Morgunblaðið - 26.03.1999, Síða 55

Morgunblaðið - 26.03.1999, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 26. MARZ 1999 55 ræktinni. Búið á Hamrafelli var rekið með mjólkurframleiðslu og eggjasölu. Par ríkti árvekni og snyrtimennska og búfé skilaði góð- um afurðum. Byggðin í Mosfellssveit tók að þéttast um og upp úr 1970 og nýbýl- in leysti sveitarfélagið til sín eftir þörfum og góðu samkomulagi við fólkið sem þar bjó. Annað kom til þegar frá leið, að fjölskylda gat ekki séð sér sæmilega farborða á svo knöppu landi sem hvert býli hafði sér til afnota. Býlin lögðust af hvert af öðru og ábúendur stunduðu aðra atvinnu, en lengst af var búið á Hamrafelli. Það varð síðasta nýbýl- ið þar sem ábúendur lifðu á land- búnaðarframleiðslu. Hjónin brugðu búi endanlega 1992 og fluttu að Hlaðhömrum í Mosfellssveit. Þá var Ólafur farinn að heilsu. Ólafur ólst upp í Miðfirðinum ásamt sjö systkinum. Hann fæddist í Huppahlíð og æskustöðvarnar voiu heiðarbýlin í Austurárdal norðan Tvídægru. Þar bjó fólk við sauðfjárrækt sem lagðist svo niður smám saman er kom fram um miðja öldina. Á yngri árum stundaði Ólaf- ur vinnu hjá ýmsum bændum og var t.d. eftirsóttur fjármaður á vetr- um en heyskaparmaður á sumrum hjá foreldrum sínum og á fleirí bæj- um. Ólafur kvæntist Jónu Sveinbjam- ardóttur frá Bjargarstöðum í Mið- firði 1937. Hann var fyrst og fremst bóndi og vildi leggja búmennsku fyrir sig sem ævistarf. Það tókst og hann taldi það lán í lífinu að geta búið á Hamrafelli meðan þrekið entist og notið samvista við sitt fólk og komið börnum til manndóms og mennta. Ólafur var hægur maður og yfir- lætislaus en þéttur fyrir ef því var að skipta. Það sem hann tók að sér að gera leysti hann vel af hendi. Þess vegna gaf hann ekki um of kost á sér til mikilla starfa í félags- málum. Hann sótti þó alla fundi vel sem hann taldi skipta máli fólk sitt eða stétt. Kátur, hlýr og notalegur reyndist hann í félagsskap, tillögu- góður og framsýnn. Með Ólafi hverfur af vettvangi minnisstæður persónuleiki sem markað hefur sín spor í vöxt og viðgang samfélagsins. Hjónaband hans og Jónu konu hans var farsælt og traust og heimilis- bragur eftir því. Heilsa Ólafs fór versnandi seinni árin, og annaðist Jóna hann af kostgæfni undir hið síðasta. Við samferðamenn Ólafs kveðjum nú með söknuði þennan heiðurs- mann og þökkum samstarfið. Ást- vinum hans vottum við samúð, en hann gengur nú á vit almættisins laus úr viðjum erfiðs heilsuleysis. Jón M. Guðmundsson. „Hvort vildir þú heldur búa í sveit eða í borg?“ spurði ég son minn sjö ára er við höfðum búið nokkra hríð í Mosfellssveit, sem ennþá var sveit, árið 1969. Það stóð ekki á svari: „í sveit,“ sagði sá stutti. „Og hvers vegna?“ spyr ég. „Það er svo miklu betra fólk í sveit- inni,“ svaraði barnið sem hafði þá kynnst bændunum, nágrönnum okkar. Ekki var nema steinsnar að næsta bæ, Hamrafelli, þar sem Ólafur bóndi bjó og kona hans, hún Jóna. Fljótt varð ég vör við að til Jónu og Ólafs var ég ávallt velkom- in og mikið var gott að setjast í borðstofukrókinn á Hamrafelli, þiggja góðgjörðir og rabba við hús- ráðendur. Húsfreyjan höfðingleg með reisn og húsbóndinn viðræðu- góður, oft góðlátlega kíminn og þetta hógværa látleysi sem ein- kenndi hann. En þau voru ekki aðeins greind og skemmtileg, Ólafur og Jóna. Þau létu sig nágrannana varða. Við á næsta bæ komum þeim við og þau sýndu okkur umhyggju, nágrönnun- um, borgarbörnunum. Við vorum í sveit og alltaf var Ólafur boðinn og búinn að gera okkur greiða og lið- sinna í því sem í hans valdi stóð. Á Hamrafelli var staðið vel að öll- um hlutum. Ekki voru þau rik af fé hjónin en höfðingsbragur var þar mikill og fannst húsbændum sælt að gefa. Ósjaldan var sent á næsta bæ kjöt, slátur, egg eða aðrar afurðir hússins og eggin hans Ólafs voru einhvem veginn bragðbetri en önn- ur egg, því Ólafur var góður við hænumar sínar og gaf þeim gott fóður. Hann hugsaði vel um veröld- ina sína, allt á Hamrafelli. Það hef- ur sjálfsagt verið betra að vera kind þar en víða annars staðar. Hans kindur fóru ekki á fjall á sumrin heldur var beitt á Hamrafellslandið og þær vom svo sælar og heima- kærar og vel uppaldar, kindumar hans Ólafs, að þeim datt aldrei í hug að stelast yfir í blómkál nágrannans eða nýrækt i trjám og túlípönum. í einkalífinu var Olafur farsæll. Þau Jóna kynntust á barnsaldri, ólust upp á nágrannabæjum í Mið- firði, sveit sem nú er komin í eyði. Reistu saman nýbýli á Hamrafelli en bjuggu á Hlaðhömrum síðustu árin. Og ekki er hún Jóna síðri mannkostamanneskja og mikið hugsaði hún vel um Ólaf í hans heilsuleysi síðustu árin. Dæturnar Guðný og Sigríður Bima bera það líka með sér að vera komnar af kjarnafólki og aldar upp á góðu heimili og kunna að vanda sig við lífið eins og foreldramir. Ekki hefur heldur verið einskisvert að vera afa- barn á Hamrafelli. Nú er hann Ólafur fallinn frá. Fallegu lífi er lokið og þreyttur maður hefur fengið hvíld og ég þakka Ólafi íyrir kynnin og samver- una. Eg held að flestir hafi farið betri menn af hans fundi. Aðstand- endum votta ég samúð og-Jónu bið ég allrar blessunar. Steinunn Marteinsdóttir. