Morgunblaðið - 26.03.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 31
ÁRÁS NATO Á JÚGÓSLAVÍU
Reuters
VUK Draskovic, aðstoðarforsætisráðherra Júgóslavíu, á blaðamanna-
fundi í Belgrad í gær.
Fréttamenn frá
N ATO-ríkjunum
reknir burt
FJOLMIÐLAR
Belgrad. Reuters.
STJÓRNVÖLD í Serbíu skipuðu í
gær öllum fréttamönnum NATO-
ríkjanna að koma sér úr landi tafar-
laust en í gærkvöldi var tilkynnt að
þeim yrði leyft að starfa. Höfðu þá
margir fréttamenn yfirgefíð Jú-
góslavíu. Voru fréttamennirnir sak-
aðir um að hafa „ýtt undir árásirn-
ar“ með fréttaflutningi sínum. Að-
stoðarforsætisráðherra Júgóslavíu
sagði hins vegar, að það væri ekki
vilji sambandsstjómarinnar að reka
fréttamenn. I fyrradag lokuðu
serbnesk stjómvöld stærstu óháðu
útvarpsstöðinni í landinu og hand-
tóku útvarpsstjórann.
f yfirlýsingu serbneska upplýs-
ingamálaráðuneytisins um brott-
reksturinn sagði, að fréttamenn
NATO-ríkjanna hefðu ýtt undir yf-
irganginn gagnvart Júgóslavíu með
fréttum sínum og flutt umheiminum
rangar fréttir um ástandið í land-
inu. Var þeim sagt að hverfa úr
landi strax en það á aðeins við um
Serbíu, ekki Svartfjallaland.
Brottreksturinn kom flatt upp á
Vuk Draskovic, aðstoðarforsætis-
ráðhema Júgóslavíu, en skömmu
áður hafði hann fullvissað erlendu
fréttamennina um, að þeir væm vel-
komnir og mættu vinna sitt verk
óhindrað. Sagði hann, að Júgóslavar
þyrftu á rödd þeirra að halda gagn-
vart umheiminum.
Sambandsstjórnin sniðgengin
„Petta er ekki afstaða sambands-
stjómarinnar,“ sagði Draskovie en
ekki er ljóst hvort skoðanir hans
mega sín nokkurs. Hann var áður
leiðtogi stjómarandstöðunnar í
landinu en þáði síðan embætti að-
stoðarforsætisráðherra úr hendi
Milosevic.
í rauðabýtið í fyrradag lokuðu
serbnesk stjómvöld útvarpsstöðinni
B92 en hún er ein af fáum útvarps-
stöðvum í Júgóslavíu, sem flutt hafa
óritskoðaðar fréttir. Var því borið
við, að sendirinn væri öflugri en
leyfílegt væri og útvarpsstjórinn
handtekinn. Fréttamönnum stöðv-
arinnar tókst þó í fyrradag að halda
áfram fréttaflutningi í gegnum Net-
ið og talsmaður Evrópsku útvarps-
og sjónvarpsstofnunarinnar sagði,
að reynt yrði að flytja dagskrá B92
og annarra óháðra útvarpsstöðva í
Júgóslavíu um gervihnött.
Handtökur
og hótanir
Serbnesk heryfirvöld voru búin
að loka fyrir sendingar erlendra
fréttamanna frá landinu áður en
þeir vom flestir reknir burt. í
Belgrad vom tuttugu frétta- og
tæknimenn handteknir í fyrradag,
þar af sex Bandaríkjamenn, en látn-
ir lausir eftir yfirheyrslur nokkmm
klukkustundum síðar og í Pristina í
Kosovo var haft í hótunum við
fréttamann CNN-sjónvarpsstöðvar-
innar bandarísku og samstarfsmenn
hans. Vom dekkin á bílnum hans
skorin og einn serbnesku foringj-
anna sýndi honum tvær byssukúlur
og sagði: „Þessar em handa þér.“
Margir múslimar
hlynntir árásunum
MÚSLIMARÍKIN
Kaíró. Reuters.
LOFTÁRÁSUM NATO á skotmörk
í Júgóslavíu var fagnað í mörgum
múslimaríkjum í gær, en Irakar,
sem hafa sjálfir orðið fyrir árásum
Bandaríkjamanna og Breta, for-
dæmdu hemaðaríhlutunina.
„Hvers vegna gerist það aftur og
aftur að Bandaríkjastjóm beitir
flugvélum og flugskeytum gegn
Bagdad, Belgrad og fleiri stöðum í
heiminum til að leysa pólitísk
vandamál, í stað viðræðna og skiln-
ings?“ sagði íraska dagblaðið al-
Thawra.
Irakar sögðust vita hvað Júgósla-
var þyrftu að þola og létu í ljós þá
von að ef loftárásimar bæm ekki
árangur myndu Bandaríkjamenn
hugsa sig tvisvar um áður en þeir
beittu aftur hervaldi í írak.
