vertíð í yenum talið, einkum á
smæstu loðnunni. Steindór segir að
rekja megi verðlækkanirnar til efna-
hagsástandsins í Japan. „Japanir
bregðast mjög skjótt við fjárhags-
vanda ríkisins og fólk sem er að
spara kaupir ódýra vöru. Þeir sem
hafa unnið matvörur úr íslensku
loðnunni koma illa undan síðustu
vertíð, því hráefnið vai’ léleg smá-
loðna og samkeppnin er mikil á
markaðnum. Það var því ekki mikill
möguleiki á sveigjanleika í verðá-
kvörðunum,“ segir Steindór.
Stóra loðnan gæti Iátið sjá sig
Steindór segir ljóst að flokkist
loðnan jafn illa og á síðustu vertíð
verði mun minna framleitt hér á
landi. Japanskir kaupendur vilji ekki
smáloðnu, enda séu til nógar birgðir
af henni í Japan. Auk þess sé fryst-
ingin ekki spennandi kostur fyrir
framleiðendur á íslandi þar sem
verð á smáloðnunni sé tiltölulega
lágt. ,Afkoma framleiðenda byggist
á því hvaða stærð kemur upp úr
sjónum þegar vertíðin hefst. Þeir
þurfa hins vegar ekki að örvænta þó
loðnan sem veiðst hefur síðustu vik-
ur sé smá. Loðnan er oft smá á fyrri-
hluta vertíðarinnar en síðan gengur
stærri loðnan saman við. Það reynd-
ar brást í fyrra og þá telja menn að
stóra loðnan hafi farið dýpra en
komið upp í Breiðafírði rétt undir
hrygningu," segir Steindór.
OKKAR MARKMIÐ ER AÐ ÞU NAIR ÞINU
Það krefst sérstakrar þekkingar og taekni að búa til þægilegan en jafnframt kraftmikinn fjölskyldubíl.
Við nýtum reynslu okkar úr kappaksturskeppnum viða um heim til að gera spræka og kraftmikla
vél, þjált gírakerfi og sportlega fjöðrun. Við nýtum áratugalangt þróunarstarf okkar færustu
vísindamanna til að tryggja hámarks öryggi ökumanns og farþega. Við nýtum rannsóknir NASA á
líkamsstuðningi og plássþörf við hönnun innra rýmis til
að ná hámarksþægindum og nýtingu.
Takmark okkar er að búa til bil sem þjónar þér betur.
Prófaðu Honda Civic - og þú finnur um leið að okkur hefur tekist það býsna vel.
Frá 1.459.000 kr.
- hér eru gæði á ferðinni
Honda i íslandi • Vatnagörðum 24 • Sími 520 1100
Opið virka daga kl.9-18 og kl. 12-16 á laugardögum