Morgunblaðið - 26.03.1999, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
s
Póstflutningar á Islandi einkavæddir innan fárra ára
Tryggja ber hag
dreifbýlisins
ið dregið úr því forræði sem sam-
gönguráðuneytið og ráðherra höfðu
á þessum málaflokki. I þriðja lagi
er í lögunum nákvæmlega farið of-
an í þær skyldur sem rekstrarleyf-
ishafi á sviði póstflutninga undir-
gengst."
Miklar breytingar
orðið
Einar sagði að á þeim ái’um sem
liðin væru frá því að formbreyting
póstþjónustunnar átti sér stað og
fyrirtækið Islandspóstur var stofn-
aður, hefði mikið breyst og flest til
batnaðar. Fyrst og fremst hefðu
gæði póstþjónustunnar batnað.
„Það er engin smábylting að geta
sent bréf og sendingar landshorn-
anna á milli þannig að innan við sól-
arhringur líður frá því að bréf er
sent og þar til það kemst í hendur
viðtakanda. Þetta er mikil breyting
frá því sem áður var.“
Einar telur hins vegar stóra
vandann sem við blasir bæði hér á
landi og í Evrópu allri, snúast um
hvernig draga skuli skilin á milli
póstdreifingar og annarra sendinga.
Að mati Einars er ljóst að póst-
þjónustan er að breytast mjög mik-
ið og hefðbundin póstdreifing verð-
ur að bregðast við þeim breyting-
um og fá rekstrarlegt svigrúm en
bendir jafnframt á að þá byrji hins
vegar vandinn gagnvart keppinaut-
um. „Þetta kallar óhjákvæmilega á
endurskoðun á einkaréttarhugtak-
inu. Ég tel skynsamlegt að vinna á
þeim nótum að fara varlega.
Reynslan af formbreytingum á
þessu sviði hefur sýnt að sú að-
ferðafræði er líklegust til árangurs.
Um leið og við aukum svigrúm til
samkeppni þarf að tryggja þá
grunnþjónustu sem við viljum við-
hafa í landinu. Breyting á rekstrar-
umhverfinu má ekki verða til þess
að rýra kosti hinna dreifðu byggða,
né leiða til þess að einstakir hópar
og landssvæði verði afskipt," sagði
Einar.
Einar Þorsteinsson, forstjóri ís-
landspósts tók undir þá skoðun
þingmannsins að vissulega hefði
mikið breyst á sviði póstflutninga
undanfarin misseri og samkeppni
aukist á flestum sviðum. Islands-
póstur nýtur nú einkaréttar á dreif-
ingu bréfa upp að 250 gr., en Einar
telur víst að sá einkaréttur verði
aflagður eigi síðar en árið 2003.
Vaxandi samkeppni
Hvað varðar vöruþjónustu og
auglýsingar sagði Einar íslands-
póst standa frammi íyrir vaxandi
samkeppni á breyttum markaði.
„Það sem hefur gerst er að Hrað-
flutnings-, flutninga- og póstfyrir-
tækin hafa verið að færast nær
hvert öðru í þjónustu auk þess sem
samkeppnin á auglýsingamarkaðin-
um hefur aukist til muna, ekki síst
með komu dagblaða inn á þann
markað sem kallast fjölpóstur."
í ljósi harðnandi samkeppni
sagði Einar mikilvægt að Islands-
Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankans hf. haldinn í gær
Hyggjast flytja erlend fram-
leiðslufyrirtæki til Islands
Morgunblaðið/Keli
FJÖLMENNI var á aðalfundi Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankans hf.
Eignarhaldsfélagið
Alþýðubankinn hf.
