Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 04.02.1999, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Nýr minnisvarði um Kólumbus Reuters RÁÐGERT er að reisa rninnis- varða, sem verður tileinkaður Kristófer Kólumbus, í Puerto Rico fyrir Kólumbusardaginn 12. október á aldamótaárinu. Rússneski arkitektinn Zurab Tsereteli sýnir hér teikningu af minnisvarðanum, sem nefnist „Fæðing Nýja heimsins" þegar hann var kynntur á blaðamannafundi í New York í gær. Líkur aukast á að George Bush yngri bjóði sig fram í forvali repúblikana Kveðst afar áhugasamur um starfíð Washington, Los Angeles. Reuters. GEORGE W. Bush, ríkisstjóri í Texas og sonur fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, sagði í gær ekkert grafið í fortíð sinni sem gæti skaðað forseta- framboð hans, ákveði hann að skella sér í slaginn. Skaut Bush sér hins vegar undan því að svara spumingum um hvort hann hefði ein- hvern tíma notað eitur- lyf. Bush hefur ekki til- kynnt hvort hann hygg- ist bjóða sig fram í for- vali Repúblikanaflokks- ins vegna kosninganna á næsta ári en sagðist þó hafa „mikinn áhuga“ á þvi í samtali við sjón- varpsfréttastöðina CNN. Var haft eftir George George Bush yngri Bush eldri, forseta Bandaríkjanna 1989-1993, í franska dagblaðinu Le Figaro í fyrradag, að hann teldi að sonur sinn myndi líklega bjóða sig fram. Sagðist Bush eldri reyndar skilja ósköp vel ef sonur sinn færi ekki fram, enda myndi fjölskylda hans án efa þurfa að þola mjög aukna ágengni fjölmiðla. „En hann er heiðarlegur og sterkur persónu- leiki. Eg held að góðar líkur séu á þvi að hann fari fram.“ Viðurkenndi Bush yngri í viðtal- inu á CNN að hann hefði hætt að drekka áfengi vegna þess að „áfengi tók að rýra þrek mitt mjög“. Sagðist Bush þó aldrei hafa verið áfengis- sjúkur. Er Bush var spurður hvort hann hefði einhvern tíma notað eit- urlyf sagðist hann ekki ætla að ræða um neitt sem hann hefði gert þegar hann var unglingur. „Það sem skiptir máli er að ég hef lært af mistökum mínum. Eg ætla ekki að senda þau skilaboð til fólks að spennandi sé að prófa eitthvað sem Bush rík- isstjóri gerði fyrir þrjá- tíu áram.“ Bæði Dole og Bush ynnu Gore Bæði Elizabeth Dole og George Bush yngri, sem búist er við að muni sækjast eftir til- efningu Repúblikana- fiokksins í bandarísku forsetakosningunum árið 2000, myndu bera sigurorð af demókratanum og varaforsetanum A1 Gore ef gengið yrði til kosninga nú. Þetta er niðurstaða skoðana- könnunar sem birt var í Los Angel- es Times á mánudag. Um 2.000 manns voru spurð hvern þau vildu helst í framboð fyrir flokkana og hvern þau myndu kjósa. Flestir demókratar reyndust styðja Gore en repúblikanar skiptust nokk- uð jafnt á milli Bush og Dole. Niður- staðan varð sú að væri Bush í fram- boði gegn Gore myndu 57% kjósa Bush en sá síðarnefndi fengi 39%. Stæði valið á milli Dole og Gore, myndi hún vinna varaforsetann með 50% gegn 42% atkvæða. Yfírheyrslum öldungadeildar yfír þremur vitnum lokið Endurtóku fyrri framburð sinn SAKSOKNARAR fulltrúadeildar Bandaríkjaþings yfirheyrðu í gær Sidney Blumenthal, vin og ráðgjafa Bills Clintons Bandaríkjaforseta, en hann er þriðja og síðasta vitni þeirra í málarekstrinum yfir Clint- on. Öldungadeildarþingmenn hafa nú horft á upptökur af