Morgunblaðið - 26.03.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 26.03.1999, Síða 39
,Ta, TCTtsTTr^rrfy^r onn^ *>r nimí nT^onrT Ö<? MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 39 LISTIR Leikhópurinn Leyndir draumar Frumsýna Herbergi 213 LEIKFÉLAGIÐ Leyndir draumar er nú að æfa leikritið „Herbergi 213“ eða „Pétur mandólín“ eftir Jökul Jakobs- son. Leikstjóri er Sigurþór B. Heimisson, Sex leikarar fara með hlutverk í sýningunni og frumsýnt verður á morgun, laugardaginn 27. mars, í Mögu- leikhúsinu við Hlenim og eru áætlaðar tíu sýningar. Jökull Jakobsson skrifaði alls tuttugu og fjögur leikrit fyrir svið, útvarp og sjónvarp. „Vin- sældir Jökuls sem leikrita- skálds mótast efalaust af því að persónur hans eru teknar beint úr samtímanum. Fólk finnur til skyldleika við þær,“ segir í fréttatilkynningu frá leikhópn- um. Leikritið „Herbergi 213“ eða „Pétur Mandólín“ var frumsýnt á litla sviði Þjóðleik- hússins 29. desember 1974. Leikfélagið „Leyndir draum- ar“ var stofnað haustið 1995. Að stofnun þess stóð hópur áhugafólks um leiklist sem sótt hafði námskeið í Kramhúsinu undir sama nafni hjá Hlín Agn- arsdóttur allt frá árinu 1992. Nokkrir félagar hafa verið eða eru nú erlendis í leiklistarnámi. Fyrri sýningar hópsins eru leikverkið „Magdalena" sem sýnt var á Galdraloftinu og byggðist það á Frúnni frá haf- inu eftir Ibsen og „Mitt bælda líf“ sem Hlín Agnarsdóttir skrifaði í náinni samvinnu við leikhópinn og sýnt var í Mögu- leikhúsinu við Hlemm. í febrú- ar 1997 setti leikfélagið á svið Glæp og glæp, annan af tveim- ur gamanleikjum sem August Strindberg skrifaði. Vorið 1998 settu Leyndir draumar upp verkið „Á bleiku skýi“ eftir breskan höfundinn Caryll Churchill. Að auki hefur hópur- inn unnið bæði með örleikrit, spunaverkefni og einþáttunga með ýmsum leikstjórum ásamt því að mennta sig í framsögn, raddbeitingu og göldrum ítal- skrar gamanleikjahefðar. „Við erum metnaðarfullur leikhópur sem velur ekki verk eftir því hvort vonin um aðsókn sé góð, heldur veljum við það sem okkur finnst þess virði að eyða dýrmætum frítíma okkar í þar sem við erum öll í fullri vinnu. Auðvitað vonum við samt í hvert sinn að verkið veki áhuga leikhúsgesta eins og það hefur vakið áhuga okkar,“ seg- ir Júlía Hanna, formaður Leik- félagsins Leyndir draumar. Morgunblaðið/Golli Leikhópurinn Leyndir draumar frumsýnir Herbergi 213 eftir Jökul Jakobsson á laugardagskvöld. Skólatón- leikar í Egilsstaða- kirkju FYRSTU vortónleikar Tón- listarskóla Austur-Héraðs verða í Egilsstaðakirkju á morgun, laugardag, kl. 16. Þar leika ungir hljóðfæraleik- arar einleik og í hljómsveit- um. Flutt verða m.a. lög eftir nemendur skólans sem samin hafa verið í vetur. Flokkur þverflautuleikara fer til Reykjavíkur 17. apríl og taka þátt í Degi þverflaut- unnar. Einn af kennurum skólans, Charles Ross, hefur samið verk til flutnings fyrir hópinn af þessu tilefni. Aðrir hljómleikar á þessu vori verða í Egilsstaðakirkju miðvikudagskvöldið 21. apríl. Þar koma fram eldri nemend- ur og lengra komnir. Gugga sýnir í Galleríi Horninu GUÐBJÖRG Hákonardóttir, Gugga, opnar einkasýning- una Grænar grundir í Galler- íi Horninu, Hafnarstræti 15, á morgun, laugardag, kl. 16. Guðbjörg stundaði mynd- listarnám við Myndlistaskól- ann á Akureyri, Myndlista- skólann í Reykjavík, MHÍ og Listaakademíuna í Helsinki á árunum ‘85-’95. Hún hefur tekið þátt í nokkrum sam- sýningum. Sýningin er opin frá kl. 11 til 24, en sérinngangur kl. 14-18. Hún verður opin alla daga nema föstudaginn langa og páskadag, og stendur til 14. apríl. Ing’var Þorvaldsson sýnir í Café Mflanó NU stendur yfir sýning á 10 olíumálverkum eftir Ingvar Þorvaldsson í Café Mílanó. Ingvar hefur haldið einka- sýningar í Reykjavaík, Akur- eyri og Húsavík og tekið þátt í samsýningum. Sýningin stendur til 1. maí. Morgunblaðið/Sigríður STJÓRNANDI hljómsveitarinnar, Ingvar