10 stærstu hluthafar, 18. febrúar 1999 Hlutfall
1 Sameinaði Iffeyrissjððurinn 171,6 milljónir kr. 14,41%
2 Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna 102,8 8,64%
3 Verzlunarmannafélag Reykjavíkur 90,3 7,59%
4 Lífeyrissjóður verslunarmanna 88,2 7,41%
5 Dagsbrún og Framsókn 70,7 5,94%
6 Rafiðnaðarsamband íslands 65,4 5,50%
7 Lífeyrissjóður Austuriands 60.1 5,05%
8 Lífeyrissjóðurinn Framsýn 58,9 4,95%
9 Alþýðusamband íslands 56,5 4,74%
10 Félag járniðnaðarmanna 43,8 3,67%
10 stærstu hluthafar samtals 808,5 67,90%
Aðrir hluthafar 382,2 32,10%
Hlutafé samtals 1.190,7 milliónir kr. 100.00%
AFNÁM einkaréttar íslandspósts
á póstflutningum er óumflýjanlegt
á næstu árum. Breyting á rekstrar-
umhverfinu má þó ekki verða til
þess. að rýra kosti hinna dreifðu
byggða, né leiða til þess að einstök
landssvæði verði afskipt. Þetta kom
m.a. fram í máli Einars K. Guð-
finnssonar, formanns samgöngu-
nefndar Alþingis á fundi Verslunar-
ráðs Islands í gær.
Einar sagði ljóst að póstþjónust-
an væri þáttur í grunngerð hvers
samfélags. Þó að í sjálfu sér megi
kalla póstþjónustu flutningastarf-
semi, þá lúti hún líka ströngum lög-
málum einfaldlega vegna þess að
allt frá öndverðu hefur hún lotið að
því að veita öllum borgurum hvers
lands tiltekna gi’unnþjónustu, án
tillits til búsetu og á viðráðanlegu
verði. Um þetta hafi ríkt prýðileg
sátt víðast hvar og þar með talið
hér á landi. Allar breytingar á
þessu umhverfi séu því viðkvæmar
og flóknar. Þær krefjist góðs undir-
búnings og verði að hafa það í fór
með sér að menn sjái fyrir endann
á því sem gert er. „Sameiginlegar
reglur um þróun póstþjónustu fyrir
Evrópusambandið ganga einmitt út
frá því að breytingar gerist hægt.
Þau lög sem nú gilda um póstþjón-
ustu hér á landi, taka mið af þeim
veruleika sem evrópureglurnar
bjuggu til og marka póstþjónust-
unni tiltekið starfssvið. I fyrsta lagi
greina lögin á milli einkarréttar-
sviðs og samkeppnissviðs. í annan
stað hefur með gildandi lögum ver-
STARFSEMI ársins 1998 hjá Eign-
arhaldsfélaginu Alþýðubankanum hf.
einkenndist af auknum fjárfesting-
um í félögum sem ekki eru skráð á
markaði, af stækkun skuldabréfa-
safns félagsins og uppbyggingu á
innra starfi félagsins. Þetta kom
meðal annai’s fram í ræðu Gylfa Arn-
björnssonar, framkvæmdastjóra
Eignarhaldsfélagsins Afþýðubank-
ans, á aðalfundi félagsins í gær.
í máli Gylfa kom einnig fram að
rædd hefði verið í stjórn félagsins á
síðasta ári endurskoðun á stefnu
Eignarhaldsfélagsins gagnvart því
hvar væri að finna tækifæri í fram-
tíðinni. Þar kom fram að ætlunin
væri að aðlaga fjárfestingarstefnu
félagsins og bæta kynningu á félag-
inu. Einnig bæri að stefna að því að
efla þekkingu og reynslu innan fé-
lagsins, sem myndi leiða til bættrar
verkefnastöðu og áhættustýringar.
A grundvelli þeirrar þekkingar
mætti búa til sérhæfðar lausnir fyrir
íjárfesta, til dæmis með stofnun lok-
aðra fjárfestingarsjóða sem sér-
hæfðu sig í áhættufjárfestingum.
Eins taldi stjórnin mikilvægt að nýta
þessa þekkingu með þeim hætti að
selja þá stjórnunarþekkingu sem
Eignarhaldsfélagið byggi yfir og
verðleggja fjárfestingartækifæri
sem félagið hefði búið til gagnvart
ýmsum samstarfsaðilum.
