Morgunblaðið - 26.03.1999, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
„Mín ljóssælna vís“
MYIVPLIST
Listhús Ófcigs
MÁLVERK
FRIDRÍKUR
Opið á tíma skartverzlunarinnar. Til
27. mars. Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ verður stöðugt meira áber-
andi hvemig ungir hræra saman
listgreinum á ýmsa vegu. Mála
kannski útfrá inntaki Ijóða eða inn-
tak eigin málverka verður þeim
innblástur til prósaljóða, eða hvort
tveggja fylgist að eins og tilfellið
virðist vera hjá unga manninum
með listamannsnafnið Friðríkur.
Þá leitar alheimurinn, hið yfirskil-
vitslega ásamt óendanleikanum,
gjarnan á slíka, engar línur beinar,
engar hugsanir rökréttar og ekk-
ert ferli úthugsað, allt er háð núinu
óræðum lögmálum og tilviljunum
ásamt tilhneigingunni til að stokka
upp hlutina í hráum gráma hvunn-
dagsins. Þetta er eins konar leit að
haldfestu í óstöðugum heimi,
óformlegur leikur við efniviðinn
handa á milli svo og lausbeisluð
skynhrif.
Friðríkur, sem teiknar með kol-
um en málar með lituðu parafín-
vaxi og olíulitum á hersíanstriga,
segir þungamiðjuna í sköpunarferl-
inu vera hin andlegu vísindi Martr-
inusar. Hver sem þau fræði annars
eru, greinast ýmis jarðtengdari
áhrif þá hinu meinta andlega inn-
taki firrðar og óendanleika sleppir,
og þá helst frá Spánverjanum Joan
Míró. En andstætt fýrirmyndinni
eru vinnubrögðin stórum ósýni-
legri og óræðari, hér skortir nefni-
lega mjög á þjálfun, dýpri lifanir
inn í lögmál forms, flatar, línu og
lita, hvað þá innri lífæðar mynd-
flatarins, en slíkt næst ekki nema
með þrotlausri vinnu.
Eðhsbornir en óþjálfaðir hæfi-
leikar koma fi-am í myndum eins
og „Kennileiti hins óræða (9) og
„Sfinx, (10). Ef nokkrar leiðrétt-
ingar mínar á texta og nöfnum í
skrá eru réttar í þessu skrifi, er
einsýnt að hin unga litspíra ætti að
læra betur íslenzkt mál áður en
hann yrkir og huga að grunnatrið-
um myndlistar áður en hann mund-
ar pentskúfinn.
Bragi Asgeirsson
Gítartónleik-
ar í Hvera-
gerðiskirkju
TÓNLEIKARNIR á vegum Tón-
listarfélags Hveragerðis og Ölf-
uss verða haldnir í Hveragerðis-
kirkju á morgun, laugardag kl.
17. Þar mun Kristinn H. Arnason
gítarleikari flylja tónverk eftir
Fernando Sor, Johann Sebastian
Bach, Jón Ásgeirsson, Joaquin
Turina og Isaac Albeniz.
Kristinn lauk burtfararprófi
frá Tónskóla Sigursveins árið
1983. Eftir það stundaði hann
framhaldsnám í London, New
York og Alicante á Spáni.
Kristinn hefur haldið tónleika
hér heima og víða erlendis. Þijár
geislaplötur hafa komið út með
GÍTARLEIKARINN
Kristinn H. Ámason.
verkum Kristins og hlaut geisla-
platan með verkum Sor og Ponce
Islensku tónlistarverðlaunin sem
klassísk plata ái-sins 1996.
Aðgangseyrir 1.000 kr. en tón-
Iistarskólanemar og eldri borg-
arar greiða 500 kr., einnig fé-
lagsmenn Tónlistarfélags Hvera-
gerðis og Ölfuss.
Rembrandt fær
ekki fararleyfí
London. Morgunblaðið.
BREZKA stjórnin hefur sett út-
flutningsbann á Rembrandt-mál-
verk og gefið brezkum söfnum
þriggja mánaða frest til þess að
afla þeirra 9,3 milljóna punda, jafn-
virði tólf hundruð milljóna ísl.
króna, sem málverkið var selt á.
Málverk Rembrandts af eldri
manni var í eigu Camborne lá-
varðar, en hollenzkir aðilar
keyptu það af dánarbúi hans.
Þetta er eitt þriggja portretta eft-
ir Rembrandt, sem til eru í Bret-
landi; hin tvö eru í eigu National
Gallery. Takizt brezkum aðilum
ekki að afla fjár til kaupanna inn-
an þriggja mánaða, má fram-
lengja útflutningsbannið um aðra
þrjá.
Ekki er að efa að National Gall-
ery mun freista þess að eignast
þriðja Rembrandt-portrettið, en
meðan fjár er aflað til þeirra
kaupa, fær safnið annað málverk
upp í hendumar; portrett af Ces-
are Allesandro Scaglia eftir Van
Dyck. Það málverk segir The Gu-
ardian að ríkið hafi tekið upp í
erfðaskatt afkomenda Camrose lá-
varðar.
amot
Þessum húsgagnalínum er ætlað að uppfylla hið
fjölþætta hlutverk sem vönduð skólahúsgögn fyrir
ungt fólk í örum vexti þurfa að gegna.
í dag og á morgun, laugardag. er þér boðið á sýningu
þar sem kynnt verða ný og eldri skólahúsgögn GKS.
Á sýningunni verður einnig leitast við að veita gestum
innsýn í skólaumhverfi framtíðarinnar með heildar-
lausnum GKS í innra umhverfi skólans. _____________
H úsgagnagerö
200 Kópavogur
Á uppvaxtarárum er mikilvægt að notuð séu
húsgögn sem eru sérhönnuð fyrir fólk sem
stækkar ört. Sá tími sem börn og unglingar
eyða á skólabekk er sífellt að lengjast og því
er rétt líkamsbeiting áríðandi.
GKS hefur um langt skeið verið f fararbroddi í hönnun
og framleiðslu skólahúsgagna og felst velgengnin
einkum í góðri og skipulagðri samvinnu fagfólks.
Samstarf iðnhönnuða, sjúkraþjálfa og þeirra sem starfa
daglega f innra umhverfi skólans hefur skilað sér (
heildstæðum húsgagnalínum GKS fyrir ungt skólafólk.
Fax 567 1 688