Jónasson, fiðluleikari, á æfingu með kórnum í Borgarneskirkju. A SA sækir Borg- firðinga heim Reykholt. Morgunblaðið. EKKI verður annað séð en að kóra- starf sé í miklum blóma í Borgar- firði. Nú hafa þrír kirkjukórar slegið saman í einn og æfa þeir af fullum krafti verk sem flutt verða með Sinfoníuhljómsveit áhuga- manna í Reykholtskirkju nk. laug- ardag kl. 16. Kórarnir syngja alla- jafna hver í sinni kirkju, þ.e. í Borgarnesi, Reykholti og á Hvann- eyri, en hafa áður í sameiningu flutt stærri verk. Þó svo að vega- lengdir standi ekki verulega í mönnum nú til dags hefur æfíngum verið skipt niður á staðina til hægðarauka, enda metnaðarfull dagskrá sem samstilla þarf. Hljómsveitin, sem skipuð er um 30 hljóðfæraleikurum, hefur heim- sótt ýmsa staði á landinu og leitast við að eiga samstarf við heimakór á hverjum stað fyrir sig. Er nú komið að Borgfirðingum að þiggja heim- sókn hljómsveitarinnar og hefur efnisskráin að geyma verk eftir Bach, Hándel, Mascagni og Mozart. Dagný Sigurðardóttir mun syngja einsöng á tónleikunum, en hún hefur verið mikill liðsstyrkur fyrir kórastarf í Borgarfírði. Meðal efnis sem flutt verður er lokakafli úr Matteusarpassíu eftir J.S. Bach og 1. kafli úr konsert eftir Mozart fyrir klarinett og hljómsveit. Allt gengur út á eitt KVIKMYMPIR Háskólubíó YOUR FRIENDS AND NEIGHBORSfHt Leikstjórn og handrit: Neil Labute. Aðalhlutverk: Amy Brenneman, Aar- in Eckhart, Catherine Keener, Natassja Kinski, Jason Patric og Ben Stiller. Polygram Filmed Entertain- ment 1998. LEIKSTJÓRINN Neil Labute átti aðra mynd á kvikmyndadög- unum Hal og Sprund, en sú hét „In the Company of Men“. Hún fjallaði um samskipti kynjanna eins og þessi mynd, hafði eina samvisku- og siðlausa karlper- sónu og gekk í hreinskilni sinni út á að reyna að ganga fram af áhorfendum. Tvö vinapör eiga hvort um sig við erfiðleika að stríða í ástarlíf- inu. Þau eru hvert um sig mjög ólíkar persónur og taka á vanda- Úrval fermingargjafa málunum með misjöfnum hætti, og á það eftir að hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir alla. Mér finnst þessi mynd skemmtilegri en sú fyrri. I stað þess að ganga út frá einni hug- mynd, byggir handritið á ríkum persónulýsingum sem eru mun meira gefandi, þótt handritið hefði mátt vera viðburðaríkara. Leikararnir eru allir hinir íín- ustu, og það er gaman að sjá Aar- on Eckhart aftur, en hann er mjög ólíkur sér frá fyrri mynd- inni. Þetta er skemmtilega heiðarleg og oft mjög fyndin mynd um hin eilífu vandræði í samskiptum karla og kvenna, en of auðveld til að vera eftirminnileg. Hildur Loftsdóttir WHITE SWANi____________J Dreifing: Engey ehf. Hverfisgata 103 s: 552 8877 fax: 552 0060 Tónleikar Skóla- hljómsveitar Kópavogs SKÓLAHLJÓMSVEIT Kópavogs heldur sína árlegu vortónieika í Salnum í Kópavogi á morgun, laugardag, kl. 15. Fram koma um 120 ungir hljóðfæraleikarar í þi-emur hljómsveitum. Á efnisskránni eru lög úr söng- leikjum og óperum, íslensk og er- lend dægurlög, þjóðlög og marsar. Einnig verða flutt nokkur lög sem notuð verða í tónleikaferð elstu sveitar hljómsveitarinnar til Eng- lands í maímánuði. Þar mun hljómsveitin taka þátt í tveimur tónlistarhátíðum með viðamikla dagskrá, sem felst í að tvinna sam- an tónlist, ljósmyndir og talað mál. Stjórnandi hljómsveitarinnar er Össur Geirsson. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn frá kl. 13. DAGSKRÁ 1. Starfsáætlun: Jóhann J. Ólafsson 2. Rekstraráætlun og félagsgjöld: Guðmundur G. Kristinsson 3. Kosning skoðunarmanns / endurskoðanda 4. Erindi vinnuhóps um svæðaskipulag Reykjavikur: Stefán Hermannsson, borgarverkfræðingur 5. Opin umræða. Framhaldsstofxifundur Samtaka um betri byggð á höfuðborgar- svæðinu verður í Norræna Húsinu_ laugardaginn 27. febrúar kl. 11:00 Sðmtök um betn bysgð Fundarstjóri: Ágústína Ingvarsdóttir 2000-2100
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.