Morgunblaðið - 26.03.1999, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 37
LISTIR
Karl Jóhann
sýnir í Spari-
sjóði Garða-
bæjar
Á PÁLMASUNNUDAG kl. 14 opn-
ar Karl Jóhann Jónsson myndlistar-
sýningu í Sparisjóðnum, Garðatorgi
1, Garðabæ. Sýningu sína nefnir
hann Bankastemmu og vísar það til
portret-seríu af fólki sem gæti verið
viðskiptavinir Sparisjóðsins að
borga reikninga, segir í fréttatil-
kynningu.
Karl Jóhann Jónsson útskrifaðist
úr málaradeild Myndlista- og hand-
íðaskóla ísiands 1993 og hefur hald-
ið nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í fjöida samsýninga. Með
myndlistinni starfar Karl Jóhann
við garðyrkju hjá Kirkjugörðum
Reykjavíkurprófastsdæma og
stundar einnig söngnám við Nýja
Tónlistarskólann.
Sýningin verður opin alla daga á
afgreiðslutíma Sparisjóðsins og
stendur til 7. maí.
Þjófar stela þjófum frá
KVIkl\lYI\imi
Bfóborgin
„LOCK, STOCK & TWO
SMOKING BARRELS" irk'k
Leikstjdri og handritshöfundur Guy
Ritchie. Kvikniyndatökustjdri Tim
Maurice-Jones. Tdnskáld David A.
Hughes, John Murphy. Aðalleikendur
Jason Flemyng, Dexter Fletcher,
Nick Moran, Jason Statham, Steven
Macintosh, Vinnie Jones, Sting,
Lenny McLaren, P.H. Moriarty.
Bresk. Polygram 1998.
BRESKU nýbylgjunni hefur verið
haldið óspart á lofti í auglýsingum um
þennan nýja gálgahúmorskrimma.
Vissulega er Lock, Stock & Two
Smoking Barrels bresk, en minnir að
öðru leyti ekkert sérstaklega á þær,
vissulega ólíku, ágætismyndir sem
kenndar hafa verið við þá stefnu.
Myndin er hinsvegar undir sterkum
áhrifum frá Bandaríkjamönnunum
Quentin Tarantino og hinum alamer-
íska rithöfundi Elmore Leonard, sem
stingur vart niður penna öðruvísi en
að afraksturinn sé kvikmyndaður. Þá
er myndin greinilega gerð af sjóuðum
tónlistarmyndbanda- og sjónvarps-
auglýsingaleikstjóra, en nýliðinn, leik-
stjórinn og handritshöfundurinn Guy
Ritchie, sprettur úr þeim jarðvegi.
Ritchie hefur einnig séð gamlar og
góðar breskar sakamála- og gaman-
myndir. Þó andi Bandaríkjamann-
anna svifi skýrast yfir vötnunum þá er
myndin hans hanastél úr þessum hrá-
efnum öilum.
Snúinn söguþráðurinn er eitthvað á
þá leið að nokkrir smákrimmar hafa
önglað saman talsverðri fjárupphæð
sem Tom (Jason Flemyng), sá fram-
bærilegasti þeirra, á að ávaxta í
pókerspili við ,Axar-“Hairy, klám-
kóng og undirheimahöfðingja. Hann
snýr á græningjann sem snýr til
baka niðurbrotinn, í hálfrar milljón-
ar punda spilaskuld, með axarkjagg-
ið vofandi yfir fingrrum sínum og fé-
laganna, í ódeigum höndum Barrys
baptista, drápara glæpahöfðingjans.
Smákrimmamir grípa til þess ör-
þrifaráðs að fjármagna slysavarnir
sínar með því að ræna aðra undir-
málsmenn í glæpum. Nágranna, sem
hafa stórrán í undirbúningi frá enn
öðrum þjófum. Inní þessa endaleysu
blandast svo tveir aulabárðar til við-
bótar, sem ræna tveimur haglabyss-
um fyrir Axar-Harry. Þá má ekki
gleyma öðrum innheimtumanni
Harrys, Stóra Krissa (Vinnie Jones),
sem lætur sér fátt fyrir brjósti
brenna í innheimtuaðferðum sem á
ylhýra málinu eru kenndar við hand-
rukkun.
