Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
• • *
Varaformanni OBI fínnst hækkunin á grunnlffeyrinum of lftil
Stór hluti hækkunar-
innar fer í skatta
AÐ sögn Garðars Sverrissonar,
yaraformanns Öryrkjabandalags
Islands, er hækkunin á grunnlíf-
eyri almannatrygginga, sem til-
kynnt var af ríkisstjórninni í gær,
ekki eins mikil og hann hafði gert
sér vonir um. Hann sagði að þótt
um 7% hækkun væri að ræða þá
væri það ekki nema um 1.100 krón-
ur og að stór hluti af þeirri upp-
hæð færi í skatta, einkum hjá eldri
borgurum.
„Það þætti nú ekki góð latína á
venjulegum vinnustað ef maður
slæi fram svona brúttótölu eins og
ríkisstjórnin er að gera, tæki bara
krónutöluna og margfaldaði hana
með hausatölu og tæki hvorki tillit
til tekjutenginga né beinna og
óbeinna skatta,“ sagði Garðar.
Garðar sagði það vera út í bláinn
að halda því fram að þessi hækkun
kosti ríkissjóð um 520 milljónir því
verulegur hluti af upphæðinni kæmi
til baka í formi skatta, ekki síst hjá
eldri borgurum. Hann sagði að þeir
sem hefðu ekkert nema bætur al-
mannatrygginga væru að greiða af
þessum 1.100 krónum 38% tekju-
skatt, sem þýddi að eftir stæðu 680
krónur. Garðar bætti því við, að
þessi hópur hefði ekki greitt tekju-
skatt áður en þessi ríkisstjóm hefði
tekið við völdum.
Aðgerðirnar endurspegla
ekki skilning stjórnvalda
Garðar sagði að honum þætti
þessar aðgerðir ekki endurspegla
raunverulegan skilning á þeim
vanda sem við væri að glíma. Hann
sagði að í stjórnartíð sitjandi ríkis-
stjórnar hefði grunnlífeyrir og
tekjutrygging dregist aftur úr
launavísitölu og væru fjarri því að
halda í við lágmarkslaun, enda hafí
stjórnin byrjað á því að klippa á
tengsl bóta og lágmarkslauna.
„Grunnlífeyrir er tekjutengdur
hjá þeim öldruðum sem hafa lítinn
lífeyrissjóð og þurfa að vinna og
hjá þeim öryrkjum og öldruðum
sem fara yfir 90.000 krónur, sagði
Garðar. „Hins vegar er hann ekki
tekjutengdur hjá þeim sem eru
með háa lífeyrissjóði, þeir njóta
því hækkunarinnar að fullu.“
Ríkisstjórnin tók einnig þá
ákvörðun í fyrradag að hækka vasa-
peninga þeirra lífeyrisþega sem
dvelja í stofnunum um 34%, eða um
4.000 krónur, þannig að nú nema
þeir tæpum 17.000 krónum. Garðar
sagði það hins vegar ekki hafa íylgt
sögunni að vasapeningarnir byrji að
skerðast áður en sá sem heima væri
næði 7.000 krónum í tekjur og að
þeir þurrkuðust algjörlega út áður
en útivinnandi maki næði 60.000
krónum í mánaðarlaun.
Áfangi í að byggja
upp grunnlífeyririnn
Að sögn Benedikts Davíðssonar,
formanns Landssambands eldri
borgara, er þessi hækkun nú aðeins
áfangi í því að byggja upp grunnlíf-
eyririnn. Hann sagðist hafa verið
sérstaklega ánægður með þær yfir-
lýsingar ráðherranna í fyrradag um
að þetta væri aðeins eitt skref í upp-
byggingunni. Hann sagði að núna
væri í gangi vinna á vegum fjár-
mála- og tryggingamálaráðuneyt-
anna um samspil almannatrygginga
og skattakerfís og sagðist hann von-
ast til að eitthvað kæmi út úr þeirri
vinnu á þessu ári.