Vilja ná inn erlendri
Ijárfestingu
Gylfi Arnbjörnsson útskýi’ði á að-
alfundinum hvernig Eignarhaldsfé-
lagið hygðist reyna að ná arðbærri
erlendri fjárfestingu til Islands. I
þeim tilgangi hefði Eignarhaldsfé-
lagið stofnað lokað fjárfestingarfé-
lag sem nefnist Allied Efa hf., og á
Eignarhaldsfélagið 40% í félaginu
en bandaríska áhættufjárfestingar-
fyrirtækið Allied Resources Corp.
60%, en Eignarhaldsfélagið væri
reyndar hluthafí í Allied Resources
Corp.
„Við erum að fjárfesta í fyrirtækj-
um erlendis til að fara í samstarf við
erlenda aðila, og kaupa okkur í
áhrifastöður í fyi’irtækjum erlendis
til þess að stýra síðan staðsetningu á
fyrirtækjum hingað, - en byggt á
arðsemisforsendum. Við ætlum að
hagnast á þessu, það er engin laun-
ung á því. En markmið félagsins er
h'ka það, að við viljum með þessum
hætti efla arðsama atvinnustarf-
semi,“ sagði Gylfi Arnbjörnsson.
Eignarhaldsfélagið hefur keypt í
tveimur iyi’irtækjum í samræmi við
þessa hugsun, í bæði skiptin í norsk-
um fyrirtækjum sem þeir halda að
geti verið mjög áhugaverð viðbót inn
í íslenskt atvinnulíf.
Annað fyrirtækjanna heitii’
Promeks asa og hefur einkaleyfi á
nýrri aðferð til framleiðslu á kísil-
dufti, en það nýtir rafmagn og jarð-
gufu við framleiðsluna. „Við [Allied
Efa innsk.] erum þarna komnir með
ráðandi hlut, eða 50,8% af félaginu
og erum með meirihluta stjórnar.“
Allied Efa er að gera arðsemisúttekt
á því að staðsetja hér verksmiðju
fyrir þetta fyrirtæki. Fyrh’tækið
hafði átt í viðræðum við iðnaðarráðu-
neytið á síðasta hausti með það í
huga að kaupa Kísiliðjuna við Mý-
vatn. „Það gæti skapað Kísiliðjunni
nýja framtíð þar sem verksmiðjan
myndi hætta að nota Mývatn sem
hráefnisuppsprettu, en nota hins
vegar verksmiðjuna og mannauðinn
á Mývatni til þess að vinna úr inn-
fluttu hráefni," sagði Gylfi.
Hann sagði að viðræðum hefði
verið slitið í desember, án þess að
þeir hjá Allied Efa hefðu vitað
ástæðuna. Gylfi sagði að framkvæmd
af þessu tagi gæti verið mjög arðbær
hér á landi, þar sem jarðgufa væri
mikil. „Og reyndar kom það upp í
gær [miðvikudag] og var samþykkt í
ríkisstjórninni að hefja þær viðræð-
ur aftur, sem fara eiga í gang í
næstu viku um það að Allied Efa
kaupi, ef menn ná samkomulagi, hlut
ríkisins í Kísiliðjunni.“
í hinu fyrirtækinu sem Allied Efa
hefur eignast hlut í með það í huga
að setja upp framleiðslu hérlendis
var fjárfest fyrir nokkrum vikum
síðan. Heitir fyrirtækið SiNor A/S
og framleiðir kísilmálm af þeirri
gerð sem notaður er í tölvukubba.
Eignarhlutur Allied Efa er þar 23%.
Þeir staðsetningarkostir hérlendis
sem þarf til framleiðslunnar eru raf-
magn og kælivatn.
