Morgunblaðið - 26.03.1999, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
VERIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Halldór Kolbeinsson
GUNNAR Felixsson fundarstjóri, Eyjólfur Sveinsson sljórnarformaður, Haraldur Sturlaugsson framkvæmda-
sljóri og Bergþór Guðmundsson fundarstjóri greiða atkvæði á aðalfundi Haraldar Böðvarssonar hf. í gær.
Eyjólfur Sveinsson, stjórnarformaður HB, á aðalfundi félagsins
„Stjórnmálamenn ógni
ekki stöðugleikau
EYJÓLFUR Sveinsson, stjómar-
formaður Haraldar Böðvarssonar
hf., sagði á aðalfundi félagsins i gær
að í komandi kosningum til Alþingis
væri mikilvægt að stjórnmálamenn
höguðu málflutningi sínum um sjáv-
arútvegsmál og framtíð fiskveiði-
stjómunar með ábyrgum hætti.
Sagði Eyjólfur að auk hins farsæla
fískveiðistjórnunarkerfis Islendinga
væri óumdeilt að stöðugleiki í efna-
hagsmálum og kerfisbreytingar á
fjánnálamarkaði ættu sinn þátt í
uppgangi sjávarútvegs á undan-
fómum ámm. Sagðist Eyjólfur
vona að stjórnmálamenn, sem á
næstu vikum sæktust eftir hylli
kjósenda, geri sér grein fyrir þessu
og grípi ekki til loforða sem ógni
þessum stöðugleika.
„I ljósi þess hve gífurlega mikil-
vægt það er fyrir íslenskan sjávar-
útveg, og þar með íslensku þjóðina,
að ekki verði kippt grundvellinum
undan fiskiveiðistjómarkerfi okkar
er vonandi að umræðan verði á
skynsamlegri nótum en oft áður.
Raunar era nokkur teikn á lofti um
að svo sé. Það er einfaldlega ekki
frambærilegt af aðilum sem vilja
láta taka sig alvarlega, hvort sem er
forystumenn hagsmunasamtaka eða
sjómmálaafla, að nýta sér óánægju
með útfærsluatriði hvað varðar
skattheimtu af sjávarútvegi til þess
að kynda undir ófriðarbáli sem er
með algerlega óskýr markmið og
setur í hættu fiskveiðistjórnunar-
kerfið sjálft. En það er einmitt
þetta fiskveiðistjómunarkerfi sem
sannarlega hefur verið grundvöllur-
inn að hagsæld þjóðarinnar á und-
anförnum áram.“
Engin eftirmál vegna
sölu á hlut í SH
Þá vék Eyjólfur í ræðu sinni að
sölu HB hf. á 7% eignarhlut í Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hf. fyrir
skömmu. Sagði Eyjólfur að söluna
hafí borið að á óþægilegum tíma.
Ljóst væri að áherslumunur hafi
verið á meðal manna úr hópi stjórn-
ar og stjórnenda sem að málinu
komu. Fullyrti Eyjólfur að hvergi í
umræðum í kjölfar sölunnar hafi
komið fram neinn vafí um hvað
vakti fyrir HB með sölu hlutabréf-
anna. „Það er óvefengt að þar höfðu
menn hagsmuni félagsins að leiðar-
ljósi. Um framgangsmátann hefur
hins vegar nokkuð verið rætt og
eins og í góðu hjónabandi hafa
menn farið yfir þau mál sameigin-
lega og metið hvað megi læra af
reynslunni. Leyfi ég mér að full-
yrða að engin eftirmál munu verða
innan félagsins vegna þessara
ákvarðana, hvorki í hópi stjórnar
né í hópi leiðandi hluthafa,“ sagði
Eyjólfur.
Uppstokkun á skipaflota
I ræðu Eyjólfs kom einnig fram
að á árinu 1998 átti sér stað áfram-
haldandi framþróun í starfsemi
Haraldar Böðvarssonar hf. I fram-
haldi af sameiningum undanfarinna
ára var ráðist í uppstokkun á skipa:
stól auk endurbóta á eldri skipum. í
tengslum við þessar fjárfestingar
og aðrar á sjó og landi hafa átt sér
stað töluverðar eignasölur. Loks
var áhersla lögð á áframhaldandi
þróunarstarf svipað og gert hefur
verið undanfarin ár. Á árinu var
tekin ákvörðun um kaup á tveimur
nýjum nótaskipum.
