Morgunblaðið - 27.02.1999, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar
fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á l'slandi sem er í
upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar
Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt
í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1.
Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913.
Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins.
Trillukarlar
gera klárt
TRILLUKARLAR á Akureyri
bíða þess í ofvæni að komast í
tæri við þann gula. Bjarki Arn-
grímsson, sem gerir út Svöluna
EA, sagði að þeir sem reru með
línu færu af stað í næsta mánuði
en handfærakarlamir ekki fyrr
en í aprfl. Bjarki stundar hand-
færðaveiðar og notar tímann til
að gera trillu sína klára áður en
hann setur á flot. Hann sagði
það skipta miklu máli að loðna
kæmi í Eyjaljörðinn, því þorsk-
urinn fylgdi henni.
Bjarki t.h. og Hallgrímur
Gíslason voru að líta í kringum
sig á nýju flotbryggjunni í Sand-
gerðisbót er ljósmyndari Morg-
unblaðsins var þar á ferð. Þeir
félagar voru sammála um að al-
menn ánægja væri með þessa
nýju bryggju.
Kirkjustarf
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í safnaðarheimilinu kl.
11 á morgun. Guðsþjónusta kl.
14, sr. Birgir Snæbjörnsson
messar. Guðþjónusta á Seli kl. 14
og á Hlíð kl. 16. Fundur Æsku-
lýðsfélagsins verður kl. 17 á
sunnudag. Biblíulestur í safnað-
arheimili kl. 20.30 á mánudags-
kvöld í umsjá sr. Guðmundar
Guðmundssonar. Mömmumorg-
unn í safnaðarheimili kl. 10 til 12
á miðvikudag, frjálst, kaffi og
spjall. Föstuguðsþjónusta kl.
20.30 á miðvikudagskvöld.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í há-
deginu á fimmtudag kl. 12 og
hefst hún með orgelleik.
GLERÁRKIRKJA: Barna-
samvera verður í kirkjunni kl. 11
á morgun, foreldrar eru hvattir
til að mæta með börnunum.
Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18.10 á þriðjudag. Hádegissam-
vera frá kl. 12 til 13 á miðviku-
dag. Fjölskyldumorgunn frá kl.
10 til 12 á fimmtudag, Dýrleif
Skjóldal ræðir um ungbarna-
nudd.
HJÁLPRÆÐISHERINN:
Sunnudagaskóli kl. 11 á morgun,
fjölskyldusamkoina með þátttöku
barna kl. 17 og unglingasamkoma
kl. 20 um kvöldið. Heimilasam-
band kl. 15 á mánudag, krakka-
klúbbur fyrir 6-10 ára kl. 17 á
miðvikudag, 11 plús mínus fyrir
10 til 12 ára á föstudag kl. 17 og
flóamarkaður frá kl. 10 til 17 á
föstudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Bænastund kl. 20 í kvöld, laugar-
dagskvöld. Sunnudagaskóli fjöl-
skyldunnar kl. 11.30 á morgun,
Biblíukennsla fyrir alla aldurs-
hópa, Jóhann Pálsson predikar,
léttur hádegisverður á vægu
verði kl. 12.30. Vakningasam-
koma sama dag kl. 16.30, Stella
Sverrisdóttir predikar, fjöl-
breyttur söngur, fyrirbæn,
barnapössun fyrir börn yngri en
6 ára. Vonarlínan, sími 462-1210,
símsvari allan sólarhringinn með
uppörvunarorð úr ritningunni.
KFUM og K: Almenn sam-
koma kl. 17 á morgun, ræðumað-
ur er Christian Bastke. Fundur í
yngri deild fyrir drengi og stúlk-
ur 8-12 ára kl. 17.30 á mánudag.
------*-*-«►---
Brynjuísmótið
BRYNJUÍSMÓTIÐ í íshokkíi
1999 verður haldið á skautasvell-
inu á Akureyri um helgina. Það
hefst í dag, laugardag, kl. 9 og er
keppt til kl. 14, en þá verður gert
hlé til 16.30 þegar mótið hefst að
nýju og stendur til 21.30.
Á sunnudag verður byrjað kl. 9
og búist við að mótinu ljúki um kl.
14.
Morgunblaðið/Kristján
Qpið hús hjá Hafró og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Unnið að
fjölbreyttum
verkefnum
ÚTIBÚ Rannsóknastofnunar físk-
iðnaðarins, Rf og Hafrannsókna-
stofnunai- á Akureyri verða með opið
hús í dag, laugardaginn 27. febrúar,
frá kl. 13 til 18 þar sem starfsemi
stofnananna verður kynnt, sýning
verður á sjávarlífverum, kynnt verða
verkefni sem unnið er að og forstjór-
ar og starfsmenn flytja fyrirlestra.