Gylfi sagði að Eignarhaldsfélagið
hefði einnig tekið þátt í útrás ís-
lenskra fyrirtækja með þátttöku
ásamt þremur íslenskum útgerðar-
fyrh’tækjum í fyrirtækinu Uthafs-
sjávarfang ehf., og hefði það fjár-
fest í bandarísku sjávarútvegsfyrir-
tæki sem héti Atlantic Coast Fis-
heries Corp. í New Bedford. Hann
sagði að slík samvinna byði upp á
mikil tækifæri, enda hefði Eignar-
haldsfélagið stjórnunarlega og fjár-
málalega þekkingu, en útgerðarfyr-
irtækin kæmu inn með þekkingu á
vinnslu og veiðum á uppsjávarfisk-
um.
póstur héldi einkaréttinum enn um
sinn meðan félagið væri að taka til í
sínum rekstri og aðlagast markað-
inum. Markmiðið væri að gera fyr-
irtækið að arðvænlegri söluvöru.
Óeðlilegt fyrirkomulag
Árni Pétur Jónsson, forstjóri
TVG Zimsen, gerði athugasemdir
við þá þjónustu sem hann sagði Is-
landspóst veita í samkeppni við
einkafyrirtækin. Hann sagði Is-
landspóst hafa í skjóli ríkisins
byggt upp öflugt söfnunarkerfi og
vörudreifingu á landsvísu sem þeir
notuðu síðan fyrir þá þjónustu sem
veitt er í samkeppni við einkaaðila.
Hann vísaði í orð Einars Þorsteins-
sonar um að félagið væri að taka tU
í sínum rekstri og sagði í hæsta
máta óeðlilegt að það viðgengist í
skjóli einkaleyfis. Því þyrfti að
stöðva strax samkeppni Islands-
pósts við einkaaðila og í framhald-
inu að afnema einkaleyfi félagsins.
„Núverandi kerfi má líkja við það
ef ÁTVR tæki upp á því að fara að
selja í útsöluverslunum sínum osta
með rauðvíni og konfekt með kon-
íaki og er ég hræddur um að kaup-
menn hefðu eitthvað við slíkt að at-
huga.“
Árni sagði umræðuna í dag vera í
þá átt að takmarka einkaleyfí Is-
landspósts frá því sem nú þekkist,
sem væri jákvætt, því afleiðingin
yrði opnari markaður og aukin
samkeppni. Hins vegar væri óvið-
unandi aðstaða að þurfa að bíða í
nokkur ár eftir úrbótum.
Vísitölur
byggingar-
kostnaðar
og launa
VÍSITALA byggingarkostn-
aðar eftir verðlagi um miðjan
mai’smánuð 1999 er 235,4 stig
(júní 1987=100) og hefur
hækkað um 0,1% frá fyrra
mánuði. Hún gildir fyrir apríl
1999. Samsvarandi vísitala
miðuð við eldri grunn (desem-
ber 1982=100) er 753 stig.
Síðastliðna þrjá mánuði
hefur vísitalan hækkað um
1,8% sem samsvarar 7,5%
hækkun á ári. Síðastliðna tólf
mánuði hækkaði hún um
2,2%.
Launavísitala
Launavísitala miðað við
meðallaun í febrúar 1999 er
180,9 stig og hækkar um 0,3%
frá fyrra mánuði. Samsvar-
andi launavísitala sem gildir
við útreikning greiðslumarks
fasteignaveðlána er 3956 stig í
apríl 1999.
Þetta kemur fram í frétta-
tilkynningum frá Hagstofu Is-
lands.
Hugbúnaður
vegna
2000-vanda
FJÖLMENNT EHF/Bréfa-
skólinn hefur gert samning
um innflutning og sölu á hug-
búnaði til lausnar á 2000-
vandanum í einkatölvum frá
Eurosoft-hugbúnaðai’fyrir-
tækinu. Um er að ræða hug-
búnað sem með nokkrum ein-
földum skipunum endurreikn-
ar öll kei’fi í tölvunni sem inni-
halda dagsetningar, að því er
fram kemur í fréttatilkynn-
ingu. Með því á að vera tryggt
að öll kerfin í PC-tölvunni
verði löguð að samhæfðri
aldamótalausn og að ekki
komi til vandræða hjá tölvu-
eigandanum þegar árið 2000
gengur í garð.