yfirheyrslun- um yfir hinum vitnunum tveimur, Monicu Lewinsky og Vemon Jord- an, og rökræddu í gær hvort kalla ætti vitnin fyrir öldungadeildina sjálfa. Þingið mun koma saman á nýjan leik í dag, fimmtudag, og skýrist þá hver afstaða þeirra er hvað þetta varðar. Var þó talið ósennilegt í gær að nægum fjölda þingmanna fyndist nauðsynlegt að kalla vitnin fyrir enda mun lítið hafa komið fram við yfirheyrslur sem ekld var vitað fyrir. Lögfræðingurinn Vernon Jordan, sem er einkavinur Clintons og aðstoðaði Lewin- sky í atvinnuleit skömmu áður en samband forsetans við hana komst í hámæli fyrir rúmu ári, mun hafa bitið veru- lega frá sér í yfirheyrslum á þriðjudag. Sitthvað smávægi- legt nýtt mun hafa komið á daginn í yfirheyrslunni en heimildarmenn, sem séð hafa upptökur af vitnisburði Jor- dans, sögðu engar „sprengj- ur“ hafa fallið, ekki frekar en í vitnisburði Lewinsky á mánu- dag. Munu lögmenn Clintons enda ekki hafa séð ástæðu til að spyrja Lewinsky neinna spurn- inga og spurðu Jordan einungis nokkurra almennra spurninga sem þykir vísbending um að ekkert nýtt hafi komið fram, sem þeim hafi fundist þeir verða að hrekja. Repúblikananum Asa Hutchin- son, sem yfirheyrði Jordan, þykir engu að síður hafa tekist nokkuð vel upp. Einbeitti hann sér að því ósam- ræmi sem var á fyrri yfirlýsingum Jordans og Lewinskys en þetta var í fyrsta skipti sem Jordan er yfir- heyrður eftir að Lewinsky ákvað að hefja samvinnu við Kenneth Stara í rannsókn hans á málum forsetans. Viðurkenndi Jordan nú að hafa borðað morgunverð með Lewinsky á gamlársdag 1997 en því hafði hann staðfastlega neitað er hann gaf vitnisburð fyrir rannsóknar- kviðdómi í mars á síðasta ári. Neit- aði Jordan hins vegar algerlega að hann hefði sagt Lewinsky að eyða öllum eintökum af orðsendingu sem hún hugðist senda Clinton, og sem sannað hefði, svo ekki varð um villst, að þau höfðu átt í ástarsam- bandi. Byrsti sig og varði mannorð sitt Yfirheyrslan yfir Jordan tók þrjár klukkustundir og reyndist hann saksóknurum alls ekki eftir- gefanlegt vitni. Byrsti hann sig yfir nokkrum spurningum Asa Hutchinsons, varði mannorð sitt af hörku og kvaðst engan glæp hafa framið. I raun er Jordan lykilvitni í málinu því saksóknarar halda því Lítið nýtt virðist hafa komið fram í yfír- heyrslum yfír Monicu Lewinsky og Vernon Jordan í málarekstrin- um á hendur Bill Clint- on Bandaríkjaforseta, segir Davíð Logi Sig- urðsson. Er nú enn deilt um framhald mála í öldungadeildinni. Monica Lewinsky Vernon Jordan fram að aðstoð hans við Lewinsky, er hún var í atvinnuleit, hafi verið bein tilraun, runnin undan rifjum forsetans, til að halda henni ánægðri rétt í þann mund sem hún iét frá sér vottaða yfirlýsingu um að hún hefði aldrei átt í ástarsam- bandi við Clinton. Fyrir rannsóknarkviðdómi 5. mars á síðasta ári sagðist Jordan ekki hafa borðað morgunverð með Lewinsky á gamlársdag 1997 en fimm mánuðum síðar, þegar Lewin- sky hafði hafið samvinnu við Kenn- eth Stara, staðfesti hún að þessi fundur hefði átt sér stað. Þegar sak- sóknarar sýndu Jordan á þriðjudag kreditkortakvittanir sem sýndu að þessi fundur átti sér sannarlega stað sagðist hann ekki hafa munað þennan fund, er hann var spurður í mars, en að hann hefði rifjast upp fyrir honum seinna. Jordan hélt hins vegar áfram að neita því að hann hefði beðið Lewin- sky um að eyða minnismiðum sem hún hafði ritað til Clintons. „Ég er lögfræðingur en ég er ekkert fífl,“ sagði Jordan. „Ég myndi aldrei ráð- leggja henni neitt slíkt.