Sagði Eyjólfur rekstur félagsins
hafa skilað viðunandi árangri á ár-
inu. Þó væri ljóst að með frekari
hagræðingu og endumýjun í skipa-
stól, áframhaldandi endumýjun á
framleiðslueiningum og síðast en
ekki síst frekari vöraþróun í fram-
leiðsluvöram, gæti starfsemin skil-
að betri árangri. Að þessum endur-
bótum hafi verið unnið og verði
unnið áfram.
STÓRKOSTLEG VERÐLÆKKUN
af öllum sleðum árg. '98 og '99
Einstakt tækifæri — takmarkað magn
/)) ' ■
Póíarís ehf.
y ; Undirhlíð 2 • Akureyri
/L/ Sími 462 2840 -Fax 462 5350
Furmliöfða 17 • Revkjavík
Sími 587 5128
Kolmunna af Hatton-Rockall landað
Morgunblaðið/Friðþjófur
KOLMUNNA dælt í lestar Hákons ÞH á miðunum á Hatton
Rockall svæðinu, vestur af Irlandi.
Kolmunninn magur
á þessum árstíma
TVÖ íslensk skip lönduðu í gær
kolmunna sem veiddist á Hatton-
Rockall-svæðinu, um 60 mílur vest-
ur af landhelgi Irlands. Hákon ÞH
landaði um 1.000 tonnum af
kolmunna hjá fiskimjölsverksmiðju
SR-mjöls hf. í Helguvík og sagði
Þórhallur Jónasson, gæðastjóri
SR-mjöls, kolmunnann vera þokka-
legasta hráefni. Hann sé reyndar
mjög magur á þessum árstíma og
gefí því af sér lítið lýsi. Líklega sé
fítuinnihaldið aðeins um 1-2%.
Mjölnýtingin sé hins vegar nokkru
hærri en í loðnu. „Kolmunnamjöl
er að mörgu leyti ágætis afurð að
því tilskildu að hráefnið sé gott
þegar það kemur til vinnslu. Mér
sýnist Hákon ÞH koma með gott
hráefni að landi, miðað við hve löng
sigling var af miðunum,“ sagði Þór-
hallur.
Mikið af kolmunna á svæðinu
Þá landaði Þorsteinn EA um 900
tonnum af kolmunna í Grindavík í
gær. Að sögn Birkis Hreinssonar,
stýrimanns, fékkst aflinn í 6 hölum
á Hatton-Rockall-svæðinu, vestur
af Irlandi. Hann sagði veiðamar
hafa gengið áfallalaust, enda aflinn
fengist á aðeins rúmum sólarhring.
„Veðrið var reyndar ekkert alltof
gott, 6-7 vindstig. Það er mjög
mikið af kolmunna á þessum slóð-
um. Þannig voru norsk skip að
veiðum nokkuð sunnan við okkur
að fá góðan afla. Einnig var góð
veiði innan landhelgi Irlands. Að
öllu jöfnu ætti kolmunninn að fara
að ganga norðaustur á bóginn.
Færeyingar hafa hins vegar sagt
okkur að það sé óvanalegt að
kolmunninn fáist jafn vestarlega
og við vorum að veiða. Það er ansi
löng sigling í land eða um 500 míl-
ur. Við fengum á okkur leiðinda-
veður á landleiðinni. En við kælum
hráefnið með ískrapa og það ætti
þvi að vera í lagi,“ sagði Birkir.
Þá lönduðu Bjarni Ólafsson AK
og Jón Kjartansson SU kolmunna í
Færeyjum í gær sem einnig fékkst
á Rockal-svæðinu. Þorsteinn EA
hélt á kolmunnamiðin á ný í gær-
kvöldi.
áatf-yaft- .:v.- H'
1: .
KJ l X' H
Wm \
'íív-S
* I
- n
m • 1
1 : .
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
HAFÞÓR Sævarsson, Jón Pálmason og Ari Kjartansson, skipveijar á
Þorsteini EA, vinna við löndun úr Þorsteini EA í Grindavík í gær.
Aðalfundur IS í dag
AÐALFUNDUR íslenskra sjávar-
afurða hf. verður haldinn í Súlnasal
Hótels Sögu á dag, föstudaginn 26.
mars, og hefst fundurinn kl. 13.30.
Að lokinni setningu fundarins mun
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, flytja ávai-p og gefst
fundarmönnum kostur á að beina
fyrirspurnum til ráðherrans að því
loknu. Þá verður kynnt skýrsla
stjórnar og lagðir fram reikningar
félagsins og þeir bornh- upp til
samþykktar. Einnig verður lögð
fram tillaga um heimild félagsins
til að eiga eigin hlutabréf. Auk þess
eru á dagskrá fundarins tillaga um
þóknun til stjórnar, kosningár og
önnur mál.