Morgunblaðið - 26.03.1999, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 26.03.1999, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ Serbar vörðust með öðrum hætti en hafði verið spáð Eins og reiknað hafði verið með varðist Júgóslavíuher af hörku, þótt reyndar hefðu varnir hans verið með talsvert öðrum hætti en vesturveldin áttu von á. Sendu Ser- bar sovéskar MiG-herþotur í loft- bardaga við þotur NATO og sögðu fulltrúar Bandaríkjahers að þessir loftbardagar hefðu verið þeir hörð- ustu síðan í Persaflóastríðinu árið 1991. Staðfesti Wesley Clark að loft- varnarsveitir Júgóslavíu á jörðu niðri hefðu ekki beitt sér að neinu marki gegn herþotunum, og Ser- bar munu ekki hafa skotið flug- skeytum, sem þeir hafa yfir að ráða á jörðu niðri, í loftið, líklega vegna hættunnar á því að þeir hæfðu eig- in flugvélar í stað óvinavélanna. Fulltrúar bandaríska varnarmála- ráðuneytisins sögðu fyrr um dag- inn að flugmenn NATO væru sann- færðir um að þeim hefði tekist að granda þremur júgóslavneskum MiG-herþotum. Tvær þeirra áttu bandarískir flugmenn F-15-her- þotna að hafa skotið niður, en eina hæfði hollenskur flugmaður F-16- vélar. Útvarpsstöð í Belgrad hélt því fram á miðvikudagskvöld að Ser- bum hefði tekist að skjóta niður eina NATO-herþotu en því neitaði Henry Shelton hershöfðingi, yfir- maður bandaríska herráðsins, og sagði að allar flugvélar NATO hefðu snúið heilu og höldnu til bækistöðva sinna að loknum loftárásum. William Cohen, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, greindi frá því að lögð hefði verið mest áhersla á að skaða loftvarnarkerfi Serba, enda stendur herþotum NATO mest ógn af þessu kerfi, er flug- menn þeirra fljúga yfir landið. Loft- vamir Serba ei-u sagðar mjög öflug- ar, en þeir hafa m.a. yfir að ráða fjölda sovéskra flugskeyta af gerð- inni SA-2, SA-3 og SA-6, auk þess sem þeir gætu beitt hundruðum stórskotaliðsiylkja gegn herþotum NATO og jafnvel flugskeytum sem skotið væri af öxl á þotur í lítilli hæð. í yfirlýsingu yfirstjómar júgóslavneska hersins sagði hins vegar að NATO hefði ekki náð því markmiði sínu að skaða loftvamar- kerfið. Auk loftvarnarkerfis Serba var einnig reynt að skaða þau hemaðar- mannvirki sem Serbar hafa beitt gegn Kosovo-Albönum. Gerði NATO árásir á a.m.k. 40 skotmörk í Júgóslavíu skv. upplýsingum Wes- leys Clarks og þar af var fjöldi brúa, sem mikilvægar era vegna flutninga serbneska hersins milli staða, sem og ýmsar bækistöðvar hersins. Ef marka má upplýsingar Jú- góslavíuhers urðu fimm flugvellir, fimm bækistöðvar júgóslavneska hersins, samskipta- og yfirstjómar- virki og vopnabúr Serba fyrir árás- um NATO. I sömu yfiriýsingu sagði hins vegar að „minniháttar" skaði hefði orðið af árásunum og að góður andi ríkti enn í herbúðum Jú- góslavíuhers. Árásum haldið áfram Solana sagði í gær að fyrsta lota árásanna hefði skv. bráðabirgðamati tekist vel en ítrekaði að til að byrja með yrði einungis ráðist gegn hem- aðarlega mikilvægum skotmörkum. Ef auka ætti umfang árásanna yrðu leiðtogar NATO-ríkjanna að raeða það sérstaklega sín á milli fyrst. Áð- ur höfðu fulltrúar NATO neitað staðhæfingum ígors Sergejevs, vamarmálaráðherra Rússa, um að NATO undirbyggi nú að senda land- her til Júgóslavíu. Ljóst er hins vegar að árásirnar munu halda áfram á meðan Milos- evic gefur ekki eftir og Clark sagði í gær að árásirnar væru afar vel und- irbúnar. „Við munum halda áfram árásum og með skipulögðum hætti beina sjónum okkar að hverju skot- markinu á fætur öðra.