“ Lewinsky hefur „blendnar tilfinningar“ til Clint.ons Öldungadeildarþingmenn ræddu í gær og fyraadag ákaft um það hvort kalla ætti Lewinsky til að bera vitni í eigin persónu fyrir öld- ungadeildinni en þótt margir þeiraa hafi sagt, eftir að þeir höfðu horft á upptökur af yfirheyrslunni yfir Lewinsky, að hún hafi verið afar gott vitni virtist sem flestir þeirra væru sammála um að ekkert nýtt hefði komið fram við yfirheyrslurn- ar og að ólíklegt væri að hún yrði kölluð fyrir öldungadeildina. Lýstu margir þingmanna yfir undrun sinni á því hversu Lewinsky virtist vel gefin og trúverðug. „En á þessu stigi málsins," sagði repúblikaninn James M. Jeffords, „sé ég ekki ástæðu til að kalla hana fyrir.“ Kvað hann Lewinsky einfald- lega hafa endurtekið vitnisburð sem þegar lægi fyrir. Orrin Hatch, þing- maður repúblikana frá Utah, sagði bandarískan almenning hins vegar hafa rétt á því að sjá vitnisburð Lewinskys til að móta afstöðu sína til forsetans, og þvi hvort svipta beri hann embætti. Talsmenn Hvíta hússins sögðust hins vegar ekki sjá þörfina á því að vitnisburði hennar, eða ann- arra, yrði „skellt framan í al- menning". Greindi öldungadeildar- þingmaðurinn Laray Craig frá því í þættinum Good Morning America á ABC- sjónvarpsstöðinni í gær að Lewinsky hefði á mánudag sagst hafa „blendnar tilfinn- ingar“ til Bills Clintons Bandaríkjaforseta, en Craig horfði á upptökur af yfir- heyrslunni yfir Lewinsky í fyraadag. „Það er augljóst að hér var kona sem einu sinni bar afar sterkar tilfinningar í brjósti til forsetans,“ sagði Craig, en hann er þingmaður Repúblikanaflokksins fyrir Idaho- ríki. Sagði hann afsökunarbeiðni lögmanna Clintons til Lewinsky hafa verið heldur lágkúrulega. Eft- ir að hún hafði verið lesin upp „gretti Lewinsky sig, horfði í gaupnir sér, undrandi og þreytt," sagði Craig. Áttu aldrei von á „sprengjum“ Repúblikaninn Henry Hyde, sem fer fyrir saksóknurum fulltrúa- deildarinnar, sagðist í fyrrakvöld aldrei hafa átt von á því að „sprengjur" féllu í þessum vitna- leiðslum. „Yið vorum aldrei á þeirri skoðun að við þyrftum á slíku að halda til að færa sönnur á mál okk- ar. Það sem við þurftum var að staðfesta þær staðreyndir, sem þegar liggja fyrir í eiðsvörnum yfir- lýsingum, að Clinton framdi mein- særi og reyndi að hindra framgang réttvísinnar. Og okkur er að takast þetta.“ Hvað sem því líður lætur enginn sér detta í hug að Clinton verði vís- að úr embætti. Ræða þingmenn nú sín á milli hvernig þeir geta lokið réttarhöldunum fljótt og vel. Deila repúblikanar um það sín á milli hvort semja eigi langa og afar ná- kvæma yfirlýsingu um það hvað Clinton hefði gert rangt eða hvort semja eigi styttri yfirlýsingu, sem sumir demóki-atar gætu stutt þar sem hegðun forsetans væri átalin en látið þar við sitja. . ™sIlÉf Seljum í nokkra daga lítið útlitsgölluð hásgögn með allt að 50% afslætti Opið: virka daga kl. 12-18 lau. 6/2 kl. 11-16 sun. 7/2 kl. 13-17 Mörkinni 3 sími 588 0640 fax 588 0641 casa@islandia.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.