Allt fer úrskeiðis sem getur farið
úrskeiðis í fjármögnunarleiðum smá-
þjófanna - sem eru ekki vel vaxnir til
stórræða. Ritchie hlífir okkur bless-
unarlegá við ofurofbeldi, leggur
meiri áherslu á grínið, blandað
óstöðvandi, upp-púrrandi tónlist, allt
frá rokki til Theodorakis. Útkoman
Yinnustofu-
lokun
ÁSGEIR Lárusson efnir til lok-
unar vinnustofu sinnar og gallerís
á Skólavörðustíg 8, á morgun,
laugardag, frá kl. 14-18. Til
stendur að rífa húsnæðið á vor-
dögum.
Á lokuninni verða til sýnis og
sölu nýleg verk og einnig eldri og
verður viðhaft frjálslegt verðlag,
enda salurinn rýmdur, segir í
fréttatilkynningu.
Lokunin stendur frá kl. 14-18.
er misgóð. Minnipokamannafyndnin
virkar best, sá miklisannleikur sem
Leonard, Hiaasen og fleiri góður
menn hafa lifibrauð sitt af um þessar
mundir, að menn eigi ekki að færast
meira í fang en þeir ráða við. Síst
bjálfar. Nokkrar persónur eru einnig
skýrar og skemmtilegar. Fyrst og
fi-emst Stóri Krissi, sem Vinnie Jones,
gamii sóknarjaxlinn í Wimbledon,
leikur með trúverðuugm tilþrifum.
Harry er einnig vel borgið í höndum
P.H. Moriarty og skelmirinn Barry
baptisti, sem reyndar er spegilmynd
Lawrence Tiemey-karaktcrsins í
Reservoir Dogs, en Lenny McLean
kemst upp með það. Vandamálið eru
yngri leikaramir í smákrimmagengj-
um þremur. Þeir em flestir sviplaus
hjörð sem er íjandakomið ekki hægt
að greina í sundur. Altént ekki þegar
þeir era komnir í einn graut. L, S &
TSB, hefur gengið vel í heimalandinu,
naglasúpa sem þessi gengur vel í
Bretlandi. Spuming hvort aðrir séu
nógu vel með á nótunum, en skemmt-
unin er fyrir hendi
Sæbjörn Valdimarsson
VINNUSTOFA Ásgeirs Lárs-
sonar verður rýmd á laugardag.
Samkór-
inn Björk í
tónleika-
ferðalag
SAMKÓRINN Björk úr
Austur-Húnavatnssýslu held-
ur tvenna tónleika á morgun,
laugardag. Fyrri tónleikarnir
verða í Safnaðarheimilinu á
Akranesi kl. 14 en hinir síðari
í Kópavogskirkju kl. 20. í
Kópavogskirkju kemur
Húnakórinn í Reykjavík til
liðs við samkórinn. Húnakór-
inn er blandaður kór stofnað-
ur haustið 1993 og sam-
anstendur af kórfólki hún-
vetnskrar ættar og burtflutt-
um Húnvetningum. Telur
hann um 30 manns. Stjórn-
andi kórsins er Kjartan
Ólafsson og syngur hann
einnig einsöng með kórnum.
Undirleikari er Hólmfríður
Sigurðardóttir.
Þrjátíu félagar
í kórnum
Samkórinn Björk hefur starf-
að í 15 ár. Félagar eru 30. St-
arfsemin hefur verið blómleg
og síðastliðið haust gaf hann
út sinn fýrsta geisladisk,
Bjarkartóna.
Stjómandi og undirleikari
kórsins er Tómas Higgerson,
Varmahlíð. Einsöngvarar með
kómum era allir úr röðum
kórfélaga, Sigfús Pétursson,
Álftagerði og hjónin Halldóra
Á. Gestsdóttir og Steingrímur
Ingvarsson, Litlu Giljá.
Karlakórinn
Hreimur syngur í
Y íðistaðakirkju
Húsavík. Morgunblaðið.
KARLAKORINN Hreimur í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu heldur tónleika
í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á
morgun, laugardag, kl. 20. Söng-
kvartettinn Ut í vorið kemur fram
á tónleikunum og syngur bæði sér
og með kómum.
Efnisskráin á tónleikum karla-
kórsins Hreims er fjölbreytt og
sungin verða bæði innlend og er-
lend lög. Auk kórsöngs er sunginn
einsöngur og era það þeir Ás-
mundur Kristjánsson, Baldur
Baldvinsson, Einar Hermannsson,
Guðmundur Jónsson og Sigurður
Þórarinsson sem það gera.