“ Vesturveld- in eru viðbúin hinu versta og banda- ríska varnarmálaráðuneytið hefur spáð því að Serbum gæti tekist að skjóta niður a.m.k. tíu herþotur NATO. FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 29 Upplýsingar um starfsemi á árinu 1998 Góð ávöxtun T raust eignastaða Helstu niðurstöður ársreiknings 1998 í miiljónum króna •■MMnHnHHMMMHnnBMnBIMW Q Rekstur Yfirlit um breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris 1998 1997 Iðgjöld 827,3 720,8 Lífeyrir (364,1) (332,5) Fjárfestingatekjur 1.531,2 1.203,9 Fjárfestingagjöld (14,6) (11,1) Rekstrarkostnaður. (24,4) (23,1) Aðrar tekjur 10,7 13,4 Hækkun á hr. eign án matsbreytinga 1.966,1 1.571,4 Endurmat rekstrarfjármuna 0,2 0,4 Hækkun á hreinni eign á árinu 1.966,3 1.571,8 Hrein eign frá fyrra ári 12.830.0 11.258.2 Hrein eign til greiðslu lífeyris 14.796,3 12.830,0 Q Helstu kennitölur: Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum................... 44,0% Kostnaður sem hlutfall af iðgjöldum................... 1,6% Kostnaður sem hlutfall af hreinni eign................ 0,1% Kostnaður á hvern virkan sjóðfélaga...............2.104 kr. Nafnávöxtun að frádregnum rekstrarkostnaði........ 11,5% Raunávöxtun að frádregnum rekstrarkostnaði......... 10,1% Meðaltal hreinnar raunávöxtunar síðastliðin 5 ár... 9,0% Hækkun á hreinni eign................................ 15,3% Hækkun lífeyrisskuldbindinga.......................... 7,8% Fjöldi starfsmanna..................................... 4,5 Fjöldi virkra sjóðfélaga, ársmeðaltal................ 6.480 Fjöldi lífeyrisþega.................................. 2.093 Q Efnahagur Efnahagsreikningur 31.12.1998 1998 1997 Fasteignir 0,0 7,1 Hlutabréf 5.286,3 3.193,4 Skuldabréf 8.658,5 9.238,0 Aðrar fjárfestingar 699.6 413.3 Fjárfestingar alls ... 14.644,4 12.851,8 Kröfur 82,2 47,6 Aðrar eignir 104,5 19,5 Skammtímaskuldir. (34,8) (88,9) Hrein eign til greiðslu lífeyris .... 14.796,3 12.830.0 Q Tryggingafræðileg staða 31.12.1998 Bókfært verð eigna.................................... 14.796 Endurmat eigna - núvirði fjárm.gjalda.................. 1.013 Verðmæti framtíðariðgjalda....................... 11.549 Eignir til tryggingafræðilegs uppgjörs................ 27.358 Verðmæti áunninna lífeyrisréttinda í sjóðnum 13.657 Verðmæti framtiðarlífeyrisréttar...................... 12.022 Heildarskuldbindingar................................. 25.679 Eignir umfram lífeyrisskuldbindingar................... 1.679 Ávöxtun síðastliðinna 5 ára 16,0% □ Raunávöxtun 9 Nafnávöxtun 1994 1995 Skipting eigna Erlend hlutabréf Skipting lífeyris Barnalífeyrir 3% í stjórn Lífeyrissjóðs Norðurlands 1998 voru: Frá launþegum: Frá atvinnurekendum: Guðmundur Ómar Guðmundsson, form. Aðalsteinn Á. Baldursson Valdimar Guðmannsson Framkvæmdastjóri: Kári Arnór Kárason Jón Hallur Pétursson Björn Sigurðsson Jón E. Friðriksson Ársfundur Lífeyrissjóðs Norðurlands verður haldinn að Skipagötu 14, Akureyri mánudaginn 26. apríl 1999 kl. 1600. Fundurinn er opinn öllum sjóðfélögum. S^mbl.is AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111 * Bréfsími: 569 1110 * Netfang: augl@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.