Benedikt sagðist ekki vilja trúa
því að ákvörðunin um hækkunina
væri hluti af kosningabaráttu
stjórnarflokkanna þó að hún væri
tekin rúmum mánuði fyrir kosn-
ingar. Hann sagði að ákvörðunin
væri árangur af vinnu sem búin
væri að vera í gangi í þó nokkurn
tíma. Hann sagði að krafan um
samráðsnefnd hefði verið sett á
landsfundi Landssambands eldri
borgara fyrir tveimur árum, en
nefndin hefði verið skipuð um ára-
mótin síðustu í kjölfar fyrirheita
sem forsætisráðherra gaf í ára-
mótaræðunni.
Framboðslisti Samfylkingar í Norðurlandskjördæmi eystra
Svanfríður tekur 1. sætið
SVANFRÍÐUR Jónasdóttir hefur
ákveðið að taka 1. sæti á framboðs-
lista Samfylkingarinnar á Norður-
landi eystra við alþingiskosningarn-
ar í vor. Það var ákveðið á fundi upp-
stillingarnefndar í kjördæminu í
fyrrakvöld, en um síðustu helgi
ákvað Sigbjöm Gunnarsson, sem
varð í fyrsta sæti í prófkjöri, að gefa
ekki kost á sér í fyrsta sætið.
Svanfríður sagðist í samtali við
Morgunblaðið hafa greint uppstill-
ingamefndinni frá því að hún yrði í
1. sætinu í samræmi við niðurstöður
prófkjörs, en stjórnir kjördæmisráða
Alþýðuflokks og Alþýðubandalags
lögðu það til í kjölfar þess að Sig-
björn gaf ekki kost á sér. Það væri
niðurstaða hennar eftir að hafa íhug-
að þessi mál, því þessi breyting hefði
auðvitað orðið nokkuð óvænt.
Svanfríður sagði að fyrstu þrjú
sætin í kjördæminu yrðu skipuð
eins og niðurstöður prófkjörsins
gæfu tilefni til, þ.e. að Órlygur
Hnefill Jónsson yrði í 2. sætinu og
Kristín Sigursveinsdóttir í 3. sæt-
inu. Að öðru leyti hefði listinn ekki
verið tilbúinn þegar hún hefði farið
af fundi uppstillingarnefndarinnai'.
Hún vildi því ekki nefna önnur nöfn
af honum, en það liti vel út með
skipan hans.
Svanfríður sagðist hafa sagt eftir
að niðurstöður prófkjörsins lágu fyr-
ir um miðjan febrúar i vetur að hún
myndi að sjálfsögðu fara eftir regl-
um og hlíta niðurstöðum þess. Regl-
urnar hefðu þá sett hana niður í 3.
sætið vegna samkomulags milli A-
flokkanna. Núna þegar Sigbjörn
Gunnarsson hefði ákveðið að víkja af
listanum þá breyttist þetta og þessar
sömu reglur flyttu hana upp í 1. sæt-
ið.
Öskars E.
Levys
minnst
á Alþingi
ÓLAFUR G. Einarsson forseti Al-
þingis minntist Óskars E. Levy,
bónda og fyrrverandi alþingismanns, í
upphafí þingfundar á Alþingi í gær.
Oskar andaðist mánudaginn 15. mars
sl., áttatíu og sex ára að aldri.
Óskar varð alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra við þingmennskuafsal
aðalmanns frá 1. febrúar 1966 fi-am að
alþingiskosningum í júní 1967. Auk
þess tók hann sæti varamanns á Al-
þingi á árunum 1965 og 1968-1970.
Óskar „átti ekki langa setu á Alþingi.
Byggðamálin voru honum hugstæði
og hér vann hann vel að þeim, þar á
meðal skólamálum heimasveitar sinn-
ar. Hann vildi veg landsbyggðarinnar
sem mestan," sagði Ólafur m.a. og bað
alþingismenn að minnast Óskars E.
Levys með því að rísa úr sætum sín-
um, sem þeir og gerðu.
Morgunblaðið/Þorkell
Ríkisráðsfundur
á Bessastöðum
RIKISRÁÐSFUNDUR var hald-
inn á Bessastöðum á hádegi í gær
eftir að Alþingi hafði verið
frestað. Þar voru lögð fyrir þau
mál sem liafa verið til umfjöllun-
ar og afgreiðslu á Alþingi síðan
um áramót, en siðasti rxkisráðs-
fundur var haldinn á gamlársdag.
Fundinn sátu forseti Islands,
herra Ólafur Ragnar Grímsson,
og allir ráðherrar ríkisstjórnar-
innar.