Karlakórinn Hreimur hefur um
langt árabil haldið uppi öflugu
söngstarfi í Þingeyjarsýsiu og era
félagar í kórnum búsettir víða í
héraðinu. Það þýðir að þeir 50
söngmenn sem skipa kórinn aka
margir hverjir langar vegalengdir
á æfmgar og þrír Þingeyingar
koma alia leið frá Akureyri. St-
arfsvettvangur kórsins er í félags-
heimilinu Ýdölum og er æft að
jafnaði tvisvar í viku við venjuleg-
ar aðstæður.
Starfsár kórsins hófst um miðj-
an október og á haustdögum vora
haldnir fernir tónleikar, þ.e. á
Breiðumýri, í Fellsborg á Skaga-
strönd, Miðgarði í Skagafirði og
Laugaborg í Eyjafirði. Á öllum
þessum stöðum fékk kórinn mjög
góðar undirtektir.
Stjórnandi kórsins frá árinu
1988 er Robert Faulkner tónlistar-
kennari við Hafralækjarskóla, en
hann stundaði söngnám við Guild-
hall School of Music and Drama og
nam síðar kór- og hljómsveitar-
stjórn við Royal Academy of
Music. Juliet Faulkner kona hans
er undirleikari hjá Hreimi, en hún
stundaði nám í píanóleik við Royal
Academy og vann um skeið sem
undirleikari.
Störf þeirra sem tónlistarkenn-
arar við Hafralækjarskóla frá
1986 hafa vakið athygli og við
skólann hefur verið ráðist í upp-
færslu á söngleikjum og óperum
að framkvæði Faulkner-hjón-
anna.
Á næstunni verður kórinn á
faraldsfæti, en til stendur að fara
í vikuferðalag til Þýskalands á
sunnudag og verða þar haldnir
tvennir tónleikar í Meiningen og
Wiesenbach, en kórinn verður
einnig á íslensku kvöldi í Wiesen-
bach og ætlunin er að syngja í
lúthersku kirkjunni í Bamberg.
Undirbúningur fyrir þessa söng-
ferð hefur staðið í langan tíma og
að sögn Ásmundar Kristjánssonar
á Stöng í Mývatnssveit sem situr í
stjórn kórsins hafa heimamenn í
Þýskalandi veitt ómetanlega hjálp
við undirbúninginn. Kynni hafa
komist á í gegnum ferðaþjónust-
una á Stöng og þess skal geta að í
Wiesenbach verður kynning á
Húsavík og Þingeyjarsýslu áður
en tónleikar Hreims hefjast.
f§m bl.is
_ALLTAF etTTHVAÐ NÝJT
Nám, . ... .
Enyrri old
Ráðstefna um framtíðarskipulag náms á ffamhaldsskólastigi
í upplýsinga- og fjölmiðlagreinum verður haldin laugardaginn
27. mars 1999, kl. 13-17, á Hótel Lofdeiðum
Td ráðstefnunnar er boðað til að kynna nýtt skipulag á námi í
upplýsinga- og fjölmiðlagreinum á Islandi. Einng munu fulltrúar
frá nágrannalöndunum kynna nám í Svíþjóð og Danmörku.
Dagskrá:
• Mæting.
• Ráðstefnan sett. Hjörtur Guðnason,
framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar.
• Ávarp, Björn Bjarnason, menntamálaráðherra.
• Thorbjörn Öhrnell, Grafiska Fackföreningen, Svíþjóð.
• Anders Mosumgaard, Grafisk Arbejdsgiverforening, Danmörk.
• Kaffihlé
• Baldur Gíslason, Starfsgreinaráð upplýsinga-
og fjölmiðlagreina.
• Ráðstefnuslit.
Ráðstefnan er ætluð ljósmyndurum, tölvumönnum, prentsmiðum,
prenturum, bókbindurum, blaðamönnum og öllum þeim sem vinna
við upplýsingaiðnaðinn.
Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Hlutverk Starfsgreinaráðs upplýsinga- og fjölmiðlagreina
Samkvæmt lögum nr. 80/96 er hlutverk starfsgreinaráðs meðal annars:
Starfsgreinaráð skilgreinir þarfir starfsgreina fyrir kunnáttu og hæfni starfsmanna.
Starfsgreinaráð skal hafa frumkvæði að tillögugerð um breytta skipan náms
í þeim starfsgreinum er undir ráðið heyra.
Starfsgreinaráð gerir tillögur um uppbyggingu starfsnáms og námskrá
í sérgreinum viðkomandi starfsnáms, svo og um tilhögun námsmats.
Prenttæknistofnun
Hallveigarstig 1 • Sími 562 0720 • Netfang pts@pts.is