Stofnanirnar eru til húsa á Glerár-
götu 36.
Hafrannsóknastofnun hóf starf-
semi á Akureyri árið 1991, en útibú
frá stofnuninni eru á fimm stöðum á
landinu. Starfsmenn eru fjórir og
hafa þeir sinnt ýmsum rannsóknum
á Eyjafirði, m.a. umfangsmiklum
rannsóknum á vistfræði fjarðarins
auk rannsókna á samspili ígulkera
og þai-a auk ýmissa annarra verk-
efna. Nýlega hófust rannsóknir á
hi-ygningu þorsks í firðinum og úti
fyrir Norðurlandi. Þá taka starfs-
menn þátt í rannsóknaverkefnum í
samvinnu við starfsmenn í höfuð-
stöðvunum. Rannsóknabáturinn
Einar í Nesi er gerður út frá Akur-
eyri. Sérfræðingar Hafró á Akureyri
sinna kennslu í sínum fræðum við
Sjávarútvegsdeild Háskólans á
Ákureyri.
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
hefur starfrækt útibú á Akureyri frá
árinu 1979. Lögð er áhersla á að
veita góða þjónustu á sviði örveru-
og efnamælinga og er örveirurann-
sóknastofan á Akureyri allvel búin
og fær um að taka að sér fjölbreytt
verkefni.
Með tilkomu Háskólans á Akur-
eyri efldist Rf á Akureyri verulega
og getur nú sinnt rannsóknum í
auknum mæli til viðbótar þjónust-
unni. Þríi- sérfræðingar við útibúið
sinna kennslu við sjávarútvegsdeild
og sinna að auki rannsóknum. Sam-
starf Rf og háskólans leiddi m.a. til
stofnunar matvælaframleiðslubraut-
ar við sjávarútvegsdeild þar sem
boðið er upp á fjögurra ára nám í
Húsnæðissamvinnufélagið
BÚMENN
auglýsir eftir umsóknum félagsmanna um íbúðir sem
félagið hyggst byggja á Eyrarlandsholti á Akureyri.
Umsóknareyðublöð liggia frammi á skrífstofum Búmanna
hst, Hverfisgötu 103, Reykjavík og Búseta hsf., Skipagötu
14, Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 10. mars 1999.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum 552 5644
(Búmenn) og 462 6899 (Búseti).
Búmenn hsf., Eyjafjarðardeild.
vantar í efri hluta Giljahverfis á Akureyri.
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn.
Góður göngutúr sem borgar sig.
k Morgunblaðið,
Jr Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461-1600
Morgunblaðið/Kristján
STARFSFÓLK Hafrannsóknastofnunar og Rannsdknastofnunar fiskiðn-
aðarins á Akureyri, frá vinstri, Jenný Dögg Björgvinsdóttir, Erlendur
Bogason, Jóhann Örlygsson, Hreiðar Valtýsson, Steingrúnur Jónsson,
Rannveig Björnsdóttir og Axel Eyfjörð, en á myndina vantar Grún Ólafs-
son, Svanhildi Gunnarsddttir, Maríu Pétursdóttur og Þrúði Gísladóttur.
greinum tengdum matvælum og
rekstri.
Meðal rannsóknaverkefna má
nefna Evrópuverkefni sem hefur að
markmiði að kanna hvort hægt er að
auka stöðugleika í gæðum fiskafurða
með því að nota Maillardefni og verð-
ur reynt að svara því hvort litarefnin
sem myndast geti haft vaxtarhindr-
andi áhrif á bakteríur. Brúni liturinn
á bjór og brúnuðum kartöflum stafar
af flóknum efnahvörfum sem verða
þegar prótein og amínósýrur
hvarfast við sykrur, sama skýring er
á brúna litnum sem færist yfir brauð-
sneiðar þegar þær eru ristaðar. Þessi
brúnu litarefni og nýju bragðefnin
sem myndast við hitun ganga undir
samheitinu Maillardefni.
Þá má nefna tvö verkefni sem snúa
að geymsluþolstilraunum á fiski og
fiskafurðum sem eru að hefjast og
fyrir rúmu ári hófst þriggja ára verk-
efni um örveiruflóru lúðuseiða í start-
fóðrun, en markmið þess er að kort-
leggja og fylgjast með breytingum
sem þar verða, þar sem eldi iúðu-
seiða er þeim annmörkum háð að
fóðra þarf seiðin með lifandi fóðri,
dýrasvifi. Þeim fylgir mikill fjöldi ör-
veira sem líkur benda til að hafi víð-
tæk áhrif á afkomu seiðanna.
Blaðbera