Skógarás — m. bílskúr
— frábær staðsetning
Vorum að fá í einkasölu í góðu 2ja haeða fjölb. íb. á efri hæð og I risi
100 fm ásamt góðum bílskúr. Nýlecjt fallegt eldhús, parket. Fallegt út-
sýni. Rúmgóð og skemmtil. eign. Ahv. 5 millj. hagst. lán.
Verð 9,7 millj.
Stangarholt m. mögul. á aukaíb.
Fallegt hús á fráb. stað 105 fm íb. á 1. h. og í kj. sem í dag er ein fb. en
lítið mál að breyta því ef vill. Áhv. 4,5 millj. húsbr. V. aðeins 8,9 m.
Valhöll, fasteignasala,
Síðumúla 27, sími 588 4477.
Blönduhlíð 27
- Opið hús í dag
frá kl. 14-15
Til sýnis í dag falleg 110,5 fm sér-
hæð á 1. hæð ásamt 30 fm bíl-
skúr. 3 svefnherb. 2 saml. stofur.
Skemmtilega skipul. íbúð á fráb.
stað. Verð 11,5 m. Sölumaður
Valhallar verður á staðnum.
Langholtsvegur
með bílskúr
4ra herb. Vorum að fá í einkasölu
í góðu þríbýlishúsi fallega 4ra
herb. risíb. ásamt nýl. 25 fm
bílsk. Stórir kvistir, fallegt útsýni.
Áhv. hagst. lán. Á að seljast
strax. Gott verð 8,9 millj.
Samfylk-
ingin
gagnrýnir
fyrirætl-
anir ríkis-
stjórnar
ÁGÚST Einarsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, kvaddi
sér hljóðs í upphafi þingfund-
ar á Alþingi í gær og gagn-
rýndi ýmsar þær fyrirætlanir
sem ríkisstjómin hefði kynnt
á síðustu dögum. Þar á meðal
fyrirætlanir á „sviði skóla-
mála, samgangna og í tengsl-
um við aldraða sem hafa áhrif
á fjárreiður ríkisins á þessu og
næstu árum,“ eins og hann
orðaði það.
„Ýmsar af þeim fyrirætlun-
um sem ríkisstjómin hefur
kynnt undanfarið rúmast ekki
innan núgildandi fjárlaga og
falla ekki undir ófyrirséð atvik
auk þess sem þau ná yfir mörg
ár. Hér er því á ferðinni ekk-
ert annað en kosningaáróður
ríkisstjómarinnar," fullyrti
hann. Bætti hann við að nýtt
þing yrði kosið í vor og að nú-
verandi ríkisstjórn gæti ekki
bundið hendur þess né næstu
ríkisstjóma. „Samfylkingin
mótmælir þessum vinnu-
brögðum,“ sagði hann og benti
á að margar þessara fyrirætl-
ana ríkisstjómarinnar væru
byggðar á tillögum Samfylk-
ingarinnar. „Samfylkingin
styður eindregið aðgerðir til
að bæta stöðu aldraðra, en
bendir á að ríkisstjórnai'flokk-
arnir hafa margoft fellt tillög-
ur okkar um úrbætur í þeim
efnum.“
Ágúst gagnrýndur
Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra benti á að Ágúst
hefði fengið að lesa upp yfir-
lýsingu frá Samfylkingunni
og minnti á að forseti Alþing-
is hefði getið þess að hún
mætti ekki kalla á umræður.
„Það kom fram í máli hæst-
virts forseta Alþingis að þing-
maðurinn fengi að lesa yfir-
lýsingu í skjóli þess að hún
kallaði ekki á umræður. Síðan
hefur þingmaðurinn hér eld-
húsdagsumræður í skjóli þess
að yfirlýsingin kalli ekki á
umræður. Eg ætla ekki að
vanvirða þingið með sama
hætti og hinn nýkjörni tals-
maður Samfylkingarinnar
gerði.“
Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra tók auk þess fram að
allir þeir samningar eða fyrir-
ætlanir ríkisstjórnarinnar sem
Ágúst hefði gert að umtalsefni
væru að sjálfsögðu með fyrir-
vara um fjárveitingu af hálfu
Alþingis.