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Þetta fallega ljóð segir svo margt og á svo vel við á skilnaðarstundu þegar ástvinir sem skipað hafa stór- an sess í lífi manns eru kvaddir. Og i hjartanu myndast tómarúm, tóma- rúm sem fyllist af minningum um liðna daga, vikur mánuði og ár, af minningum um kynni við góðan dreng, um góðar stundir sem hafa verið gefandi. Þær minningar verða geymdar en ekki gleymdar. Elsku Jóna mín, dætur og fjöl- skylda öll. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Skarðið í ykkar yndis- legu fjölskyldu verður ekki fyllt. Megi ijós lífs og kærleika lýsa ástkærum eiginmanni, elskulegum fóður, tengdafóður og afa á nýjum vettvangi. Við áttum hér saman svo indæla stund, sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund. Það geislar af minningu þinni. (Fr.St frá Grímsstöðum) Júlíana Grímsdóttir. t Mágkona mín og föðursystir okkar, ÓLAFÍA SIGURÐARDÓTTIR, lést miðvikudaginn 24. mars. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu 31. mars kl. 15.00. Sigrún Gísladóttir, Valgerður Hjartardóttir, Ásgeir Hannes Eiríksson, Sigurður Hjartarson, Þórunn Óskarsdóttir, Kristín Hjartardóttir. t Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON bifvélavirki, Dalbraut 21, Reykjavík, áður Laugateigi 9, er lést á sjúkradeild Hrafnistu að kveldi laugar- dagsins 20. mars, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju, mánudaginn 29. mars, kl. 13.30. Blóm og kransar afbeðnir, en þeir sem vildu minnast hans, vinsamlegast láti Styrktarfélag vangefinna njóta þess. Þórdís Guðmundsdóttir, Guðmundur Þórir Guðmundsson, Sigríður Ágústsdóttir, Einar S. Guðmundsson, Ágúst Már Guðmundsson, Þórdís Guðmundsdóttir. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GEIRMUNDUR JÓNSSON fyrrverandi bankastjóri, Hólmagrund 24, Sauðárkróki, sem andaðist á Sjúkrahúsi Skagfirðinga föstu- daginn 12. mars, verður jarðsunginn frá Sauð- árkrókskirkju iaugardaginn 27. mars kl. 14.00. Guðríður Guðjónsdóttir, Erna Geirmundsdóttir, Einar Jóhannsson, Vilhjálmur Geirmundsson, Sveinn Geirmundsson, Anna Pálsdóttir, Jón Geirmundsson, Anna Björk Arnardóttir, Ingvi Geirmundsson, Halla Tulinius, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móðir okkar og dóttir, MÁLFRÍÐUR SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Vesturvangi 24, Hafnarfirði, lést á krabbameinsdeild Landspítalans mið- vikudaginn 24. mars. Birgir Örn Gestsson, Kristjana Ósk Birgisdóttir, Eyrún Ösp Birgisdóttir, Sigurður Freyr Birgisson, Magnea Dís Birgisdóttir, Magnea Gunnarsdóttir, Sigurður Garðar Gunnarsson. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GISSUR JÓNSSON, frá Valadal, lést á Sjúkrahúsi Skagfirðinga miðvikudaginn 24. mars. Fyrir hönd aðstandenda, Valdís Gissurardóttir, Jón Gissurarson, Friðrik Gissurarson, Kristján Gissurarson, Stefán Gissurarson, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. t JÓHANN SALBERG GUÐMUNDSSON hæstaréttarlögmaður, fyrrum sýslumaður og bæjarfógeti, sem andaðist á Landspítalanum föstudaginn 19. mars, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 29. mars kl. 13.30. Sesselía Helga Jónsdóttir og aðstandendur. t Ástkær sonur minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HELGI GUÐMUNDUR INGÓLFSSON sjómaður frá Suðurvöllum, Akranesi, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju mánu- daginn 29. mars kl. 13.30. Soffía Guðmundsdóttir, Guðmundur Helgi Helgason, Vordís Baldursdóttir, Sigurður Helgi Helgason, Rakel Haraldsdóttir, Harpa Helgadóttir, Bogi Kristinsson og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN L. FRANKLÍNSSON, Seftjörn 5, Selfossi, sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands þriöju- daginn 16. mars, verður jarðsunginn frá Sel- fosskirkju laugardaginn 27. mars, kl. 14.00. Sveinborg Jónsdóttir, Helga Jónsdóttir, Gunnar B. Guðmundsson, Andrea Jónsdóttir, Ásrún Jónsdóttir, Ólafur Ragnarsson, Axel Þ. Lárusson, Róslín Jóhannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað verður eftir hádegi í dag vegna jarðarfarar KRISTMUNDAR SÖRLASONAR. Zinkstöðin hf.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.