Morgunblaðið - 04.02.1999, Page 68

Morgunblaðið - 04.02.1999, Page 68
68 FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Julia Gold hjá Islenska dansflokknum MYNDBÖND Morgunblaðið/Ásdís GUÐMUNDUR Helgason, Katrín Ingvadóttir, Katrín Johnson, Julia Gold og Chad Adam Bantner eru á meðal dansara á frumsýningunni á fóstudag. ÞETTA er svolítið spennandi og öðruvísi verk,“ segir dans- arinn Julia Gold um verkið Dýfmgar eða „Diving“ eftir Rui Horta sem frumsýnt verður á fóstu- 'ílag í Borgarleikhúsinu ásamt verki hans Flat Space Moving og verki Hlífar Svavarsdóttur Kæra Lóló. „Rui Horta sá til dansflokksins á Expo-sýningunni í Portúgal í sumar og fengum við verk eftir hann til uppsetningar," segir Julia. „Dýf- ingadansinn eftir Horta er óhefðbundinn og óvenjulegur. Hann er samofínn leiklist og er ekki para- dans. I verkinu stendur maður á dýfingabretti og talar látlaust með- an á flutningnum stendur. Horta sagði okkur að þessa manngerð væri að finna í New York, mann sem gefur sig á tal við alla, en þykir ekki trúverðugur og fær enga áheyrn." Dansararnir eru dýfingafólk á sundbolum að gera æfingar og sinna hugðarefnum sínum og gefur það hinum málgefna sérvitringi engan gaum. Hann er aftur á móti fullur efasemda og má segja að hann þori ekki að taka stökkið til fulls. „Við notum vatn í dansinum," segir Julia. „Pað kemur vatn að of- an eins og úr sturtu og við dönsum í vatninu. Þetta er mjög sjónrænt. Og maðurinn á brettinu talar um ailt sem kemur upp í hugann en ræðan er þó bundin við vatn. Hann segir til dæmis: „Eg vildi óska að ég væri fiskur." Juiia hefur verið fimm ár í ís- lenska dansflokknum. Hún er rúss- nesk og byrjaði að dansa 10 ára hjá Bolshoi-leikhúsinu í Moskvu. „Eg flutti til Isiands þegar ég var átján ára,“ segir hún. „Mamma kom hingað á undan mér til að kenna í /Listdansskóla íslands. Þegar ég Ég vildi óska að ég væri fískur heimsótti hana bauðst mér að fara í prufu og eftir það fékk ég vinnu hérna. Eg var rétt að klára skólann í Hollandi þar sem mamma fór að kenna eftir að við fluttumst frá Rússlandi." Að sögn Juliu hefur hún eignast marga vini hérlendis og segist hún hafa gaman bæði af landi og þjóð. Nýlega sótti hún um íslenskan rík- isborgararétt. „Islenski dansflokk- urinn er einn af þeim bestu,“ heldur hún áfram. „Það sem er skemmti- legt við flokkinn er að hann flytur verk eftir marga danshöfunda. Er- lendis flytja flestir dansflokkar verk eftir sömu höfundana árum saman. Hér er alltaf eitthvað nýtt og krefj- andi í boði.“ Julia segist hafa farið einu sinni áður í Sundhöll Reykjavíkur þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. „Hinir dansararnir höfðu ekki farið síðan í skólasundi," bætir hún við og hlær. „Við fórum á eftir í heita pottinn og það var mjög gott að nota tækifærið og slaka á.“ Er góður a ndi í danshópnum ? „Já, það er mjög góður andi. Við hittumst við ýmis tækifæri, fórum út á lífið, á kaffihús og líka út að dansa.“ Hvernig dansið þið? „Bara diskó,“ svarar hún og hlær. „Okkur iangar að minnsta kosti ekki tii að dansa eins og dans- höfundar segja okkur að dansa.“ Heimskur, en saklaus Ranglega ásakaður (Wrongfully Accused)_ Farsi/paródfa ★ Framleiðsla, leikstjórn og handrit: Pat Proft. Kvikmyndataka: Glen MacPhearson. Tónlist: Bill Conti. Aðalhlutverk: Leslie Nielsen. 90 mín. Bandarísk. Sam-myndbönd, janúar 1999. Ölluin leyfð. MYNDIR með Leslie Nielsen eru að ná því marki að vera kvikmyndateg- und út af fyrir sig. Ættir tegundar- innar ætti þó frekar að rekja til Zucker-Abra- hams-Zucker gengisins sem stóð að ,Airplane“ myndunum og mörgum öðrum í sama anda, m.a. meistaraverkinu „Top Secret“. Venjulega er tekin fyrir ákveðin gerð kvikmynda og gert grín að henni með gríðarlegum ýkjum og vitleysisgangi. Hér eru myndir um saklausa menn á flótta undan „réttvísinni" í brenni- punkti, og einn helsti galli myndar- innar felst í rýrum efniviði til afbök- unar í þeirri grein. Myndir Nielsens eru margar og því æði misjafnar að gæðum. Lætur nærri að þessi sé á botni bunkans. Það þarf einstaka jákvæðni til að ná fram svo miklu sem brosgrettu, hvað þá hlátursrok- um, nema í einstaka tilfellum. Fyrir þau fær myndin eina stjörnu, sem er ef til vill er ofrausn. Guðmundur Ásgeirsson Margur er knár Madeline (Madeline) Fjölskyldumynd ★ ★V2 Framleiðandi: Saul Cooper, Pancho Kohner og Allyn Stewart. Leikstjóri: Daisy Von Scherler Mayer. Handrits- höfundar: Mark Levin og Jennifer Flackett. Kvikmyndataka: Pierre Aim. Aðalhlutverk: Frances McDorm- and, Nigel Hawthorne og Hatty Jo- nes. (92 mm.) Bandarísk. Skífan, janúar 1999. Myndin er öllum leyfð. KVIKMYNDIN um Madeline er byggð á barnabókum eftir Ludwig Bemelmans er lýsa prakkarastrikum rauðhærðrar telpuhnátu sem er ein af tólf stúlkum sem sækja lítinn heimavistarskóla í París. Madeline er áræðin að eðlisfari og er að gera for- stöðukonuna, frö- ken Clavel, grá- hærða með upp- átækjum sínum. En þegar eigandi skólans hyggst selja bygginguna og gera stúlkurnar brottrækar, fer Madeline af stað með ráðabrugg sem kemur að góðum notum. Madeline er vel gerð og skemmti- leg fjölskyldumynd. Þar er leitast við að endurskapa andrúmsloft Madeline-bókanna, sem ritaðar voru eftir seinna stríð og skreyttar stílfærðum myndum eftir höfundinn sjálfan. 011 umgjörð kvikmyndarinnar er skemmtileg, auk þess sem hún skartar úi-valsleikurum á borð við Nigel Hawthorne sem leikur eigand- ann harðbrjósta og óskarsverðlauna- leikkonuna Frances MacDonnand (Fargo). Hin unga leikkona Hatty Jo- nes er lífleg og krúttleg í hlutverki Madeline litlu, og aðrir leikarar skapa lifandi persónur. Madeline er ágæt barnamynd sem hefur sígilt yfir- bragð, bæði hvað varðar útlit og um- fjöllunarefni. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.