„Réttlætinu loksins
fullnægt,"
I öðrum múslimaríkjum eru
menn almennt þeirrar skoðunar að
Serbar verðskuldi hemaðaraðgerðir
NATO vegna kúgunar þeirra á
múslimum í Kosovo. „Réttlætinu er
nú loksins fullnægt af hálfu Vestur-
landa, sem hafa alltaf gerst sek um
tvískinnung í málefnum múslima,"
sagði 46 ára verkfræðingur í
Marokkó. „Við fögnum þessum
árásum á Serba, sem hafa myrt trú-
bræður okkar í Kosovo og áður
Bosníu. írak er allt annað mál. Við
höfum alltaf verið andvíg árásum
Vesturlanda á Irak og eram það
enn.“
í Egyptalandi eru flestir hlynntir
árásum NATO en nokkrir Egyptar
hafa þó látið í ljós óánægju með að
bandalagið skyldi ekki óska eftir
samþykki öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. „Petta eru skilaboð til
allra einræðisherra um að þeir kom-
ist ekki upp með glæpi sína. Þetta
sýnir að Bandaríkjamenn gera ekki
aðeins sprengjuárásir á írak vegna
þess að þeir eiga í deilum við
Saddam Hussein," sagði skrifstofu-
maður í Kaíró.
B-2 notuð
í fyrsta
sinn í
hernaði
HATÆKNI
f LOFTÁRÁSUM NATO á
júgóslavnesk skotmörk í gær
var bandaríska B-2 sprengju-
þotan notuð í fyrsta sinn í
hernaði. Þotan er eitthvert
fullkomnasta vopn sem völ er
á. Smíði þotunnar, sem er af-
kvæmi kalda stríðsins og átti
að leysa B-52 sprengjuvélina af
hólmi, var lengi haldið leyndri
og viss dulúð hefur hvílt yfir
vélinni allt frá því hún var
fyrst sýnd opinberlega árið
1988.
Bandarísk hermálayfirvöld
hafa lýst því yfír að frumraun
B-2 þotunnar hafi gengið vel í
alla staði, og svöruðu þar með
efasemdarröddum sem hafa
kallað smíði þotunnar tíma-
eyðslu og sóun fjármuna. Hef-
ur gagnrýnin einkum beinst að
kostnaðinum en hvert eintak
kostar yfir 140 milljarða ís-
lenskra króna í framleiðslu.
Vélin er búin þeim einstæðu
eiginleikum að geta flogið án
þess að ratsjár óvinarins nemi
ferðir hennar. Eru vélarnar
þaktar sérstakri dökkri máln-
ingu sem „hrinda frá sér“ rat-
sjárgeislum, þær eru samsettar
úr sérstökum málmblöndum og
útlit hannað á sérstakan hátt.
DÝRASTA SP'RENGJUÞOTA VERAIDAR
Bandaríska B-2 „Stealth" sprengjuþotan var í gær notuð í hernaði í
fyrsta sinn er hún tók þátt í loftárásunum á skotmörk í Júgóslavíu.
B-2 vélarflugu frá Whitman herstöðinni í Missouri í Bandarikjunum
og vörpuðu gerfihnattastýrðum stýriflaugum sem vega tæpt eitt tonn.
TÆKÍMBUNABUR B-2
Stýribúnaður
Upplýsingar frá þrýstings-
nemum berast til
flókins stjórnkerfis
vélarinnar
Þrýstikraftur
7.850 kg
hvor vél.
Flugstórnarklefi
Tveir flugmenn fljúga
vélinni en pláss er fyrir
þriðja áhafnarmeðlim.
Fimm eru í áhöfn B-52 flugvélar.
B-2 er fjölhæf sprengjuflugvél sem getur jafnt
flutt venjulegar sprengjur og kjarnahleðslur.
Hún getur flogið 9.600 km án áfyllingar.
Sérstakur búnaður ------------------
Vélin svarar illa innrauðum geislum,
hljóðsjám, rafsegul- og ratsjár-
geislum og þess vegna eiga
loftvarnakerfi erfitt með
Heimildir: Jane's Information Group, U.S. Department of the Air Force.
Margt af þeim tæknibúnaði og raun ber vitni, er þó enn á
sem gerir vélina eins „torséða“ huldu.
/eprfc W/K
HEMHIl
EVHÓF0 ÁIIH 2:0'©©
Helsinki menningarborg Evrópu áríó 2000 ísamvinnuvið
RÍKISÚTVARPIÐ
Finrrski fprleiHgurinn
Art gcDes Kapakka
djass, teknó og kitlandi klassík
um allan bae 26.- 26. mans 1 999
wmf , -, '“.'‘f
.............i
w
Föstudagur 26. mars
Solon Islandus Anna-Mari Káhárá Band
kl. 22.00 Raakel Lignell & Kirmo Lintinen
» m V, -
GaukuráStöng Rinneradio
kl. 24.00
Kaffi Thomsen DJ Bunuel
kl. 23.00
Laugardagur 27. mars
Iðnó
kl. 16.00
Lenni-Kalle Taipale Trio
Raakel Lignell & Kirmo Lintinen
Gaukur á Stöng DJ Bun
kl. 23.30
Finland
FLUGLEIDIR
Sunnudagur 28 mars
Gaukur á Stöng Rinneradio
kl. 21.30 Lenni-Kalle Taipale Trio
Anna-Mari Kahara Band
DJ Bunuel